Dagur - 17.03.1992, Qupperneq 2
2 - DAGUR - Þriðjudagur 17. mars 1992
Fréttir
Fjórðungssamband Norðlendinga:
Aukafl órðungsþing boðað
á Akureyri 30. aprfl nk.
- rætt verður um stofnun landshlutasamtaka
Stjórn Fjórðungssambands
Norðlendinga samþykkti á
fundi sínum si. föstudag að
boða til aukafjóröungsþings á
Akureyri 30. apríl nk. þar sem
rætt verði um að stofna til
landshlutasamtaka í Norður-
landskjördæmi eystra og vestra,
sem komi í stað Fjórðungs-
sambands Norðlendinga.
Samþykkt stjórnar Fjórðungs-
sambandsins um málið er svo-
hljóðandi: „Fjórðungsstjórn
ákveður að boða til aukafjórð-
ungsþings 30. apríl 1992 á Akur-
eyri með hliðsjón af tilmælum
nefnda sem vinna að undirbún-
ingi stofnunar landshlutasamtaka
sveitarfélaga á kjördæmagrund-
velli á Norðurlandi og sem kosn-
ar voru á Fjórðungsþingi Norð-
lendinga 1991. Fjórðungsstjórn
ákveður með hliðsjón af þessum
tilmælum að leggja til við auka-
fjórðungsþingið að það ákveði að
starfa að hluta til í tveim deild-
um, þ.e. skipting þingfulltrúa eft-
ir kjördæmum. Jafnframt leggur
fjórðungsstjórn til við þingið að
hvor deild um sig ákveði hvort
stuðlað verði að stofnun lands-
hlutasamtaka sveitarfélaga í við-
Fjárhagsáætlun Sauðárkróksbæjar:
Seiiuii umræða í dag
- litlar breytingar milli umræðna
Fjárhagsáætlun bæjarsjóðs
Sauðárkróks fyrir árið 1992
verður tekin til seinni umræðu
á bæjarstjórnarfundi í dag.
Engar stórvægilegar breyting-
ar hafa orðið á áætluninni milli
umræðna þó vissir málaflokkar
fái aukin framlög og eignfærð
fjárfesting verði aukin um tvær
milljónir króna.
Meðal þeirra breytinga sem
orðið' hafa á áætluninni eru: 300
þús. króna viðbótarstyrkur til
Skátafélagsins Eilífsbúa, 500 þús.
kr. viðbót við framlag til Félags-
heimilisins Bifrastar og Héraðs-
nefnd fær um 550 þús. krónur til
viðbótar vegna uppgjörs heilsu-
gæslu frá árinu 1989. Eignakaup
bæjarsjóðs voru síðan aukin um
tvær milljónir og framlag frá veit-
um hækkað um fjórar milljónir.
Samkvæmt áætluninni eru
niðurstöðutölur rekstrar því
311.995 þús. krónur í gjöld og
352.401 þús. krónur í tekjur.
Niðurstöðutölur gjaldfærðrar
fjárfestingar eru síðan 74.134
þús. krónur í gjöld og 39.400 þús.
krónur í tekjur. Eignfærð fjár-
festing hækkar síðan upp í 19.649
þús.
Fjárhagsáætlanir veitna á
Sauðárkróki og hafnarsjóðs
verða einnig teknar til seinni
umræðu á bæjarstjórnarfundi í
dag, en breytingar á þeim eru
smávægilegar. Framkvæmdaáætl-
un hafnarsjóðs hækkar þó um
tæpar þrjár milljónir króna og
lántökur til samræmis við það,
vegna breytinga á verkefnum.
SBG
komandi kjördæmi. Fjórðungs-
stjórn mun að fengnum niður-
stöðum kjördæmadeilda gera til-
lögu til aukafjórðungsþings um
hvort hefja á undirbúning að
starfslokum Fjórðungssambands
Norðlendinga. Fjórðungsstjórn
leggur áherslu á það við þingboð-
un aukaþingsins að þingfulltrúar
einstakra sveitarfélaga afli sér
umboðs sveitarstjórna til að taka
afstöðu til stofnunar kjördæma-
bundinna landshlutasamtaka á
Norðurlandi.“
Ingunn St. Svavarsdóttir, for-
maður stjórnar Fjórðungssam-
bandsins, segir að þurfi samþykki
% hluta sveitarstjórna á Norður-
landi til þess að leggja Fjórðungs-
sambandið niður. Ingunn segir
að verði sú ákvörðun tekin telji
stjórnin æskilegt að nýta kom-
andi sumar til að ákveða hvernig
hin nýju landshlutasamtök eigi
að vera, hvernig kosið verði til
þeirra, hvernig þau tengist héraðs-
nefndunum og fleira. óþh
Karaoke-söngkeppni Sjallans:
Einar Haflberg sigraði
Einar Hafberg, 18 ára nemi í
Menntaskólanum á Akureyri,
bar sigur úr býtum í karaoke-
söngkeppni Sjallans, sem lauk á
Akureyri á föstudagskvöldið.
Einar, sem keppti fyrir hönd
útgerðarfélagsins Hjálms á Flat-
eyri, söng lögin „Kiss“ og „Cali-
fornia dreaming". Tólf söngvarar
tóku þátt í úrslitakeppninni, sem
þótti jöfn og spennandi. Á mynd
Golla hér að ofan er sigurvegar-
inn í góðri sveiflu. Fleiri myndir
og frásögn af úrslitum keppninn-
ar verða birt í blaðinu á morgun.
Suður-Þingeyjarsýsla:
Heldur dregið úr atviimuleysi
Heldur hefur dregið úr
atvinnuleysi í Suður-Þingeyj-
arsýslu í þessum mánuði. Alls
voru 120 atvinnulausir í sýsl-
unni 1. mars sl. þar af 62 á
Húsavík. Atvinnuleysið var
verra hjá konum, 68 konur í
sýslunni voru án vinnu og 52
karlar.
Ágúst Óskarsson, starfsmaður
á skrifstofu verkalýðsfélaganna,
sagðist reikna með að nú væru
um 100 manns án atvinnu í sýsl-
unni. „Þetta eru allar stærðir og
gerðir af fólki sem er atvinnu-
laust og það kemur úr 25 starfs-
greinum," sagði Ágúst, aðspurð-
ur úr hvaða störfum atvinnu-
leysingjarnir kæmu helst. Hann
nefndi sem dæmi: fiskeldi, togara-
útgerð, bátaútgerð, slátrun,
mjólkuriðnaður, fiskvinna,
niðursuða, prjónavörufram-
Mývatnssveit:
Gróðurvemdarsamtök í undirbúningi
Undirbúningsfundur fyrir
stofnun gróðurverndunarsam-
taka í Mývatnssveit var hald-
inn sl. sunnudag að Hótel
Reynihlíð. Fundinn sátu 26
manns og var Arnþór Björns-
son fundarstjóri.
Þriggja manna stjórn til undir-
búnings stofnfundar var kjörin og
hana skipa: Hörður Sigurbjarn-
arson, Eyþór Pétursson og Helga
Valborg Pétursdóttir.
Tveir fulltrúar frá Húsgulli á
Húsavík mættu á fundinn, það
voru Sigurjón Jóhannesson og
Sigurjón Benediktsson. Húsgull
er samtök um gróðurvernd og
uppgræðslu. Samtökin verða
þriggja ára á morgun, 18. mars.
Þau halda þriðju stóru ráðstefnu
sína um gróðurvernd nk. laugar-
Hagfélagið hf.:
Léleg þátttaka í köraiun félagsins
Hið nýstofnaða Hagfélag í
Vestur-Húnavatnssýslu lét það
verða sitt fyrsta verk að efna
til könnunar á afstöðu héraðs-
búa til atvinnumála. Eyðublöð
voru send inn á hvert heimili í
héraðinu og átti að skila þeim í
byrjun þessa mánaðar. Lélegar
heimtur hafa hinsvegar orðið í
könnuninni.
Að sögn Karls Sigurgeirssonar,
framkvæmdastjóra Hagfélagsins
hf., hafa sárafá eyðublöð skilað
sér í pósthólfið hjá félaginu og er
hann að vonum vonsvikinn vegna
þessa.
„Annað hvort er þetta ákveðið
tómlæti eða fólk er andvaralaust
fyrir atvinnuástandinu. Könnun-
in var ekkert síður til að leita eft-
ir upplýsingum um menntun
fólks til að sjá hvaða kraftur lægi
raunverulega í héraðinu í formi
menntunar og þekkingar til að
hægt væri að átta sig betur á hvað
hægt væri að bjóða upp á. Einnig
var fólk beðið að setja í áherslu-
röð ýmsar greinar atvinnurekst-
urs. Samt sem áður hafa fáir gef-
ið sér tíma til að fylla út eyðu-
blöðin og senda okkur,“ segir
Karl. SBG
dag. Um 200 þúsund trjápiöntur
hafa verið gróðursettar í Húsa-
víkurland á vegum samtakanna
og landið hefur verið girt og frið-
að fyrir lausagöngu búfjár. Sig-
urjónarnir sýndu fundarmönnum
myndir og greindu frá á hvern
hátt áhugamannahópurinn í Hús-
gulli starfaði.
Að sögn Arnþórs skildist hon-
um á fundarmönnum að áhuga-
menn í Mývatnssveit vildu gjarn-
an að fyrirhuguð samtök þar
störfuðu með Húsgulli. Hann
sagði að mörg verkefni sem vert
væri að sinna hefðu verið nefnd á
fundinum. „Ég er sannfærður um
að þetta verður kraftmikið
félag,“ sagði Arnþór. IM
Kalt um helgina:
Frost komst hæst í 24 gráður
- víða 15 til 18 gráðu frost á laugardag
Kalt var í veöri á landinu um
helgina. Frostið komst hæst í
24 gráður á Hveravöllum og
fór í um 20 gráður á ýmsum
stöðum norðanlands og aust-
an. Einnig var kalt í öðrum
landshlutum og frost víðast yfir
10 gráður.
Kuldaboli slapp laus um helg-
ina og hrelldi bæði Norðlendinga
og aðra landsmenn. Mjög kalt
var um norðanvert landið og
einnig á Austurlandi. Kaldast var í
byggð á Egilsstöðum en þar fór
frostið niður í 22 gráður aðfara-
nótt laugardags. Þá var um 20
gráðu frost á Grímsstöðum á
Fjöllum og 15 til 18 gráðu frost
var víðast hvar á Norður- og
Austurlandi. Aðfaranótt sunnu-
dagsins var frostið heldur minna
eða 23 gráður á Hveravöllum og
20 á Grímsstöðum. Þá var 19
gráðu frost á Hrauni á Skaga,
sem er óvenjulegt úti við sjó.
Verulegt frost var einnig um
sunnanvert landið fram á sunnu-
dag en þá fór að hlýna og var orð-
ið frostlaust á höfuðborgarsvæð-
inu á sunnudagskvöld og um
norðanvert iandið á mánudags-
morgun. ÞI
leiðsla, kemískur iðnaður,
skógrækt, húsasmíði, húsamál-
un, járniðnaður, rafveita, hita-
veita, bensín- og olíusala, bygg-
ingarvöruverslun, matvöruversl-
un og sælgætisverslun.
Um framtíðarhorfurnar sagði
Ágúst: „Ástandið hefur alltaf
verið verst í janúar en lagast síð-
an þegar kemur fram á vorið.
Eins og horfurnar eru í dag lítur
út fyrir mjög slæmt atvinnu-
ástand í sumar, sérstaklega fyrir
16-18 ára, eða þá sem eru í fyrsta
sinn á hinum almenna vinnu-
markaði." IM
Sauðárkrókur:
Verður Röstin
úrelt?
Allt stcfnir í að Röst SK,
sem er í eigu Dögunar hf. á
Sauðárkróki, verði úrelt á
næstunni. Hagræðingar-
sjóður fjallar um málið á
fundi í dag og segist Ómar
Gunnarsson, framkvæmda-
stjóri Dögunar, ekki búast
við öðru en úrelding verði
samþykkt.
Röstin hefur legið við
bryggju á Sauðárkróki frá sl.
hausti, en þá kom upp eldur í
skipinu sem olli verulegum
skemmdum á útbúnaði þess.
Töluverður kvóti fylgir Röst-
inni og að sögn Ómars er ekki
ljóst hvað um hann verður, en
fyrirtækið á ekkert skip sem
það getur fært hann yfir á.
Ómar segir að þeir hafi verið
að leita að skipi til að kaupa,
en allt sé óljóst í þeim efnum
ennþá, en aftur á móti hafi
töluvert vcrið um þreifingar
varðandi kvótann.
Bæjarráö Sauðárkróks hef-
ur tekið kvótamál Rastarinnar
inn á borð hjá sér og boðað
hefur verið til fundar for-
svarsmanna fiskvinnslufyrir-
tækja bæjarins og ráðsins um
málið. SBG