Dagur - 14.03.1992, Page 23
Laugardagur 14. mars 1992 - DAGUR - 23
Popp
Söngvari
Rokkhljómsveitin fræga frá Los
Angeles, Mötley Crue, hefur öll-
um að óvörum slitið samstarfi við
söngvara sinn, Vince Neil.
Hljómsveitin, sem hélt upp á tíu
ára starfsafmæli sitt á síðasta ári
með útgáfu á safnplötunni De-
cade of Decadence og tónleika-
ferð í kjölfarið, gaf út fréttatil-
kynningu þess efnis nú í lok
febrúar.
I henni kemur ekki beinlínis
fram hver sé ástæðan fyrir brott-
hvarfi Neils, en gefið er í skyn að
það hafi verið vaxandi áhugi
söngvarans á kappakstri og
ágreiningur á milli hans og ann-
arra meðlima um breyttar áhersl-
ur í tónlistarstefnu hljómsveitar-
innar, hafi verið orsakavaldar í
málinu. Það kemur einnig fram í
tilkynningunni að hinir þrír meðl-
imirnir sem eftir standa ætla að
halda ótrauðir áfram undir merki
Mötley Crue og eru nú þegar
farnir aö leita af eftirmanni Neils.
Hafa nokkur nöfn verið nefnd
sem hugsanlegir kandidatar m.a.
Marq Torien söngvari Buullet
Boys.
Kemur það reyndar nokkur á
óvart að þremenningarnir skyldu
halda áfram undir nafni Mötley
Crue, því það hafði verið yfirlýst
stefna hjá hljómsveitinni að
hætta ef einhver heltist úr lest-
inni. Á hinn bóginn er ákvörðunin
skiljanleg í Ijósi þess að hljóm-
sveitin gerði nýjan samning á
síðasta ári við Elektra, sem mun
vera einn sá besti sem hljómsveit
hefur gert.
Eins og áður segir kom fregnin
um brotthvarf Vince Neil mönn-
um í opna skjöldu. Er það ekki
hvað síst vegna þess að á síð-
ustu árum hefur Mötley Crúe
Vince Neil hætti óvænt sem söngvari Mötley Crue.
Magnús Geir Guðmundsson
Mötley Crue hættur
gengið allt í haginn. Seldist síð-
asta hljóðversplata sveitarinnar
t.a.m. í rúmum fjórum milljónum
eintaka í Bandaríkjunum og náði
efsta sæti breiðskífulistans þar.
(Var þetta platan Dr. Feelgood.)
Þá hefur Decade of Decadence
einnig selst í milljónaupplagi.
í kjölfar tilkynningarinnar frá
þremenningunum hefur Neil tjáð
sína hlið á málinu. Neitar hann
því að áhugi hans á kappakstri
hafi staðið veru hans í Mötley
Crúe fyrir þrifum. Aksturinn hafi
bara verið hans helsta tóm-
stundagaman og að hann kæmi
aldrei í staðinn fyrir tónlistina.
Hún væri og hefði alltaf verið í
fyrsta sæti í hans lífi.
Hins vegar segir Neil að stað-
hæfingar um ágreining varðandi
tónlistarstefnuna séu réttar.
Hann hafi orðið undir er hann
mótmælti því að létta upp tónlist-
ina, setja inn hljómborð og bak-
raddir, í nýju lögunum sem
hljómsveitin var búin að semja
og byrjuð að útsetja. Segist
söngvarinn ennfremur harma
hvernig farið hefði, en e.t.v. hafi
það verið fyrir bestu. Er hann nú
þegar farinn að huga að sóló-
plötu en ekki er vitað hvenær hún
geti komið út. Gert er ráð fyrir að
ný plata með Mötley Crúe komi
út seinna á þessu ári.
Hitt og þetta
Georgia Sattellites hætt
Suðurríkjarokksveitin Georgia
Sattellites frá Atlanta, sem náði
mikilli hylli með sinni fyrstu sam-
nefndu plötu árið 1986 (af þeirri
plötu urðu lögin Keep your hands
to your self og Battleship chain
vinsæl) hefur nú lagt upp laup-
ana. Hljómsveitin sem átti rætur
að rekja allt aftur til miðs áttunda
áratugarins, er hún hóf ferilinn á
spilamennsku í klúbbum, sendi
auk fyrstu plötunnar frá sér tvær
aðrar breiðskífur, Open all night
og In the land of salvation and sin
og tvær mini plötur, Keeping the
faith og Another chance
Náði hljómsveitin aldrei að
fylgja eftir vinsældum fyrstu
plötunnar fyllilega með seinni
verkunum, en gerði hins vegar
mikla lukku með útgáfu sinni af
rokkslagaranum Hippy, hippy
shake úr bíómyndinni Cocktail
fyrir nokkrum árum. Forsprakki
Georgia Sattellites frá öndveröu
Dan Baird, hefur nælt í samning
við Def American útgáfuna og
mun ný plata koma frá honum
seinna á árinu.
The Cure
Hinir fjölmörgu aðdáendur
bresku popphljómsveitarinnar
The Cure hér á landi geta nú farið
að setja sig í stellingar, því von
er á nýju efni frá henni innan
skamms. Það er reyndar nú á
mánudaginn kemur sem nýtt lag
með hljómsveitinni lítur dagsins
Ijós og ber það nafnið High. Er
lagið undanfari nýrrar tólf laga
afurðar sem koma á út í apríl.
Verður spennandi að sjá hvernig
til tekst hjá RobertSmith og félög-
um, en nafnið á þessari nýju
plötu er enn á huldu, eftir því
sem best er vitað.
Annie Lennox
Hin snoppufríða söngkona, Annie
Lennox, úr dúettnum Eurythmics
lætur nú heyra í sér eftir þriggja
ára hlé, sem verið hefur á sam-
starfi hennarog Dave Stewart. Er
hún á ferðinni með sitt fyrsta lag
undir eigin nafni, sem kallast
Why, og mun það koma út nú eft-
ir helgina. Þann sjötta apríl kem-
ur síðan út breiðskífa undir nafn-
inu Diva, sem söngkonan ætlar
að fylgja eftir með tónleikum í
einhverjum mæli. Hún mun svo
ef að líkum lætur taka upp þráð-
inn með Stewart, til að taka upp
nýja Eurythmicsplötu.
Waterboysværingar
Nú síðustu vikur og mánuði hafa
ýmsar væringar og vangaveltur
verið í kringum þjóðlagarokk-
sveitina Waterboys. Það vakti til
að mynda athygli er Mike Scott,
aðalsprauta hljómsveitarinnar,
flutti sig um set til Bandaríkjanna
í fyrra til þess m.a. að eigin sögn,
að afla sér nýrra sambanda og
The Cure er komin á kreik eftir
nokkurt hlé, mörgum án efa til mikill-
ar ánægju.
finna sér nýja spilafélaga. Settu
menn af þessu tilefni spurninga-
merki við framtíð Waterboys, en
nú hefur annað komið á daginn
samkvæmt síðustu fréttum. Mun
Scott nefnilega vera búinn að ná
sér í samning við Geffenútgáf-
una fyrir N-ameríkumarkað og
vera sömuleiðis að leggja drög
að nýrri Waterboys plötu.
Það hefur hins vegar gengið
verr hjá honum að finna spilafé-
laga í nýja rokkaðri útgáfu af
Waterboys og sér ekki fyrir end-
ann á því vandamáli, sem hefur
óhjákvæmilega í för með sér að
vinna og þ.a.l. útgáfa á plötunni
tefst. Samkvæmt allra nýjustu
fregnum hefur svo félagi Scott í
Waterboys til margra ára, Antony
Thistletwaite, ákveðið að segja
skilið við sveitina og snúa sér að
öðrum verkefnum, sem felast
m.a. í vinnu með The Mission á
nýrri plötu þeirrar ágætu hljóm-
sveitar.
Aðalfimdur Foreldra- og
kennarafélags Oddeyrarskóla
Þriðjudaginn 17. mars næst-
komandi er boðað tii aðalfund-
ar í Foreldra- og kennarafélagi
Oddeyrarskóla. Fundurinn
verður haldinn á sal Oddeyrar-
skóla og hefst klukkan 20.30.
Starfsemi Foreldra- og kenn-
arafélags Oddeyrarskóla hefur að
mestu legið niðri undanfarin ár
en nú er ætlunin að endurlífga og
efla starfsemi félagsins.
í fundarboði, sem sent var til
foreldra barna í Oddeyrarskóla,
er hvatt til þess að koma á góðu
og öflugu foreldrafélagsstarfi við
skólann. í bréfinu segir m.a.:
„Vegna mikilla hræringa í skóla-
málum, ekki síst í okkar skóla -
sbr. hugmyndir um að leggja nið-
ur íþróttaaðstöðu við skólann
o.fl. - er nú brýn þörf á samstöðu
okkar.
Fundurinn verður sem fyrr seg-
ir haldinn nk. þriðjudag og hefst
kl. 20.30.
fSjúkrahúsið
í Húsavík
Hjúkrunarfræðingar
óskast til sumarafleysinga.
Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri
í síma 96-41333.
Húsvörð vantar
í Félagsheimilið Húnaver
frá 1. maí ’92.
Nánari upplýsingar veittar í síma 95-27112.
Umsóknir sendist til Erlu Hafsteinsdóttur,
Gili, 541 Blönduósi fyrir 1. apríl nk.
Deildarstjóri
Hagkaup óskar eftir að ráða deildarstjóra yfir
matvörudeild í verslun fyrirtækisins á Akureyri.
Deildarstjóri stjórnar matvörudeild og ber ábyrgö á
rekstri hennar gagnvart verslunarstjóra.
Viö leitum aö einstaklingi sem getur unnið sjálfstætt
og skipulega og á auðvelt meö aö vinna meö öörum.
Æskilegt er aö viökomandi hafi reynslu af verslunar-
störfum og stjórnun.
Upplýsingar um starfiö veitir Þórhalla Þórhallsdóttir,
verslunarstjóri Hagkaups á Akureyri í síma 96-
23965 mánudag og þriöjudag milli kl. 14 og 16.
Umsóknum þarf aö skila til verslunarstjóra Hag-
kaups á Akureyri eða starfsmannahalds Hagkaups,
Skeifunni 15, Reykjavík, fyrir föstudaginn 20.
mars. Fariö veröur meö allar umsóknir sem trúnaö-
armál og öllum svaraö.
HAGKAUP
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ
Á AKUREYRI
Staða leikskólastjóra
við Barnaheimilið Stekk er laus til umsóknar.
Staöan veitist frá 1. apríl nk. eða eftir samkomulagi.
Staða fóstru
við Barnaheimilið Stekk er laus til umsóknar.
Staöan veitist frá 1. apríl nk. eða eftir samkomulagi.
Barnaheimiliö Stekkur er leikskóli fyrir börn á aldrin-
um 2ja-6 ára og er rekinn af Fjóröungssjúkrahúsinu
á Akureyri. Leikskólinn er ætlaöur fyrir börn starfs-
manna sjúkrahússins.
Nánari upplýsingar um ofangreindar stööur veita
Guörún Ásta Guðjónsdóttir leikskólastjóri og Ingi
Björnsson framkvæmdastjóri í síma 96-22100
(símatími mánudaga-föstudaga kl. 15.00-16.00).
Umsóknir meö upplýsingum um nám og fyrri störf
sendist framkvæmdastjóra sjúkrahússins, Inga
Björnssyni fyrir 17. mars 1992.
Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu F.S.A.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.