Dagur - 26.10.1991, Síða 2
2 - DAGUR - Laugardagur 26. október 1991
Fréttir
Hlað hf. á Húsavík:
Um það bil ársverk
við skotfæraframleiðslu
7- T 1 • " f
IJBm ÁWKtmk, \
—'jnn
Búseta á Húsavík var afhent fjögurra íbúöa raðhús nýlega. Það var Fjalar hf. sem annaðist byggingu hússins, sem
er fullfrágengið með frágenginni lóð. Þetta er í fyrsta sinn sem Búseti byggir raðhús, en félagið byggði fimm íbúðir
í ijölbýlishúsi við Grundargarð og keypti og gerði upp fjórar íbúðir í fjölbýlishúsi við Garðarsbraut. Mynd: IM
Meðferðarheimili fyrir þroskahefta á Siglufirði:
Allar líkur á að rfldð
i kostnað á næsta ári
greiði
- „sjálfsögð réttindi fólks úti á landi,“
segir bæjarstiórinn á Siglufirði
Hlað hf. á Húsavík er flutt í eig-
ið húsnæði að Árgötu 14. Hlað
framleiðir skotfæri og selur
byssur og ýmsan búnað til
skotveiða. Eigendur fyrir-
tækisins eru fimm og starfa
fjórir þeirra við framleiðsluna,
að vísu allir í aukavinnu og
telja þeir að alls sé þarna um
eitt ársverk að ræða í heildina.
Rúnar Þorsteinsson var á vakt
er Dagur spurði frétta af starf-
semi fyrirtækisins. Sagði hann að
töluvert hefði verið að gera hjá
fyrirtækinu í haust, og að gæsa-
vertíðin hefði komið betur út en
hún hefði gert áður. Bæði hefði
Dalvík:
Kosið í jafn-
réttísnefnd
Á fundi bæjarstjórnar Dalvík-
ur sl. mánudag voru kjörnir
fulltrúar í jafnréttisnefnd
bæjarins, en hún hefur ekki
starfað til þessa.
Aðalmenn voru kjörnir Viðar
Valdimarsson, Svanfríður Jónas-
dóttir og Svanhildur Árnadóttir.
Til vara Guðbjörn Gíslason,
Þröstur Haraldsson og Trausti
Þorsteinsson. óþh
Sögulegir atburðir endurtóku
sig í Skagafirði um síðustu
helgi. Áftur sló í brýnu að
Örlygsstöðum, Grettir gekk að
nýju á land á Reykjaströndinni
og mótmælendur gerðu aðför
að kaþólikkum að Hólum í
Hjaltadal. Þrátt fyrir frækilega
framgöngu vopnfærra manna
sluppu þó allir þátttakendur
við meiðsl.
Verðlagsráð:
Fijáls verðlagn-
íng á sfld og
loðnutilbræðslu
Á fundi Verðlagsráðs sjávarút-
vegsins í vikunni varð sam-
komulag um að gefa frjálsa
verðlagningu á síld og síldar-
úrgangi til bræðslu á síldar-
vertíð frá 1. október sl. til
loka vertíðarinnar.
Ennfremur varð samkomulag
um að gefa frjálsa verðlagningu á
loðnu til bræðslu á haust- og
vetrarloðnuvertíð 1991-92.
Launavísitalan:
0,1% hækkun
Hagstofan hefur reiknað
launavísitölu fyrir október-
mánuð 1991, miðað við meðal-
laun í september sl. Er vísital-
an 129,3 stig eða 0,1% hærri
en í fyrra mánuði.
Samsvarandi launavísitala sem
gildir við útreikning greiðslu-
marks fasteignaveðlána, tekur
sömu hækkun og er því 2.828 stig
í nóvmeber 1991.
verið meiri sala á skotum og
byssum.
„Rjúpnavertíðin fór vel af stað
og við seljum enn mikið af
skotum. Miðað við það sem við
seljum einstaklingum hér virðist
vera farið dálítið mikið til
rjúpna. Menn virðast ánægðir
með skotin frá okkur, því ef þeir
prufa þau þá koma þeir aftur og
kaupa meira. Verðið er í lægri
kantinum og miðað við gæði held
ég að skotin séu mjög ódýr, og
við gefum verulegan magn-
afslátt," sagði Rúnar. Hann sagði
að þó væri ekki gott að gera sér
grein fyrir hve rjúpnaveiðin væri
mikið stunduð, þó skotin seldust
vel þýddi það ekki að þau væru
öll notuð jafnóðum. Einnig seldu
þeir félagar mikið af framleiðsiu
sinni til verslana og fylgdust ekki
með hvernig sala þeirra skota
gengi.
Rúnar sagði að rjúpan væri
stygg og misjafnt hvernig rjúpna-
skyttum gengi við veiðarnar.
Hann var tregur til að nefna
dæmi um veiðisögur, sagði að
menn hefðu fengið frá engri eða
einni og upp í sæmilegan slatta.
Hæsta talan sem hann hafði heyrt
um dagsveiði í haust var 42
stykki, sem Mývetningur einn
hefði skotið. Hann sagðist einnig
vita að Jónas Hallgrímsson væri
búinn ''ð fá 100 fyrir nokkru, þó
hann hefði ekki stundað veiðarn-
ar fyrstu dagana. IM
Þarna var á ferðinni um tuttugu
manna hópur frá Fjölbrauta-
skólanum í Garðabæ sem situr
bókmennta- og söguáfanga í
skólanum, bæði kennarar og
nemendur. Að sögn Ingva Þor-
kelssonar, kennara, er í þessum
áfanga stundum farið á sögu-
fræga staði og atburðirnir lífgaðir
við og að þessu sinni varð Skaga-
fjörður fyrir valinu.
„Þessi ferð tókst alveg hreint
frábærlega, en við þræddum
sögustaðina og lékum jafnvel
atburðina, auk þess sem fyrir-
lestrar voru haldnir. Allt var
þetta svo tekið upp á myndband
sem verður klippt til og sýnt í
skólanum," segir Ingvi sem fylgdi
Að beiðni Benedikts Lárus-
sonar, formanns Leikfélaga-
sambands Norðurlands, hefur
Leikfélag Akureyrar undirbú-
ið námskeið og samveru fyrir
leiklistarfólk á Norðurlandi á
morgun, laugardaginn 26. októ-
ber.
Að sögn Signýjar Pálsdóttur,
leikhússtjóra, verður boðið upp á
fjögur námskeið og kennarar eru
allir fastráðnir leikarar hjá Leik-
félagi Akureyrar. Námskeið
verða haldin í leikritun, fram-
sögn og tækni og lýkur þeim með
uppákomu á leiksviðinu um
miðjan dag. Þá verður aðalfund-
ur Leikfélagasambandsins hald-
inn og að loknum sameiginlegum
málsverði fara námskeiðsgestir á
sýninguna Stálblóm.
Björn Valdimarsson, bæjar-
stjóri á Siglufírði, segir
ánægjulegt að fengist hafi 2,2
milljóna króna framlag inn í
nemendum um Skagafjörð ásamt
Bjarka Bjarnasyni kennara.
Jörundur Áki Sveinsson, sem
er einn þeirra er sitja þennan
áfanga í Fjölbraut í Garðabæ,
sagði í samtali við Dag í gær að
ferðin hefði verið alveg meiri-
háttar og allir skemmt sér kon-
unglega. Sérstaklega hrósaði
hann matseldinni í mötuneyti
Fjölbrautaskóla Norðurlands
vestra, en hópurinn hafði aðsetur
í FNVÁS. Hann sagði að stefnan
væri að komast í fleiri svona
ferðir, enda hefðu kennararnir
farið á kostum í þessari og menn
væru bara rétt að ná sér niður eft-
ir þessa upplifun. SBG
Þegar hafa á fimmta tug áhuga-
manna frá leikfélögum á
Norðurlandi skráð sig á nám-
skeiðin. Umsjónarmaður og
skipuleggjandi er Signý Pálsdótt-
ir. SS
Fjórir sóttu um starf veitu-
stjóra í Ólafsfirði, tveir Ólafs-
firðingar, einn Reyðfirðingur
og einn Reykvíkingur.
Umsækjendur eru Einar Þór-
arinsson, Ólafsfirði, Gísli Kristins-
son, Ólafsfirði, Jóhann P. Hall-
dórsson, Reyðarfirði, og Haukur
fjárlagafrumvarpið fyrir næsta
ár til reksturs meðferðarheim-
ilis og dagvistar fyrir þroska-
hefta á Siglufirði. Siglufjarðar-
bær hefur tvö undanfarin ár
kostað rekstur heimilisins, en
lögum samkvæmt ber ríkinu að
greiða þennan kostnað. Á síð-
asta ári nam þessi kostnaður
um 3 milljónum króna.
Þetta mál var rætt við Jóhönnu
Sigurðardóttur, félagsmálaráð-
herra, þegar hún kom til Siglu-
fjarðar fyrr í haust og segir Björn
að hún hafi tekið mjög vel í mála-
leitan Siglfirðinga og árangurinn
hafi orðið sá að gert sé ráð fyrir
2,2 milljónum króna frá ríkinu til
„Áherslan í heimilisfræðum er
alltaf mikil á matargerð og nú
erum við byrjuð að kenna á
örbylgjuofninn. Umhverfis-
þátturinn tengist þessu námi
einnig nokkuð og farið er í
hvaða efni eru skaðleg og því
um líkt. Annars er heimilis-
fræði námsgrein sem ekki er
sinnt sem skyldi í mörgum
skólum landsins,“ segir Aðal-
björg Ingvarsdóttir, fagstjóri í
heimilisfræði á Norðurlandi
vestra.
Að sögn Aðalbjargar er heim-
ilisfræði kennd í öllum grunn-
skólum í Húnavatnssýslum, en
H. Guðmundsson, Reykjavík.
Veitustjórn kemur saman til
fundar í næstu viku og mun þá
væntanlega gera tillögu til bæjar-
ráðs um einn umsækjenda í veitu-
stjórastarfið.
Olgeir Gottliebsson er fráfar-
andi veitustjóri í Ólafsfirði. óþh
meðferðarheimilisins á næsta ári.
Að sögn Björns Valdimarsson-
ar er heimilið rekið á svipuðum
nótum og dagvistun fyrir fatlaða
annars staðar. Þar eru börn og
njóta þau leiðsagnar bæði
þroskaþjálfa og sjúkraþjálfara.
Björn segir að út af fyrir sig væri
hægt að senda þau börn, sem
þurfa á mestri umönnun að
halda, suður til Reykjavíkur. Það
væri hins vegar vera dýrara fyrir
þjóðfélagið heldur en að halda
úti meðferðarheimili og dagvist
fyrir þessi börn heima á Siglu-
firði. „Auk þess eru það sjálfsögð
réttindi fólks úti á landi að geta
veitt þessa þjónustu heima í hér-
aði,“ sagði Björn. óþh
nokkra skóla í Skagafirði.
„Aðstaðan fyrir þessa kennslu
er misjöfn. Sumstaðar þarf að
kenna í mötuneytiseldhúsum, en
sjálfsagt er þetta eitt af því sem
kemur til með að batna í framtíð-
inni.“
Aðalbjörg segir að krakkarnir
séu mjög áhugasöm um þessi
fræði og ekki síður strákar en
stelpur og sérstaklega þykir þeim
gaman að baka.
Við grunnskólann á Blöndu-
ósi, þar sem Aðalbjörg kennir
heimilisfræði, var í haust byrjað á
stuðningskennslu í faginu fyrir
sérkennslunemendur.
„Þessir nemendur eru ekki á
eftir í heimilisfræðináminu, en
þar sem þessi námsgrein hentar
mjög vel til að þroska hug og
hönd, þá er talið jákvætt að auka
við tíma í henni, í stað þess að
láta þau glíma við eitthvað sem
þeim gengur illa með. Annars er
heimilisfræði mjög mikilvæg
námsgrein í skólum, því allir
verða að geta hugsað um sig sjálf-
ir og í dag er nauðsynlegt að
kunna að velja til að geta lifað
heilbrigðu lífi,“ segir Aðalbjörg
Ingvarsdóttir. SBG
Sögulegir atburðir í Skagafirði:
Örlygsstaðabardagi endurlífgaður
Leikfélag Akureyrar:
Leiklistamámskeið
fyrir áhugaleikara
Ólafsijörður:
Fjórir sækja um veitustjórann
Heimilisfræði í grunnskólum:
„Ekki sinnt sem skyldi“
- segir fagstjórinn á Norðurlandi vestra
enn vantar þessa námsgrein inn í