Dagur - 27.07.1991, Blaðsíða 3

Dagur - 27.07.1991, Blaðsíða 3
Fréttir Laugardagur 27. júlí 1991 - DAGUR - 3 Um Svartadauða og svartar golfkúlur - kynni bandaríska golfarans, Gayle Hanson, af Arctic Openmótinu á Jaðarsvelli á Akureyri í bandaríska vikublaðinu Insight, sem út kom sl. mánu- dag, birtist grein eftir golf- skríbentinn Gayle Hanson. Greinin fjallar um miðsumar- mótið á Jaðarsvelli Akureyr- inga, sem nefnt er Arctic Open, vegna þess að golf- völlurinn ku vera sá nyrsti í heimi. Hanson greinir frá kynnum sínum af landi og þjóð á gamansaman hátt. í dálki sínum, Gayle Winds, skýrir Hanson frá þremur bak- sviðsstaðreyndum um ísland áður en hann segir frá mótinu: Á íslandi er mönnum raðað upp í símaskrá eftir skírnarnafni. íslendingar drekka helst brenni- vín sem kallast Svartidauði. Rauði kross íslands er fjármagn- aður með spilakössum út um land allt. Að þessu sögðu ætti það ekki að koma neinum á óvart að fram- lag þessarar norðlægu eyjar til alþjóðaíþrótta er feiknalegt sól- arhringsmót í golfi á nyrsta golf- velli í heimi, 50 km fyrir sunnan heimsskautsbaug. Best er að gleyma að til eru golfflatir sem eru slegnar eins þétt og velrakað- ur hnakki. Starfsheitið „sér- fræðingur í umsjón flatar" virðist ekki hafa neina þýðingu á íslenskri tungu. Heimamenn láta þetta ekki aftra sér frá neinu því þeir láta golfdrauma sína í anda Jack Nicklaus rætast. Þrátt fyrir veðr- áttu landsins, sem væri kjörin fyr- ir snjómanninn, er fimmtándi hver Akureyringur meðlimur í hinum 56 ára gamla golfklúbbi bæjarins. Það er eins og þeim takist að hrekja burtu langar vet- urnætur með því að spila golf af mikilli ástríðu. Þá skiptir það litlu þótt Jaðarsvöllur sé ekki hannaður af Robert Trent Jones sjálfum. Atvinnumaðurinn, David Barnwell, segist viss um að ég hafi aldrei spilað á slíkum velli. En hver er að kvarta? Samansafn alþjóðlegra golfara er of upptek- ið af því að láta tennurnar í sér glamra í kór. Á meðan spila inn- fæddir á skyrtuermunum eins og þeir séu ekki vitund hræddir um að finnast frosnir í miðri sveiflu við 14. holu. Það er eins og þeir viti eitthvað sem ég ekki veit. „Bíddu bara og sjáðu,“ segir Úlf- ar Jónsson á leyndardómsfullan hátt. Bandaríkjamaðurinn Jason McGee er einn af 140 forföllnum golfáhugamönnum sem hingað eru komnir til að bjóða náttúr- unni og par-71 vellinum byrginn. „Ég vildi óska að sólin sýndi sig,“ segir McGee, sem er veður- fræðingur hjá bandaríska flotan- um. Þarna er margt mikilla manna. Þ.ám. er sendiherra Bandaríkj- anna, Charles Cobb. Annar þátt- takandi er bandarísk áhugagolf- kona, Amy Childers, sem hleyp- ur upp kirkjutröppurnar þegar hún er ekki að spila. „Ég verð að halda mér í æfingu," segir hún. Ástralíumaðurinn David Jensen fékk konuna sína með sér til íslands og hún hætti meira að Gljúfurá: Vatni hleypt á laxastiga í Gljúfurá, sem rennur á sýslu- mörkum Austur- og Vestur- Húnavatnssýslna var fyrir viku síöan hleypt vatni á tólf þrepa laxastiga. Stiginn er undir þjóðvegarbrúnni yfir Gljúfurá og á að gera laxinum kleift að ganga upp eftir allri á. Birgir Ingþórsson er einn af leigjendum árinnar og jafnframt einn landeigenda, segir að með tilkomu stigans ætti laxinn að geta gengið óhindrað upp eftir allri ánni sem er um 25 km löng. Síðustu þrjú árin hefur verið sleppt niðurgönguseiðum ofar- lega i Gljúfurá og minni laxaseið- um sl. fimmtán ár. Þessi laxastigi er sá síðasti af þremur sem samið var við leigu- taka að gera, en hinir komust í gagnið á síðasta ári og eru 7 og 10 þrepa. Að sögn Birgis var kostn- aðaráætlun við alla þrjá stigana í kringum 10 milljónir króna, en þeir fá endurgreiddan einn þriðja frá ríkinu. Birgir segist ekki búast við að leyfð verði veiði fyrir ofan stig- ann þetta árið, en í framtíðinni er búist við allt að 300 löxum á land í Gljúfurá yfir sumarið. SBG segja í vinnunni til að komast á golfmótið. „Fyrst sagði ég honum að hann hlyti að vera eitthvað skrítinn. Ég ætlaði sko ekki að standa hér í snjóstormi til að horfa á hann spila,“ segir Linds- ey, kona hans. „Það er svolítið heitara heima,“ segja þau. Þegar litið er á fjallshlíðarnar úr svörtu basalti, sem er ekki nema eina hveragosvegalengd héðan, og blátt ísvatnið sem rennur á milli fagurgrænna árbakka skilur maður hvers vegna ísland er kallað land and- stæðna. Andstæðurnar eru fleiri. Inn- fæddur golfari sýnir okkur svarta golfkúlu. „Litur golfkúlunnar er andstæður miðnætursólinni," segir liann. „Hún fæst hvergi annars staðar í heiminum,“ segir hann. Það er sennilega rétt. Viðskiptin á barnum ganga þó betur en sala á svörtum golfkúl- um. Þar sitja nokkrir sneyptir golfarar og bera sig illa eftir níu holur. „Þið verðið að halda ykk- ur á brautinni," segir Paul White, sem hefur tekið þátt í fimm af sex Arctic Open-mótum Allt í einu kemur David Barn- well á harðahlaupum inn í barinn og hrópar: „Hún er komin, hún er komin. Flýtið ykkur.“ Allir þjóta út og sjá að sjóndeildar- hringurinn er sleginn gullroða. Rauður bjarmi brýst út við útlín- ur fjallatindanna. Eins og Óðinn sjálfur hefði skipað fyrir rís sólin um leið og kirkjuklukkurnar hljóma á miðnætti. Þýtt og endursagt GT Vindheimamelar um verslunarmannahelgi: „Hestamannamót af bestu gerð“ Árlegt hestamannamót hesta- mannafélaganna í Skagafirði fer fram á Vindheimamelum um verslunarmannahelgina samkvæmt venju. Vænst er mikillar þátttöku og fjölda áhorfcnda. Ár hvert er mikið um að vera á Vindheimamelum í Skagafirði um verslunarmannahelgina. Hestamenn frá öllum landshlut- um leggja leið sína í Skagafjörð- inn til að fylgjast með þeirri dagskrá sem hestamannafélögin í Skagafirði bjóða upp á. Mörgum hestamanninum finnst sem sumarið sé ónýtt með öllu ef hann kemst ekki í Skagafjörðinn á hestamannamót. Margir telja að vagga hestamennskunnar sé í Skagafirði og þaðan komi bestu hestarnir. Hestapólitíkin er grimm og hvert byggðarlag hampar sínu, en því verður ekki neitað að Skagfirðingum hefur orðið vel ágengt í ræktun hrossa og ár hvert kemur fram á Vind- heimamótinu fjöldi gæðinga sem gleðja augu áhorfenda. Skagfirð- ingar geta verið stoltir af hestum sínum, aðstöðu allri fyrir hross og menn á Vindheimamelum og framkvæmd þeirra móta sem haldin eru þar. Á föstudaginn 2. ágúst verður héraðssýning kynbótahrossa, en á laugardeginum kl. 9,00 hefst gæðingakeppni. Keppt er í A- og B-flokki gæðinga hvar taka þátt hestamannafélögin í Skagafirði, hestamannafélögin í Ólafsfirði, Siglufirði og Húnavatnssýslunum báðum. Barna og unglingakeppni verður einnig háð. Á laugardag- inn hefst keppni í fjölmörgum hestaíþróttagreinum. Keppnin er opin sem þýðir að keppendur koma víða að t.d. hafa Eyfirðing- ar og knapar af Stór-Reykjavík- ursvæðinu verið meðal keppenda ár hvert. Kappreiðar setja sterk- an svip á mótið samkvæmt venju. Glæsileg peningaverðlaun eru í boði og keppt er í 150 og 250 metra skeiði, 300 metra brokki og 300 metra stökki. Ekki er efnt til ungfolahlaups í ár. Á sunnudeginum fara fram úrslit í öllum greinum og flokkum. Keppnin verður örugg- lega spennandi samkvæmt venju. Skráning í keppnisgreinar fer fram 29. og 30. júlí og Magnús Lárusson að Hólum í Hjaltadal annast þá hlið mála í síma 95- 36587. Mótshaldarar að Vind- heimamelum hvetja allt hesta- áluigafólk til að koma í Skaga- fjörðinn og eiga góða verslun- armannahelgi með norðlenskum hestamönnum. ój BEIIM LÍIMA BAIMKA OG SPARISJODA UM LAIMO ALLT Vertu í beinu sambandi við Þjónustusímann og þú veist alltaf hvar þú stendur I91IBZ 44 44 ÞJÖJMUSTU

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.