Dagur - 26.10.1991, Qupperneq 19
Laugardagur 26. október 1991 - DAGUR - 19
Popp
Magnús Geir Guðmundsson
Söngvari The Pogues látinn hætta
Shane MacGowan hættur í The Pogues.
Þær fregnir hafa nú borist úr her-
búðum þjóðlagarokkhljómsveit-
arinnar þekktu The Pogues, að
söngvari hennar, lagasmiður og
stofnandi, Shane MacGowan,
hafi verið látinn hætta. Mun brott-
reksturinn vera kominn til aðal-
lega vegna mikillar drykkju
söngvarans, en sú iðja hans hefur
staðið lengi og truflað starfsemi
hljómsveitarinnar.
í stað MacGowans hefur Pogues
fengið til liðs við sig Joe
Strummer, fyrrum meðlim The
Clash, sem hefur verið vinur
hljómsveitarmeðlima Pogues um
langt skeið og spilað með henni
áður auk þess að vera upptöku-
stjóri á síðustu plötunni Hells
Ditch. Mun hann auk þess að
syngja spila á gítar með
hljómsveitinni.
Svo nánar sé vikið að brottrekstri
MacGowans, þá mun dropinn
sem fyllti mælinn hafa verið sá,
að söngvarinn lenti í slysi, sem
rekja má til ofdrykkju hans, á
tónleikaferðalagi um Japan í
byrjun september. (Var þetta
ferðalag um Japan hluti af
tónleikaferð Pogues um víða
veröld, en nú þegar þetta birtist
mun sveitin vera í Bandaríkjun-
um væntanlega með Strummer
innanborðs.) Atti slysið sér stað
með þeim hætti að MacGowan
féll út úr rútu sem var að flytja
hljómsveitina frá brautarstöð til
hótels á einum tónleikastaðnum.
Lenti hann á höfðinu og
hlaut töluverðann áverka sem olli
Hitt og þetta
The Ramones
Pönk/nýbylgjuhljómsveitin The
Ramones hefur reynst lífseig og
náð að standa af sér allar tísku-
sveiflur í sautján ár. Eru plötur
hljómsveitarinnar komnar á ann-
an tuginn, en síðast sendi hún
frá sér plötuna Brain Drain í fyrra.
Af henni varð lagið Pet senatary
vinsælt, en það er einnig að finna
í samnefndri kvikmynd. Er nú
komin út tónleikaplata með
Ramones, sem er sú önnur frá
hendi hljómsveitarinnar. Heitir
hún Loco Live og geymir hvorki
fleiri né færri en 33 lög. Var plat-
an tekin upp á tónleikum, sem
haldnir voru í Barcelona á Spáni
fyrr á þessu ári og má segja að
hún sé þverskurður af ferli
Ramones. Meðal laga má nefna,
I wanna live, I wanna be
sedated, Pet senetary, Sheena
is a punk rocker og Rock and roll
high school.
Nýja platan frá Bono og félögum í
U2 á leiðinni.
U2
Fyrsta nýmetið frá U2 f ein þrjú
ár leit dagsins Ijós á mánudaginn
var þegar smáskífan með laginu
The fly kom formlega út. Er The
fly undanfari nýju plötunnar
Achtungbaby, sem kemur út nú í
nóvember og verður þegar allt er
talið níunda plata hljómsveitar-
innar. Er ekki laust við að mikillar
spennu gæti hjá tónlistarunnend-
um með hvernig gripurinn muni
hljóma, en ef marka má The fly
er áreiðanlega von á góðu, eða
svo heyrist umsjónarmanni að
minnsta kosti, hvað svo sem
verður.
Gaia
Nafnið Baia, sem merkir Móðir
jörð, ætti að vera flestum kunn-
ugt eftir að víkingaskipið sem
bar þetta nafn sigldi frá Noregi til
Bandaríkjanna með viðkomu hér
á landi m.a. í tengslum við þessa
sjóferð, sem var sameiginlegt
verkefni íslendinga og Norð-
manna til kynningar á Leifi
heppna, hafa Steinar ráðist ( að
gefa út tónlist sem Valgeir
Guðjónsson hefur samið, útsett og
hljóðritað um ferðina í samvinnu
við Eyþór Gunnarsson. Er um að
ræða tónlist án söngs og er
útgáfan einungis á geisladiski.
Auk þeirra Valgeirs og Eyþórs
koma við sögu margir íslenskir
og norskir tónlistarmenn ásamt
söngkonu frá Grænlandi og
ásláttarleikara frá Brasilíu.
Fyrrum söngvari MC5 allur
Rob Tyner, stofnandi og söngvari
hinnar frægu bandarísku rokk-
hljómsveitar MC5, lést nýlega úr
hjartaslagi 46 ára að aldri. Datt
Tyner niður nálægt heimili sínu
er hann hafði lagt bifreið sinni og
var hann látinn þegar að var
komið. Fylgir það fréttinni að ekki
hafi verið um óeðlilega orsök fyrir
slaginu að ræða, þ.e. að áfengi
eða eiturlyf hafi ekki komið við
sögu. MC5 náði mikilli hylli með
tveimur fyrstu plötum sínum,
Kick out the jams og Back in the
USA, og þykja þær (dag hafa verió
miklir áhrifavaldar í mótun
þungarokks og pönks ( Banda-
ríkjunum. Þótt MC5 væri hætt
fyrir löngu þá var Tyner fram í
andlátið virkur í tónlist og starf-
rækti eigin hljómsveit, sem sendi
frá sér plötuna Blood brother í
fyrra.
Erasure
Breska popphljómsveitin vinsæla
Erasure með þúsundþjalasmiðinn
Vince Clark í broddi fylkingar
(hann var eitt sinn höfuðpaur í
Human League og síðar í Yazoo
með Alison Moyet) sendir frá sér
sína nýjustu plötu í nóvember.
Kallast hún Chorus og er fyrsta
plata Erasure í tvö ár, en á und-
an kom platan Wild.
Happy Mondays búin að senda frá
sér tónleikaplötu og eru með nýtt
lag í burðarliðnum.
Happy Mondays
Nýbylgjurokksaðdáendur eru
glaðir þessa dagana, því eftir
nokkra töf er nú tónleikaplata
Manchestersveitarinnar Happy
Mondays, Happy Mondays - The
live LP, komin út fyrir nokkru.
Inniheldurplatan, sem ertvöföld,
14 lög, en geisladiskurinn aðeins
13. (Sniðugt) fór upptakan fram á
tónleikum, sem hljómsveitin hélt
á Elland Road fótboltavellinum í
Leeds í júní síðastliðnum. Nú er
svo Happy Mondays komin í
hljóðver að taka upp nýtt lag,
sem koma á út nú í byrjun
nóvember.
því að ekkert varð af
tónleikunum.
Þremur dögum seinna tilkynntu
svo hinir meðlimir Pogues
honum það að nú væri nóg
komið og að þeir vildu að hann
hætti. Mun MacGowan að eigin
sögn hafa tekið þessu karlmann-
,lega og segir viðskilnaðinn vera
án sárinda. Hefur drykkjan eins
og áður segir verið mikil hjá
MacGowan gegnum tíðina og
hafa ýmis veikindi fylgt henni
sem hafa skapað vandræði.
T.a.m. missti hann úr viku af
tónleikaferð Pogues með Bob
Dylan árið 1989. Af þessu hafa
nú hinir Pogues meðlimirnir sem
sagt fengið nóg.
Þótt málin hafi farið á þennan
veg, þá fylgir það sögunni að
e.t.v. hefði þessu getað verið
öfugt farið þ.e. að MacGowan
hefði að eigin frumkvæði sagt
skilið við Pogues. Hann mun
nefnilega hafa verið óánægður
með ýmislegt hjá hljómsveitinni á
seinni tímum.
Það fór t.d. mjög fyrir brjóstið á
honum að tvö af lögum hans,
Aisling og Pinned down, komust
ekki á síðustu plötu Pogues,
Hell’s Ditch, eins og hann
ætlaðist til. Hins vegar mun nú
gefast kostur á að heyra þessi
tvö lög, því tvær nafntogaðar
söngkonur, írskar, hafatekið þau
upp á sína arma. Hið fyrrnefnda
mun vera að finna á nýjustu plötu
Christy Moore Smoke & strong
whiskey, en hin síðarnefnda
hefur Sinead O’Connor í bígerð
að taka upp.
Það er svo annars af högum
Shane MacGowan að segja að
hann er aldeilis ekki af baki
dottinn þótt ferillinn í Pogues sé
allur. Er hann búinn að stofna
nýja hljómsveit með fyrrum gítar-
leikara Thin Lizzy og Motorhead
Brian Robertson og mun tónlistin
sem þeir spila vera blanda af
kraftmiklu rokki og írskri
þjóðlagatónlist. Verður fróðlegt
að sjá og heyra hvernig til tekst
hjá þeim félögum.
AKUREYRARBÆR
Glerárskóli
Laust er til umsóknar starf umsjónarmanns
við Glerárskóla tímabilið nóvember 1991 til
júlí 1992.
Laun samkvæmt kjarasamningi STAK og Akur-
eyrarbæjar.
Upplýsingar um starfið gefa skólastjóri í síma
21395 og starfsmannastjóri Akureyrarbæjar í
síma 21000.
Umsóknarfrestur er til 4. nóvember n.k.
Umsóknareyðublöð fást í starfsmannadeild Akur-
eyrarbæjar, Geislagötu 9.
Starfsmannastjóri.
Bæjarlögmaður
Akureyrarbær óskar eftir að ráða lögmann til
starfa um næstu áramót.
Bæjarlögmaður ber ábyrgð á rekstri lögfræði-
deildar en helstu verkefni deildarinnar eru lög-
fræðistörf, tjóna- og tryggingamál og ýmis stjórn-
sýsluverkefni. Hann skal hafa frumkvæði að
nýjungum og gera stefnumarkandi tillögur í lög-
fræði- og stjórnsýslumálum til yfirstjórnar bæjar-
ins.
Bæjarlögmaður stjórnar starfsemi deildarinnar í
samræmi við lög, reglugerðir og samþykktir, sett
markmið bæjarstjórnar og fjárhagsáætlun á
hverjum tíma.
Meirihluti þeirra sem sinna stjórnun og öðrum
áhrifastörfum hjá Akureyrarbæ eru karlmenn. í
samræmi við landslög og jafnréttisáætlun bæjar-
ins vill Akureyrarbær stefna að því að hlutur kynj-
anna á áhrifastöðum verði sem jafnastur og hvet-
ur því konur jafnt sem karla til að sækja um
starfið.
Akureyrarbær getur boðið upp á sveigjanlegan
vinnutíma, auk þess sem aðstoð er veitt við
útvegun húsnæðis.
Upplýsingar um starfið veita bæjarstjóri og starfs-
mannastjóri í síma 96-21000.
Umsóknarfrestur er til 31. október n.k.
Umsóknareyðublöð fást í starfsmannadeild Akur-
eyrarbæjar Geislagötu 9, Akureyri.
Bæjarstjórinn á Akureyri.