Dagur - 14.03.1992, Blaðsíða 16

Dagur - 14.03.1992, Blaðsíða 16
16 - DAGUR - Laugardagur 14. mars 1992 Skyggnst inn í hugarheim nútímaunglingsins í fylgd Gísla Baldvinssonar: Kynslóðin sem slekkur á sjónvarpinu „Nú til dags vilja unglingarnir fá aðhald og skýrar, einfaldar reglur,“ segir Gísli Baldvinsson, kennari við GA og forstöðumaður félagsmiðstöðvarinnar í Síðuskóla á Akureyri. Mynd: Goiii í augum margra foreldra er hugarheimur unglinganna þeim fjarlægur. Þeir skilja ekki hvað unglingarnir meina eða vilja. Stundum er þetta kallað „unglingavandamál“, sem raunar sumir segja að sé miklu fremur „foreldravanda- mál“. Til þess að skyggnast inn í hugarheim nútímaunglingsins leitaði Dagur til Gísla Bald- vinssonar, kennara við Gagn- fræðaskóla Akureyrar og for- stöðumanns félagsmiðstöðvar- innar í Síðuskóla á Akureyri. Gísli starfaði lengi við kennslu og félagsstarf barna og ungl- inga í Reykjavík og hefur því að baki langa reynslu af starfi með unglingum. Hann var fyrst spurður hvort til væri eitthvað sem mætti kalla „unglingavandamál“. Gefum Gísla orðið: Gott fréttakerfí unglinganna „Unglingurinn sem slíkur verður ekki til fyrr en upp úr 1970. Fyrir þann tíma var talað um börn og fullorðna. Skyndilega stóðum við uppi með fyrirbærið ungling og atferlisfræðingar kepptust við að skilgreina það. Þegar ég var sjálf- ur á þessum aldri var maður ungl- ingur einu sinni í viku, þær fjöru- tíu mínútur sem Lög unga fólks- ins í útvarpinu stóðu yfir. Á þessu hefur orðið mikil breyting. Þegar maður hefur atvinnu af því að umgangast unglinga, fer mað- ur að velta fyrir sér hvað sé ungl- ingur og hvað sé svokallað ungl- ingavandamál. Það kann að vera að ég taki stórt upp í mig, en í langflestum tilfellum erum við miklu fremur að tala um foreldra- vandamál en unglingavandamál. Það er talað um að fyrstu fimm til sjö ár ævinnar séu mótunarár hvers og eins og eftir þann tíma taki egóið við og leiðin sé ráðin. Fólk stendur skyndilega frammi fyrir því að barnið manns, sem í gær fór með manni í sunnudags- túrana og borðaði ísinn sinn, vill það ekki lengur og heldur ekki fara í göngutúr með manni. Þetta gerist á einum degi. Barnið er orðið fyrirbæri sem maður ekki þekkir. Nú til dags fara verðandi foreldrar á foreldranámskeið til þess að læra handtökin við unga- barnið. Það er hins vegar ekki til námskeið fyrir foreldra unglinga. Þeir vita ekki hvað þeir eiga að gera. Unglingarnar hafa mjög gott fréttakerfi og miðla upplýsing- um. Þeir segja við foreldra sína: „Þið eruð þau einu sem ekki gefa leyfi. Allir aðrir mega.“ Ungling- arnar talast við daglega, í hverj- um einustu frímínútum. Það sem þeir óttast mest er að foreldrar þeirra fari að tala saman og hafi þannig samráð sín á milli. í Reykjavík, þar sem ég vann lengi, þeickti maður ekki miðbæjarrölt unglinga eins og þekkist hér á Akureyri. Maður spyr sig þeirrar spurningar af hverju unglingur- inn er hér á götunni. Er það af því að hér sé ekki nægilegt fram- boð af ýmsum tómstundum fyrir unglingana? Svarið er nei. Sumir segja að framboðið sé of mikið,“ sagði Gísli. Unglingar þurfa umönnun Og hann hélt áfram: „Það eru margir foreldrar hræddir við unglinga og halda að þeir kunni ekki eða geti ekki talað við þá. Flvað gerir hinn almenni borgari niðri í bæ þegar hann sér hóp af unglingum? Hann reynir að kom- ast hjá því að labba á móti hópn- um af ótta við að fá á sig athuga- semdir. Unglingur í hóp er eitthvað sem fólk óttast. Þeir foreldrar, sem eiga erfitt með að tala við börnin sín, grípa oft til þess ráðs að segja við þau „ég hef ekki tíma“. En málið er að krakkarnir þurfa oft ekki mik- inn tíma. Unglingur sagði mér einu sinni frá því að hann hefði prófað móður sína með því að segja „mamma, ég ætla að fara út og skjóta mig.“ Og svarið var „já, komdu bara ekki seint heim“. Unglingarnir eru svekktir yfir slíkum svörum. Það má líta á þá breytingu, þegar barn breytist í ungling sem nýja fæðingu. Unglingurinn þarf jafn mikið á „pelanum sínum“ að halda og ungabarnið. Hann þarf umönn- un. Jafnvel unglingurinn vill láta mömmuna setja vettlinginn á sig, þó svo að hann hendi honum strax af sér. Ég get sagt þér smá sögu úr Gagnfræðaskóla Akureyrar þar sem ég kenni 15 og 16 ára ungl- ingum. Ég nota gjarnan stimpla með litlum og stórum stjörnum þegar ég fer yfir stílana þeirra. Góðir stílar fá stóra stjörnu og þeir lakari litla. Áður en leð- urjakkagæinn breytist í töff- arann frammi á gangi kemur hann til mín og spyr: „Á ég ekki að fá stjörnu". Með öðrum orðum; hann er ennþá innan í sér sjö ára og svekktur yfir því að fá litla stjörnu en ekki stóra stjörnu. Þessir krakkar hafa stóra kroppa en litlar sálir. Unglingar vilja heyra sannleikann um sjálfa sig, en vegna þess hve viðkvæmir margir þeirra eru, er ekki sama hvernig hann er sagður. Ungling- ar eru rótlausir eins og allir sem eru að leita að sjálfum sér.“ Þrír hópar unglinga Gísli sagði að gróft séð mætti skipta unglingum í þrjá hópa. í fyrsta lagi skipulagða unglinginn, sem er á kafi í t.d. íþróttum, í öðru lagi skipulagða unglinginn, sem ver öllum sínum frítíma í tónlistarnám og í þriðja lagi ungl- inginn sem hefur ekkert ákveðið fyrir stafni utan skólatíma. „Fél- agsmiðstöðvarnar eru gerðar fyr- ir þennan síðastnefnda hóp. Sem forstöðumaður félagsmiðstöðvar ætti ég kannski að gleðjast yfir því að hafa engan ungling á kvöldin í félagsmiðstöðinni í Síðuskóla. Ef unglingurinn hang- ir ekki í sjoppunni, ekki í íþrótt- um eða tónlistarskólanum, þá væri kannski albest að hann væri heima hjá sér. Með sjónvarps- byltingunni upp úr 1967 var til siðs að öll fjölskyldan borðaði klukkan sjö og settist síðan niður fyrir framan sjónvarpið klukkan átta. Eftir að nýjabrumið fór af þessu upp úr 1970 kom þörfin fyrir félagsmiðstöðvarnar,“ sagði Gísli. Unglingar vilja reglur Gísli sagði að fyrir tíu til fimmtán árum hafi verið farið um það fremur mjúkum höndum ef ungl- ingur sagði eftir helgina að hann hafi átt slæma helgi og drukkið hálfa aðra Vodka-flösku. „í dag segjum við unglingunum að slíkt háttalag sé ekki leyfilegt. Nú til dags vilja unglingarnir fá aðhald og skýrar, einfaldar reglur. Ég hef oft spurt þá unglinga, sem hafa farið ófögrum orðum um foreldra sína, hvort þeir vilji losna við þá. Niðurstaðan er ætíð hin sama. Það vill enginn losna við pabba eða mömmu. Þrátt fyr- ir allt eru þessir unglingar háðir foreldrum sínum og vilja að þeir setji þeim reglur, ekki margar reglur, en mjög einfaldar og ákveðnar reglur. Þegar ungling- arnir setja sjálfum sér reglur, þá eru þær helmingi strangari en þær reglur sem foreldrarnir þora að setja.“ Við víkjum talinu að lífsgæða- kapphlaupinu og ég spyr Gísla hvort unglingar nú til dags séu gagnteknir af því? „í raun og veru eru unglingar nú til dags ákaflega nægjusamir. Við erum kynslóðin sem kveikti á sjónvarpinu, en það mætti segja mér að unglingarnir séu kynslóð- in sem slekkur á sjónvarpinu. Að sama skapi tel ég að þeir muni ekki keppast við að kaupa jeppa fyrir tvær og hálfa milljón eins og við gerum. Þeir munu miklu fremur eyða þessum peningum til að sinna sjálfum sér.“ Nóg að gera fyrir unglingana á Akureyri Aðsókn að félagsmiðstöðvunum hér á Akureyri sagði Gísli að væri mismunandi eftir árstímum. Nú væri að koma sá árstími sem aðsóknin minnkaði jafnt og þétt. „Krakkarnir í tíunda bekk, fyrst og fremst stelpurnar, mæta illa, sem kemur ekki síst til af því að eftir áramót kom sjöundi bekkur- inn inn í félagsmiðstöðvarnar og krökkunum í tíunda bekk fannst þessir krakkar vera of ungir og þeir ekki eiga samleið með þeim. Hér á Akureyri er framboð af afþreyingu fyrir unglinga að mínu mati mun meira en í Reykjavík. Hér geta krakkarnir farið í félagsmiðstöð á mánu- dagskvöldum, á tveim stöðum á þriðjudagskvöldum, á miðviku- dagskvöldum, á tveim stöðum á fimmtudagskvöldum og í Dyn- heima á föstudögum, þegar ekki er ball í skólanum. Krakkarnir geta því nánast verið á balli fimm daga vikunnar. Kannski er þetta of mikið framboð? Hvenær eiga börnin að vera heima hjá sér? Er ekki kominn tími til þess að hafa eitthvað sem heitir fjölskyldu- kvöld,“ sagði Gísli og brosti. Fyrirmyndirnar á hvíta tjaldinu Næst vikum við talinu að vímu- efnanotkun unglinga. Óbirt könnun, sem gerð var á tóbaks- notkun og vímuefnaneyslu ungl- inga, leiðir í ljós að reykingar ungra stúlkna á Akureyri og víð- ar hefur aukist. „Ég held að hafi slaknað á forvarnarstarfinu og nú þurfi að herða róðurinn á nýjan leik,“ sagði Gísli. „Ég hef tekið eftir því að í nýjum bandarískum myndum eru stjörnurnar meira og minna reykjandi allan tímann. Ég spyr mig þeirrar spurningar af hverju. Krakkarnir eru alltaf að leita sér að fyrirmyndum og ekki er óeðlilegt að þeir api eftir stjörnum hvíta tjaldsins," sagði Gísli. „Ef við settum okkur það markmið að grunnskólinn væri algjörlega vímuefnalaus, hvort sem það er tóbak, áfengi eða fíkniefni, þá held ég að það væri mikill áfangi. Síðan getum við sagt við unglingana: „Ef þið frestið því um eitt ár að byrja að nota þessa hluti, þá lengið þið líf- ið um tvö ár. Hinn eilífi unglingur í lok spjallsins við Gísla var hann spurður um hvernig honum lík- aði að starfa með unglingum, þjóðfélagshópnum sem svo margir óttuðust. „Ég væri ekki búinn að endast í þessu í 22 ár ef þetta væri ekki spennandi. Að starfa með unglingunum gerir það að verkum að ég er hinn eilífi unglingur. Ég gefst aldrei upp á því að vera unglingur. Ég held að ég skilji unglingana betur en þeg- ar ég var sjálfur unglingur." Yiðhorf foreldra til unglinga Á starfsdegi hjúkrunarfræðinga á Akureyri fyrr í vetur ræddi Einar Gylfi Jónsson, forstöðumaður Unglingaheimilis ríkisins, m.a. um vímuefnavanda unglinga og hvað væri til ráða. Hann kom víða við í athyglisverðum fyrir- lestri, sem ekki er rúm til að gera tæmandi skil hér. Þó skal tæpt á nokkrum atriðum. Einar Gylfi sagði að á þeim árum þegar hann var unglingur fyrir 25 árum hafi vímuefna- neysla unglinga verið nær óþekkt fyrirbrigði, en nú sé hún mikið vandamál. Hann tók þó fram að lang stærstur hluti unglinga kæm- ist í gegnum lífið án þess að verða áfengi eða öðrum vímuefn- um að bráð. Hann sagði að á hans unglinga- árum í Vestmannaeyjum mætti skjóta á að unglingar hafi að jafn- aði byrjað að neyta áfengis um 16 ára aldurinn, en samkvæmt rann- sókn 1989 neyttu margir ungling- ar áfengis í fyrsta skipti um 14 ára gamlir. Einar Gylfi lagði áherslu á að viðhorf foreldra til unglinganna væri mikilvægur ráðandi þáttur um hvort unglingarnir færu inn á brautir vímuefnaneyslu. „Það er mikilvægt að láta unglingana vita að við séum á móti vímuefna- neyslu. Það er líka mikilvægt við séum tilbúin að hlusta á vanda- mál unglinga," sagði Einar Gylfi. Og hann hélt áfram: „Það er alveg ljóst að ástæðan fyrir því að unglingur fer að sækjast í áfengi er sú að honum finnst það vera hluti af því að verða fullorðinn. Hvort sem okkur foreldrum líkar það betur eða verr, þá erum við fyrirmyndin. Ef unglingur sér okkur, sem erum að vinna með unglingum, drukkna niðri í bæ eftir ball, þá höfum við áhrif á hann hvort sem okkur líkar betur eða verr.“ Einar Gylfi sagði líka mikil- vægt að þeir unglingar, sem leiddust út í vímuefnaneyslu, fengju að vita af foreldrum að þeim væri ekki hafnað, heldur því sem þeir væru að gera. óþh

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.