Dagur - 27.07.1991, Blaðsíða 20

Dagur - 27.07.1991, Blaðsíða 20
Mynd: Golli Daníel og Hilmar hárinu fátækari eftir sigurinn Sigur Pórsara á KR í 8 liða úrslitum Mjólkurbik- arkeppninnar dró dilk á eftir sér fyrir tvo gall- harða áhangendur Þórsara, Daníel Snorrason, rannsóknarlögreglumann, og Hilmar Gíslason, bæjarverkstjóra. Þeir voru efins um að Þór myndi vinna sigur, en hétu því að ef svo færi myndu þeir láta klippa hár sitt snöggt. Eyjólfur Magnússon, hárskeri á hár- snyrtistofunni Artemis, tók þá á orðinu í gær- morgun. Til þess að fylgjast með að allt færi fram eftir settum reglum mættu á staðinn Sigurður Lárusson, þjálfari Þórs og Halldór Áskelsson, leikmaður Þórs. óþh Fjarvinnslustofan Orðtak hf.: Firmaskrá verkeftii Undanúrslit í Mjólkurbikarnum: „Aðalatriðið að fá heimaleik“ stórra fullyrðinga, en eitthvað er að. Mikill sandframburður er úr Kráká í Mývatn og niður Laxá. Sandurinn eyðileggur skjól fyrir seiði og smálax í Laxá og sumir nefna Kísilverksmiðjuna sem bölvald. Ég hef heyrt ýmislegt og tek flest með fyrirvara. Þó er ljóst að ýmis efni svo sem sódi og annað er sett í grunnvatnið. Hraunið er gljúpt og því eiga þessi efni greiðan aðgang út í vatnið. Talað er um að dæla þess- um efnum norður á sandana sem er engin lausn. Já, margt ber að varast þegar lífríkið er annars vegar og sé Kísiliðjan sá bölvald- ur sem sumir vilja halda fram þá verður hún að víkja,“ sagði Vig- fús B. Jónsson. ój vetrarins - flytur í nýtt og rúmbetra húsnæði Fjarvinnslustofan Orðtak hf. á Hvammstanga er um þessar mundir að flytja í stærra hús- næði og verið er að ganga frá samningum við viðskipta- og dómsmálaráðuneyti um vinnslu á flrmaskrá. Orðtak hefur verið í um 30 fer- metra húsnæði frá því það var sett á laggirnar. Húsnæðið sem ljarvinnslustofan flyst nú í er aft- ur á móti um 90 fermetrar og að sögn Steingríms Steindórssonar, framkvæmdastjóra Orðtaks, er mikill munur að komast í stærra húsnæði. Hann segist jafnvel búast við að í haust verði eitt- hvað aukið við tækjakost stof- unnar enda bætast 2-3 starfsmenn við vegna firmaskrárinnar, en allt að fimm manns verða settir í það verkefni. Síðastliðinn vetur gerði Orð- tak hlutafélagaskrá fyrir ríkið, en hefur síðan mest verið í almenn- um umbrotsverkefnum og ætt- fræðiskráningum. Steingrímur segir það því skipta miklu fyrir fjarvinnslustofuna að fá þetta nýja verkefni, þó allt bendi til að höfuðborgarsvæðið sjái um sína firmaskrá sjálft. Hingað til hefur aldrei verið gerð ein heil firmaskrá yfir landið og segist Steingrímur því búast við að verkið taki nokkra mán- uði, en reiknað er með að í fram- tíðinni verði firmaskráin meðal annars inn á gagnaneti. SBG „Ég er mjög ánægður með þetta. Ég hafði hins vegar gert mér vonir um að fá FH-inga hér heima, en aðalatriðið er að fá heimaleik og vinna hann,“ sagði kampakátur þjálfari Þórs á Akureyri, Sigurður Lárus- son, eftir að Ijóst varð að Þór hafði dregist gegn Valsmönn- um á heimavelli í undanúrslit- um Mjólkurbikarkeppninnar í knattspyrnu. í hinum undanúrslitaleiknum dróst Víðir í Garði gegn FH-ing- um og fer sá leikur fram í Garð- inum. Báðir leikirnir verða þann 8. ágúst nk. Þórsarar sækja Keflvíkinga heim í undanúrslitum bikarkeppni kvenna og Valsstúlkur etja kappi við Skagastúlkur á Akranesi þann 14. ágúst nk. óþh Hitaveita Akureyrar: Steftit að jarðboran á Þelamörk Hitaveita Akureyrar og stjórn veitustofnana vinnur að samn- ingagerð vegna áframhaldandi jarðborana við Laugaland á Þelamörk, en áhugi er fyrir að hefja borun í landi Laugalands í haust eða fyrrihluta vetrar. Engar boranir hafa farið fram á þessu ári á vegum Hitaveitu Akureyrar. Franz Árnason, hitaveitu- stjóri, segir að ef endar náist saman í samningagerð fyrir haustið sé vilji fyrir því að hefja jarðboranir í haust. Ekki er beinlínis hægt að kalla það til- raunaboranir, heldur sambland tilrauna- og vinnsluborunar, þ.e. tilraunaholan getur hugsanlega orðið að vinnsluholu ef vel tekst til við Laugaland. Um aðrar til- raunaboranir verður ekki að ræða í ár. „Við slógum málinu á frest því við töfðumst í bili við samnings- gerðina. Þetta eru í rauninni tvíhliða samningar, annars vegar við eigendur Laugalands, Legats- sjóð Jóns Sigurðssonar, og hins vegar við Glæsibæjarhrepp," seg- ir Franz Árnason. EHB Flugslysið í Mývatnssveit: Mótor vélariimar í rannsókn á Akureyri Ekkert liggur enn fyrir um orsakir flugslyssins í Mývatns- sveit sl. flmmtudag þegar TF- TOM, fjögurra sæta vél af Piper gerð frá Akureyri, hrap- aði skömmu eftir flugtak. Sérfræðingar frá Loftferðaeft- irliti og Flugslysanefnd luku rannsókn á slysstað sl. fimmtu- dagskvöld og næst liggur fyrir að rannsaka mótor vélarinnar. Grét- ar Óskarsson hjá Loftferðaeftir- liti sagði í gær að mótorinn yrði færður til Akureyrar þar sem sérfræðingar frá Loftferðaeftirliti og Flugfélagi Norðurlands yfir- færu hann og leituðu skýringa á slysinu. Grétar sagði á þessu stigi ekkert hægt að segja til um orsakir slyssins, en benti á að sjónarvottur hefði sagt að vélin hefði misst vélarafl skömmu eftir flugtak. Eðlilegt væri því að rannsaka mótor vélarinnar mjög gaumgæfilega. Grétar kvaðst ekki búast við að niðurstöður rannsóknar á flugslysinu lægju fyrir fyrr en í fyrsta lagi í september. Líðan Akureyringanna þriggja sem voru um borð í vélinni, Hreiðars Valtýssonar, flug- manns, Gunnars Sigurbjörnsson- ar og Davíðs Rúnars Gunnars- sonar, var eftir atvikum góð í gær. Þeir voru allir á Fjórðungs- sjúkrahúsinu á Akureyri, þar af voru þeir Hreiðar og Gunnar á gjörgæsludeild. óþh Vigfús B. Jónsson á Laxamýri um lélega veiði í Laxá í Aðaldal: „Náttúrulegur“ fiskur skilar sér ekki í Laxá „Fyrir tveimur árum fór ég að merkja mikiar neikvæðar breytingar á lífríkinu við Laxá. Álftin drapst á Laxá tvo vetur í röð. Laxveiðin minnkar ár frá ári þrátt fyrir ræktun og strangt eftirlit með laxaseiðum árinnar,“ sagði Vigfús B. Jónsson, bóndi að Laxamýri í Suður-Þingeyjarsýslu, þegar hann var spurður frétta af lélegri veiði í perlu íslenskra laxveiðiáa. Nú andar suðrið Gert er ráð fyrir hægri suð- austanátt og sumsstaðar smáskúrum eða rigningu á Norðurlandi um helgina. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu íslands verður víða skýjað á Norðurlandi, einkum á annesjum og við ströndina. Hita- stig verður á bilinu tólf til fimmtán gráður. Ekki er gert ráð fyrir langvinnri rigningu um helgina, og inn til landsins verður víða léttskýjað með köflum. EHB Að sögn Vigfúsar hefur lax- veiðin í Laxá glæðst að undan- förnu. Þar kemur til smálax, sem er lax er sleppt hefur verið sem seiðum frá laxeldisstöðinni að Laxamýri. Tumi Tómasson, fiskifræðingur, hefur fylgst með seiðastofninum í Laxá frá ári til árs og í sumar hafa verið tekin hreisturssýni af fjölda fiska. f fyrra kom í ljós að náttúruleg seiði árinnar skiluðu sér illa til sjávar. Orsakir þessa eru taldar miklar leysingar og kuldi árinnar. Mjög kalt var í 'júní sem hafði afgerandi áhrif. í fyrra var ástand sjávar slæmt að mati haffræð- inga. „Ég vil trúa að um eðlilega sveiflu sé að ræða. Bændur við Laxá eru áhyggjufullir og raddir heyrast hér í sveit að Laxá sé skemmd á sama hátt sem Mývatn. Við höfum farið fram á við umhverfisráðuneytið að rann- sóknir á lífríkinu við Mývatn nái til Laxár einnig. Mývatn og Laxá eru eitt og sama vatnasvæðið. Fyrrverandi umhverfisráðherra gaf bændum góðar vonir um rannsóknir við Laxá. Ljóst er að sá lax sem er náttúrulega klakinn og gengur í Laxá gengur upp í þverár Laxár, Mýrarkvísl og Reykjadalsá. Ég er ekki maður

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.