Dagur - 10.12.1991, Page 1
HERRADEILD
Gránufélagsgötu 4
Akureyri • Sími 23599
Útgerðarfélag Akureyringa hf. festir kaup á grænlenskum togara:
Þessi kaup eru sterkur geisli í svartnættinu
- segir Sverrir Leósson, stjórnarformaður Útgerðarfélagsins
Útgerðarfélag Akureyringa hf.
hefur keypt 4-500 tonna græn-
lenskan togara. Með honum
fylgir ríflega 1600 tonna kvóti í
þorskígildum, heildarkvótinn
er 2300 tonn. Frá þessu var
gengið sl. sunnudag og segir
Sverrir Leósson, stjórnarfor-
maður Útgerðarfélagsins, að
menn séu mjög ánægðir með
að þessi kaup séu í höfn.
Útgerðarfélagið hefur lengi
leitað að togara í stað Sólbaks
EA-305, sem lagt verður á
næstunni í kjölfar þess að
hafærnisskírteini hans rennur
út. Togaranum verður gefið
nafnið Arbakur.
Útgerðarfélagið gengur inn í
kaupsamning, sem Bergur-Hug-
inn í Vestmannaeyjum hafði gert
við útgerðarfyrirtæki grænlenska
togarans. Kaupin voru bundin
því að Bergur-Huginn seldi skip
sitt, Bergey VE-544, til Fisk-
iðjusamlags Húsavíkur. Pau við-
skipti gengu til baka og þannig
opnaðist sá möguleiki að ÚA
festi kaup á grænlenska togaran-
um.
Umræddur togari er á bilinu
400-500 tonn, 47,15 metra langur
og 9,5 metra breiður. Að stærð til
er togarinn ekki ósvipaður og
Kolbeinsey ÞH. Hann var smíð-
aður 1980 og endurbyggður árið
1988. Vél skipsins er ný og öll
tæki í brú aðeins þriggja ára
gömul. „Þetta er toppskip,“ sagði
Sverrir Leósson í samtali við Dag
í gær.
Togarinn er sem stendur í slipp
í Hirtshals í Danmörku, en hann
er væntanlegur til Akureyrar síð-
ar í þessum mánuði. Ekki er ljóst
hvenær hann fer í sinn fyrsta túr
eftir áramót, en gert er ráð fyrir
Slökkvilið Akureyrar
kallað út:
Kveikt í
bát og sinu
Slökkvilið Akureyrar var
kailað ívívegis út um helg-
ina. I fyrra tilvikinu var
kveikt í sinu á Svalbarðseyri
og í hinu var borinn eldur að
bát á Akureyri.
Á varðstofu slökkviliðsins
fengust þær upplýsingar að
brunaútkall hefði komið kl.
21.25 á laugardagskvöldið.
Eldur logaði í sinu við Höfn á
Svalbarðsströnd og gekk
greiðlega að ráða niðurlögum
hans. Engar skemmdir urðu
en sinubrunar þykja óvenju-
legir á þessum árstíma.
Á sunnudaginn var slökkvi-
liðið kallað að snurpubát sem
stóð austan við Nótastöðina
Odda. Kveikt hafði verið í
bátnum en slökkvistarf gekk
fljótt og örugglega.
Rannsóknarlögreglan góm-
aði þrjá unga menn sem viður-
kenndu að hafa verið að fikta
með eld við bátinn. SS
að gera smá lagfæringar á honum
áður en hann verður sendur á
veiðar.
„Pessi kaup er mjög gott mál
fyrir Útgerðarfélagið. Nú er
félagið með tvo frystitogara og
fimm ísfisktogara, sem fiska fyrir
vinnsluna í landi. Með þetta
miklar veiðiheimildir teljum við
okkur hafa tryggt örugga vinnslu
hjá félaginu. Við höfum skyldur
Aöalfundur Vatnafangs var
haldinn sl. föstudag. Á fundin-
um kom m.a. fram aö heldur
minni umsetning hafði orðið
hjá félaginu á árinu, en ráð var
fyrir gert. Að sögn Bjarna
Egilssonar, formanns Vatna-
fangs, eru menn þó bjartsýnir
| á framhaldið, enda útlit fyrir
næga markaði.
Sala Vatnafangs á silungi til
annarra landa jókst á árinu og
sérstaklega sala á heilfrystri
bleikju til Svíþjóðar. Einnig voru
seld um tvo tonn af ferskum
silungi til Frakklands og segir
Bjarni að sá markaður sem aðrir,
sé bæði öruggur og góður ef
sendingar standast í magni, tíma
og gæðum.
„Við fengum engar kvartanir
frá Frakklandi og svo framarlega
sem við getum skaffað nægan fisk
þá verður sá markaður opinn
okkur áfram. Annars erum við
gagnvart bæði Útgerðarfélaginu
og ekki síður bæjarfélaginu. Það
má orða það svo að þessi kaup
séu sterkur geisli í svartnættinu,“
segir Sverrir.
Eins og áður segir fylgir ríflega
1600 þorskígilda kvóti með í
kaupunum, en hér er um að ræða
kvóta Bergeyjar VE. Hann skipt-
ist svo: Þorskur 562 tonn, ýsa 254
tonn, ufsi 530 tonn, karfi 843
að stokka spilin upp þessa dag-
ana og hugsanlega er að opnast
markaður í Bretlandi fyrir fryst-
an silung. Möguleikarnir í stöð-
unni eru ýmsir og ekki gott að
segja að hvaða markaði við ein-
beitum okkur, en ljóst er að
vandamálið er ekki að selja fisk-
inn heldur að veiða nægan silung
„Við ætlum að reyna að fara
að byggja hér upp grasvöll og
vegna þessa þarf að skipuleggja
vallarsvæðið upp á nýtt og
færa gamla malarvöllinn til,“
segir Guðmundur Guðmunds-
son, formaður æskulýðs- og
íþróttanefndar Blönduóss.
Að sögn Guðmundar er ætlun-
in að reyna að vinna við völlinn
tonn, grálúða 117 tonn og tæp 5
tonn af kola. Fremur lítið er búið
að veiða af þessum kvóta, en þó
hlutfallslega mest af karfa.
Samanlagður kvóti annara
skipa Útgerðarfélagins er ríflega
18 þúsund tonn á yfirstandandi
fiskveiðiári. Kvóti Sólbaks EA-
305, sem verður lagt á næstunni,
er tæplega 1900 tonn og það sem
ekki er búið að veiða verður fært
upp í sendingarnar,“ segir
Bjarni.
Bjarni segist ekki búast við að
neinar verulegar breytingar verði
á starfi Vatnafangs á komandi ári
nema ef reynt verði að veiða
rneira undir ís en gert hefur
verið. Hluthafar Vatnafangs eru í
dag um sjötíu talsins. SBG
að mestu leyti í sjálfboðavinnu,
en Ungmennafélagið Hvöt mun
standa fyrir framkvæmdinni.
Vonir standa til að hægt verði að
hefjast handa á næsta ári, en
hönnunarvinna er hafin. Á með-
an unnið verður við Blönduósvöll
á komandi sumri hefur Hvöt
fengið inni á velli Vorboðans á
Bakkakotsmelum og segist Guð-
yfir á hin skip félagsins, þ.m.t.
þetta nýja skip.
Sverrir segir liggja fyrir að
áhöfn Sólbaks EA-305 verði boð-
in ráðning á þessu nýja skipi.
óþh
Ríkisstjórnin:
Launaogrekstrar-
gjöld Iækki um
5% á næsta ári
Launa- og rekstrargjöld ríkis-
stofnana eiga að lækka um 5%
að raungildi á næsta ári. Þetta
reiknast til að vera um 2,5
milljarðar króna. Þetta hefur
að mati fjármálaráðherra í för
með sér fækkun ríkisstarfs-
manna á næsta ári.
Fjármálaráðherra kynnti í gær
á fundi með fréttamönnum nið-
urskurðartillögur til annarar
umræðu um fjárlagafrumvarpið.
Þar kennir ýmissa grasa.
Meðal annars er gert ráð fyrir
að færa verkefni frá ríkinu yfir til
sveitarfélaganna fyrir 700 millj-
ónir króna. Inni í þessum
„pakka“ er m.a. dagvistun fatl-
aðra.
Lagt verður þjónustugjald á
hafnir, sem ætlað er að skili rík-
inu 125 milljónum króna. Annars
vegar er um að ræða aflagjald á
fisk upp úr sjó og hins vegar
vörugjald á vörur sem skipað er
upp á viðkomandi höfnum.
Þrjú atriði í þessum tillögum
hafa þegar valdið deilum. í fyrsta
lagi er rætt um að fresta gerð þess
hluta Vestfjarðaganganna sem
liggur niður til Suðureyrar, í ann-
an stað er talað um skerðingu
barnabóta og er miðað við 2,5
milljarða tekjumark hjóna á ári
og í þriðja lagi er gert ráð fyrir
breytingu á sjómannaafslættinum
þannig að hann nái einungis til
lögskráningardaga. Þetta þýðir í
raun að sjómenn fá einungis
sjómannaafslátt þá daga sem þeir
eru á sjó.
Af öðrum efnisatriðum í tillög-
um ríkisstjórnarinnar má nefna
100 milljóna króna aðflutnings-
gjald á kraftmikla jeppa. Ríkis-
sjóður hyggst ná inn 100 milljón-
um með því að fclla niður niður-
greiðslur á mjólkurdufti og spara
295 milljónir með því að dreifa
beinum greiðslum til bænda á 12
mánuði í stað 10. óþh
mundur vonast til að framhald
verði á því samstarfi.
„Við reiknum með að taka
okkur tvö til þrjú ár í þessa fram-
kvæmd og ætlum okkur að kanna
alla möguleika. T.d. hvort hægt
sé að leggja hitalögn í grasvöllinn
án þess að það kosti fleiri millj-
ónir,“ segir Guðmundur. SBG
V 12^ JjpL VIU ..^^^SHHHHHH^llHHHHHHHHHHHIHHHHHinP^'
Mynd: Golli Lif og Ijör á uppboði á Akureyrí Uppboð fór fram á ýmsum varningi á vegum bæjarfógetaembættisins á Akureyri síðastliðinn laugardag. Milli sextíu og sjötíu manns sóttu uppboðið og seldust flestir hlutir eins og gengur á slíkum samkomum. Af uppboðsgóssi bar mest á ýmsum ótollafgreiddum munum auk stærri hluta eins og bifreiða. Að loknu uppboði í húsakynnum lögreglunnar var haldið í húsnæði ístess hf. þar sem boðinn var upp ýmiskonar skrifstofubúnaður. Á myndinni gefur að líta uppboðsgesti bjóða í einhvern ótollafgreiddan varning í plastpoka í hendi Eyþórs Þorbergssonar, fulltrúa bæjarfógetans á Akureyri, sem stýrði uppboðinu.
Aðalfundur Vatnafangs hf.:
Nægur markaður fyrir silung
- bjartsýnir á framhaldið
Blönduós:
Grasvöllur á teikniborðinu