Dagur - 21.02.1992, Page 8
8 - DAGUR - Föstudagur 21. febrúar 1992
Þorkell Guðfinnsson skrapp til Þórshafnar í þriggja mánaða leyfi fyrir nítján
árum og hefur ekki snúið aftur enn. Mynd: Goiii
Sparisjoður Þórshafnar og nágrennis:
„Þurfum að stækka okkur upp“
- segir Þorkell Guðfmnsson, sparisjóðsstjóri
Sparisjóður Þórshafnar og
nágrennis er stöndug stofnun
sem hefur sýnt verulega inn-
Iánsaukningu á undanförnum
árum. A síðasta ári var útláns-
aukningin þó meira áberandi
en aukning innlána. Afkoma
sjóðsins var hins vegar mjög
góð. Við tókum Þorkel Guð-
finnsson, sparisjóðsstjóra, tali
í heimsókn okkar til Þórshafn-
ar.
Þorkell er einn af þeim sem
yfirgáfu Vestmannaeyjar í gos-
inu. Hann kom til Þórshafnar til
að vera þar í þrjá mánuði, var
eiginlega í leyfi en það hefur
heldur betur dregist úr því leyfi.
Hann vann hjá Kaupfélagi Lang-
nesinga, fyrst sem gjaldkeri og
síðan fulltrúi. Árið 1987 tók hann
við starfi sparisjóðsstjóra hjá
Sparisjóði Þórshafnar og ná-
grennis.
„Síðasta ár var með allra bestu
árum og þetta hefur verið á
stöðugri uppleið. Það er nauð-
synlegt fyrir sparisjóðinn hér að
hafa vaxtamun en ég viðurkenni
að hann hefur verið of mikill.
Ríkið ber ábyrgð á því, enda
þurftu bankar og sparisjóðir að
hafa hærri útlánsvexti þegar ríkið
bauð ríkisvíxla með 20%
vöxtum. Þá geta bankar og spari-
sjóðir ekki lánað út á 17%
vöxtum. En í rauninni er nauð-
synlegt að hafa þennan vaxtamun
á svona litlu svæði. Við lifum
ekki á þjónustugjöldum,“ sagði
Þorkell.
Meiri þjónusta við
fyrirtækin en áður
- Hvernig þróuðust inn- og útlán
á síðasta ári?
„Innlánsaukningin var sæmileg
eða 17%. Útlánsaukningin var
hins vegar 41% og það er vissu-
lega dálítið mikið. Við höfum
verið að reyna að þjóna fyrir-
tækjunum á staðnum meira en
við höfum gert og í rauninni
meira en þessi sparisjóður getur.
Okkar mottó er að þjónusta og
halda uppi byggð hér með því að
hjálpa fyrirtækjunum.
Svo kom loðnubrestur og afla-
brestur. Það áttu að vera mikil
uppgrip í síldinni en hún brást
líka. Við vorum búnir að hjálpa
Hraðfrystistöðinni að fjármagna
tæki til síldarvinnslu. Fyrirtækin
verða okkur þung þegar illa
árar.“
- En hefur mikið borið á van-
skilum hjá einstaklingum?
„Nei, staðan hjá einstaklingum
hefur verið mjög góð og sam-
kvæmt þeim skýrslum sem ég hef
má segja að við séum með
alminnstu vandamálin í sam-
bandi við gjaldfallnar skuldir,
miðað við þessa stærð á lána-
stofnun. Það eru heldur engin
vandamál hjá fyrirtækjunum en
við höfum reynt að þjónusta þau
meira en við höfum gert.
Vandamálið sem við stöndum
frammi fyrir er það að við þurf-
um að stækka okkur upp svo við
getum þjónustað t.d. Hraðfrysti-
stöðina með afurðarlánum en við
getum það ekki. Eigið fé okkar
er ekki nógu mikið, þó að það
hafi aukist frá 1987. Okkur vant-
ar tilfinnanlega meiri innlán og
stækkun á sparisjóðnum til að við
getum veitt afurðarlán. Lands-
bankinn sér um þá deild.“
Þrír mánuðir að verða
nítján ár
Þorkell sagðist vera bjartsýnn
eins og flestir Þórshafnarbúar.
Hann sagði að menn hefðu mikl-
ar væntingar í sambandi við kaup
Hraðfrystihússins og Þormóðs
ramma á Siglufirði á Vöku og
Hörpu, enda mikill kvóti í spil-
inu.
„Jú, menn eru bjartsýnir hér
eins og sjá má af því að fólki
fjölgaði hlutfallslega mest á Þórs-
höfn á síðasta ári.“
- Hvernig líkar þér svo að búa
á Þórshöfn?
„Mjög vel. Þú sérð það, ég
kom hingað til að vera í þrjá
mánuði þegar ég fór frá Vest-
mannaeyjum og þeir eru ekki
liðnir enn. Nú eru liðin tæp nítján
ár frá gosinu. Ég starfaði sem
póstafgreiðslumaður hjá Pósti og
síma í Vestmannaeyjum og var
fluttur til Keflavíkur í gosinu. Ég
fékk leyfi í þrjá mánuði og ég veit
ekki betur en að það leyfi sé enn
í gildi,“ sagði Þorkell að lokum.
SS
Portið
V/*:?;-/.- tv T t t .
i' iv.-.# $
M-. >>„
Portið er nú farið aftur af stað.
Portið er í nýju siökkviliðsstöðinni v/Árstíg.
Portið er opið alla laugardaga frá kl. 11.00-16.00
Básapantanir í síma 22381 eftir kl. 16.00 alla daga
Þór knattspyrnudeild.
OLFBÆR
vetrargolfæflngar
► Púttvöllur kr. 300 kist. ► Hópkennsla
► Chip ► Einkakennsla
► Bunker - sandur ► Videokennsla
► Æfinganet ► Áhöld til staöar
► Verslun ► Heitt d könnunni
Dag- og mánaðarkort á mjög góðu verði
Aðrar upplýsingar og skrdning
í kennslu í síma 23846
Opið mánud.-fóstud. frá kl. 11.00-23.00
laugard. og sunnud. frá kl. 9.00-18.00
Komdu og prófaðu - golfer feikna gaman
Ferðavakinn hf.:
Tölvuvædd upplýsingaþjónusta
fyrir ferðamenn kynnt á
Blönduósi, Akureyri og Húsavík
Upplýsingum til ferðamanna
hefur hingað til nær eingöngu
verið miðlað með bæklingum
og handbókum og hefur útgáf-
an oft verið of ómarkviss til
þess að ná umtalsverðum
árangri. Ferðavakinn hf. var
stofnaður til þess að bæta úr
þessu og koma á heilsteyptu
tölvuvæddu og myndrænu upp-
lýsingakerfi. Kerfi þetta verð-
ur sett upp í ár á helstu ferða-
mannastöðum landsins. Ferða-
vakinn verður kynntur á
Norðurlandi sem hér segir: Á
Hótel Blönduós mánudaginn
24. febrúar, daginn eftir að
Hótel KEA á Akureyri milli
kl. 13.00 og 18.00 og miðviku-
daginn 26. febrúar að Hótel
Húsavík.
Ferðaþjónusta á íslandi stend-
ur undir nær 10% þjóðartekna
okkar og um 14% gjaldeyris-
tekna af vöru og þjónustu og er í
vexti, meðan aðrar greinar
standa í stað eða minnka. Þetta
kallar á aukið upplýsingastreymi
til ferðamanna, ekki síst vegna
þess, að aðalferðamannatíminn
stendur aðeins hluta ársins og
kallar á sem gleggstar og bestar
upplýsingar, til þess að sem mest
arðsemi náist.
Tölvukerfi Ferðavakans hf. er
fólgið í tölvu, prentara og 16
tommu snertiskjá, sem notand-
inn fær upplýsingar sínar á. Þetta
eru upplýsingar um tiltekna
landshluta eða þjónustuhætti,
s.s. ferðamáta, hótel, bílaleigur,
sundstaði eða veitingastaði, svo
einhverjir þjónustuþættir séu
nefndir. Þar sem tölvukerfið
byggir á svonefndri margmiðlun-
artækni, er hægt að blanda saman
texta, hljóði og mynd og birta á
einum og sama tölvuskjánum.
Þetta býður upp á, að ferðamað-
urinn getur séð lifandi mynd
(video) í kerfinu, en í því verða
myndir frá 200 helstu perlum úr
náttúru íslands, auk þess sem
unnt verður að skoða flóru og
fugla landsins. Ferðamaðurinn
getur fengið útprentaðar allar
þær upplýsingar, sem á skjánum
birtast og haft með sér til nánari
skoðunar. Forritið Ferðavakinn,
sem notað er í kerfinu, er gætt
þeim eiginleikum, að það geymir
allar hreyfingar og færslur, og er
því hægt að fá þær útprentaðar
síðar til nánari úrvinnslu í ferða-
þjónustu.
Allar upplýsingastöðvarnar,
sem áætlað er að verði 18 í fyrsta
áfanga, verða tengdar saman og
verður því auðvelt að koma fram
með nýjar upplýsingar frá selj-
endum ferðaþjónustu og eins að
afmá upplýsingar sem ekki eiga
lengur við. Jafnframt gefst mögu-
leiki á að miðla fréttum og veður-
fregnum í þessu kerfi. Til þess að
ferðavakinn nái tilætluðum
árangri munu allir sem veita
ferðamönnum þjónustu verða
skráðir í kerfið, en aðeins þeir
sem kaupa áskrift og gagnainn-
setningu fá birtar þær upplýsing-
ar sem skipta öllu máli fyrir
ferðamenn.
Norðlendingum gefst nú kost-
ur á að kynna sér þetta áhuga-
verða ferðaþjónustukerfi nánar á
kynningunum á Blönduósi,
Akureyri og Húsavík. ój
Tvær 9 ára ganilar stelpur á Akureyri, Selma Sigurðardóttir og Sandra Rut
Þorgeirsdóttir, héldu tombólu á dögunum til styrktar hungruðum heimi.
Alls söfnuðust kr. 665,10 og fá þær Selma og Sandra bestu þakkir fyrir.
Mynd: JHB