Dagur - 12.03.1992, Qupperneq 4
4 - DAGUR - Fimmtudagur 12. mars 1992
ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF.
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31,
PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SÍMI: 96-24222
ÁSKRIFT KR. 1200 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ KR. 110
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMNETRA 765 KR.
RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.)
FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
BLAÐAMENN:
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 96-41585),
JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, JÓN HAUKUR BRYNJÓLFSSON (íþróttir),
ÓLIG. JÓHANNSSON, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON,
SKÚLI BJÖRN GUNNARSSON (Sauöárkróki vs. 95-35960, fax 95-36130),
STEFÁN SÆMUNDSSON, ÞÓRÐUR INGIMARSSON
LJÓSMYNDARI: KJARTAN ÞORBJÖRNSSON
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON, ÞRÖSTUR HARALDSSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON
DREIFINGARSTJÓRI:
HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI-25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL
PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF.
SÍMFAX: 96-27639
Framtíd nor-
rænnar samvinnu
Umræður á 40. þingi Norðurlandaráðs í síðustu
viku endurspegla óvissu um framtíð norrænnar
samvinnu. Ljóst er að veigamiklar breytingar
munu eiga sér stað á starfsemi Norðurlandaráðs
á næstu árum í beinu framhaldi af þeirri þróun
sem nú á sér stað í Evrópu. Danir hafa átt aðild að
Efnahagsbandalagi Evrópu í tvo áratugi og flest
bendir til þess að Svíar, Norðmenn og Finnar ger-
ist aðilar að EB á næstu árum. Ef svo fer verður
ísland eitt Norðurlanda utan Evrópubandalags-
ins. Þrátt fyrir það þurfa íslendingar ekki að
örvænta um framtíð norrænnar samvinnu og ótt-
ast einangrun á þeim vettvangi.
Davíð Oddsson, forsætisráðherra, hefur lýst
áhyggjum sínum af því að ísland verði meira og
minna utanveltu í norrænu samstarfi í framtíð-
inni, fari svo að íslendingar standi einir Norður-
landaþjóða utan EB. Hann telur líklegt að sam-
starfið innan Norðurlandaráðs muni þá fyrst og
fremst snúast um afstöðu til mála sem upp koma
á vettvangi Evrópubandalagsins. Það er að vísu
rétt hjá forsætisráðherra að þau Norðurlönd, sem
gerast aðilar að EB, munu örugglega hafa náið
samstarf sín á milli á sviði efnahagsmála. ísland
mun því að einhverju leyti verða utanveltu á því
sviði, standi það eitt aðildarlanda ráðsins utan
EB. Á hinn bóginn verður það þá mikilvægara fyr-
ir okkur íslendinga en nokkru sinni fyrr að
Norðurlandasamstarfið sé sem sterkast, því við
þurfum á góðum bandamönnum að halda í sam-
skiptum okkar við Evrópubandalagið. Það yrði
mjög mikilvægt fyrir ísland að vera með hinum
Norðurlandaþjóðunum í umfjöllun um Evrópu-
málin, því með þeim hætti gæti ísland haft nokkur
áhrif og komið sjónarmiðum sínum á framfæri
með aðstoð frændþjóða sinna. Norðurlandasam-
starfið gæti því, þrátt fyrir nýjar áherslur, átt þátt
í að styrkja stöðu íslands í breyttri Evrópu.
Á þingi Norðurlandaráðs kom skýrt fram að
þær þjóðir, sem eru á leið inn í Evrópubandalagið,
telja að einhver verkefni muni flytjast frá Norður-
landaráði til bandalagsins. Á móti kemur að
búast má við að Norðurlandaþjóðirnar leggi í
framtíðinni áherslu á að auka samstarfið á sviðum
sem ekki falla beinlínis undir verksvið Evrópu-
bandalagsins. Þar má fyrst og fremst nefna sam-
starf á sviði menningar- og félagsmála. Við eigum
fullt erindi í það samstarf, hér eftir sem hingað til.
Að síðustu er rétt að hafa í huga að þau bönd,
sem tengja Norðurlandaþjóðirnar saman, mynd-
uðust ekki á einni nóttu. Þau eiga sér aldalanga
sögu ocj eru m§ð st§rka*sta möti cg því ástæou-
laust að ætla að þau slitni auðveldlega. BB.
Atvinnuleysi
Flest iðnríkjandi búa við verulegt atvinnuleysi. Nú virðist atvinnu-
leysi fara í vöxt á íslandi. Langtíma atvinnuleysi, þ.e. hlutfall
atvinnulausra sem hafa verið atvinnulausir í meira en 4 mánuði, hef-
ur aukist úr tæpum 20% á árinu 1988 í yfir 40% í ár. Hér á eftir
verður skýrt frá helstu heilsufars- og lífsstflsvandamálum sem fylgja
í kjölfar atvinnuleysis. Oft er því haldið fram að einungis „minni
máttar“ og þeir er ganga ekki heilir til skógar verði atvinnuleysi að
bráð, þess vegna sé heilsuleysi ekki bein afleiðing atvinnuleysis.
Niðurstöður þær sem hér verða birtar eru byggðar á mörgum
samanburðarrannsóknum og fjalla um hvernig áður heilsuhraustu
fólki bregður við atvinnuleysi eða yfirvofandi atvinnuleysi.
Heilsufarsleg og félagsleg
vandamál er fylgja
atvinnuleysi
Niðurstöður margra rannsókna
sýna að atvinnulausum og þeim
sem eiga yfir höfði sér atvinnu-
leysi er mun hættara við háþrýst-
ingi en öðrum sem eiga ekki slíkt
yfir höfði sér. Jafnframt hækkar
blóðfita og streituhormón
(adrenalin) í blóði og þvagút-
skilnaði (noradrenalin). Viðvar-
andi hækkun á streituhormón
hefur fundist í allt að 2 ár eftir að
viðkomandi missti vinnu. Svo
virðist sem stjórnendum sem
standa að fjöldauppsögnum, oft
að nauðsynjalausu, séu ekki ljós-
ar þessar afleiðingar. Eftir að
fólkið hóf störf á ný lækkaði
blóðþrýstingur og magn streitu-
hormóna í blóði. Streitu fylgja
ýmsir sjúkdómar og hefur það
m.a. verið staðfest í íslenskum
rannsóknum.
Má þar nefna helst:
- hjartasjúkdómar
- háþrýstingur/heilablóðfall
- magasár/magabólgur
- vöðva- og bakverkir
- þreyta
- svefnleysi
- höfuðverkur
- geðtruflanir
Niðurstöður margra kannana
leiða í ljós að sjúkrahúsvistunum
vegna jjunglyndis, kvíða, sjálfs-
morðstilrauna og annarra sjúk-
dóma fjölgar mikið meðal
atvinnulausra í samanburði við
þá sem hafa vinnu. Orsakasam-
band hefur þó ekki verið sannað.
í grein í J. Epidemiol &
Health2) kom í ljós að mikla
aukningu á heilablæðingum sem
varð í 32 heilsugæslusvæðum í
London á árunum 1971-’81 megi
tengja miklu atvinnuleysi. Tíðni
heilablæðinga jókst um 0,05/1000
íbúa fyrir hvert prósentustig, sem
atvinnuleysi jókst. í grein BMJ3)
1990 er birt grein um dánartíðni
launþega á aldrinum 30-54 ára í
Finnlandi 1980. Verulega aukin
dánartíðni (hjarta-/æða- og
öndunarfærasjúkdómar, sjálfs-
morð og slys) varð meðal
atvinnulausra sem ekki er hægt
að skýra með áhrifum annarra
líf-, félags- og heilsufræðilegra
þátta, líkt og í fyrri rannsóknum.
í grein sem birtist í BMJ4) 1990
kom í ljós að samfara hættu á
atvinnuleysi meðal hafnarverka-
manna jókst m.a. magn kolesterol
í blóði miðaldra karla, en einkum
meðal þeirra er þjást af svefnleysi
í samanburði við þá sem höfðu
örugga atvinnu. Þessar niður-
stöður geta skýrt aukna dánar-
tíðni vegna hjarta- og æðasjúk-
dóma meðal atvinnulausra.
Framangreindar athuganir
renna styrkum stoðum undir þá
staðreynd að atvinnuleysi fylgir
vanheilsa en ekki að einungis
þeir veiku verða atvinnuleysi að
bráð, sem oft hefur verið haldið
fram.
Lífsstíll
Að megna ekki að hafa áhrif á
gang eigin mála, þ.e. komast í
vonlitla aðstöðu eða sjálfheldu,
leikur fólk illa. Það hefur i!l áhrif
á ar.uiegá líðan og heimilislíf.
Fólk finnur til óöryggis og
missir sjálfstraust. Það er mikið
áfall að geta ekki séð fjölskyldu
sinni sæmilega farborða. Fólk
finnur fyrir skömm og vanmætti.
Það einangrast og finnur til firr-
ingar og árásargirni. Þessar
kenndir valda oft t.d. óbeint auk-
inni tóbaks- og áfengisneyslu.
Tengsl við vinnufélaga rofnar og
eðlilega hrynjandi vantar í dag-
legt líf fólks. í fámennu þjóð-
félagi líkt og á íslandi, þar sem
„allir þekkja alla“ markar þessi
líðan líklega dýpri spor í sálarlíf
fólks en ella. Trúlega reynist
stjórnendum erfiðara að segja
upp fólki vegna þessa og er það
af hinu góða.
Um börn og unglinga
þeirra atvinnulausu
Börn og unglingar finna m.a.
fyrir:
- óöryggi
- taugaveiklun, sem kemur nið-
ur á námi þeirra og daglegri
líðan
- sinna síður heilsuvernd, s.s.
bólusetningum
- sækja síður ráðgjafir félags- og
heilsuverndar
- vistast mun oftar á sjúkrahús
- leita síður eftir atvinnu síðar á
ævinni en aðrir
- börnum og unglingum er hætt-
ara við að tapa áttum, vímu-
efnaneysla eykst og þau lenda
frekar í vandræðum, m.a. við
lögreglu síðar meir.
Eldra fólk: Það dregur úr
stuðningi atvinnulausra aðstand-
enda við eldra fólk.
Efnahagur einstaklinga
og ríkis
Talið er að víðtækt atvinnuleysi
dragi úr kaupkröfum manna og
þá kaupgetu. Umdeilt er hvort
atvinnuleysi bæti fjárhag ríkisins
m.a. vegna framleiðslutaps sem
af því hlýst. í ofanálag koma
atvinnuleysisbætur og lífeyris-
tryggingar hinna atvinnulausu,
sem geta orðið umtalsverðar.
Samband íslenskra kristniboðs-
félaga hefur undanfarin ár unnið
ötullega að boðun og framfara-
málum í Eþíópíu og Kenýu.
Heilbrigðisþjónusta, fræðslustörf
og ýmis smærri þróunarverkefni,
sem unnin eru í samstarfi við þá
sem hjálparinnar njóta, hafa gef-
ið góða raun. Árangur boðunar-
starfsins eru lifandi söfnuðir, sem
sjálfir standa fyrir fjölþættri kær-
leiksþjónustu við meðbræður
sína. Þannig margfaldast sú hjálp
sem kemur frá íslandi.
Aðkallandi verkefni bæði á
starfssvæðum íslensku kristni-
boðanna og á nærliggjandi stöð-
um bíða þess að á þeim sé tekið.
Sársauki, óréttlæti, vanþekking
og erfið kjör fólksins í Eþíópíu
og Kenýu knýja á aukna aðstoð.
Á þessu ári er ráðgert að senda út
fiffim nýja kristniboða til Eþíópíu.
Það er ef til vill ekki raunhæft að
auka starfið þegar lífsbaráttan
hér á landi harðnar. Reynslan
Ólafur Ólafsson.
T.d. má búast við, að uppsagnir
200-300 manns kosti íslenska rík-
ið 120-180 milljónir á ári + lífeyr-
istryggingar ef atvinnuleysi verð-
ur viðvarandi. Hvert prósentustig
í aukningu atvinnuleysis kostar
Atvinnuleysistryggingasjóð 600-
700 milljónir.
Samantekt
Atvinnuleysi er félags-, heilsu-
fars- og efnahagsleg vá, sem gerir
fólk ráðþrota og vanheilt. í kjöl-
far þess fýlgir sálarkreppa, margir
líkamlegir sjúkdómar og félags-
leg einangrun. Leit fólks til heil-
brigðisþjónustu eykst mikið.
Trúlega dregur úr kaupkröfum
fólks en tap ríkisins vegna fram-
leiðslutaps, atvinnuleysisbóta og
lífeyristrygginga er umtalsvert.
Aðstandendur og börn atvinnu-
lausra fara síður en svo varhluta
af afleiðingum atvinnuleysis.
Heimildir:
1. ólafur Ólafsson, Per-Gunnar Svensson.
Unemployment-related lifestyle changes and
health disturbances in adolescent and children
in the western countries. Soc. Sci. Med.
1986; Vol. 22, No. 11. pp. 1105-1113.
2. P.J. Franks et.al. Stroke death and
unemployment in London. J. Epidemiol. &
Comm. Health 1991; 45:16-18.
3. P.T. Martikanen. Unemployment and
mortality among Finnish men 1981-85. BMJ
1990;301:407-411.
4. J. Mattiasson et.al. Threat of unemployment
and cardiovascular risk factors. BMJ
1990;301:461-466.
5. Ólafur Ólafsson. Vinna, streita og heilsa í
velferðarþjóðfélagi. Heilbrigðisskýrslur,
Fylgirit nr. 1989.
6. Ungir fíkniefnaneytendur. Hvaðan koma
þeir og hvert halda þeir. Heilbrigðisskýrslur,
Fylgirit nr. 4 1990.
Höfundur er landlæknir.
sýnir þó að þegar að kreppir þá
er eins og erfiðleikar þeirra sem
minna mega sín verði auðskildari
og fórnfýsi eykst.
Kristniboðsfélag kvenna á
Akureyri er aðili að Sambandi
íslenskra kristniboðsfélaga. Árs-
reikningar félagsins fyrir 1991
sýna að sendar hafa verið 595
þúsund krónur til kristniboðsins
á því ári. Það er þakkarefni að
lítið félag geti lagt af mörkum
svo háa upphæð. Án stuðnings
góðra velunnara væri þetta ekki
hægt. Félagskonur þakka því af
alhug alla fórnfýsi og uppörvun.
Guð launi ykkur öllum.
Fyrir hönd Kristniboðsfélags
kvenna á Akureyri.
Ingileif Jóhanncsdóttir
formaður, Víðilundi 20;
Þórey Sigurðardóttir gjaldkeri,
Möðruvallastr. 1;
Hanna Stefánsdóttir ritari,
Víðilundi 24.
Þakkir frá Kristni-
boðsfélagi kvenna