Dagur - 10.03.1992, Side 16
Akureyri, þriðjudagur 10. mars 1992
Kodak
Express
Gæóaframköllun
★ Tryggðu f ilmunni þinni
Jjfoesta TedrGmyndir
Ss^s. Hafnarstræti 98, sími 23520 og Hofsbót 4, sími 23324.
Fjórðungsmót norðlenskra hestamanna:
Verður haldið á
Vindheimamelum
Fjórðungsmót norðlenskra
hestamanna árið 1993 verður
haldið á Vindheimamelum í
Skagafirði. Þetta var ákveðið á
Fimm til-
boð bárust
- í áfanga við grunn-
skólabygginguna í
Mývatnssveit
Fimm tilboð bárust í áfanga
við grunnskólabygginguna í
Mývatnssveit. Um er að ræða
einangrun á þaki, ílögn í gólf
og uppsteypu á tveimur stig-
um. Það verður meginverkefni
sveitarfélagsins að Ijúka bygg-
ingu hússins næstu tvö árin.
Tilboðin voru opnuð í gær-
morgun. Lægsta tilboðið var frá
Trésmiðjunni Rein í Reykja-
hverfi, 4 millj. 942 þúsund. Snið-
ill hf. í Mývatnssveit bauð 5 millj.
184 þúsund í verkið, Fjalar hf á
Húsavík bauð 5 millj. 629 þúsund
og var einnig með frávikstilboð 5
millj. 366 þúsund, Jónas Gests-
son á Húsavík bauð 5 millj. 369
þúsund og Timburtak á Húsavík
6 millj. 549 þúsund. Sveitarstjórn
hafði aðeins gert lauslega kostnað-
aráætlun sem ekki verður birt
opinberlega.
Sveitarstjórn mun skoða til-
boðin og bera þau saman og
væntanlega verður afgreitt á
fundi á fimmtudag hvern verður
gengið til samninga við um
verkið. IM
Veglagning yfir Þverá
í Eyjafjarðarsveit:
Nítján aðilar
buðu í verkið
Vegagerð ríksins opnaði í gær
tilboð í veglagningu á Eyja-
fjarðarbraut eystri. Um er að
ræða veg yfir Þverá en búið er
að steypa hólk í ána. Alls
gerðu 19 aðilar tilboð í verkið
og var lægsta tilboðið rúm 55%
af kostnaðaráætlun.
Árni Helgason í Ólafsfirði átti
lægsta tilboðið í verkið, bauð
rúmlega 5,7 milljónir sem er
55,03% af kostnaðaráætlun
Vegagerðinnar. Hún var tæpar
10,4 milljónir króna.
Næstu fimm tilboð voru þann-
ig: Borgarfell hf. á Egilsstöðum
bauð 55,55% af kostnaðaráætl-
un, Akurverk á Akureyri bauð
62,18%, Guðmundur Erlendsson
á Hvammstanga bauð 64,25%
, kostnaðaráætlunar, G. Hjálmars-
son á Akureyri bauð 66,01% af
kostnaðaráætlun og Arnarfell hf.
Ytri-Brekkum bauð 67,34% af
kostnaðaráætlun.
Af þeim 19 aðilum sem skiluðu
inn tilboðum í verkið var aðeins
einn aðili yfir kostnaðaráætlun
Vegagerðarinnar. Það var Klæð-
ing hf. í Garðabæ sem bauð 10,9
milljónir í verkið.
Verkinu á að skila fyrir 1. júlí í
sumar. JÓH
fundi fulltrúa norðlenskra
hestamannafélaga sem haldinn
var um helgina á vegum Lands-
sambands hestamanna.
„Á fundinum var náttúrlega
tekist á um þetta, en menn töl-
uðu málefnalega um hlutina og í
atkvæðagreiðslu um hvort mótið
ætti að vera á Melgerðismelum
eða Vindaheimamelum var sam-
þykkt með ellefu atkvæðum á
móti sex, að halda mótið á Vind-
heimamelum,“ segir Stefán
Bjarnason, en hann boðaði til
fundarins fyrir hönd LH.
Að sögn Stefáns var einungis
kosið um þessa tvo mótsstaði og
lögðu félögin fram hvað þau
vildu fá stóra prósentu af inn-
komu fyrir svæðin. Skagfirðingar
buðu betur og segir Stefán að
ástæðan fyrir því sé trúlega sú að
búið sé að byggja svæðið betur
upp á Vindheimamelum en Mel-
gerðismelum.
„Þetta var framkvæmt lýð-
ræðislega og enginn hiti í neinum
út af því. f>ó má e.t.v. segja að
þetta séu viss vonbrigði fyrir
eyfirska hestamenn og Melgerð-
ismelar hafi verið endanlega
dæmdir úr leik, en þar var síðast
haldið fjórðungsmót árið 1987,“
sagði Stefán um ákvörðunina.
SBG
Hvílt á pollanum.
Mynd: Golli
Akureyri:
Sjö í steininn
Sjö voru færðir í fangageymslu
lögreglunnar á Akureyri um
helgina vegna ölvunar.
Að sögn lögreglu voru nokkrir
teknir fyrir of hraðan akstur og
þrír árekstrar urðu í umferðinni á
Akureyri. Engin alvarleg meiðsl
urðu á fólki. óþh
Sigluíjörður:
„Sfldarhljómplata“
væntanleg í sumar
Ákveðið er að fyrripart sumars
verði gefin út hljómplata með
gömlum góðum síldar- og sjó-
mannaslögurum, sem á einn
eða annan hátt tengjast Siglu-
firði og síldarárunum.
„Sú hugmynd kviknaði eftir
„síldarævintýrið“ á sl. sumri að
gaman væri að safna saman lög-
um á eina plötu sem tengdust
síldinni, sjónum og Siglufirði
sagði Björn Valdimarsson,
bæjarstjóri á Siglufirði. Hann
viðraði hugmyndina við forsvars-
menn Steina hf. og niðurstaðan
varð sú að fyrripart sumars er
væntanleg á markaðinn einskon-
ar „síldarplata“ með gömlu góðu
síldarslögurunum. Björn sagði að
eingöngu væri um að ræða frum-
upptökur af lögunum, ekki væri
hugmyndin að endurútsetja þau
og hljóðrita á nýjan leik. óþh
SD vill viðræður við Einingu
Finnbogi Baldvinsson, fram-
kvæmdastjóri Söltunarfélags
Dalvíkur, segist vera ósáttur
við að verkalýðsfélagið Eining
hafni viðræðum við fyrirtækið
um að teknar verði upp álags-
greiðslur á kvöld- og nætur-
vinnu. Ekki náðist í Björn
Snæbjörnsson, varaformann
Einingar, vegna þessa máls í
gær, en hann hefur haft með
það að gera fyrir hönd félags-
ins.
Finnbogi segir að fyrir nokkru
hafi hann óskað eftir viðræðum
við Einingu um álagsgreiðslur
fyrir kvöld og næturvinnu.
Astæðan fyrir þeirri beiðni var
sú, að sögn Finnboga, að stjórn-
endur fyrirtækisins horfðu til þess
að verksmiðjan yrði starfrækt all-
an sólarhringinn. „Við viljum
auka starfsemi fyrirtækisins og
lengja vinnutímann og því ósk-
uðum við eftir viðræðum við Ein-
ingu um álagsgreiðslur til fólks
sem vildi vinna á kvöldin eða
nóttunni, vegna þess að um það
eru ekki til neinir kjarasamning-
ar,“ sagði Finnbogi. Hann sagði
að í mörgum öðrum atvinnu-
greinum en fiskvinnslu á félags-
svæði Einingar væri slíkt launa-
kerfi viðhaft og benti f því sam-
bandi á íslenskan skinnaiðnað hf.
og FSA.
„Verkalýðsfélagið Eining
þekkir því vel til slíkra samninga.
Það er ekkert nýtt fyrir félagið.
Þingeyjarsýsla:
Sumarfærð á vegum
„Það er sumarfæri hér á öll-
um vegum,“ sagði Ingólfur
Árnason hjá Vegagerð ríkisins
á Húsavík, um ástand vega í
sýslunni eftir rokið og vatna-
vextina sem víða ullu spjöllum
um helgina.
„Þetta virðist hafa sloppið til
hjá okkur, eins og svo oft áður,“
sagði lögreglan, aðspurð um
skemmdir af völdum veðursins.
Viðmælendum Dags var ekki
kunnugt um neinar skemmdir á
vegum eða öðrum mannvirkjum
síðdegis í gær.
Ingólfur sagði að það svell sem
fyrir var hefði tekið upp og allir
vegir væru auðir eftir hlákuna.
IM
Ég hélt að í þeirri umræðu, sem
nú á sér stað um atvinnumál, þá
hefði Eining þor til þess að ræða
um leiðir til þess að örva atvinnu-
líf. Okkar hugmynd er að auka
atvinnuna í verksmiðjunni, en
það er alveg ljóst að staða fisk-
vinnslunnar um þessar mundir er
með þeim hætti að hún stendur
ekki undir því að greiða nætur-
vinnulaun fyrir alla vinnu utan
dagvinnutíma. Verkalýðsfélög
geta ekki gert allt aðrar kröfur á
fiskvinnsluna en aðrar atvinnu-
greinar," sagði Finnbogi. óþh
Bakaríið Brauðver opnað í Ólafsfirði á laugardag:
„Gengdarlaus aðsókn alla helgina“
- segir Arnbjörn Arason, bakari
„Ég segi hreinlega pass. Hér
hefur verið alveg gengdarlaus
aðsókn alla helgina og við urð-
um að hafa opið allan sunnu-
daginn, sem þó stóð ekki til,“
sagði Ambjöm Arason, bakari,
sem opnaði nýtt bakarí í Ólafs-
firði á laugardag. Bakaríið hef-
ur hloðið nafnið „Brauðver“
og er það fyrsta bakarí í Ólafs-
firði um langan tíma.
„Það er reglulega skemmtilegt
hve Ólafsfirðingar taka bakaríinu
vel. Þeir kaupa allt, klára bara
það sem til er,“ sagði Arnbjörn í
samtali við blaðið í gær.
Margir þurftu frá að hverfa á
laugardag þegar bakaríið var
opnað, svo mikil var örtröðin.
Arnbjörn segir að ætlunin hafi
verið að nota sunnudaginn til að
byrgja sig upp fyrir virku dagana
og senda í verslanir en svo margir
hafi komið að ákveðið hafi verið
að opna verslunina.
Arnbjörn vinnur í bakaríinu
ásamt eiginkonu sinni, Soffíu
Húnfjörð, en svo gæti farið að
ráða þurfi tímabundið þriðja
starfskraftinn meðan byrjunar-
hrinan gengur yfir. Strax í gær-
morgun var lítillega sent í búðir
en það er ætlunin þegar frá líður.
„Já, ég vona að við getum fram-
leitt það mikið að hægt sé að
sinna öllum en núna hef ég engan
veginn undan,“ sagði Arnbjörn.
Hann bætti því við að full
ástæða sé til að þakka öllum þeim
fjölda fólks sem sendi fyrirtækinu
blómaskreytingar á opnunardag-
inn og þakka Ólafsfirðingum
móttökurnar. JÓH
Dalvík:
Rúðubrot og
májningarslettur
í Öluns-húsinu
Töluverðar skemmdir voru
unnar í síöustu viku á húsi
fiskeldisstöðvarinriar Öluns
hf. á Dalvík, sem hætti
raunar starfsemi fyrir
nokkru. Lögreglan á Dalvík
fékk ábendingu um þetta
um hclgina og rannsakar nú
málið.
Ljóst er að viðkomandi
hafa fengið þarna ríflega útrás
fyrir skemmdarfýsn sína, því
flestallar rúður í húsinu höfðu
veriö brotnar auk þess scm
málningu haföi verið skvett
upp um veggi og á gólf þess.
Lögreglan á Dalvík vinnur
að rannsókn málsins og munu
ákveðnir aðilar liggja undir
grun.
Byggðastofnun á Öluns-
húsið sem stendur. óþh