Dagur - 14.03.1992, Side 8
8 - DAGUR - Laugardagur 14. mars 1992
Stjörnuspá
Sigfús E. Arnþórsson
„An ábyrgðar
íí
T
-H r*u+ur*
21. mars - 19. apríl
Dagurinn í dag verður hlaðinn einhverri
svona viðkvæmni og leiðinlegheitum en
upp úr klukkan ellefu í kvöld fer Eyjólfur að
hressast (og þú væntanlega líka) og nóttin
gæti orðið æði skrautleg. Sama gildir um
morgundaginn og mánudag. Fimmtu-
dagur og föstudagur eru aftur á móti
hættulegir dagar og síst til framkvæmda
ö
7\]au+
20. apríl - 20. maí
Eftir vel heppnaðan dag í dag gæti svo
farið að þig langaði út í kvöld en það ættir
þú ekki að gera. Frá klukkan ellefu í kvöld
og fram á mánudagskvöld ættir þú að
hafa sem hægast um þig. Þriðjudag og
miðvikudag verður aftur á móti líf og fjör.
Líklega færðu símtal eða heimsókn langt
að eöa að þú þarft í óvænt en skemmtilegt
ferðalag.
n
Xvíburat*
21. maí - 20. júni
Eftir klukkan ellefu í kvöld byrjar fjörið og
þú verður milli tannanna á fólki og það
milli þinna tanna fram á mánudagskvöld.
Þú þarft að bíta frá þér á þriðjudag og
gnístir jafnvel tönnum á miðvikudag en á
fimmtudag tekur þú upp (tann)þráðinn þar
sem frá var horfið á mánudag. Á föstudag
ferðu til tannlæknis ef þetta smellur í góm.
Kt*abbi
21. júní - 22. júlí
Það verður mikið um hlýja strauma í dag.
Ættingjar og vinir koma í heimsókn eða þá
að þú ferð í heimsókn til þeirra. Og það
verður slúðrað og pískrað í hverju horni.
Þú, sem veist alltaf nákvæmlega hver er
hrifin(n) af hverjum (hverri) og hver þolir
ekki hvern, nýtur þess aö horfa og hlusta
á fólk tala þvert gegn eigin tilfinningu.
cfi.
i_jóu
23. júlí - 22. ágúsl
Frá klukkan ellefu í kvöld og fram á mánu-
dagsmorgun leikur það við þig lífið. Ekki
nóg með að þú verðir allra augastaður í
kvöld, hvar sem þú ferð, heldur verður þú
líka hrókur allrar athygli á morgun. í vinn-
unni/skólanum, þar sem annars illyrmis-
legt plott gegn þér er I gangi, blikna bleyð-
urnar á mánudagsmorguninn er þú birtist.
W
AAeyja
23. ágúst - 22. september
Góður dagur í dag. Fyrir meyjar þýðir það
að nóg er að gerast og allt af ánægjuleg-
um toga. Annars eru þínir dagar í þessari
viku þeir þriðjudagur og miðvikudagur
þegar bókstaflega allt gengur þér í hag.
Heilsan er þó enn viðkvæm. Þá stendur
ástin þín líklega í framhjáhaldi. Gildi það
þig einu, skaltu bara flytja til gamla við-
haldsins þíns.
fyrir vikuna 14. - 20. mars 1992
°9
23. september - 22. október
Þetta verður einn af þessum leiðinlegu dög-
um þegar heimska, slúður og vemmilegt
tilfinningasnakk ræður ríkjum. En allir dagar
taka enda og einnig þessi hér og seint í
kvöld kemstu í skemmtilegri félagsskap. Þá
verður morgundagurinn sérlega ánægjuleg-
ur sem og mánudagur. Langbestu dagar
vikunnar verða þó fimmtu- og föstudagur.
%
5pot*3d reki
23. október - 21. nóvember
Þótt dagurinn í dag verði að sönnu
ánægjulegur verður gleðin sú heldur
aftanmjó er líða tekur á kvöldið. Þá verða
illir andar komnir á kreik og elta þig fram á
mánudagskvöld. Á þriðjudagsmorguninn
vaknarðu endurfædd(ur) og lifir í huglægri
sæluvímu fram á fimmtudag.
Br
oqiy\c\c)\aV
22. nóvember- 21. desember
Það gustar heldur betur af þér í kvöld, eftir
klukkan ellefu. Nema þú verðir sofandi.
En þú hefur samt ekki misst af neinu.
Meðbyrinn heldur nefnilega áfram á
morgun og á mánudag gengur flest upp.
Á þriöjudag og miðvikudag þarftu að eyða
óhemju tíma í þras um smámuni. Á
fimmtudag fer aftur að halla undan fæti.
YT
S+e ÍK\gei+
22. desember- 19.janúar
Ups! Þar fór það. Það fer allt úrskeiðis í
dag og er þú horfir yfir daginn í kvöld verð-
urðu eflaust mest undrandi yfir að ekki fór
verr. Skynsamlegast væri fyrir þig að
halda sem allra mest kyrru fyrir í dag. Nóg
verða lætin samt. Þriðjudagur og miðviku-
dagur verða bestu dagar vikunnar, dagur-
inn í dag sá versti.
>A£ Va+F\sb>et*i
vNA
20.janúar- 18. febrúar
Ekki fara út að skemmta þér í kvöld. Frá
klukkan ellefu í kvöld og fram á mánu-
dagskvöldið fara flestir hlutir í taugarnar á
þér og það er alltaf dálítið rafmögnuð
sprengihætta í kringum vatnsbera í þess-
ari plánetuafstöðu. Fimmtudagur og
föstudagur verða aftur á móti hlýir og
rómantískir dagar.
K
1risl<at*
19. februar-20. mars
Þetta veröur draumkenndur og Ijúfur dagur
fyrir fiska. Það verður loksins skipt um vatn
á þér og svo færðu stóran skammt af
þessum nýja gullfiskamat sem allir eru
búnir að vera að tala um. Allt síðan köttur-
inn át páfagaukinn hefurðu ekki verið alveg
örugg(ur) með þig en nú er kötturinn týnd-
ur. Hann mun að visu koma í leitirnar á
þriðjudaginn, skelfilegri en nokkru sinni. En
hvað um það. Njóttu dagsins í dag í dag.
Framsóknarvist
Spilakvöld
Þriggja kvölda keppni
Annað spilakvöld.
Framsóknarvist að Hótel KEA
miðvikudaginn 18. mars kl. 20.30.
Kvöldverðlaun fyrir hvert kvöld.
Góð heildarverðlaun fyrir öll þrjú kvöldin.
Allir velkomnir.
Framsóknarfélag Akureyrar.
Alþjóðadagur neytendaréttar er á niorgun, sunnudag. Að þessu sinni er dagurinn helgaður réttindum og ábvrgð
neytenda í umhverfismálum, en Neytendasamtökin líta á það sem eitt af forgangsverkefnum sínum að virkia nevt-
endur til aðgerða í umhverfismálum.
Alþjóðadagur neytendaréttar er á morgun:
„Lágmarkskröfur neytenda eru
endurtekið hunsaðar í stóru og smáu“
Á morgun 15. mars er alþjóða
dagur neytcndaréttar og af því
tilefni vilja Neytendasamtökin
minna á daginn sem og sjö lág-
markskröfur sem samtökin um
heim allan miða starf sitt við.
í ár er alþjóðadagur neytenda-
réttar helgaður réttindum og
ábyrgð neytenda í umhverfismál-
um, en Neytendasamtökin líta á
það sem eitt af forgangsverkefn-
um sínum að virkja neytendur til
aðgerða í umhverfismálum. Kjör-
orð samtakanna í því sambandi
eru: Að endurnota, endurvinna
og nota minna. I þessu felst að
draga verði úr þeirri sóun og of-
neyslu sem samfélag eins og okkar
einkennist af. Neytendasamtökin
og aðildarfélög þeirra munu
reyna að koma þessum boðskap
til neytenda með ýmsum hætti.
Lágmarkskröfurnar og alþjóða-
dagur neytendaréttar eiga rætur
að rekja til ræðu sem John F.
Kennedy hélt í bandaríska þing-
inu 15. mars 1962. Kennedy
viðurkenndi þar kröfur neytenda
um öryggi, upplýsingar, val og
áheyrn. Alþjóðasamtök neyt-
enda hafa síðan útfært kröfurnar
og aukið við þær.
„Nú þegar 30 ár eru liðin síðan
Kennedy hélt hina stefnumark-
andi ræðu sína vantar enn mikið
upp á að lágmarkskröfurnar séu
almennt viðurkenndar. Neytenda-
samtökin og aðildarfélög þeirra
verða endurtekið vör við það í
starfi sínu að lágmarkskröfur
neytenda eru hunsaðar í stóru og
smáu. t>ó hefur auðvitað margt
áunnist, enda hafa Neytenda-
samtökin eflst gríðarlega á
undanförnum árum,“ segir í
fréttatilkynningu frá samtökun-
um. ój