Dagur - 26.10.1991, Síða 20

Dagur - 26.10.1991, Síða 20
Forseti bæjarstjórnar Akureyrar um uppsagnir og endurskipulagningu hjá Slippstöðinni: Þessar fréttir koma ekki á óvart - „ljóst að stöðin þyrfti að búa sig undir veturinn,“ segir Sigurður J. Sigurðsson Óslax í Ólafsfirði óskar gjald- þrotaskipta Stjórn laxeldisstöðvarinnar Óslax hf. í Ólafsfirði óskaði eftir því við bæjarfógetann í Ólafsfirði í gær að fyrirtækiö verði tekið til gjaldþrota- skipta. Stærstu eigendur stöðv- arinnar eru Ólafsfjarðarbær, Kaupfélag Eyfirðinga, Byggðastofnun og Veiðifélag Ólafsfjarðarár. Sigurður Jóhannesson, stjórn- arformaður Óslax hf., segir að fyrstu árin hafi tilraunir með haf- beitina lofað góðu í byrjun en eftir að byrjað var að sleppa verulegu magni, eða 150-200.000 seiðum í sjó, hafi endurheimtur ekki verið samkvæmt vænting- um. Þetta hafi verið meira en stöðin hafi þolað. Þessu til við- bótar hafi seiðasala brugðist, t.d. vegna gjaldþrota annarra fiskeld- isstöðva sem gengið hafi verið út frá sem framtíðarkaupendum á seiðum. „Þrátt fyrir þetta verður með einhverjum ráðum að halda þarna áfram rekstri í tvö ár til að fá endanlega úr því skorið hvort þarna er möguleg hafbeitarstöð í framtíðinni því aðstæður eru af fagmönnum taldar góðar. Þó fyrirtækið sé gjaldþrota þá eru þarna verðmæti, bæði seiði í stöðinni og lax í sjó, sem þarf að bjarga. Þetta félag hefur ekki bolmagn til þess og er of skuldsett," segir Sigurður. Hann segir að skuldir Óslax séu um 60 milljónir en bókfært verð fasteigna stöðvarinnar eru um 40 milljónir króna og þá eru ótalin seiði í stöðinni og lax í sjó. Sigurður segir að hluthafar hafi skoðað möguleika á að setja við- bótarfé í félagið til að tryggja rekstur næstu ára en fyrirtækið hefði þurft meira fé en hluthafar voru tilbúnir til að leggja fram. Bæjarfógeti mun taka afstöðu til gjaldþrotabeiðninnar eftir helgi. JÓH Akureyri: Tjón á bíl og girðmgu Lögreglan á Akureyri gómaði tvo unga pilta á fimmtudags- kvöldið þegar þeir voru að rífa upp girðingastaura við bíla- stæði sunnan við slökkvistöð- ina. Þá var einn smávægilegur árekstur á fimmtudag, einn ökumaður tekinn fyrir of hrað- an akstur og einn fyrir að aka á móti rauðu Ijósi. Skemmdarverk voru unnin á bifreiðinni S-1900 þar sem hún stóð við Nætursöluna og óskar lögreglan eftir vitnum að atburð- inum. Að sögn varðstjóra hjá lögregl- unni eru nú að hefjast harkalegar aðgerðir gegn þeim bifreiðaeig- endum sem ekki hafa látið skoða bíla sína. Lögreglan er búin að fá ítarlegan lista og verður gengið skipulega til verks að klippa númerin af óskoðuðum bílum. SS Sigurður J. Sigurðsson, forseti bæjarstjórnar Akureyrar, segir að fréttir af uppsögnum í Slippstöðinni komi ekki á óvart. Von sín sé sú að endur- skipulagning á fyrirtækinu leiði til hagkvæmari reksturs og að sem flestir haldi sinni vinni þó varúöarráðstafanir séu gerðar nú. Eins og kom fram í frétt blaðsins verður starfsmönnun Slippstöðvarinn- ar nú fækkað um 30%, bæði í yfirstjórn og meðal iðnaðar- manna. „Þessar fréttir koma manni ekki á óvart því það var ljóst að stöðin þyrfti að búa sig undir vet- urinn. Stóra vandamálið er ef nýsmíöarnar, sem eru svo mikil- vægur þáttur í að halda uppi öflugri starfsemi í stöðinni, „Trillukarlar eru aftur farnir að fá ufsa. Ekki gaf á sjó í síð- ustu viku vegna brælu, en síð- ustu dagarnir hafa verið góðir. Nú er fullt tungl og stærstur straumur. Af þeim fréttum sem ég hef má ráða að dagur- inn verði með því besta í lang- an tíma,“ sagði Þorsteinn Orri Magnússon hjá Fiskverkun KEA í Grímsey. Að sögn Þorsteins hefur útgerð smábáta í Grímsey gengið vel að undanförnu og bátum hefur fjölgað í eyjunni. í september- hverfa þá koma upp eyður í verk- efnin sem verður miklu erfiðara að brúa. Fjárhagur fyrirtækisins hefur þyngst á síðustu árum, ekki síst vegna nýsmíðaverkefnisins sem nú er loks selt, en menn hafa verið að selja nýsmíðaverkefnin án nokkurrar álagningar fyrir fyrirtækið og til þess að skapa verkefni með von um að betri tímar kæmu,“ segir Sigurður. Sem kunnugt er á ríkissjóður meirihluta í Slippstöðinni en Akureyrarbær á annan stærsta hlutinn í stöðinni. Aðspurður hvort til tals hafi komið hlutafjár- aukning í stöðinni í framhaldi af endurskipulagningu á rekstrinum segir Sigurður ljóst að eigendur fyrirtækisins verði að styrkja reksturinn með einhverjum hætti. Spurningin sé sú hvort mánuði bárust á land góð þrjú hundruð tonn til Fiskverkunar KEA, sem er um tvö hundruð tonnum meiri afli en á sama tíma í fyrra. „Fiskverkun KEA hefur tekið á móti fimmtíu og tveimur tonn- um það sem af er vikunni. Við gerum að aflanum og síðan er hann sendur til vinnslu í Hrísey. Starfsmenn í aðgerð eru átta þar af þn'r frá Danmörku. Erfitt er að fá íslendinga til starfa við fisk þrátt fyrir allt tal um atvinnu- leysi,“ sagði Þorsteinn Orri Magnússon. ój fyrirtækið þurfi viðbótarhlutafé eða hvort það geti látið eitthvað af eignum sínum af hendi til að styrkja stöðu sína. Þess má geta að meðal eigna Slippstöðvarinnar er um 5% hlut- ur í Útgerðarfélagi Akureyringa en þessi hlutur er að verðmæti um 120 milljónir króna. JÓH Rastar SK 17 um hálftíuleytið í fyrrakvöld þar sem skipið var statt á rækjuveiðum norður af Skaga. Brunaviðvörunarkerfi skipsins fór í gang og þegar skipverjar kíktu niður í vélar- rúmið logaði þar eldur og allt var orðið fullt af reyk, sem síð- an lagði um skipið. „Við sáum að það þýddi ekk- ert að reyna að slökkva eldinn með einhverjum tækjum svo við lokuðum bara öllu eins hægt var. Hann kafnaði síðan smátt og smátt, en blossaði þó upp aftur seinna í nótt,“ sagði Sigurður Jónsson, skipstjóri á Röstinni, í samtali við Dag í gærmorgun. Þrjú skip sem voru að veiðum á svipuðum slóðum og Röstin, komu henni til hjálpar og varð úr að Nökkvi frá Blönduósi drægi skipið til hafnar á Sauðárkróki. Áður varð þó að koma vírum úr Nökkvanum og í poka Rastarinn- ar, því verið var að draga þegar Helgarveðrið: Haustblíðan ræður ríkjum Síðustu nótt var búist við norð- lægum vindum og einhverri slyddu á Norðurlandi en helg- arspá Veðurstofu íslands er hins vegar hagstæð mjög. Veðrið um helgina og allt fram á mánudag verður milt og gott. Austlægir eða suðaustlægir vind- ar leika um landið með tilheyr- andi vætu víða um land. Norð- lendingar sleppa þó að mestu við hana en skúrir gætu orðið á an- nesjum. í innsveitum verður nær örugglega þurrt. Haustblíðan mun því ráða ríkjum áfram, hvað sem gerist svo í næstu viku. SS Akureyri: Slökkvistöðin verði tekin í notkun snennna árs 1993 Á fundi bæjarráðs Akureyrar sl. fimmtudag voru lagðar fram hugmyndir um nýtingu vænt- anlegs slökkviliðs- og strætis- vagnahúss við Árstíg á Akur- eyri. Bæjarráð féllst á hug- myndirnar og er gert ráð fyrir að húsið verði tekið í notkun snemma árs 1993. Að sögn Sigurðar J. Sigurðs- sonar, forseta bæjarstjórnar Akureyrar, hefur verið ákveðið að ganga til samninga við arki- tekt og verkfræðistofu um hönn- un á húsinu. „Gert er ráð fyrir að húsið verði tekið í notkun upp úr áramótum 1992-1993 fyrir bæði slökkviliðið og strætisvagnana. Við stefnum að því að bjóða verkið út fyrrihluta næsta árs með það í huga að þetta geti orð- ið samfellt verkefni þar til yfir lýkur,“ sagði Sigurður. óþh eldsins varð vart. Nákvæmlega þrjár vikur eru síðan Röstin fékk á sig harðan brotsjó sem skemmdi mikið af tækjum í brú skipsins og ekki var farið út aftur fyrr en sl. mánudag. Þegar Dagur spurði Sigurð að því hvort þeir um borð væru ekki orðnir hvekktir á þessu sagðist hann ekki geta neitað því. „Við vorum aldrei í lífshættu eins og þessi eldur varð. Hins vegar höfðum við ekki hugmynd um hvað hann var mikill þegar brunakerfið fór í gang og vél- stjórinn var m.a. nýkominn upp úr vélarrúminu. Það var ekki ver- andi neins staðar nema frammi á dekki á skipinu fyrir reyk og þar vorum við klárir í bátana með dautt á öllu,“ sagði Sigurður. Að sögn Sigurðar eru skemmd- ir miklar í vélarrúminu og útlit fyrir að kviknað hafi í út frá raf- magnstöflu sem þar er. Hann sagði þetta allt líta illa út og reikn- ar með allt að hálfsmánaðar stoppi meðan gert verður við. SBG Röst SK 17: Eldur lausum borð - annað óhappið á þremur vikum Eldur kom upp í vélarrúmi

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.