Dagur - 12.03.1992, Qupperneq 15
Fimmtudagur 12. mars 1992 - DAGUR - 15
ÍÞRÓTTIR
Jón Haukur Brynjólfsson
Mismunar ÍSÍ félögum?
- Skautafélag Akureyrar fær ekki keppnisleyfi fyrir Santanen
en SR með leyfi á fölskum forsendum
Framkvæmdastjórn íþrótta-
sambands Islands hafnaði ný-
lega umsókn frá íshokkídeild
Skautafélags Akureyrar um
keppnisleyfi fyrir Finnann
Pekka Santanen í síðustu
umferð íslandsmótsins sem
fram fer um næstu helgi.
Framkvæmdastjórnin hefur
heimild til að veita undan-
þágu frá ákvæði sem segir að
erlendir leikmenn jiurfi að
hafa búið í tvö ár á Islandi til
að mega leika með íslenskum
liðum en taldi málið þannig
vaxið að ekki væri grundvöll-
ur fyrir undanþágu. Akureyr-
ingar eru afar óhressir með
niðurstöðu stjórnarinnar og
vitna í keppnisleyfi sem
Nikolaj Nevedof, Rússi sem
leikur með Skautafélagi
Reykjavíkur, fékk í haust á
grundvelli rangra upplýsinga.
Segir Magnús Finnsson, ann-
ar þjálfari SA, að Akureyr-
ingar ætli ekki að sætta sig
við niðurstöðuna og muni
leggja fram kæru verði málið
ekki endurskoðað.
Forsaga málsins er sú að
Skautafélag Reykavíkur sótti í
haust um undanþágu fyrir tvo
Rússa og fékk enda hafði fram-
kvæmdastjórn ÍSÍ upplýsingar
um að þeir hefðu báðir dvalið á
íslandi „alllengi." Nú hefur hins
vegar komið í ljós að þær upp-
lýsingar voru rangar, annar
þeirra hefur reyndar dvalið á
Islandi á áttunda ár en Nevedof,
sem verið hefur einn besti mað-
ur liðsins í mótinu, kom til
íslands í október en fyrsti leikur
í íslandsmótinu var í lok
nóvember. Þrátt fyrir þetta
hyggst framkvæmdastjórnin
ekki draga keppnisleyfi hans til
baka og hefur hafnað umsókn
um keppnisleyfi fyrir Santanen
en hann kom til íslands fyrir
nokkrum dögum, auk þess sem
hann dvaldi á Akureyri um
nokkurra vikna skeið fyrr í vet-
ur og þjálfaði lið SA.
Leyfi SR ekki afturkallað
en umsókn SA hafnað
Sigurður Magnússon, fram-
kvæmdastjóri ISÍ, sagði í sam-
tali við Dag að framkvæmda-
stjórnin hefði talið að þar sem
Santanen myndi aðeins stoppa á
landinu í tæpan mánuð væri
ekki grundvöllur fyrir að veita
honum undanþágu. „Yfirleitt er
reynt að fara einhvern milliveg
þegar veittar eru undanþágur
og þá erum við kannski að tala
um hálft til eitt ár eða eitthvað
slíkt. En þetta er matsatriði
hverju sinni.“
Aðspurður sagði Sigurður
það rétt að annar Rússanna hjá
SR hefði fengið undanþágu á
grundvelli rangra upplýsinga.
Framkvæmdastjórnin hefði
ekki vitað betur en þeir hefðu
báðir dvalið í sendiráðinu „all-
lengi,“ án þess að það hefði ver-
ið skilgreint nánar, en nýlega
hefði komið í ljós að Nevedof
hefði aðeins dvalið hérlendis í
einn og hálfan mánuð fyrir mót.
Eftir að umsókn um undanþágu
fyrir Santanen barst hefði fram-
kvæmdastjórnin rætt við full-
trúa SR og lagt til að annað
hvort samþykktu þeir að Sant-
anen fengi keppnisleyfi eða
leyfið fyrir Nevedof yrði aftur-
kallað. Þetta hefðu fulltrúar SR
ekki getað fallist á og sagt að þá
gætu þeir alveg eins dregið sig
út úr mótinu og þannig stæði
málið í dag. Sigurður var spurð-
ur hvort leyfi Nevedofs yrði
ekki afturkallað og sagðist hann
ekki eiga von á því enda myndu
þá vakna upp vandamál í sam-
bandi við leikina sem búið væri
að spila. Þegar hann var spurð-
ur hvernig framkvæmdastjórn-
inni væri þá stætt á að hafna
umsókn SA sagði hann: „Nú
máttu ekki spyrja mig. Ég er
Pekka Santanen.
hér starfsmaður og þetta er
ákvörðun stjórnar en ekki
mín.“
„Fráleit vinnubrögð“
„Þetta eru auðvitað fráleit
vinnubrögð sem við getum eng-
an veginn sætt okkur við,“ sagði
Magnús Finnsson hjá Skauta-
félagi Akureyrar. „Það hlýtur að
vera grundvallarkrafa að félög-
in sitji við sama borð en það
gera þau augljóslega ekki í
þessu máli og nú virðast Reykja-
víkurfélögin að auki eiga að
ráða því hvort við fáum undan-
þágu fyrir erlendan leikmann.
Þetta er gróf mismunun og ef
ÍSÍ endurskoðar ekki þessar
ákvarðanir munum við leita
réttar okkar á einn eða annan
hátt.“
Þess má geta að ísknattleiks-
félagið Björninn í Reykjavík
fékk undanþágu fyrir 5 Banda-
ríkjamenn enda var það skilyrði
fyrir að félagið yrði með í
íslandsmótinu. í umsóknunum
mun hafa komið fram að þeir
hefðu allir dvalið á íslandi í 2-5
ár og sagði Magnús að Akureyr-
ingar væru að reyna að afla sér
upplýsinga um hvort þetta væri
rétt.
MÍ15-18 ára í frjálsum íþróttum:
Glæsilegt hjá Stefáni
3. Anton Sigurðsson, ÍR 6,16
Körfuknattleikur:
Meistaramót íslands 15-18 ára
í frjálsum íþróttum innanhúss
var haldið í Reykjavík um síð-
ustu helgi. AUs voru rúmlega
130 keppendur mættir til Ieiks
og náðist góður árangur í
mörgum greinum. Maður
mótsins var þó tvímælalaust
Stefán Gunnlaugsson, UMSE,
sem vann til fimm gullverð-
launa og setti eina Islandsmet
mótsins.
Norðlendingar unnu til nokk-
urra verðlauna á mótinu en eng-
inn var þó jafn drjúgur og Stefán.
Hann setti nýtt met í sveinaflokki
í hástökki án atrennu, stökk 1,59
m, og vann alls til fimm gullverð-
launa. Tvímælalaust stórefnileg-
ur strákur sem á greinilega eftir
að láta að sér kveða.
Úrslit urðu þessi:
50 m hlaup meyjar
1. Hildigunnur Hjörleifsdóttir, HSH 7,0
2. Guðrún Guðmundsdóttir, HSK 7,0
3. Arna Friðriksdóttir, HSH 7,1
50 m hlaup svcinar
1. Stefán Gunnlaugsson, UMSE 6,2
2. Sveinn H. Magnússon, ÍR 6,3
3. Sigurður Guðjónsson, HSK 6,4
50 m hlaup drengir
1. Atli Guðmundsson, UMSS 6,0
2. Haukur Sigurðsson, HSH 6,0
3. Jóhannes M. Marteinsson, ÍR 6,1
50 m hlaup stúlkur
1. Kristín Alfreðsdóttir, ÍR 6,9
2. Bergiind Guðjónsdóttir, KR 7,0
3. Linda Sveinsdóttir, UMSE 7,2
Þrístökk án atr. meyjar
1. Ragnhildur Einarsdóttir, USÚ 7,41
2. Sigurrós Friðbjamardóttir, HSÞ 7,38
3. Arna Friðriksdóttir, HSH 7,35
Þrístökk án atr. stúlkur
1. Erna B. Sigurðardóttir, KR 7,21
2. Vigdís Guðjónsdóttir, HSK 7,02
3. Hildur Ingvarsdóttir, ÍR 7,00
Þrístökk drengir
1. Jón Þór Ólason, HSÞ 12,90
2. Freyr Ólafsson, HSK 12,86
3. Hreinn Hringsson, UMSE 12,78
Þrístökk sveinar
1. Stefán Gunnlaugsson, UMSE 13,00
2. Jónas P. Jónasson, ÍR 11,79
3. Guðjón Jónsson, HSK 11,72
Hástökk án atr. sveinar
1. Stefán Gunnlaugsson, UMSE 1,59
2. Skarphéðinn F. Ingason, HSÞ 1,45
3. Atli R. Sigurþórsson, HSH 1,40
Hástökk stúlkur
1. Kristjana Skúladóttir, HSK 1,57
2. Maríanna Hansen, UMSE 1,54
3. Elísabet Jónsdóttir, UFA 1,51
Langstökk án atr. meyjar
1. Ragnhildur Einarsdóttir, USÚ 2,53
2. Arna Friðriksdóttir, HSH 2,48
3. Jóhanna E. Jóhannesdóttir, UFA 2,45
50 m grindahlaup drcngir
1. Róbert E. Jensson, HSK 7,3
2. Bjarni Þ. Traustason, FH 7,3
3. Magnús 0. Sæmundsson, USVS 7,7
50 m grindahlaup sveinar
1. Jónas Páll Jónasson, ÍR 7,9
2. Birkir Árnason, UMSS 8,0
3. Theodór Karlsson, UMSS 8,1
50 m grindahlaup stúlkur
1. Erna B. Sigurðardóttir, KR 7,6
2. Elísabet Jónsdóttir, UFA 8,6
3. Kristjana Skúladóttir, HSK 8,6
50 m grindahlaup meyjar
1. Sólvcig H. Björnsdóttir, KR 7,6
2. Kristín Markúsdóttir, UMSB 8,1
3. Birna M. Gunnarsdóttir, ÍR 8,1
Stangarstökk drengir
1. Tómas G. Gunnarsson, HSK 3,75
2. Freyr Ólafsson, HSK 3,65
3. Theodór Karlsson, UMSS 2,75
Hástökk drengir
1. Róbert E. Jensson, HSK 1,78
2. Magnús 0. Sæmundsson, USVS 1,75
3. Tómas G. Gunnarsson, HSK 1,70
Hástökk sveinar
1. Magnús A. Hallgrímsson, Self. 1,93
2. Skarphéðinn F. Ingason, HSÞ 1,81
3. Atli R. Sigurþórsson, HSH 1,78
Hástökk mcyjar
1. Gerður B. Sveinsdóttir, HSH 1,51
2. Rakel Tryggvadóttir, FH 1,48
3. Ástríður Guðmundsdóttir, UMSB 1,45
Langstökk drengir
1. Bjarni Þ. Traustason, FH 6,35
2. Freyr Ólafsson, HSK 6,27
Langstökk stúlkur
1. Ema B. Sigurðardóttir, KR 5,34
2. Gunnhildur Hinriksdóttir, HSÞ 4,96
3. Elísabet Jónsdóttir, UFA 4,95
Langstökk sveinar
1. Stefán Gunnlaugsson, UMSE 6,56
2. Magnús A. Hallgrímsson, Self. 6,17
3. Jónas P. Jónasson, ÍR 5,95
Langstökk meyjar
1. Sunna Gestsdóttir, USAH 5,44
2. Katla Skarphéðinsdóttir, HSÞ 5,09
3. Kristín Markúsdóttir, UMSB 4,88
Kúluvarp meyjar
1. Halldóra Jónasdóttir, UMSB 10,83
2. Ragnhildur Einarsdóttir, USÚ 10.20 ;
3. Rakel Bára Þorvaldsdóttir, UMSB 10,08 |
Kúluvarp stúlkur
1. Vigdís Guðjónsdóttir, HSK 11,17
2. Jóhanna Kristjánsdóttir, HSÞ 9,41 |
3. Friðný Heimisdóttir, ÍR 9,21
Kúluvarp drcngir
1. Bergþór Ólason, UMSB 12,46
2. Hreinn Hringsson, UMSE 12,12
3. Freyr Ólafsson, HSK 11,71
Kúluvarp sveinar
1. Magnús A. Hallgrímsson, Self. 12,42
2. Haukur Hrafnsson, USÚ 12,02
3. Ingvar Hjálmarsson, HSK 11,60
Hástökk án atr. drengir
1. Hreinn Hringsson, UMSE 1,48
2. Magnús O. Sæmundsson, USVS 1,45
3. Þengill Ólafsson, Self. 1,45
Langstökk án atr. stúlkur
1. Vigdís Guðjónsdóttir, HSK 2,47
Þrístökk án atr. sveinar
1. Stefán Gunnlaugsson, UMSE 8,89
2. Skarphéðinn F. Ingason, HSÞ 8,37
3. Jóhannes Guðjónsson, USVS 8,23
Þrístökk án atr. drengir
1. Hákon Sigurðsson, HSÞ 9,65
2. Freyr Ólafsson, HSK 9,03
3. Hjalti Sigurjónsson, ÍR 8,97
Hástökk án atr. stúlkur
1. Vigdís Guðjónsdóttir, HSK 1,29
2. Gunnhildur Hinriksdóttir, HSÞ 1,15
3. Kristjana Skúladóttir, HSK 1,10
Hástökk án atr. meyjar
1. Guðbjörg A. Þorvaldsdóttir, FH 1,26
2. Sunna Gestsdóttir, USAH 1,23
3. Kristín Markúsdóttir, UMSB 1,15
Enn lágu
Valsmenn rötburstuðu hcillum
horfna Þórsara í úrvalsdeild-
inni í körfuknattleik á þriðju-
dagskvöldið, 121:69. Staðan í
hléi var 59:30. Leikurinn bar
þess merki að hann skipti engu
máli fyrir liðin, Þórsarar fallnir
og Valsmenn öruggir í úrslita-
keppnina.
Strax í upphafi var ljóst hver
stefnan yrði og á 8 mínútum náðu
Valsmenn 20 stiga forskoti.
Hittni Þórsara var í algeru lág-
marki og ungu strákunum gekk
illa að eiga við risana í Valslið-
inu. Forskot Vals jókst jafnt og
I þétt og mestur varð munurinn 30
stig í fyrri hálfleik, 59:29. Eftir
því sem mínúturnar liðu í seinni
hálfleik jókst munurinn og þegar
fjórar mínútur voru til leiksloka
var kominn rúmlega helmings-
munur, 111:55.
Joe Harge var allt í öllu hjá
Þór en enginn af ungu strákunum
stóð upp úr. Valsliðið var jafnt
en Svali Björgvinsson, Guðni
Hafsteinsson og Skagfirðingurinn
Lárus Pálsson stóðu sig vel auk
þess sem Franc Booker setti nið-
ur nokkrar þriggja stiga körfur.
Þetta var leikur lýðræðisins því
allir leikmenn beggja liða fengu
að spila og allir skoruðu nema
einn leikmaður Þórs.
í lið Þórs vantaði Hóra lykil-
menn, þá Konráð Oskarsson,
Guðmund Björnsson, Jóhann
Sigurðsson og Björn Sveinsson.
Birgir Torfason, formaður körfu-
knattleiksdeildar Þórs, sagði að
ástæðan lægi að einhverju leyti í
önnum en sennilega væri mest
áhugaleysi um að kenna. -bjb
Stig Vals: Svali Björgvinsson 30, Franc
Booker 26, Guðni Hafsteinsson 13,
Magnús Matthíasson 13, Ari Gunnarsson
12, Lárus Pálsson 9, Símon Ólafsson 8,
Tónias Holton 6, Matthías Matthíasson
2, Jón Bender 2.
Þórsarar
Stig Þórs: Joe Harge 30, Örvar Erlends-
son 11, Árni Jónsson 7, Högni Friðriks-
son 6. Þorvaldur Arnarsson 6, Birgir Örn
Birgisson 5, Hafsteinn Lúðvíksson 2,
Einar Davíðsson 2.
Dómarar: Einar Þór Skarphéðinsson og
Brynjar Þorsteinsson. Stóðu fyrir sínu.
Knattspyrna:
Greifamót
fyrir 5. flokk
Greifinn og Ungmennafélag
Svarfdæla standa fyrir knatt-
spyrnumóti fyrir 5. flokk (f.
1980 og 1981) í íþróttahöllinni
á Akureyri 21. mars. Mótið
hefst kl. 13 og er áætlað að því
Ijúki um kl. 19.
Keppt verður í flokki a- og b-
liða. Spilað verður með mark-
vörð og fjóra útileikmenn, leikið
verður eftir utanhússreglum með
örfáum undantekningum þó.
Markvörður skal henda knettin-
um í „útspörkum" og má hann
ekki henda knettinum yfir miðju
vallarins nema knötturinn snerti
leikmann áður. Einnig skal
sparka inn í „innköstum."
Heimilt er að hafa tíu leik-
menn í liði og skal skila inn
nafnalista við komu á mótsstað.
Áskilinn er réttur til breytinga en
ef svo fer verður látið vita í tíma.
Þátttökugjald er 6.000 kr. fyrir
eitt lið og 10.000 kr. fyrir tvö.
Veitt verða þrenn verðlaun í
hvorum flokki og er það veitinga-
staðurinn Greifinn sem gefur öll
verðlaun.
Þátttökutilkynningar skulu
berast Jónasi í hs. 96-63195, vs.
96-61200 eða Birni í hs. 96-
61473, vs. 96-61888 fyrir 17.
mars. Jónas veitir allar nánari
upplýsingar.