Dagur - 27.07.1991, Síða 5
Laugardagur 27. júlí 1991 - DAGUR - 5
Knattspyrnuþankar:
KA og Þór leika þýðingar
mikla leiki 1. ágúst nk.
10 umferðir hafa nú verið
ieiknar í 1., 2. og 3. deild og
línur nokkuð farnar að skýrast
með það hvaða lið koma til
með að berjast um sigur og
hvaða lið þurfa að bíta í það
súra epli að falla.
I Samskipadeildinni hefur KR
eins stig forskot á Fram en ólíkt
glæsilegri markamismun eða 17
mörk á móti 5 hjá Fram. Vest-
mannaeyingar og Breiðablik eru
ekki langt undan með 16 stig og
gætu blandað sér í baráttuna en
til þess verða þau að vinna leiki
sína við Fram og KR. Leikur KR
og Fram fer fram 8. september í
Frostaskjóli og gæti orðið hreinn
úrslitaleikur um íslandsmeistara-
titilinn.Önnur lið en þessi fjögur
blanda sér væntanlega ekki í slag-
inn um meistaratitilinn en Víðir
virðist þegar á leið í 2. deild með
aðeins tvö stig eftir tvö jafntefli
og óhagstæðan markamismun um
19 mörk. KA er í bullandi fall-
hættu, eru í 9. sæti með 10 stig
tveimur stigum á eftir Stjörn-
unni. KA liðið hefur aðeins unn-
ið tvo heimaleiki og verður að
vinna þá 4 heimaleiki sem eftir
eru og leikinn við Stjörnuna í
Garðabæ 1. ágúst n.k. til að losna
örugglega við falldrauginn. KA
hefur aðeins skorað 8 mörk í
deildinni sem skiptist milli 7
leikmanna þannig að marka-
kóngur félagsins Pavel Vandas
hefur aðeins skorað 2 mörk! Til
samanburðar má geta þess að hjá
FH hafa aðeins fjórir leikmenn
skorað 12 mörk félagsins þar af
hefur Hörðúr Magnússon gert
sjö. Sami fjöldi leikmanna hefur
skorað mörk Víðis en þau eru
reyndar ekki nema átta. KR stát-
ar af flestum markaskorurum
eða 10 en KR-ingar hafa skorað
22 mörk í sumar, 5 mörkum fleira
en Vestmannaeyingar sem koma
næstir. Það er bjargföst trú undir-
ritaðs að KR verði íslandsmeist-
ari eftir 23 ára hlé en FH fylgi
Víði niður í aðra deild.
Þórsarar eru í 2. sæti 2. deildar
með 22 stig, tveimur stigum á eft-
ir Skagamönnum. Næstir þeim að
stigum eru Keflvíkingar með 18
stig og síðan Þróttur með 15 stig.
Þór leikur nk. mánudag við
Hauka sem eru í næst neðsta sæti
deildarinnar og ættu að vinna
þann leik en síðan leika þeir við
Skagamenn á Akranesi 1. ágúst
og Keflvíkinga í Keflavík 9.
ágúst. Þessir leikir hafa gífurlega
þýðingu varðandi stöðu félagsins
í baráttunni um sæti í 1. deild að
ári. Vinnist þeir eru Þórsarar
með þægilega stöðu á toppi deild-
arinnar en tap þýddi hins vegar
að framundan væri mikil barátta.
Sex leikmenn hafa skorað 25
mörk Þórs og markahæstur er
Halldór Áskelsson með 9 mörk
og jafnframt markahæstur leik-
manna 2. deildar. Staða Tinda-
stóls og Hauka er orðinn ansi
dökk, félögin hafa aðeins 4 og 5
stig og eru 6 stigum á eftir næsta
liði, Selfossi. Markamismunurinn
er líka óhagstæður um 27 mörk,
en markamismunur Þórs er hag-
stæður um 11 mörk, Skagamanna
um 25 mörk og Keflvíkinga um
13 mörk. Líklegast er að Akra-
nes og Þór endurheimti sæti sitt í
fyrstu deild og Tindastóll og
Haukar falli í 3. deild. Upp úr 3.
deild koma nokkuð örugglega
Leiftur og með þeim gæti annað
norðlenskt lið komið, Dalvík,
sem hefur komið nokkuð á á
óvart í sumar. Dalvíkingar hafa
hins vegar aðeins þriggja stiga
forskot á Skallagrím og ísafjörð
og fjögur stig á ÍK og eiga eftir.að
leika við Skallagrím og ÍK á úti-
KA-menn hafa átt erfitt uppdráttar í sumar og ekki má gleyma því að gæfan
hefur ekki verið þeirra megin í nokkrum leikjum. Einn af úrslitaleikjum um
fall í aðra deild verður í Garðabænum 1. ágúst nk. þegar KA-menn sækja
Stjörnumenn heim.
Kvikmyndarýni
Marta, María og heilög ritning
Borgarbíó sýnir: Málum bjargað
(Taking Care Of Business).
Leikstjóri: Arthur Hiller.
Aðalhlutverk: Jaines Belushi og
Charles Grodin.
Holiywood Pictures.
Málum bjargaðer upphituð kvik-
myndalumma eða ætti ég kannski
frekar að segja upphitaður bíó-
mjólkurgrautur - því eins og allir
vita batnar mjólkurgrautur við
hverja suðu. Élsta lumman í Mál-
um bjargað og jafnframt ein sú
vinsælasta í Hollywood er ættuð
úr heilagri ritningu. Þar segir frá
tveimur systrum, Mörtu og
Maríu. Marta stritar á meðan
María liggur í leti og hlýðir á
frelsarann. Marta kvartar og
Jesús svarar: „Marta, Marta, þú
ert áhyggjufull og mæðist í
mörgu...“ Marta bíóaldarinnar
er skipulagði gaurinn sem hyggur
á frama í viðskiptalífinu, aílt
hans innra og ytra líf er fínpúss-
að, fötin strokin og hárið slétt-
greitt. María er hins vegar lífs-
glaði fírinn sem lifir fyrir daginn í
dag, líðandi stund, og gefur skít í
rígskorðað líferni og hátternis-
reglur samkvæmislífsins sem
honum finnast kámugar ef ekki
eitthvað ennþá verra. Og rétt
eins og Drottinn stóð við bakið á
Maríu forðum hefur Hollywood
tekið eindregna afstöðu með bíó-
Maríu. Þessa geldur Charles
Grodin en James Belushi nýtur
góðs af.
Annað kunnuglegt stef í Mál-
um bjargaðer hlutverkatónninn.
Belushi er fangi á flótta sem fyrir
einskæra tilviljun leridir í því að
verða tekinn fyrir annan mann,
nefnilega Charles Mörtu Grodin.
Það tekur þá tvo töluverðan tíma
að ná saman enda gerir leikstjór-
inn töluverðar gælur við sein-
heppna náungann; allt gengur á
afturfótunum fyrir Grodin þar til
loks að hann nær fundum Belushi
og þá tekur félagstefið við - þið
munið hann Kára; ber er hver að
baki og svo framvegis. Inn í þetta
fléttast kvennamál og þar eru
leiknar gamalkunnar nótur þegar
misskilningur hleðst á misskiln-
ing ofan.
En allar þessar gömlu lummur
eru vel bakaðar, myndin verður
að vísu kunnugleg en það er létt
yfir henni og ekki hin minnsta
viðbrennslulykt.
Borgarbíó sýnir: Samsæri þagnarinnar
(Blood Oath).
I.ciksfjóri: Stephcn Wallacc.
Aðalhlutverk: Brian Brown,
George Takei og Terry O’Quinn.
Sovcreign Pictures 1990.
Völd og auður fara oft saman við
forréttindi. Samsæri þagnarinnar
er meðal annars um þessa stað-
reynd. Bryan Brown leikur
ástralskan saksóknara sem hefur
fengið það hlutverk að sækja mál
á hendur meintum japönskum
stríðsglæpamönnum er gætt hafa
stríðsfangabúða á afskekktri
eyju. Vitað er að í kringum 1100
Astralar voru hafðir í haldi á eyj-
unni en aðeins 300 þeirra lifðu
vistina af. Árið 1945 er ekki liðið
þegar málareksturinn hefst.
Múgurinn heimtar blóð og yfir-
völd ætla sér að uppfylla þær
óskir. Hins vegar stendur svo á
að yfirmaður búðanna hefur
einnig verið áhrifamaður í
japönsku samfélagi, hann er af
aðalsættum og Bandaríkjamenn
telja hann geta komið að notum
við að vinna friðinn. Samsæri
þagnarinnar segir frá því hvernig
honum er skotið undan armi rétt-
vísinnar, hvernig undirmenn
hans beygja sig fyrir hefðum og
lúta svo lágt í hollustu sinni við
aðalstignina að leyfa honum
hvaða lýgi sem er án þess að opna
munninn sjálfir til að segja sann-
leikann. Samsærí þagnarinnar
lýsir vel kaldrifjuðu hagkvæmnis-
hugarfari manna er telja sig fyrir
ofan lög og rétt vegna björgunar-
starfa sinna í þágu heimsins.
Þetta er áhrifamikil mynd um
neyð þess er verður að hlýða
skipunum jafnvel þó þær gangi
þvert á allt er sá hinn sami telur
rétt og guði þóknanlegt.
Samsæri þagnarinnar
Þórsarar taka á inúti Haukum nk. mánudag, en sá leikur sem flestir bíða eft-
ir er fimmtudaginn 1. ágúst þegar Þór og Skagainenn leiða sanian hesta sína
á Skaganum. Hér er um toppbaráttu að ræða og víst er að bæði liö leggja allt
undir.
velli. Líklega gera Dalvíkingar
og Borgnesingar út um það hvort
liðið fylgir Leiftri í 2. deild í leik
liðanna 31. ágúst. Á botni 3.
deildar eru Siglfirðingar, Þróttur
N. og Magni en hvert þeirra
sleppur við fall ræðst líklega ekki
fyrr en í síðustu umferðinni 7.
september nk.
Leikmenn 2. deildar hafa verið
iðnastir við að skora mörk í sum-
ar eða alls 184, 154 mörk hafa
verið skoruð í 3. deild og 140 í 1.
deild. Meðalskor á leik í 2. deild
er 3,68 mörk, 3,42 mörk í 3. deild
en 2,80 mörk í 1. deild. I 1. deiid
eru það aðeins Víðismenn sem
ekki hafa unnið leik, Haukar og
Fylkir hafa ekki enn unnið
heimaleik í 2. deild og Tindastóll
ekki útileik og í 3. deildinni hafa
Siglfirðingar og Þróttur ekki unn-
ið heimaleik og ísfirðingar úti-
leik. Aðeins tvö lið eru án jafn-
teflisleikja í sumar, Víkingar í 1.
deild og Skagamenn í 2. deild en
í fyrra enduðu 7 leikir Víkinga í
1. deild með jafntefli. GG
Vökvalokar og tengi
MW5TRAUMRÁ5 s.f
Furuvöllum 1 sími 26988
Þar sem þjónustan er í fyrirrúmi.
Vistheimili
Félagsmálastofnun Hafnarfjaröar óskar eftir góöu
vistheimili á Akureyri eöa nágrenni, fyrir tvær systur
á unglingsaldri.
Upplýsingar gefa yfirfélagsráögjafi, aðstoðarfélags-
málastjóri og félagsmálastjóri alla virka morgna
kl. 10-12, í síma: 91-53444.
Félagsmálastjórinn í Hafnarfirði.
Veiðimenn!
Veiöileyfi í Fjaröará í Ólafsfirði eru til sölu hjá Sigríði
Steinsdóttur, Gunnólfsgötu 16, Ólafsfiröi. Sími: 96-
61246.
Veiðifélag Ólafsfjarðarár.