Dagur - 27.07.1991, Síða 9
Ferðamál
Hótel Jórvík á Þórshöfn:
Laugardagur 27. júlí 1991 - DAGUR - 9
Stefán Sæmundsson
„Alltaf gaman að taka á móti gestum“
- segir Guðbjörg Guðmannsdóttir, hótelstjóri
Guðbjörg Guðmannsdóttir
hefur nú rekið Hótel Jórvík á
Þórshöfn í áratug, jafnt sumar
sem vetur, og hafa ferðamenn
löngum fundið þar gott heim-
ili. Á hótelinu eru 7 herbergi
en nágrannar Guðbjargar hafa
hlaupið undir bagga ef ekki
hefur verið rými fyrir alia sem
gista vildu hótelið. Umferð út
á Langanesið er alltaf að auk-
ast enda er það kjörinn staöur
fyrir þá sem vilja komast í
óspjallað náttúruríki.
„Við höfum það alvcg stórfínt
eins og vanalega hérna á Langa-
nesinu,“ sagði Guðbjörg hótel-
stjóri þegar Dagur ræddi við
hana sl. þriðjudag. „Það er alltaf
eitthvað af gestum og í nótt var
hér heil rúta af fólki sem ætlaði
að skoða fuglalífið á Langanesi."
- Varstu ekki í vandræðum
með að hýsa allt fólkið?
„Nei, nei, við vinnum svo vel
saman hér á Þórshöfn og vinveitt-
ar konur bjarga mér ef ég er í
vandræðum. Núna var ég svo
heppin að fá tvö einbýlishús rétt
við hótelið þannig að þetta bjarg-
ast alltaf. Við hefðum þó enn
sem komið er lítið að gera með
stórt hótel hérna, það er það
fáfarið.“
- Já, það er stundum sagt að
Melrakkasléttan og Langanesið
séu einfaldlega ekki merkt inn á
kort ferðamanna.
„Mér finnst þetta alveg mátu-
leg umferð. Það er gott að fá frí
öðru hverju en ég hef líka óskap-
lega gaman af því að taka á móti
gestum. Fámennt en góðmennt
er jafnvel það besta. Straumur-
inn er svipaður og í fyrra en
ásóknin út á nes er alltaf að auk-
ast því fólk hefur afskaplega
gaman af því að virða fyrir sér
óspjallað náttúruríkið. í síðustu
viku var fólk hjá mér sem fór út á
nesið og það var alveg himinlif-
andi yfir því að hafa séð ref, fyrir
utan alla fuglana. Þetta var topp-
urinn á ferðalaginu hjá þessum
útlendingum."
„Þetta er svo gott
samfélag“
Hótel Jórvík er ekki aðeins
sumarhótel því Guðbjörg hefur
það opið allan ársins hring. Hún
sagði að yfir vetrarmánuðina væri
hótelið eini gististaðurinn á leið-
inni milli Húsavíkur og Vopna-
fjarðar og aðstaðan hefði. mælst
vel fyrir hjá viðgerðarflokkum,
sölumönnum og öðrum senr væru
á ferðinni.
„Ef að ég hefði ekki opið væri
hvergi hægt að komast inn á allri
þessari leið. Fólk er alltaf á ferð-
inni og aðsóknin yfir veturinn er
jafnvel fullt eins mikil og á
sumrin," sagði Guðbjörg.
Gestir á Hótel Jórvík þurfa
ekki að óttast hungurvofuna því
Guðbjörg hefur yndi af matseld
og býr til ágætan mat og bakar
fyrir gesti sína. En finnst henni
ekki erfitt að standa ein í hótel-
rekstri og matseld?
„Öðru nær. Nágrannakonurn-
ar eru alltaf tilbúnar að hjálpa
mér. Þetta er svo gott samfélag
hérna, allt eins og bræður og
systur. Alveg frá því ég kom
hingað fyrst hafa Þórshafnarbúar
verið fúsir til að rétta mér hjálp-
arhönd, enda sérstaklega hjálp-
samt og elskulegt fólk,“ sagði
Guðbjörg að lokum. SS
Tjaldstæðið á Egilsstöðum:
Ný upplýsinga- og
þjónustumiðstöð
- mikil uppbygging á vegum
Kaupfélags
Egilsstaðakaupstaður er vin-
sæll viðkomustaður ferða-
manna, enda eru margar
skemmtilegar náttúruperlur í
grennd við Egilsstaði. Þaðan
er stutt í Hallormsstaðaskóg
með hinni rómuðu Atlavík og
Héraðsbúar hafa sjaldan þurft
að kvarta yfir veðrinu. Frá
Egilsstöðum liggja vegir til
allra átta og upplagt fyrir þá
sem þar dvelja að skreppa til
nágrannasveitarfélaga og kem-
ur þá Borgarfjörður eystri fyrst
upp í huga margra.
Á Egilsstöðum og í nágrenni
kaupstaðarins er boðið upp á
fjölbreytta gistiaðstöðu; má þar
nefna Hótel Valaskjálf, Hótel
Eddu í Hallormsstað og á Eið-
um, gistiheimili, ferðaþjónustu
bænda, orlofsbúðir og tjaldstæði.
Nýlega var tekið í notkun nýtt
og glæsilegt hús við tjaldstæði
Kaupfélags Héraðsbúa á Egils-
stöðum og er þetta viðbygging
við hús sem byggt var á þessu
Héraðsbúa
svæði fyrir nokkrum árum. í nýja
húsinu er umferðarmiðstöð og
upplýsingamiðstöð og þar er boð-
ið upp á þjónustu fyrir tjaldgesti
og ferðamenn.
Uppbygging tjaldstæðisins hef-
ur staðið yfir undanfarin ár og er
aðstaða þar nú öll hin besta. í
nýj11 byggingunni eru böð og
snyrtingar, þvottavél og aðstaða
fyrir starfsfólk svo og salur sem
bæði nýtist sem biðsalur og setu-
stofa fyrir gesti á tjaldstæðinu.
Óvíða er boðið upp á betri
aðstöðu fyrir tjaldbúa hér á landi
því auk þjónustumiðstöðvarinnar
má nefna að gróður á svæðinu
veitir gott skjól og gleður augað.
Tjaldstæðið á Egilsstöðum er
rekið af Kaupfélagi Héraðsbúa,
sem hefur að mestu kostað alla
uppbygginguna á svæðinu. Tjald-
gestum hefur fjölgað stöðugt í
takt við bætta aðstöðu og um
þessar mundir er verið að vinna
að því að auka þjónustu við þá
ferðamenn sem koma á húsbílum
eða eru með húsvagna. SS
Hótel Jórvík er notalegur staður með heimilislegu andrúmslofti. „Aukaherbergin“ eru dálítið sérstök því þegar
hótelið er yfírfullt hafa nágrannarnir hlaupið undir bagga og lánað húsakynni sín. Mymi: ehb
Mývatnssveit:
„Meira um hópferðir núna“
- segir Jón Illugason hjá Eldá hf. í Reykjahlíð
Mývatnssveit er einn vinsælasti
ferðamannastaöur landsins og
í Reykjahlíð er ferðaþjónustan
mikilvæg atvinnugrein. Það
sem af er sumri hefur verið
þokkalega góð aðsókn en
greinilegar breytingar í þá átt
að nú er meira um skipulagðar
hópferðir en fólk á eigin
vegum. Við heyrðum hljóðið í
Jóni Illugasyni, framkvæmda-
stjóra Eldár hf. í Reykjahlíð.
„Það er erfitt að gera sér grein
fyrir fjöldanum en umferðin er
áltyggilega öðruvísi en í fyrra-
sumar. Mönnum ber saman um
að erlendir ferðamenn séu miklu
meira í hópferðum núna, þar er
greinileg fjölgun, en hins vegar er
minna um túrista sem ferðast á
eigin vegum. Það kemur m.a.
fram í samdrætti í skoðunarferð-
um sem byggja á þessari „lausa-
traffík" en hér hefur verið geysi-
lega mikið af hópferðabílum,“
sagði Jón.
Á vegum Eldár hf. er boðið
upp á fjölbreytta kosti í ferða-
þjónustu. Fyrirtækið býður upp á
skoðunarferðir og eru dagsferðir
tvenns konar, annars vegar í
kringum Mývatn og upp að
Kröflu og Leirhnjúk og hins veg-
ar Dettifoss-hringferð þrisvar í
viku þar sem farið er um Húsa-
vík, Tjörnes og upp með Jökulsá
að vestan. Þá eru ferðir milli
Húsavíkur og Mývatnssveitar í
tengslum við flug Flugleiða sex
daga í viku, en Eldá er með
umboð fyrir Flugleiðir og
Mýflug.
Eldá er einnig með hestaleigu
og bátaleigu. Starfsfólkið annast
líka afgreiðslu fyrir tjaldstæði við
vatnið á vegum ferðaþjónustu
bænda á Bjargi og tekur við
bókunum í heimagistingu. Þá er
minjagripasala í tengslum við
afgreiðsluna.
Veðrið hefur mikið að segja í
ferðaþjónustunni og sagði Jón að
sumarið hefði verið gott að því
leyti þegar á heildina væri litið
þótt veðrið hefði vissulega verið
köflótt.
„Hægar breytingar á veðri hafa
verið einkennandi í sumar, bæði
langir hlýinda- og kuldakaflar.
Þetta leit vel út í lok maí en síðan
kom kuldakafli í byrjun júní sem
hafði töluverð áhrif og var júní-
mánuður í heild lélegri f ferða-
þjónustunni en í fyrra. Núna í
júlí hefur umferðin hins vegar
verið þokkaleg," sagði Jón. SS
Ferðafélag Akureyrar:
Herðubreiðarlindir og
Askja um næstu helgi
Sumarleyfísferð Ferðafélags
Akureyrar er nú að baki en
ekki er úr vegi að líta á þær
ferðir sem framundan eru. Um
verslunarmannahelgina, 2.-5.
ágúst, er stefnan tekin á
Herðubreiðarlindir, Öskju og
Kverkfjöll. Þetta er sívinsæl
ferð á undurfagrar slóðir.
Næsta ferð á ferðaáætlun
Ferðafélags Akureyrar er 8.-11.
ágúst. Brúaröræfi og Snæfell
verða þá í sigtinu. Síðan verður
öku- og gönguferð að Þeista-
reykjum 24.-25. ágúst og dagana
31. ágúst og 1. september eru
Hljóðakiettar og Hólmatungur á
dagskrá. Fyrir þá sem þess óska
verður gengið úr Hólmatungum í
Vesturdal.
Síðustu ferðirnar í prentaðri
áætlun Ferðafélags Akureyrar
eru Ingólfsskáli í Laugafelli 7.-8.
september og gönguferð í Þor-
valdsdal 14. september. Allar
nánari upplýsingar má fá á skrif-
stofu félagsins.
Þá má geta þess að hjá Ferða-
félagi Skagfirðinga eru tvær ferð-
ir á dagskrá í ágúst, fjölskyldu-
dagur að Hólum 11. ágúst og
gönguferð í Austurdal 24.-25.
ágúst. SS