Dagur - 14.03.1992, Blaðsíða 5

Dagur - 14.03.1992, Blaðsíða 5
Laugardagur 14. mars 1992 - DAGUR - 5 Námskeið fyrir hvolpa og eigendur þeirra Eigendur hvolpa á aldrinum 2- 25 mánaða eiga þess kost að senda þá á hlýðninámskeið þar sem þeir njóta tilsagnar tveg&Ía gestakennara frá Svíþjóð. Það er Hundaræktar- félag íslands sem stendur fyrir námskeiðunum en þau fara fram í húsnæði hundaskóla félagsins í Sólheimakoti dag- ana 20. mars til 5. apríl. Kennarar verða þær Asa Ahlbom og Agnete Geneborg sem eru þekktar á Norðurlönd- um fyrir störf sín að málefnum hunda. Þær hafa þróað kennslu- aðferðir í hlýðni og menntað leiðbeinendur, ma. hér á landi. Báðar kenna þær hundum á öll- um aldri almenna hlýðni en hafa einnig þjálfað blindrahunda. Agnete hefur haldið hlýðninám- skeið með fötluðum hundaeig- endurn og Asa sérhæft sig í vinnu með vandamálahunda. Þær Asa og Agnete halda þrjú námskeið hér á landi og standa þau yfir í samtals 24 tíma, tvo tíma í senn, en síðasti hluti nám- skeiðsins fer fram í haust. Námið verður bæði bóklegt og verklegt og eftirfarandi atriði kennd: upp- eldi hvolpsins innanhúss, taum- þjálfun og fjarlægðarstjórnun, umgengni við aðra hunda, um- hverfisþjálfun, atferli hundsins, eiginleikar hans og tjáning, dag- leg umhirða og heilsuvernd. Námskeiðsgjald er kr. 12.000 en upplýsingar fást á skrifstofu Hundaræktarfélagsins í síma 91- 625275 og hjá Guðrúnu Guð- johnsen í síma 91-668164. Siglufjörður: Nýr grill- staður opnaður Á Siglufirði, nánar tiltekið að Aðalgötu 10, hefur verið opn- aður grillstaður undir nafninu Bíó-Grillið. Það er Nýja Bíó hf. sem rekur þennan nýja grillstað og verða þar á boð- stólum hefðbundnir hraðréttir, s.s. pizzur, hamborgarar, fiskur, nautasteikur o.fl. Bíó-Grillið tekur um 40 manns í sæti auk þess sem á annarri hæð er aðstaða fyrir börn og unglinga, m.a. ýmis leiktæki. Samhliða rekstri þessa nýja grillstaðar verður áfram rekin hin dæmigerða sjoppa, Bíó-Barinn, en þar hefur í gegnum tíðina ver- ið á boðstólum ís, ísréttir, öl og sælgæti. Þá rekur Nýja Bíó hf. einu hraðframköllunarþjónust- una á Siglufirði. Forsvarsmenn Nýja Bíós hf. segja að ástæða fyrir opnun þessa f nýja grillstaðar sé sú að lengi hafi * vantað slíka þjónustu á Siglu- firði. óþh SKILJUM EKKI FÓRNARLÖMB SLYSA EFTIR ÁGÖTUNNI Samtök endurhæföra mænu- skaddaðra vinna nú höröum höndum aö því aö byggja nýtt hús með sérhönnuðum íbúöum fyrir fatlaða. Slíkt hús auöveldar mænusködduöum aö lifa sem eölilegustu lífi eftir endurhæfingu. Öflugur stuöningur landsmanna geröi okkur kleift á sínum tíma aö byggja glæsilegt 20 íbúöa hús fyrir mænuskaddaöa, sem við erum verulega stolt af. Þess vegna hefjumst viö nú handa á ný, full af bjartsýni og ætlum okkur að gera nýtt hús aö veruleika. Leggöu okkur lið viö aö létta mænusködduðum lífiö - þú vinnur á því. Allur ágóöi af SEM happdrættinu rennur í húsbyggingarsjóö. Húsbyggingarhappdrætti Samlök endurhælöra mænuskaddaöra 2 SAAB 9000CS 5 SUMARHÚSALÓÐIR 1 FORD EXPLORER \ 14 S SUMARHUSADVALIR 10 FORD ESCORT NU ER LIFITUSKUNUM Stóri bókamarkaðurinn er hafinn NÚ VERÐUR FJÖR UM HELGINA Stóri Bókamarkaðurinn í húsi stórmakaðs KEA Hrísalundi Opið í dag, laugardag, kl. 10-18, sunnudag kl. 13-18

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.