Dagur - 26.10.1991, Blaðsíða 7
Laugardagur 26. október 1991 - DAGUR - 7
Fréttir
Fj árlagafrumvarpið:
Um 70% niðurskurður á framlagi til Neytendasamtakaima
í frumvarpi til fjárlaga næsta
árs er framlag til Neytenda-
samtakanna skorið niður um
70%, úr fimm milljónum í eina
og hálfa milljón króna. Að
sögn Jóhannesar Gunnarsson-
ar, formanns samtakanna,
þýðir þessi niðurskurður á bil-
inu 10 til 15% iækkun á heild-
artekjum þeirra og sé þessi
ráðstöfun óskiljanleg í Ijósi
þeirra ummæla ráðamanna að
undanförnu um að efla beri
neytendastarf í landinu. Með
því að skerða framlög til Neyt-
endasamtakanna á þennan
hátt jafnframt áætlunum um
að draga úr starfsemi Verð-
lagsstofnunar sé verið að
höggva í tvígang í sama farveg
og kvaðst Jóhannes ekki vilja
trúa öðru en að um mistök við
fjárlagagerðina sé að ræða,
sem leiðrétt verði þegar frum-
varpið verður afgreitt sem lög
frá Alþingi.
Jóhannes Gunnarsson sagði að
það neytendastarf sem innt sé af
hendi hér á landi í dag miðist við
algjöra lágmarksþjónustu. Af
þeim sökum standi Neytenda-
samtökin nú frammi fyrir því á
hvaða starfsvettvangi þau eigi að
skera niður. Ef þessi niðurskurð-
ur á fjárframlagi verði að veru-
leika þá verði annaðhvort að
draga úr kvörtunar- og leiðbein-
ingaþjónustunni, sem sé mjög
slæmt mál eða gera breytingar á
starfi nýráðsins hagfræðings, er
nú vinni að athugun á banka- og
tryggingastarfsemi. Jóhannes
sagði ennfremur að nú væri unnið
Nýtt skóverkstæði á Húsavík:
Vona að ég fái nóg að gera
- segir Elín skósmiður
Ung kona, Elín Þórhallsdóttir,
opnaði í síðustu viku skóverk-
stæði á Húsavík, en slíkt fyrir-
tæki hefur ekki verið starfandi
þar um margra ára skeið.
Verkstæðið er til húsa að Héð-
isbraut 3, pínulitlu húsi norðan
við Hlöðufell. Elín hefur inn-
réttað verstæðið sitt einstak-
lega skemmtilega, eða „töff“.
í afgreiðslunni er nýtt bárujárn
á einum veggnum, í hvað rekn-
ir eru sex tommu naglar í snaga
stað, og skapar þessi innrétting
magnað umhverfi.
Elín er með sveinspróf sem
skósmiður, en hvernig datt ungri
stúlku í hug að læra þessa iðn?
„Ég ætlaði að læra einhverja
handiðn og það var eitthvað við
þetta sem heillaði mig, en ég veit
ekki af hverju. Það erþó mikið af
leðurvinnu í þessu starfi og ég er
mjög hrifin af leðri. Mér hefur
verið tekið alveg ótrúlega vel, og
þú sérð blómahafið í kring um
mig. Ég var hreinlega með tárin í
augunum á laugardaginn þegar
fólk streymdi hingað með heilla-
óskir.“
- Borgar sig að láta gera við
skó í dag?
„Það fer eftir því hvernig
skórnir eru. Ef þú kaupir Kína-
skó á 500 kall þá ferð þú ekkert
að láta gera við þá, en ef þú vilt
ganga í góðum og vönduðum
skóm, sem þú getur notað árum
saman, þá borgar viðgerðin sig.
Svo fer það eftir hvers eðlis við-
gerðin er, það borgar sig að láta
gera við gat og að skipta um
hæla. Það er ekki dýrt að láta
gera við skó, miðað við hvað allt
kostar.“
- Gerir þú við fleira en skó?
„Ég geri við allt sem ég sé mér
fært að gera við, föt, öll belti,
byssubelti, tjöld, segl, áklæði,
töskur. Ég vona að ég fái nóg að
gera.“
Elín er með ýmsa smávöru til-
heyrandi skófatnaði til sölu, og
hún sýnir blaðamanni vetrarbún-
aðinn til að halda fólkinu stöðugu
á svellunum. Haglega hannaður
útbúnaður á hjörum, gaddar í
svellið sem síðan má smella fram
fyrir hælinn þegar gengið er í
hús.
Bárujárnsveggurinn dregur að
sér athygli og Elín segir að sig
hafi í mörg ár dreymt um að nota
bárujárn sem innanhússklæðn-
ingu, það sé líka ódýrara en
spónaplötur. Að vísu hefði faðir
sinn strítt sér og sagt að þegar
hann kæmi inn, þá finndist hon-
um hann strax kominn út aftur.
Þess má geta Ella er fædd og
uppalin á Húsavík, en syndir á
móti straumnuin norður í land að
námi sínu loknu, og setur upp
fyrirtæki, á þeim tíma sem svo
margir eru bölsýnir á búsetu á
landsbyggðinni. Vonandi taka
Þingeyingar unga skósmiðnum
sínum vel og beina viðskiptum til
hans. Litla verkstæðið hennar
Ellu er bjartur punktur í uppgjafa-
umræðunni. IM
að því að koma á fót ráðgjafa-
starfsemi á vegum samtakanna,
sem ætlað sé að leiðbeina fólki
varðandi heimilisrekstur og ná
skipulagi á heimilisfjármálunum.
Mjög miður væri ef hætta yrði við
þau áform.
Jóhannes kvað þessar niður-
skurðarhugmyndir koma mjög
undarlega fyrir sjónir bæði vegna
þess að stjórnmálamenn hafa lagt
áherslu á að auka þurfi vægi neyt-
endamála og einnig vegna þess
að við stöndum frammi fyrir sam-
komulagi um Evrópskt efnahags-
svæði. „Ef við verðum aðilar að
vaxandi samvinnu innan Evrópu
mun það þýða aukið vöruflæði til
landsins, aukna samkeppni og í
raun meiri þörf fyrir öflugt neyt-
endastarf." Jóhannes benti á að
þessi rök hefðu meðal annars
verið notuð í Evrópu um að ekki
megi draga saman í neytenda-
starfi þó verið sé að reyna að
lækka útgjöld ríkja. Við það
mætti bæta að í þessum ríkjum sé
nú þegar mjög öflugt neytenda-
starf fyrir hendi. Hér hafi þetta
starf aðeins verið að eflast á allra
síðustu árum en þurfi að aukast
talsvert mikið meira. Niður-
skurður á fjárframlagi til neyt-
endamála og samdráttur í starf-
semi Verðlagsstofnunar þýði
samdrátt í upplýsingamiðlun,
sem sé mjög slæmt á tímum auk-
ins vöruflæðis og harðnandi sam-
keppni. Jóhannes benti á að ef
þessi niðurskurður verði að veru-
leika auk þess að fyrirhugaður
samdráttur í starfi Verðlagsstofn-
unar komi til framkvæmda þýði
það að um 15 krónum verði varið
til verðlags- og neytendamála á
hvern íbúa á íslandi á ári á með-
an Norðurlandaþjóðirnar Ieggi
fram ígildi um 100 króna í sama
tilgangi. ÞI
V V V w w
VEITINGAHUSIÐ
Glerár-
götu 20
Sími
26690
Gildir laugardagskvöld og
sunnudagskvöld
Veislueldhús
Greifans
Menu
Rœkjuhanastél með Chantillysósu.
Reyktar svínakótelettur með rauðvínssósu og
sykurgljáðum kartöflum.
Ostaterta með ferskum ávöxtum.
1.790.-
Frí heimsendingarþjónusta á pizzum
föstudags- og laugardagskvöld til kl. 04.30.
▲ A A A A
EVR0PSKT
EFNAHAGSSVÆÐI
orðið að veruleika
Jón Baldvin
Hannibalsson
utanríkisráðherra
boðar til almenns
borgarafundar í
Alþýðuhúsinu Akureyri,
sunnudaginn 27. október
kl. 14.00,
þar sem hann mun kynna
samninginn um
EVRÓPSKA
EFNAHAGSSVÆÐIÐ
Allir velkomnir!
Utanríkisráðuneytið