Dagur - 10.12.1991, Side 11

Dagur - 10.12.1991, Side 11
Þriðjudagur 10. desember 1991 - DAGUR - 11 Tónleikum á Hvammstanga aflýst Tónleikum Theodóru Þorsteins- dóttur, sópran, og Ingibjargar Þorsteinsdóttur, píanó, sem vera áttu í Félagsheimilinu á Hvammstanga miövikudaginn 18. desember nk., hefur verið aflýst vegna veikinda. Byggðasafn Dalvíkur: Mirmingarstofa um Kristján Eldjám - Svarfdælir heiðra minningu manns „sem með mannkostum sínum og ævi- starfi hefur öðrum fremur varpað ljóma á nafn sveitar sinnar og heimabyggðar“ A Byggðasafni Dalvíkur var á föstudaginn opnuð Kristjáns- stofa til minningar um Kristján Eldjárn, þriðja forseta Iýð- veldisins, en þann dag hefði hann orðið 75 ára. Það var ekkja Kristjáns, Halldóra Ingólfsdóttir, sem opnaði stof- una en minningarstofan er gerð í samráði við ættingja Kristjáns. Gylfi Björnsson formaður stjórnar Byggðasafns Dalvíkur setti athöfnina á föstudaginn en viðstödd hana voru, auk Hall- dóru, Ingólfur sonur Kristjáns og kona hans, tvö af þremur systkin- um Kristjáns, aðrir ættingjar og forystumenn Byggðasafnsins og bæjarstjórnar Dalvíkur. Trausti Þorsteinsson forseti bæjarstjórnar flutti ávarp og minntist Kristjáns heitins en svo tók Júlíus J. Daníelsson ritstjóri til máls og fjallaði um bóndasoninn, fræði- manninn og forsetann Kristján Eldjárn. Ingólfur Eldjárn þakkaði Byggðasafninu og Dalvíkingum hlýhug í garð föður síns og að því loknu opnaði Halldóra stofuna. Þar eru á veggjum myndir úr lífi Kristjáns og vatnslitamynd sem hann málaði á menntaskólaárum sínum. í glerskápum gefur að líta allar helstu bækur Kristjáns og einnig er þarna brjóstmynd sem Sigurjón Ólafsson myndhöggvari gerði af honum meðan hann var forseti. í ræðu Júlíusar J. Daníelssonar sagði m.a. að það væri „mikið ánægjuefni að nú skuli hafa verið opnuð Kristjánsstofa til minning- ar um Kristján Eldjárn hér í Byggðasafninu á Dalvík. Með því vilja Svarfdælir heiðra og varðveita minningu manns sem með mannkostum sínum og ævi- starfi hefur öðrum fremur varpað Ijóma á nafn sveitar sinnar og heimabyggðar. Bóndasonurinn úr Svarfaðardal sem varð þriðji forseti lýðveldins var sá íslend- ingur sem einna ástsælastur hefur orðið með þjóðinni í okkar tíð.“ Júlíus minntist þess einnig að þótt starfsvettvangur Kristjáns hefði verið fjarri heimahögunum hefði hann sýnt þeim mikla rækt, svo sem með því að beita sér ásamt fleirum fyrir stofnun Sam- taka Svarfdælinga í Reykjavík og útgáfu ritsins Svarfdælingar eftir Stefán Aðalsteinsson. Síðan sagði Júlíus: „Ritstörf voru Kristjáni lífs- nautnin frjóa alla tíð og veittu honum unað og gleði, þó að hann hefði aðeins stopular tómstundir frá krefjandi skyldustörfum til að sinna þeim. Hann var einn af snjöllustu vísindamönnum sinnar tíðar, skáldmæltur vel, hand- genginn forsögu og sögu íslend- inga og þekkti hagi þjóðarinnar og aldarfar í landinu á öllum öldum. Hann var kunnur sem fornleifafræðingur víða um lönd og virtur sem sérfræðingur í menningarsögu, og honum tókst í frásögu og riti að gera íslenskar þjóðminjar að þjóðareign. Hann átti að baki óvenjulega glæsileg- an embættisferil þegar hann lét af starfi forseta íslands árið 1980. Þá hafði hann verið forseti í 12 ár, áður þjóðminjavörður í 21 ár og minjavörður í Þjóðminjasafni í hálft þriðja ár... Kristján var virtur og dáður forseti og ákaf- lega vinmargur í einkalífi sínu... Og þegar hann féll frá um aldur fram 14. september 1982 á 66. aldursári, tveim árum eftir að hann lét af forsetaembætti, syrgði hann þjóðin öll.“ -ÞH Ekkja Kristjáns ásamt systkinum hans, Petrínu og Hirti, við brjóstmynd Sigurjóns Ólafssonar af Kristjáni Eldjárn. Júlíus J. Daníelsson flytur ræðu sína um Kristján Eldjárn. Frú Halldóra Eldjárn ásamt syni sínum Ingólfi og konu hans, Guðrúnu Björgu Erlendsdóttur. Myndir: -i>H joiasveinarmr eru komnir til byggða Eftir mikinn barning tókst jólasveinum Vöruhúss KEA að komast til byggða. Þeir lögðu mikið á sig til að geta hitt ykkur - og munu koma fram á svölum Vöruhússins sunnudaginn 15. desember kl. þrjú. Mætið öll og raulið með okkur.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.