Dagur - 27.07.1991, Qupperneq 16
16 - DAGUR - Laugardagur 27. júlí 1991
Dagskrá FJÖLMIÐLA
Sjónvarpið
Laugardagur 27. júlí
16.00 íþróttaþátturinn.
16.00 íslenska knattspyrn-
an - Bikarkeppnin.
17.00 Meistaramót íslands í
sundi.
17.50 Úrslit dagsins.
18.00 Alfreð önd (41).
18.25 Kasper og vinir hans
(14).
18.50 Táknmálsfréttir.
18.55 Lífríki á suðurhveli (12).
19.30 Háskaslóðir (18).
20.00 Fróttir og veður.
20.35 Lottó.
20.40 Skálkar á skólabekk
(16).
(Parker Lewis Can't Lose.)
21.05 Fólkið í landinu.
Enginn smá-Patti.
Einar Örn Stefánsson ræðir
við Patrek Jóhannesson
handknattleiksgarp.
21.25 Árósar um nótt.
(Árhus by night).
Dönsk bíómynd frá 1989.
Ungur kvikmyndagerðar-
maður kemur til heimabæjar
síns, Árósa, til að leikstýra
bíómynd, en það gengur
ekki áfallalaust fyrir sig.
Aðalhlutverk: Tom
McEwan, Michael Carö,
Vibeke Borberg og Ghita
Nörby.
23.05 Töfrar.
(Magic).
Bandarísk spennumynd frá
1978, byggð á sögu eftir
William Goldman um búktal-
ara sem á í erfiðleikum og
tekur er á líður meira mark á
brúðu sinni en góðu hófi
gegnir.
Aðalhlutverk: Anthony
Hopkins, Ann-Margret og
Burgess Meredith.
00.45 Útvarpsfróttir í dag-
skrárlok.
Sjónvarpið
Sunnudagur 28. júlí
17.50 Sunnudagshugvekja.
Flytjandi er Ragnar Tómas-
son lögfræðingur.
18.00 Sólargeislar (13).
18.25 Heimshomið.
Heimkoman.
(Várldsmagasinet - Áter-
komsten).
Barnaþáttur þar sem segi frá
mannlífi á mismunandi stöð-
um á jörðinni. Þessi þáttur er
frá Chile.
18.55 Táknmálsfréttir.
19.00 Snæköngulóin (4).
Lokaþáttur.
(Snow Spider).
19.30 Böm og búskapur (11).
Lokaþáttur.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Sunnudagssyrpa.
Örn Ingi á ferð um Norður-
land. Hann heilsar upp á
bílasafnara í Köldukinn, sem
á eina skriðdrekann í land-
inu, og hlýðir á lífsreynslu-
sögu skólastjóra á Þórshöfn.
Þá forvitnast hann um borð-
tennisvakninguna miklu á
Grenivík og heimsækir loks
Sauðkræking sem smíðar
fiðlur úr íslensku birki.
21.00 Synir og dætur (8).
(Sons and Daughters).
21.55 Þrumugnýr.
(The Ray Bradbury Theatre:
Sound of Thunder).
Kanadísk mynd byggð á
smásögu eftir Ray Bradbury.
Auðugur veiðimaður leigir
sér ferð milljónir ára aftur í
tímann og hyggst leggja að
velli stærstu skepnur sem
lifað hafa á jörðinni.
22.20 Hljómsveitin.
(Orchestra).
Óvenjuleg frönsk sjónvarps-
mynd með nýstárlegri túlk-
un á þekktri tónlist, m.a.
með látbragðsleik og dansi.
23.20 Útvarpsfréttir í dag-
skrárlok.
Sjónvarpið
Mánudagur 29. júlí
17.50 Töfraglugginn (12).
18.20 Sögur frá Narníu III (1).
18.50 Táknmálsfréttir.
18.55 Á mörkunum (8).
19.20 Fírug og feit (4).
19.50 Jóki Björn.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Simpson-fjölskyldan
(29).
(The Simpsons).
20.55 Æðarveldi í Þernuvík.
Stutt mynd um æðarvarp og
þá erfiðleika sem fylgja því
að fást við æðaruppeldi.
Rætt er við tvenn hjón sem
fást við slíkt, þau Konráð
Eggertsson og Önnu Guð-
mundsdóttur frá ísafirði og
Guðmund Jakobsson og
Guðfinnu Magnúsdóttur frá
Bolungarvík.
21.00 íþróttahornið.
Fjallað um íþróttaviðburði
helgarinnar.
21.25 Nöfnin okkar (12).
Þáttaröð um íslensk manna-
nöfn, merkingu þeirra og
uppruna. í þessum þætti
fjallar Gísli Jónson um nafn-
ið Bjami.
21.30 Melba (6).
Sjötti þáttur af átta í
áströlskum framhalds-
myndaflokki um ævi óperu-
söngkonunnar Nellie Melba.
22.25 Úr viðjum vanans (5).
(Beyond the Groove).
Sir Harold Blandford heldur
áfram ferð sinni um Banda-
rikin og heilsar upp á tónlist-
armenn af ýmsu tagi.
23.00 Ellefufréttir og
dagskrárlok.
Stöð 2
Laugardagur 27. júlí
09.00 Börn eru besta fólk.
10.30 í sumarbúðum.
10.55 Barnadraumar.
11.05 Ævintýrakastalinn.
11.35 Geimriddarar.
12.00 Á framandi slóðum.
(Rediscovery of the World).
Athyglisverður þáttur þar
sem framandi staðir eru
heimsóttir.
12.50 Á grænni grund.
12.55 Æðisgenginn eltinga-
leikur.
(Hot Pursuit).
Það er ekki alltaf tekið út
með sældinni að vera í skóla.
Dan Bartlett hlakkar mikið
til að eyða sumarfríi sínu í
Karíbahafinu ásamt vinkonu
sinni og fjölskyldu hennar.
Það eina, sem er í veginum,
var seinasta prófið sem
hann á eftir í efnafræði.
Hann fellur og er þá sumar-
fríið fyrir bí, að hann heldur,
en efnafræðikennarinn gefur
honum tækifæri þar sem
hann ætlar að fara með vin-
konu sinni. Dan tekur næstu
flugvél og lendir í ýmsum
ævintýrum. Þetta er létt
gamanmynd fyrir alla fjöl-
skylduna.
Aðalhlutverk: John Cusack,
Wendy Gazelle og Monte
Markham.
14.25 Nijinsky.
Einstæð mynd um einn
besta ballettdansara allra
tíma, Nijinsky, sem var á
hátindi ferils síns í byrjun
tuttugustu aldarinnar.
Aðalhlutverk: Alan Bates,
Leslie Brown og George De
La Pena.
16.25 Sjónaukinn.
Endurtekinn þáttur þar sem
Helga Guðrún rifjar upp
þorskastríðið sem við áttum
við Breta.
17.00 Falcon Crest.
18.00 Heyrðu!
18.30 Bílasport.
19.19 19:19.
20.00 Morðgáta.
20.50 Fyndnar fjölskyldu-
myndir.
21.20 Feluleikur.#
(Trapped).
Röð tilviljanakenndra atvika
hagar því þannig að ung
kona, ásamt einkaritaranum
sínum, lokast inni á vinnu-
stað sínum sem er 63 hæða
nýbygging. Eitthvað virðist
hafa farið úrskeiðis hjá
öryggisgæslu hússins og
ljóst að einhver hefur átt við
þjófavarnakerfið. En þær eru
ekki einar í byggingunni og
hefst nú eltingarleikur upp á
líf og dauða.
Aðalhlutverk: Kathleen
Quinlan, Katy Boyer og
Bruce Abbott.
22.50 Blues-bræður.#
(Blues Brothers).
Frábær grínmynd sem að
enginn ætti að missa af.
Toppleikarar og frábær
tónlist.
Aðalhlutverk: John Belushi
og Dan Aykroyd.
00.50 Varúlfurinn.#
(The Legend of the
Werwolf).
Foreldrar ungs drengs eru
drepin af úlfum. Úlfarnir
taka að sér strákinn og ala
hann upp. Dag nokkurn er
hann særður af veiðimanni
sem hyggst nýta sér dýrs-
legt útlit drengsins. Hann
fer með barnið til þprpsins
þar sem drengurinn er til
sýnis gegn gjaldi. Þegar
úlfseinkennin eldast af
drengnum virðist hann
ósköp venjulegur ungur
maður. En ekki er allt sem
sýnist og fólk má vara sig
því úlfseðlið er til staðar.
Aðalhlutverk: Peter
Cushing, Ron Moody, Hugh
Griffith og Roy Castle.
Stranglega bönnuð
börnum.
02.20 Páskafrí.
(Spring Break).
Sprellfjörug mynd um tvo
menntskælingja sem fara til
Flórída í leyfí. Fyrir mistök
lenda þeir í herbergi með
tveimur kvennagullum sem
taka þá upp á sína arma og
sýna þeim hvernig eigi að
bera sig að.
Aðalhlutvek: David Knell,
Perry Lang, Paul Land og
Steve Bassett.
Stranglega bönnuð
bömum.
03.50 Dagskrárlok.
Stöð 2
Sunnudagur 28. júlí
09.00 Morgunperlur.
09.45 Pétur Pan.
10.10 Skjaldbökurnar.
10.35 Kaldir krakkar.
11.00 Maggý.
11.25 Allir fyrir einn.
(All For One).
Sjötti þáttur af átta.
12.00 Heyrðu!
Endurtekinn þáttur frá í gær.
12.50 Don Giovanni.
Don Giovanni er ein af
þekktari óperum Mozarts en
hún segir frá samnefndu
kvennagulli, sem leikur ást-
konur smar grátt. Margt
góðra söngvara kemur fram í
sýningunni þ.á.m. Kiri Ti
Kanawa, Ruggero Raimondi,
Teresa Berganza, John
Macurdy og Malcolm King
ásamt hljómsveit óperunnar
í París undir stjóm Loren
Maazel.
15.40 Leikur á strönd.
Næstsíðasti þáttur.
16.30 Gillette sportpakkinn.
17.00 Sonny Rollins.
(Saxophone Colossus).
í þessum þætti verður rætt
við Sonny Rollins en hann er
talinn einn snjallasti tenór
saxafónleikari fyrr og síðar.
18.00 Richard Nixon.
Seinni hluti heimildarmynd-
ar um Nixon fyrmm forseta
Bandaríkjanna.
19.19 19:19.
20.00 Stuttmynd.
(Discovery Program).
Athyglisverð stuttmynd.
20.25 Pavarotti í viðtali.
Næstkomandi þriðjudags-
kvöld verður bein útsending
frá tónleikum Pavarotti í
Hyde Park. í tilefni þess sýn-
ir Stöð 2 skemmtilegt spjall
við þennan stórsöngvara um
tónlistarferil hans, áhuga-
mál og auðvitað tónleikana í
Hyde Park sem em eins og
áður sagði, á dagskrá næst-
komandi þriðjudagskvöld kl.
18.00 í beinni útsendingu.
20.50 Lagakrókar
(L.A. Law).
21.40 Aspel og félagar.
22.20 Herréttarhöldin.#
(The Caine Mutiny Court-
Martial).
Ungur sjóliðsforingi er sótt-
ur til saka þegar að upp
kemst að hann hafi stýrt
herskipinu USS Caine í
óveðri.
Aðalhlutverk: Brad Davis,
Eric Bogosian og Jeff
Daniels.
00.00 Leynilögreglu-
mæðginin.
(Detective Sadie and Son).
Sadie er á fimmtugsaldri og
hefur unnið á lögreglustöð í
Tóndæmi
Spói sprettur
Frumútgáfa Geisla. Standandi frá vinstri: Erlingur Óskarsson, Hermann
Sveinbjörnsson og Sigurður Þorgeirsson. Friðrik Bjarnason krýpur fyrir
framan félaga sína.
Geislar í ýmsum myndum
Við hóldum okkur enn um sinn
við bítlatímabilið. Ein vinsælasta
hljómsveitin sem kom frá Akur-
eyri á þessum árum var Geislar.
Hljómsveitin var líklega stofnuð
1965 og fyrsta kastiö skipuðu
hana þeir Erlingur Óskarsson
(bæjarfógeti á Siglufirði), Her-
mann okkar Sveinbjörnsson
(fyrrum ritstjóri Dags), Sigurður
Þorgeirsson (Ijósmyndari í París)
og Friðrik Bjarnason (málara-
meistari).
Geislar helltu sér strax út í
hringiðu ballmenningarinnar sem
blómstraði á þessum árum. Þeir
störfuðu í breyttri mynd 1966-68.
Forsprakkinn og gítarleikarinn
Sigurður Þorgeirsson var enn til
staðar en nýju meðlimirnir voru
Páll bróðir Sigurðar sem tók við
trommunum af Hermanni, Árni
Viðar Friðriksson gítarleikari og
bræðurnir Grímur bassaleikari
og Freysteinn söngvari Sigurðs-
synir. Þeir eru nú allir hættir í
bransanum nema Grímur sem
spilar með Hljómsveit Ingimars
Eydal.
Áfram hóldu Geislar spila-
mennskunni og var leikið fyrir
dansi um hverja helgi og stund-
um í miðri viku. Hljómsveitin spil-
aði mest á Akureyri og á sveita-
böllum um allt Norðurland. En
Geislar hösluðu sér líka völl í
höfuðborginni, t.d. í Glaumbæ,
þar sem þeir spiluðu annars veg-
ar með Dúmbó og hins vegar
Hljómum. Prógrammið spannaði
tónlist vinsældarlistanna, frum-
samið efni var ekki í tísku þá, en
óhætt er að segja að Geislar hafi
notið mikilla vinsælda fyrir flutn-
ing sinn á erlendum slögurum.
Stundum voru reyndar gerðir
íslenskir textar við lögin.
Þessi útgáfa af Geislum
sprakk í loft upp um áramótin
1968/69 og bræðurnir Sigurðs-
synir og Árni Viðar stofnuðu
Flakkara, hljómsveit sem við
kynnum síðar. Sigurður og Páll
héldu áfram undir nafninu Geisl-
ar og fengu nýja liðsmenn. Þeir
léku m.a. inn á fræga plötu,
Skuldir, og gott ef titillagið var
ekki endurútgefið á plötu Bítla-
vinafélagsins fyrir nokkrum
árum. SS
Gamla myndin
M3-926 Ljósmynd: Hallgrímur Einarsson og synir/Minjasafnið á Akureyri.
Hver kannast
við fólkið?
Ef lesendur Dags telja sig
þekkja fólkið á myndinni hér
eru þeir vinsamlegast beðnir
að koma þeim upplýsingum á
framfæri við Minjasafnið á
Akureyri (pósthólf 341, 602
Akureyri) eða hringja í síma
24162.
Hausateikningin er til að
auðvelda lesendum að merkja
við það fólk sem það ber
kennsl á. Þótt þið kannist
aðeins við örfáa á myndinni
eru allar upplýsingar vel
þegnar. SS