Dagur - 10.12.1991, Side 16
MSUE
Akureyri, þriðjudagur 10. desember 1991
Kodak
Express
Gæöaframköllun
Persónuleg jólakort
einföld og tvöföld'
toaLega ^Pediðmjndir
SSi, Hafnarstræti 98, sími 23520 og Hofsbót 4, simi 23324.
^HiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiMMMMMiMMtMiiMiHillliiiiiiiiiiiiiiMiiiinnnTiTiiTimfniníMiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiwiiiyiniwiTnf.
Jólaföndur í Dalvíkurskóla
Þau voru önnum kafín við jólaföndrið þessi börn sem urðu á vegi Ijósmyndara í Dalvíkurskóla, en þar á bæ hef-
ur sú hefð skapast að börnum, foreldrum og öðrum bæjarbúum er boðið til jólaföndurs á aðventunni. Að þessu
sinni var föndrið haldið á laugardaginn var og að vanda var húsið troðfullt allan eftirmiðdaginn. Auk efnis í jóla-
skreytingar getur fólk keypt sér kaffí og meðlæti en ágóðinn af því rennur í ferðasjóð 10. bekkjar. Mynd: -i>h
Söfnun vegna nýrnavélar fyrir Finn Eydal:
Góðar undirtektir
á styrktartónleikum
Á þriðja hundraö manns komu
á tónlistarvcislu Finns Eydal í
Sjallanum á Akureyri síðast-
liðið föstudagskvöld. Tón-
leikarnir voru liður í söfnun
fyrir nýrnavél handa Finni
Eydal og að þeim loknum
hafði safnast um 1,1 milljón
króna.
Ýmsir aðilar afhentu peninga-
gjafir við þetta tækifæri, samtals
rúmlega 300 þúsund krónur. Um
100 listamenn komu fram á
skemmtuninni og gáfu þeir alla
sína vinnu í söfnunina. Zonta-
klúbburinn Þórunn hyrna á
Akureyri hefur forgöngu um
þessa söfnun og er takmarkið að
safna fyrir að minnsta kosti kaup-
verði nýrnavélarinnar, sem er 1,5
milljónir króna. Tækið, og með-
fylgjandi búnaður, hefur þegar
verið pantað. Liður í þessari
söfnun verða tónleikar Djass-
vakningar í Reykjavík og þá hef-
Rekstrarstöðvun og gjaldþrot blasir við hjá Árveri á Áskógsströnd:
Úrslitafundur boðaður á morgun
- segir Pétur Sigurðsson, stjórnarformaður Árvers hf.
Stjórn rækjuverksmiðjunnar
Árvers hf. á Árskógsströnd rær
nú lífróður til að bjarga fyrir
tækinu frá gjaldþroti. Enginn
er að störfum í verksmiðjunni,
en vinna var lögð niður sl.
föstudag.
Rækjuverksmiðjan Árver hf.
er í eigu 190 hluthafa. Stærstir
eru Kaupfélag Eyfirðinga, Festi
hf. í Gindavík, Arskógshreppur
og útgerðarfyrirtæki á Hauganesi
Þessi mynd var tekin á slysstað á mótuni Þórunnarstrætis og Hrafnagils-
strætis í gær. Ferþegi í öðrum bílum hlaut höfuðhögg og var fluttur á slysa-
deild. Mynd: Golli
Akureyri:
Harður árekstur í gær
Harður árekstur varð á gatna-
mótum Þórunnarstrætis og
Hrafnagilsstrætis um hádegi í
gær. Farþegi í öðrum bflnum
hlaut höfuðhögg og var fluttur
á slysadeild en ekki var talið að
um alvarleg meiðsli væri að
ræða. Þá voru sex ökumenn
teknir fyrir of hraðan akstur á
Dalvíkurvegi á laugardag.
Tveir bílar óku saman á mót-
um Þórunnarstrætis og Hrafna-
gilsstrætis um eitt leytið í gær.
Stöðvunarskylda er á Hrafnagils-
stræti gagnvart Þórunnarstræti og
mun ökumaður bílsins er ók eftir
Hrafnagilsstræti ekki hafa áttað
sig á því eða virt hana. Farþegi í
öðrum bílnum fékk höfuðhögg
og var fluttur á slysadeild en að
sögn lögreglunnar á Akureyri
voru meiðsl hans ekki talin
alvarleg. Báðir bílarnir eru mjög
illa farnir.
Þá voru ökumenn nokkuð
fljótir á sér á Dalvíkurvegi á
laugardaginn því Iögreglan á Dal-
vík mældi hraða sex bíla á bilinu
109 til 131 kílómetra á klukku-
stund. Vegur var auður og að
sögn lögreglumanns á Dalvík
mun það hafa kitlað taugar öku-
mannanna. ÞI
og Litla-Árskógssandi. Hlutafé
fyrirtækisins er 40 milljónir og
skuldir miklar.
„Reksturinn hefur ekki gengið
sem skyldi allt frá árinu 1987,
sem hjá flestum er vinna rækju-
skel. Síðustu átján mánuðirnir
hafa verið hvað verstir þar sem
verðfail á rækju hefur ráðið
mestu. Nú er svo komið að ekki
er lengur unnið í verksmiðjunni
og gjaldþrot blasir við. Ég get
ekkert sagt um á þessari stundu
hvort rekstur hefst að nýju. Við
róum lífróður til að bjarga
málum. Á morgun ætti að verða
ljóst hvað verður,“ sagði Pétur
Sigurðsson, stjórnarformaður
Árvers hf. ój
ur Anna Vilhjálms haldið auka-
sýningu á söngskemmtun sinni í
Reykjavík til styrktar átakinu. Þá
er opinn reikningur í Sparisjóði
Akureyrar vegna söfnunarinnar.
í Degi á morgun verður nánar
greint frá tónlistarveislu Finns
Eydal á föstudag. JÓH
Björgvin EA á Dalvík:
Engin áform
eru uppi um
rækju- eða út-
hafskarfaveiði
„Björgvin verður að minnsta
kosti um tíma gerður út á bol-
flsk á næsta ári. Það eru ekki
undirbúnar neinar aðrar
aðgerðir með skipið, hvorki
með rækju né úthafskarfa,“
segir Valdimar Bragason,
framkvæmdastjóri Útgerðar-
félags Dalvíkinga.
Hugmyndir hafa verið uppi um
að gera Björgvin út á rækju hluta
úr næsta ári vegna skertra afla-
heimilda í bolfiski og þess vegna
sótti ÚD um rækjuveiðileyfi til
handa Björgvin. Valdimar segir
að sjávarútvegsráðuneytið hafi
ekki enn afgreitt erindi ÚD.
Aflabrögð togara ÚD, Björg-
vins og Björgúlfs, hafa verið með
eindæmum léleg það sem af er
þessu fiskveiðiári, frá 1. sept-
ember sl. Togararnir hafa aðeins
fært á land rétt rúm 1500 tonn, en
til samans er kvóti þeirra um
4500 tonn í þorskígildum á yfir-
standandi fiskveiðiári. óþh
Umferðarslys á Norðurgötu á Akureyri:
Ölvaður tjónvaldur stakk af
Klukkan 20.20 sl. föstudags-
kvöld barst lögreglunni á
Akureyri tilkynning um um-
ferðarslys við Norðurgötu 48.
Þar hafði verið ekið á mann
sem var að stíga út úr bifreið
og en sá sem varð valdur að
slysinu hirti ekki um að stöðva
og ók á brott. Maðurinn slas-
aðist töluvert og var fluttur á
slysadeild.
Samkvæmt upplýsingum frá
rannsóknarlögreglunni á Akur-
eyri voru tildrög slyssins þau að
rauðri Toyota bifreið var lagt
vinstra megin í Norðurgötu, á
móti umferðinni, og farþegi steig
út hægra megin. Þá kom bifreið
aðvífandi og lenti á hurðinni og
klemmdi farþegann milli stafs og
hurðar.
Ökumaðurinn stakk af frá slys-
inu. Rannsóknarlögreglan er
búin að hafa upp á bílnum en
hana vantar frekari upplýsingar
um slysið og ef einhver varð vitni
að atvikinu er viðkomandi beðinn
að snúa sér til rannsóknarlögregl-
unnar. Tjónvaldurinn er grunað-
ur um að hafa ekið ölvaður.
Hinn slasaði skarst mikið í
andliti og þurfti að sauma hátt í
30 spor til að loka skurðunum,
liðbönd slitnuðu í hné auk annarra
meiðsla. SS
Akureyri og Dalvík:
Innbrotafaraldur um helgina
Innbrotsþjófar voru á kreiki á
Akureyri um helgina. Aðfara-
nótt laugardags var brotist inn
í verslunina Notað innbú við
Hólabraut og stolið þaðan
hljómtækjasamstæðu og útvarpi
og geislaspiiara í bfl. Þjófarnir
komust inn með því brjóta
rúðu og telur rannsóknarlög-
reglan að nokkrir aðilar hafi
þarna verið að verki.
Mál þetta er í rannsókn sem og
nokkur önnur þjófnaðarmál sem
komu upp um helgina. Aðfara-
nótt laugardags var farið inn í bíl
við Gránufélagsgötu og stolið úr
honum verkfæratösku með verk-
færum að verðmæti um 100 þús.
kr. Taskan fannst reyndar í
grenndinni og flest verkfærin
voru í henni.
Aðfaranótt sunnudags var
brotist inn í verkstæðishúsnæði í
Sandgerðisbót og enn voru það
verkfæri sem freistuðu fingra-
langra. Töluverðu af verkfærum
var stolið úr húsinu.
í gær fékk rannsóknarlögregl-
an á Akureyri tilkynningu frá
lögreglunni á Dalvík um að farið
hefði verið inn í fimm báta í Dal-
víkurhöfn og einhver skemmdar-
verk unnin. Málið hafði ekki ver-
ið rannsakað nánar en lögreglu-
menn voru væntanlegir til Dal-
víkur síðdegis í gær. SS