Dagur - 17.03.1992, Side 3
Þriðjudagur 17. mars 1992 - DAGUR - 3
Fréttir
Aflcoma ríkissjóðs fyrstu tvo mánuði ársins:
Betri staða en áætlað hafði verið
- helmingi minni halli en fyrstu tvo mánuði síðasta árs
Bráðabirgðatölur um afkomu
ríkissjóðs fyrstu tvo mánuði
ársins sýna að rekstrarhallinn
er helmingi minni en á sama
tíma í fyrra, eða 2,2 milljarðar
nú á móti 4,6 milljörðum í
fyrra. Þetta er tæplega 1 millj-
arði betri afkoma en áætlað
hafði verið.
Hrein lánsfjárþörf ríkissjóðs
nam tæpum 3 milljörðum í janú-
Hagnaður Flug-
leiða 150
milljónir á
síðasta ári
Heildarhagnaður af rekstri
Flugleiða í fyrra var 150 millj-
ónir króna en árið 1990 var um
433 milljón króna hagnaður á
verðlagi 1991. Sigurður Helga-
son, forstjóri félagsins, segir
að þótt félagið hafi ekki náð
arðsemismarkmiðum sínum á
árinu sé þessi afkoma viðun-
andi miðað við þær erfiðu
aðstæður sem ríktu í alþjóðleg-
um flugrekstri á síðasta ári.
Hagnaður af reglulegri starf-
semi árið 1991 var um 188 millj-
ónir króna. Regluleg starfsemi
eru rekstrartekjur að frádregnum
beinum rekstrarkostnaði og fjár-
magnskostnaði. Árið 1990 var
448 milljón króna hagnaður af
reglulegri starfsemi, reiknað á
verðlagi ársins 1991.
Rekstrartekjur Flugleiða árið
1991 voru 12,7 milljarðar króna
en voru 12,5 milljarðar árið áður.
Rekstrargjöld voru um 11,8
milljarðar í fyrra en voru tæplega
11,9 milljarðar árið áður.
Fjármagnsgjöld hafa hækkað
verulega og voru um 719 milljón-
ir króna en voru um 150 milljónir
árið 1990 á verðlagi 1991. Árið
1991 var söluhagnaður tæplega
69 milljónir króna en var en var
rúmlega 376 milljónir árið áður á
verðlagi síðasta árs.
Eigið fé Flugleiða var 4.409
milljónir króna í árslok 1991 en
skuldir fyrirtækisins samtals
16.729 milljónir. Þær eru að lang-
mestu leyti til komnar vegna
kaupa á flugvélum og eru tryggð-
ar með veði í vélunum sjálfum.
Aðalfundur Flugleiða verður
haldinn fimmtudaginn 19. mars
kl. 14.00 í Höfða á Hótel Loft-
leiðum. -KK
Mývatnssveit:
Þokkaleg veiði
íMývatni
„Silungsveiði í Mývatni hefur
verið þokkalega góð frá því að
hún hófst í febrúar,“ sagði
Þorlákur Jónasson, bóndi í
Vogum í Mývatnssveit í sam-
tali við Dag.
Þorlákur sagði jafnframt að
silungurinn væri vænn og mjög
góður á bragðið. „í gegnum árin
hefur það oft verið þannig að
veiði er góð fyrstu dagana en
dettur svo niður á milli. Svo virð-
ist ekki vera nú, alla vega ekki
hérna norðan megin, þó svo að
veiði hafi dottið niður hjá Starra í
Garði,“ sagði Þorlákur. -KK
ar og febrúar samanborið við 5,2
milljarða í fyrra. Staða ríkissjóðs
gagnvart Seðlabanka var einnig
rúmlega 3 milljörðum betri á
þessu tímabili en í fyrra.
Hvað tekjuhliðina varðar
námu innheimtar tekjur í febrú-
arlok 16,5 milljörðum króna frá
áramótum. Þetta er 2,7 milljörð-
um meiri tekjur en í fyrra, eða
hækkun um 19,7% á sama tíma
og almennt verðlag hefur hækkað
um 7%. Samkvæmt upplýsingum
fjármálaráðuneytisins eru ýmsar
skýringar á þessari tekjuinn-
heimtu, t.d. gildistaka trygginga-
gjalds í ársbyrjun síðasta árs sem
ekki skilaði tekjum fyrr en í
febrúar það ár, innheimta virðis-
aukaskatts fyrir tvo mánuði í ár,
hálfum mánuði meira en í fyrra,
breytingar á uppgjöri staðgreiðslu
frá síðasta ári og lækkun barna-
bóta frá því í fyrra. Auk þessa
má nefna að tollar og innflutn-
ingsgjöld skiluðu ríkissjóði minni
tekjum í ár en í fyrra, að raun-
gildi, sem sýnir minnkandi inn-
flutning.
Heildarútgjöld ríkissjóðs
námu 18,8 milljörðum króna á
þessu tveggja mánaða tímabili.
Hækkunin milli ára er rúm 2% en
miðað við verðlagshækkanir er
raungildislækkun á milli áranna
um 900 milljónir. í þessum mán-
uðum reyndust framlög til Jöfn-
unarsjóðs sveitarfélaga, Bygg-
ingarsjóðs ríkisins, fasteigna-
kaupa og vaxtagreiðslna um 600
milljónum króna lægri en á síð-
asta ári. Framlög til annarra
útgjaldaflokka hafa hins vegar
hækkað, s.s. til Lánasjóðs
íslenskra námsmanna, Trygg-
ingastofnunar ríkisins, og
Atvinnuleysistryggingasjóðs, alls
um 900 milijónir króna. JÓH
Ert þú í forsvari fyrir félag, fámennt eða
fjölmennt, formlegt eða óformlegt?
Félagaþjónustan greibir fyrir fjármálum
félagasamtaka.
Þá veistu hvaö þaö fer mikill tími í innheimtu félagsgjalda, aö
halda félagatalinu réttu, vita hverjir hafa gert skil,
senda rukkanir á réttum tíma, taka
viö greiöslum og koma þeim í banka.
Til aö þú hafir meiri tíma til aö sinna eiginlegum félagsstörfum
höfum viö þróaö Félagaþjónustu íslandsbanka.
Félagaþjónustan felst mebal annars í eftirfarandi þáttum:
• Círóseölar fyrir félagsgjöldum eru skrifaöir út og sendir
greiöendum á réttum tíma. Um leiö er félaginu send skrá
yfir útskrifaöa gíróseöla.
• Hægt er aö velja árlega og allt niöur í mánaöarlega
innheimtu.
• Reikningsyfirlit meö nöfnum greiöenda eru skrifuö út í
byrjun hvers mánaöar.
• Dráttarvextir eru reiknaöir, sé þess óskaö.
• Gjöld geta hœkkaö samkvæmt vísitölu, sé þess óskaö.
Aö auki er boöin margþætt viöbótarþjónusta.
Notfœröu þér Félagaþjónustu íslandsbanka fyrir þitt félag og
notaöu tímann til aö sinna sjálfum félagsstörfunum.
ISLANDSBANKI
-í takt vid nýja tíma!