Dagur - 21.01.1992, Side 2
2 - DAGUR - Þriðjudagur 21. janúar 1992
Fréttir
Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar lögð fram í dag:
Rekstrargjöld um 71% af tekjum
Samkvæmt frumvarpi um fjár-
hagsáætlun Akureyrarbæjar
fyrir 1992 eru tekjur bæjarins
áætlaðar rúmur 1,3 milljarður
króna. Rekstrargjöld eru hins
vegar áætluð ríflega 950 millj-
Akureyri:
Bæjarmála-
punktar
■ A fundi bæjarráðs 19. des-
ember sl. iýsir það ánægju
sinni með það hversu vel hafi
tekist til með rekstur Hús-
næðisskrifstofunnar á Akur-
eyri og er lagt til að samningur
um starfrækslu hennar verði
framlengdur, en tekið er fram
að skynsamlegt sé að fela
skrifstofunni aukin verkefni á
sviði húsnæðismála og auka á
þann hátt þjónustu við íbúa
svæðisins.
■ Með bréfi dsagsettu 20.
desember sl. bauð Hjarta- og
æðaverndarféiag Akureyrar
og nágrennis Akureyrarbæ til
kaups húseignina Geisiagötu
1. Bæjarráð vísaði þessu
erindi til gerðar fjárhagsáætl-
unar.
■ Bæjarráð hefur staðfest
framlagt samningsuppkast við
Raftákn hf. um hönnun allra
rafiagna í myndlistarsali á 1.
hæð í gamla Mjólkursamlags-
húsinu í Grófargili.
■ Gufuveitun hf., sem stofn-
uð var á Akureyri 20. desem-
ber sl. um rekstur ketilhúss á
Gleráreyrum, sem áður var í
eigu SÍS, hefur óskað eftir við-
ræðum við veitustjórn um raf-
orkukaupasamning og annað
það sem tengist breytingum á
rekstri ketilhússins. Rafveitu-
og hitaveitustjóra var falið að
taka upp viðræður við Gufu-
veituna hf.
■ Petra María Sveinsdóttir
Hakonson, Reykjavík, hefur
fært Akureyrarbæ að gjöf mál-
verk eftir Hauk Stefánsson,
listmálara, í minningu foreldra
sinna, Ingibjargar Jónsdóttur
og Sveins Bergssonar er bjuggu
í Eyrariandsstofu á Akureyri
árin 1915-1925.
■ Sólveig Jónsdóttir, Áifa-
byggð 7, hefur verið ráðin í
80% starf leiðbeinanda við fé-
lagsstarf aldraðra í þjónustu-
miðstöðinni Hlíð frá 1. janúar
1992.
■ Sjálfstyrkingarnámskeið fyr-
ir konur hjá Akureyrarbæ.
Kynningarfundur verður hald-
inn 27. janúar nk.. Námskeið-
ið hefst 22. febrúar og stendur
til 4. apríi, alls 18 tímar.
■ Petrína Eldjárn, bókavörð-
ur á Amtsbókasafninu, hefur
sagt starfi sínu lausu frá og
með 1. rnars nk. fyrir aldurs
sakir.
■ Menningarmálanefnd hef-
ur samþykkt kaup á málverk-
um eftir Kristinn G. Jóhanns-
son og Kristjönu Arndal.
■ Bæjarráð hefur lagt til að
skipuð verði fræðsiunefnd
bæjarins, sem vinni að
fræðslumálum starfsmanna.
ónir króna. Nettó eignfærð
fjárfesting nemur 253.5 millj-
ónum króna. Rekstrargjöld
eru um 71% af tekjum.
Tekjuhlið bæjarins skiptist svo
að útsvar er áætlað að gefi bæjar-
kassanum 788,5 milljónir,
aðstöðugjald 250 milljónir, skatt-
ar af fasteignum 228,5 milljónir,
fráveitugjöld 73 milljónir og
landsútsvar 8,3 milljónir króna.
Stærstu liðir rekstrargjalda-
negin eru félagsmál og almanna-
xyggingar 232 milljónir,
ræðslumál 198 milljónir, íþrótta-
ig æskulýðsmál 100 milljónir,
'ötur og holræsi 83 milljónir,
amhverfismál 81 milljón,
menningarmál 64 milljónir og
hreinlætismál 46 milljónir.
Hlutfallslega er gert ráð fyrir
óverulegum breytingum í rekstr-
argjöldum einstakra málaflokka
milli ára. Mest hefur hækkunin
orðið á íþrótta- og æskulýðsmál-
um, ríflega 12% og félagsmál og
almannatryggingar yfir 7%.
Eignfærðar fjárfestingar eru í
meginatriðum í takt við þriggja
ára áætlun Akureyrarbæjar, sem
samþykkt var sl. haust.
Undir liðnum félagsmál er ný
dagvist efst á blaði. Til hennar
verður varið 30 milljónum króna
og er stefnt að því að hún verði
opnuð fyrir ársbyrjun 1993. Ekki
hefur verið ákveðið hvort keypt
verður húsnæði fyrir dagvistina
eða byggt húsnæði yfir hana. Til
þjónustukjarna við hús aldraðra
við Víðilund verður varið 880
þúsund kr. Vegna byggingar fjöl-
býlishúsa fyrir aldraða við
Bugðusíðu festir Akureyrarbær
kaup á húsnæði í kjallara Bjargs
fyrir þjónusturými fyrir 28,3
milljónir króna. Nýtt sambýli fyr-
ir aldraða verður keypt á árinu og
í kaupin og nauðsynlegar breyt-
ingar á húsnæði er gert ráð fyrir
22 milljónum króna. Til leigu-
■íbúða verður varið 48 milljónum
króna.
Undir liðnum heilbrigðismál
eru 7,3 milljónir króna til Fjórð-
ungssjúkrahússins á Akureyri.
Fræðslumál fá ríflega 105
milljónir króna í sinn hlut, sem
skiptist svo að til Síðuskóla fer 51
milljón, 53,8 milljónir til Verk-
menntaskólans og 600 þúsund til
Menntaskólans.
Menningarmál fá 45 milljónir
króna. Þessari upphæð hefur
ekki verið endanlega skipt, en
stærstur hluti hennar fer til kaupa
bæjarins á gamla Mjólkursamlags-
húsinu í Listagili, sem eins og
kunnugt er verður innréttað fyrir
fjölbreytilega menningarstarf-
semi. Þá fer drjúg upphæð til
hönnunar listasafns í Mjólkur-
samlagshúsinu og hönnunar við-
byggingar við Amtsbókasafnið.
Til íþróttamála er gert ráð fyrir
að verja 22 milljónum króna.
Stærstu upphæðirnar fara til
áframhaldandi framkvæmda við
íþróttahöllina, lokið verður við
Sundlaug Glerárskóla, sett verð-
ur fjármagn í hönnun á nýrri
sundlaug við Sundlaug Akureyr-
ar og Skíðastaðir fá líka tölu-
verða upphæð.
Til húseigna bæjarins verður
varið 20 milljónum króna. Hluti
þeirrar upphæðar rennur til
breytinga á nýju húsi fyrir
Slökkvilið Akureyrar og einnig
verður töluverðri upphæð varið
til „hrókeringa" á húsakynnum
fyrir einstaka deildir og stofnanir
bæjarins. óþh
Sigurvegarar í samkeppni Eyjafjarðarsveitar um merki fyrir sveitarfélagið.
Feðgarnir Gunnlaugur Björnsson og Steindór Gunnlaugsson fengu 100.000
kr. í verðlaun fyrir merkið. Mynd: jóh
Merki fyrir Eyjaflarðarsveit:
Feðgarnir kræktu
í 1. verðlaunin
Feðgarnir Gunnlaugur Björns-
son og Steindór Gunnlaugsson
hlutu 1. verðlaun fyrir tillögu
sína í samkeppni um merki fyr-
ir Eyjafjarðarsveit. Eins og
fram kom í Degi á föstudag
samþykkti sveitarstjórn tillögu
dómnefndar um þrjú verð-
launamerki í samkeppni um
merki fyrir sveitarfélagið. Á
sunnudag voru síðan nöfn
ýmsar efnahagsráðstafanir ríkisstjórnarinnar beinast sérstaklega höfunda birt-
Opinberir starfsmenn:
Fundur í Alþýðuhúsinu á Akureyri
gegn opinberum starfsmönnum, segir í frétt frá fundarboðendum
Opinberir starfsmenn á
Norðurlandi gangast fyrir
fundi um stöðuna í kjarasamn-
ingunum og velferðarmálum
þjóðfélagsins á morgun. Fund-
Jón Baldvin
með fundi
og Ýdölum
Jón Baldvin Hannibalsson,
utanríkisráðherra, boðar til
funda í þessari viku um
GATT-samninginn og önnur
mál sem viðkoma landbúnað-
inum í Miðgarði í Skagafírði og
Ydölum í Aðaldal.
Fundur Jóns Baldvins í Mið-
garði verður nk. fimmtudags-
kvöld kl. 21 og í Ýdölum í
Aðaldal á föstudag kl. 14.
Ekki er ofsögum sagt að mikið
hafi verið rætt og ritað um
GATT-málið að undanförnu,
enda eitt stærsta mál fyrir bænda-
stéttina um árabil. Því má ætla að
margir leggi leið sína á þessa
fundi utanríkisráðherra. óþh
urinn fer fram í Alþýðuhúsinu
og hefst klukkan 16.00. Ræðu-
menn á fundinum verða þau
Ögmundur Jónasson, formað-
ur Bandalags starfsmanna ríkis
og bæja, Svanhildur Kaaber,
formaður Kennarasambands
íslands og Páll Halldórsson,
formaður Bandalags háskóla-
manna sem starfa hjá því opin-
bera, BHMR.
Á fundinum verður rætt um
komandi kjarasamninga og þá
stöðu sem launafólk er í um þess-
ar mundir. í fréttatilkynningu frá
fundarboðendum segir að efna-
hagsráðstafanir ríkisstjórnarinn-
ar valdi stórfelldri útgjaldaaukn-
ingu hjá launafólki og megi í því
sambandi nefna skertar barna-
bætur, lakari skilyrði til náms,
skerðingu örorku- og ellilífeyris
og stóraukinn sjúkrakostnað. Þá
segir að ýmsar þessara ráðstafana
beinist sérstaklega gegn opinber-
um starfsmönnum. Þeim sé hótað
réttindaskerðingu og vegið að
starfskjörum þeirra. Ríkisvaldið
hóti meðal annars að skerða
áunnin rétindi svo sem lífeyris-
réttindi, fæðingarorlof og veik-
indarétt í tengslum við komandi
kjarasamninga. Þá er bent á að
fjöldauppsagnir liggi í loftinu og
boðaður sé stórfelldur samdrátt-
ur í velferðarþjónustu.
Jóhanna Júlíusdóttir, formað-
ur Starfsmannafélags Akureyrar,
sagði að margir opinberir starfs-
menn væru óttaslegnir vegna
þeirra ráðstafana sem nú væru
boðaðar og menn hefðu fyllstu
ástæðu til þess að óttast um sinn
hag. Hugur væri í fólki að mæta
þessari aðför og snúa vörn í sókn.
Jóhanna sagði að fundurinn á
morgun yrði með svipuðu sniði
og þeir fundir sem þegar hefðu
verið haldnir með opinberum
starfsmönnum að undanförnu.
ÞI
Gunnlaugur og Steindór eru
frá Akureyri og hlutu þeir
100.000 kr. í verðlaun. Önnur
verðlaun í samkeppninni, kr.
35.000, hlaut Dóra Hansen í
Hafnarfirði en þriðju verðlaun
fékk Kristbjörg Ingólfsdóttir á
Akureyri, 15.000 kr.
Þess er nú beðið að félagsmála-
ráðuneyti opinberi nýjar reglur
um merki fyrir sveitarfélög en að
þeim fengnum mun sveitarstjórn
taka ákvörðun um merki fyrir
sveitarfélagið. Á þessari stundu
er því ekki ljóst hvort verðlauna-
merkið í samkeppninni mun falla
að þeim reglum sem nú taka
gildi. JÓH
Fiskmiðlun Noröurlands á Dalvík - Fiskverö á markaöi vikuna 12.01-18.011992
Tegund Hámarks- verð Lágmarks- verö Meðalverö (kr/kg) Magn <kg) Verömæti
Hlýri 50 50 50,00 63 3.150
Karfi 41 35 39,60 430 17.030
Keila 30 20 20,80 87 1.810
Lúöa 350 220 335,28 265 88.850
Steinbítur 55 50 52,59 352 18.511
Ufsi 51 49 50,49 11.009 555.892
Ýsa 114 100 113,18 685 77.530
Ýsa, smá 58 58 58,00 12 696
Þorskur 106 75 95,59 38.113 3.643.258
Þorskur, smár 70 67 68,57 18.851 1.292.559
Samtals 81,57 69.867 5.699.286
Dagur birtir vikulega töflu yfir fiskverð hjá Fiskmiölun Norðurlands é Dalvík og greinir þar frá verðinu
sem fékkst í vikunni á undan. Þetta er gert í Ijósi þess að hlutverk fiskmarkaða í verðmyndun
íslenskra sjávarafurða hefur vaxið hröðum skrefum og því sjálfsagt að gera lesendum blaösins
kleift að fylgjast með þrðun markaösverðs á fiski hér á Norðurlandi.