Dagur - 26.10.1991, Blaðsíða 18
18 - DAGUR - Laugardagur 26. október 1991
Akureyri:
Námsmey úr leikklúbbi YMA i hlutverki betlikerlingar í Göngugötunni.
Peningarnir sem söfnuðustu runnu að sjálfsögðu til NOD-verkefnisins.
Skiptinemar í vinnu á rannsóknastöð Kjötiðnaðarstöðvar KEA.
Framhaldsskólanemar komu
Nemendur VMA settu upp bílaþvottastöð á NOD-deginum og runnu 50-60
bílar Ijúflega í gegn.
Einbeittur drengur úr trésmíðadeild
VMA með hamarinn á lofti.
Nemendur úr MA unnu á vegum
Garðyrkjudeildar bæjarins við að
hreinsa illgresi úr húsasundum í
Miðbænum. Myndir: Golli
VÍH i/ió HRRFNRGIH
í Vín
Glæsilegt
kaffihlaðborð
um helgina
Nýkomin pottablóm á
ótrúlega góðu verði
Tvær stúlkur úr VMA þrífa gang-
stéttina framan við Bautann.
Nemendur VMA buðu dvalargest-
um á Hlíð upp á rúnt um bæinn og
kaffi á eftir á kaffistofu sem sett var
upp í skólanum af þessu tilefni.
Velkomin í Vín
Sími
31333
víða við í „Norrænu dagsverki“
Nemendur Menntaskólans og
Verkmenntaskólans á Akur-
eyri komu víða við á Norræn-
um starfsdegi á fímmtudaginn.
Um 15 manns störfuðu hjá
Vegagerðinni við að hreinsa
vegarstæðið við Leiruveginn.
Um 30 manns störfuðu á veg-
um Akureyrarbæjar og 12
voru að störfum fyrir Búnaðar-
bankann. Samherji réð 10
manns í vinnu við að flytja
fískkassa á milli geymslustaða
og 10 manns störfuðu hjá Raf-
veitu Akureyrar. Veitingahús-
ið Greifínn lokaði staðnum í
tilefni dagsins og réð 10
nemendur til sín í hreingern-
Mcnntaskólinn á Akureyri réð nokkra nemendur sína til að taka til í kola-
kjallara skólans. Hér bera tveir fílefidir nemendur MA vænan kolamola út
úr kjallaranum.
Háþrýstilokar
STRAUMRÁS s.f
Furuvöllum 1 sími 26988
Þar sem þjónustan er í fyrirrúmi.
ingarvinnu. Nokkur hópur
nemenda úr Menntaskólanum
vann við gróðursetningu og
nemendur Verkmenntaskólans
starfræktu bónstöð fyrir bfla í
húsnæði skólans á Eyrarlands-
holti. Síðdegis á fímmtudag
höfðu um 40 bflar verið bónað-
ir og nokkur biðröð var enn
fyrir utan. Um 60 nemendur
störfuðu við bónstöðina.
Pá buðu nemendur Verk-
menntaskólans íbúum á dvalar-
heimilinu Hlíð að njóta ökuferð-
ar í góðviðrinu á fimmtudaginn
og að þiggja kaffiveitingar á eftir
á kaffistofu sem starfrækt var í
skólanum í tilefni dagsins gegn
300 króna greiðslu sem rann til
söfnuninnar. Um 20 eldri borgar-
ar notfærðu sér þessa þjónustu.
Pá seldu nemendur skólanna
merki til styrktar söfnuninni og
voru meðlimir leiklistarfélags
Verkmenntaskólans á ferð um
miðbæ Akureyrar búnir sem
beiningamenn af því tilefni. Mik-
ið var um að einstaklingar réðu
til sín starfskraft í einn dag til
þess að sinna ýmsum verkefnum
á heimilum sínum eins og glugga-
þvotti, hreingerningum og til-
tekt.
Undirtektir forsvarsmanna
fyrirtækja og einstaklinga við
söfnunarátakið voru mjög góðar
en þó hefði, að sögn forsvars-
manna hjá Nemendafélagi Verk-
menntaskólans, verið unnt að ná
til fleiri fyrirtækja ef „Norrænt
dagsverk“ hefði verið kynnt
betur. Fram kom í Degi í gær að
800 manns hafi tekið þátt í starfs-
deginum. Þar var aðeins átt við
nemendur Verkmenntaskólans
en auk þess tóku um 500
nemendur úr MA þátt í þessu
starfi og lætur því nærri að 1300
hafi iagt hönd á plóginn í ein-
hverri mynd. ÞI