Dagur - 12.03.1992, Blaðsíða 14
14 - DAGUR - Fimmtudagur 12. mars 1992
Tónlist
Stórtónleikar á Blönduósi
Laugardaginn 7. mars var mikið
um dýrðir í Félagsheimilinu á
Blönduósi. Þar voru saman kom-
in börn og unglingar, nemendur í
tónlistarskólum og grunnskólum
á Norðurlandi vestra allt frá
Siglufirði í austri til Borðeyrar í
vestri. Með þeim voru kennarar
þeirra í tónlist og þau voru stödd
þarna til þess að gera sér og öðr-
um glaðan dag með samleik og
söng og einnig í tilefni af ári
söngsins.
Undirbúningur þessarar miklu
hátíðar var í höndum þriggja
manna nefndar, sem skipuð var
Elínborgu Sigurgeirsdóttur, skóla-
stjóra Tónlistarskóla Vestur-
Húnvetninga á Hvammstanga,
Svanbjörgu Sverrisdóttur, tón-
menntakennara við grunnskól-
ann á Blönduósi, og Skarphéðni
Einarssyni, kennara við tónlistar-
skólann á Blönduósi.
Undirbúningur hófst í
nóvember í vetur, en síðan hefur
verið unnið ötullega og árangur-
inn mátti sjá á tónleikunum á
Blönduósi. Endanleg fram-
kvæmd þeirra var að mestu í
höndum heimamanna, Svan-
bjargar Sverrisdóttur og Skarp-
héðins Einarssonar með góðu
atfylgi Jóhanns Gunnars Hall-
dórssonar, skólastjóra tónlistar-
skólans á Blönduósi, en allir
lögðu hönd á plóginn til þess að
gera hátíðina sem best úr garði
og sannarlega varð hún glæsileg -
sannkallaðir stórtónleikar.
Þátttakendur voru verulega
yfir tvö hundruð. Þar voru ein-
leikarar á hljóðfæri, hljóðfæra-
leikarar, sem léku saman í ýms-
um fámennum samsetningum,
stórar blásarasveitir, einsöngvar-
ar og kórar.
Auk Vestur-Norðlendinga,
voru gestir mættir á tónleikana.
Þeir voru félagarnir í Skólalúðra-
sveit Seltjarnarness undir stjórn
Kára Einarssonar. Þessi hljóm-
sveit var fyrst á tónleikunum og
var talsvert fjörleg. Síðan rak
hvað annað í um þriggja klukku-
stunda dagskrá.
Nemendur út Vestur-Húna-
vatnssýslu léku á ýmis hrjöðfæri
og kom einnig fram kór undir
stjórn Ólafar Pálsdóttur og stóð
sig skemmtilega.
Á eftir Vestur-Húnvetningun-
um komu nemendur úr Skaga-
fjarðarsýslu, sem einnig Iéku á
mörg hljóðfæri og þaðan var
einnig allfjölmennur kór. Eftir-
tektarverður ungur píanisti, Jón
Bjarnason, var á meðal þeirra,
sem komu fram úr Skagafirði.
Næst komu nemendur af Sauð-
árkróki og léku á ýmiss hljóðfæri
í margvíslegum samsetningum.
Tvær stúlkur báru af í frammi-
stöðu enda greinilega komnar
nokkuð langt í námi sínu. Þær
voru Heiðdís Lilja Magnúsdóttir,
píanóleikari, og Ragnheiður
Bjarnadóttir, sem lék á píanó og
flautu.
Siglfirðingar voru næstir. Einnig
í þeirra hópi var mikil fjölbreytni
í hljóðfæravali og samsetning-
FONDUEHELGI
12., 13. og 14. mars
f % i veislusal
Greifans
,2 -STÁSSINU" ,
Glæsilegur
fjórrétta seðill
Fordrykkur
kir Ruyale
Saffranbætt humarsúpa
m/rjómatoppi
Fondue sinfónía
naut, lamb og grís ásamt fjölbreyttu
úrvali meðlætis
Desert
sitrónufrómas m/ferskum ávöxtum
kr. 2290,-
Munið að panta borð tímanlega,
sími 26690. £
um. Þaðan kom efnilegur harm-
oníkuleikari, Heimir Sverrisson,
og einnig hljómsveit með óvenju-
lega hljóðfærasamsetningu og
hana skemmtilega.
Lestina ráku gestgjafarnir,
Austur-Húnvetningar. Þeir
komu fram í kór undir stjórn
Svanbjargar Sverrisdóttur. og í
mikilli blásarasveit, sem lék tals-
vert vel undir stjórn Skarphéðins
Einarssonar.
Næst síðasta atriðið á tón-
leikunum var leikur blásarasveit-
ar, þar sem allir tóku þátt bæði
Vestur-Norðlendingar og gestir.
Lokaatriðið var söngur og leikur
allra þátttakenda í mótinu. Þeir
mynduðu gríðarstóran kór og að
baki honum var mikil blásara-
sveit. Stjórnandi beggja síðustu
atriðanna, sem voru sannarlega
glæsilegur lokapunktur vel heppn-
aðrar hátíðar, var Skarphéðinn
Einarsson.
Eftir að hafa verið viðstaddur
stórtónleika sem þá, sem haldnir
voru á Blönduósi, þarf enginn að
velkjast í vafa um gildi slíkra
samkoma. Þarna koma börn og
unglingar saman, leika saman,
syngja saman, kynnast og ekki
síst skemmta sér saman á heil-
brigðan máta. Tengsl skapast á
milli þeirra, sem starfa að
málefnum tengdum tónlist og
tónlistaruppeldi. Bækur eru
bornar saman, menn læra hver af
öðrum og fara ríkari heim aftur.
Víst er ljóst, að að baki
atburðum sem þessum liggur
mikil vinna. Hún er þó áreiðan-
lega erfiðisins virði. Það var
greinilegt af brosum og kátínu
þeirra, sem þátt tóku - jafnt
barna og unglinga sem fullorð-
inna.
Haukur Ágústsson.
Heimiskvöld í Miðgarði
Heimiskvöld eru árvissir atburðir
í Skagafirði. Á þessum samkom-
um býðui Karlakórinn Heimir
héraðsmönnum til skemmtunar,
þar sem kórinn kemur fram, kór-
félagar flytja ýmislegt annað en
söng og listamönnum er boðið á
samkomuna til þess að flytja efni.
Kaffi og meðlæti eru innifalin í
miðaverði og gestir geta því bæði
nært sig til líkama og sálar í góð-
um og líflegum félagsskap, þar
sem bæði ungir og aldnir eru vel-
komnir.
Laugardaginn 7. mars efndi
Karlakórinn Heimir til Heimis-
kvölds í Miðgarði. Samkoman
hófst með söng kórsins. Hann
raðaði sér innan um samkomu-
gesti og bauð þeim að syngja með
sér lagið Hér ættum við allir að
vera. Þetta var góð byrjun á mjög
ánægjulegu kvöldi. Margir gesta
tóku undir og tilfinningin var sú,
að þeir, sem í salnum sátu, væri
innan í kórnum og jafnvel félagar
í honum.
Fyrsta lagið á eiginlegri söng-
skrá kórsins var Úr útsæ rísa
íslands fjöll eftir Pál ísólfsson og
Davíð Stefánsson. Greinilegt
var, að kórinn var ekki orðinn
söngheitur. Þó að talsverður
þróttur væri í flutningi, skorti
breidd og fyllingu. Síðan rak
hvert lagið annað í þessari fyrri
sönghrynu kórsins, en í henni
flutti hann sex lög. Víða var eftir-
tektarvert, hve vel kórinn lét að
stjórn og ekki síður það, hve vel
samtaka hann var, svo sem í Nú
geng ég með á gleðifund og Kerl-
ingin með stafinn, sem var síð-
asta lagið í þetta fyrra skipti, sem
kórinn kom fram. í því lagi var
hann orðinn vel heitur og kominn
í hann sá tónn, sem skorti í fyrsta
laginu.
Með kórnum komu fram ein-
söngvararnir Björn Sveinsson,
bassi, og Sigfús Pétursson, tenór,
í laginu Sendið hingað sólskin
inn, og Pétur Pétursson, tenór, í
Granada, þar sem Jacqueline
Simm kom einnig við sögu með
óbóleik. Allir komust vel frá
sínu. Sérlega var eftirtektarverð
frammistaða Björns Sveinssonar,
en hann hefur skemmtilega bassa-
rödd.
Gestir kórsins á Heimiskvöld-
inu í Miðgarði voru tónlistar-
menn frá Akureyri, Jacqueline
Simm, óbóleikari, Richard
Simm, píanóleikari, Eileen
Silcocks, cellóleikari, Jennifer
Spears, gítarleikari og Gordon
G. Jack, trompetleikari. Eileen
Silcocks lék á blokkblautur.
Gestirnir hófu leik sinn á því,
að Richard Simm og Thomas
Higgerson, undirleikari Karla-
kórsins Heimis, léku fjórhent á
píanó fjórar útsetningar Richards
Simms á íslenskum þjóðlögum og
fjórhenta útsetningu á laginu
Æskuheit eftir Ingunni Bjarna-
dóttur. Útsetningarnar eru ætlað-
ar nemendum í píanóleik, en eru
vel þess virði að þær séu fluttar
víðar. Þær einkennast af fjöl-
breytm og léttleika auk þess, sem
hljómasetning er víða skemmti-
leg og fersk.
Þá fluttu Jacqueline Simm og
Thomas Higgerson Incantation
and Dance, bandarískt verk fyrir
óbó og píanó. Næst fluttu Eileen
Silcocks, Jennifer Spears og
Jacqueline Simm lítið og snoturt
franskt verk fyrir blokkflautu,
gítar og rödd. Þriðja verkið, sem
gestirnir fluttu var hluti úr gít-
aikonsert eftir Rodrigo, sem
Jacqueline Simm lék á enskt horn
og Jennifer Spears á gítar. Næst-
síðasta verkið var Bossanova fyr-
ir gítar og blokkflautu flutt af
Jennifer Spears og Eileen Silcocks
en það síðasta Samba fyrir óbó,
blokkflautu, trompet og gítar
flutt af Jacqueline Simm, Eileen
Silcocks, Gordon G. Jack og
Jennifer Spears.
Hljóðfæraleikur gestanna jók
mjög á fjölbreytni Heimiskvölds-
ins. í flestum tilfellum var flutn-
ingur góður og sérlega svo í verk-
inu Bossanova.
Karlakórinn Heimir kom aftur
fram sem lokaatriði Heimis-
kvöldsins. Nokkur tími var liðinn
frá fyrri sönghrynu hans og gætti
þess nokkuð í fyrstu lögunum,
sem kórinn söng. Þegar á leið
komst hann hins vegar í essið sitt
og var farinn að syngja af þrótti
en jafnframt mýkt og sýndi auk
þess af sér skemmtilega getu í því
að flytja bakraddir afar jafnt og
fallega. Einnig var kórinn takt-
fastur og samtaka í til dæmis
flutningi texta, góður á innkom-
um og hafði eftirtektarvert vald á
stigi og hnigi í styrk. Öryggi í
tóntöku var mikið og óhreinir
Ut er komið fyrsta tölublað af
nýju blaði á Vestfjörðum og
ber það nafnið Vestri, Blað
þetta sem er 36 blaðsíður að
stærð og í tímaritsbroti, er
hugsað sem héraðsfréttablað
með sérstaka áherslu á fræðslu-
og skemmtiefni. Jafnframt er
blaðinu ætlað að berjast gegn
því neikvæða hugarfari og
svartsýni sem einkennt hefur
umræðuna um búsetu á Vest-
fjörðum.
í frétt frá útgefanda kemur
fram að þarna er fyrst og fremst
um tilraun að ræða til að steypa
saman tveim útgáfuformum, )3.e.
hinu hefðbundna formi héraðs-
fréttablaðs, sem hefur verið með
nær óbreyttu sniði í blaðaútgáfu
á ísafirði frá því um aldamót, og
tímaritsforminu sem lítil viðleitni
hefur verið til að gefa út á Vest-
fjörðum.
Útgefandi Vestra er ísprent hf.
á ísafirði og er það ætlun útgef-
tónar heyrðust varla.
Einsöngvarar voru Sigfús og
Pétur Péturssynir. Þeir sungu
dúett í laginu Jerúsalem, sem er
nýtt lag á söngskrá kórsins og
þarfnast greinilega nokkuð meiri
æfingar. Sigfús Pétursson söng
einsöng í laginu Litfríð og ljós-
hærð eftir Gunnar Thoroddsen
og gerði það fallega. Kórinn var
sérlega þýður og jafn í bakrödd-
um í þessu lagi. Nýr einsöngvari
með kórnum, Einar Halldórsson,
kom fram í laginu Goðmundur á
Glæsivöllum eftir Pálma Þ.
Eyjólfsson. Einar hefur mikil
hljóð, en nokkuð óbeisluð enn
sem komið er. Væntanlega þarf
hann að æfa einsöng betur, en
efni til hans hefur hann að mörgu
leyti.
Undirleikari kórsins, Thomas
Higgerson, stóð sig af mikilli
prýði; studdi kórinn vel og lagði
góðar áherslur á flutning hans í
þeim lögum, sem flutt voru við
píanóundirleik. Stjórnandi
kórsins, Stefán Gíslason, er
greinilega mjög vaxandi maður í
kórstjórn. Taktslag hans verður
sífellt ákveðnara og bendingar
hans til kórsins markvissari.
Heimiskvöldið stóð í ríflega
þrjár klukkustundir. Fjölbreytn-
in var mikil jafnt í tónlistarflutn-
ingi og öðru efni, svo sem gaman-
málum og hagyrðingaþætti, sem
er fastur liður á þessum samkom-
um, svo að engum þurfti að leið-
ast. Þannig mun vera á Heimis-
kvöldum og hafa verið um langa
hríð. Það eru því engin undur að
þau skuli vel sótt, eins og einnig
var í þetta skipti.
Haukur Ágústsson.
anda að blaðið geti orðið
skemmtilegur vettvangur
skoðanaskipta og upplýsinga-
miðlunar um menn og málefni í
aðgengilegra formi en áður hefur
tíðkast. Hafa brottfluttir Vest-
firðingar sýnt þessu mikinn
áhuga, jafnframt því sem íbúar
hinna dreifðari byggða á Vest-
fjörðum hafa mjög hvatt til þessa
framtaks. Mun framhaldið og
útgáfutíðni ráðast af viðtökum,
en ef grundvöllur reynist fyrir
útgáfu af þessu tagi, þá er stefnt
að því að Vestri komi út mánað-
arlega.
„Er blaðið selt, og uppfullt af
fréttum, fróðleik og léttmeti.
Verðinu hefur verið stillt mjög í
hóf og kostar eintakið 300
krónur. Þegar er farið að taka við
áskrifendum að blaðinu og getur
fólk látið skrá nöfn sín á lista hjá
ísprenti hf. á ísafirði í síma 94-
3223,“ segir að lokum í frétt frá
ísprenti hf.
Vestri - nýtt blað
fyrir Vestfirðinga