Dagur - 17.03.1992, Qupperneq 10
10 - DAGUR - Þriðjudagur 17. mars 1992
ÍÞRÓTTIR
Jón Haukur Brynjólfsson
Man. Utd. með öll spilin á hendi
- tveir reknir útaf hjá Chelsea - Tottenham vonlaust á heimavelli
Nú styttist í að endaspretturinn
hefjist í ensku knattspyrnunni,
en þó eru enn mörg stig í boði.
Leeds Utd. heldur efsta sæt-
inu, tveim stigum á undan
Man. Utd., en ekki er allt sem
sýnist því Man. Utd. á þrjá Ieiki
inni og hefur því öll tromp á
hendinni. En þá eru það leikir
laugardagsins.
■ Leikur Sheff. Utd. gegn Man.
Utd. var sýndur í sjónvarpinu,
bráðfjörugur leikur þar sem
spenna og harka sáu til þess að
áhorfendum leiddist ekki. Sheff.
Utd. var betra liðið í fyrri hálf-
leiknum og náði forystu á 21.
mín. með marki Brian Deane
sem hefði átt að bæta öðru marki
við rétt fyrir hlé. Man. Utd. var
síðan mun sterkara liðið í síðari
hálfleiknum og Brian McClair
jafnaði leikinn á 62. mín. eftir
mistök í vörn Sheff. Utd. Sigur-
mark Man. Utd. kom síðan er 8
mín. voru til leiksloka, eftir
þunga sókn heimamanna kom
skyndisókn frá Utd. og varamað-
urinn Clayton Blackmore skoraði
af stuttu færi eftir sendingu
McClair. Minnstu munaði þó í
Úrslit 1. deild
Aston Villa-Q.P.R. 0:1
Chdsea-Coventry 0:1
Crystal Palace-Liverpool 1:0
Everton-Luton 1:1
Leeds Utd.-Wimbledon 5:1
Nottingham For.-Norwich 2:0
Oldham-Notts County 4:3
Sheffield Utd.-Manchester Utd. 1:2
Tottenham-Sheffield Wed. 0:2
West Ham-Arsenal 0:2
Manchester City-Southampton 0:1
2. deild
Barnsley-Oxford 1:0
Brighton-Blackburn 0:3
Bristol City-Cambridge 1:2
Ipswich-Leicester 0:0
Newcastle-Swindon 3:1
Port Vale-Bristol Rovers 0:1
Portsmouth-Millwall 6:1
Southend-Middlesbrough 0:1
Tranmere-Derby 4:3
Watford-Sunderland 1:0
Wolves-Plymouth 1:0
Úrslit í vikunni: FA-bikarinn • - fjórðungsúrslit
Chelsea-Sunderland 1:1
Deildabikarinn
- undanúrslit - síöari leikur
Manchester Utd.-Middlesbrough 2:1
1. deild
Arscnal-Oldham 2:1
Liverpool-West Hara 1:0
Notts County-Aston Villa 0:0
Wimbledon-Everton 0:0
Coventry-Nottingham For. 0:2
Luton-Tottenham 0:0
Norwich-Chelsea 0:1
Q.P.R.-Leeds Utd. 4:1
Sheffield Wed.-Shelfield Utd. 1:3
Southampton-Crystal Palace 1:0
2. deild
Blackburn-Southend 2:2
Cambridge-Newcastle 0:2
Grimsby-Brighton 0:1
Plymouth-BrLstoI City 1:0
Swindon-Charlton 1:2
Bristol Rovers-Wolves 1:1
Derby-Port Vale 3:1
Leicester-Portsmouth 2:2
Millwall-Tranmere 0:3
Oxford-Watford 0:0
lokin að Alan Cork jafnaði fyrir
Sheff. Utd. er hann fékk boltann
eftir misheppnað útspark, en
hann gaf sér ekki nægan tíma og
Peter Schmeichel varði skot
hans. Heppnin virðist því fylgja
liði Man. Utd. þessa dagana og
allt sem bendir til þess að meist-
aratitillinn hafni á Old Trafford.
■ Leeds Utd. hefur þó ekki gef-
ið upp alla von og eftir ljótt tap í
vikunni gegn Q.P.R. náði liðið
að rífa sig upp á laugardag og
burstaði Wimbledon 5:1. Prjú
mörk á 7 mín. kafla eftir hálftíma
leik í fyrri hálfleik tryggðu Leeds
Utd. sigurinn. Lee Chapman
skoraði tvö fyrstu mörkin, fyrst
með einföldu poti eftir sendingu
David Batty og síðan með skalla
eftir fyrirgjöf Rodney Wallace.
Wallace skoraði síðan þriðja
markið eftir undirbúning Gordon
Strachan, en Paul Miller lagaði
stöðu Wimbledon með góðu
marki rétt eftir hlé og liðið hefði
getað gert enn betur. Það tókst
þó ekki og Frakkinn Eric Cantona
nýtti sér varnarmistök John Scales
og gerði fjórða mark Leeds Utd.
og lokaorðið átti síðan Chapman
með sínu þriðja marki er hann
skallaði inn fimmta mark liðsins,
en það verður erfitt fyrir Leeds
Utd. að eiga við hið sterka lið
Man. Utd. á lokasprettinum.
■ Ekki vantaði mörkin í leik
nýliðanna Oldham og Notts
County þar sem Oldham hafði að
lokum betur 4:3. Mark Draper
gerði fyrsta mark leiksins fyrir
County, en síðan komu þrjú
mörk á sex mín. rétt fyrir hlé sem
hefðu átt að gera útaf við
County. Andy Ritchie gerði tvö
þeirra og Rick Holden það
þriðja. Andy Williams lánsmaður
frá Leeds Utd. lagaði stöðu
County með góðu skoti í síðari
hálfleik og er 6 mín. voru til
leiksloka jafnaði Gary Lund fyrir
liðið í 3:3. Úrslitamarkið kom
síðan er 4 mín. voru til leiksloka
er Ian Marshall skoraði fyrir Old-
ham með þrumuskoti af löngu
færi.
■ Liverpool blandar sér ekki í
baráttuna úr þessu eftir tap fyrir
Crystal Palace. Eina mark leiks-
ins kom rétt fyrir hlé, Eric Young
skoraði eftir að Bruce Grobbe-
laar í marki Liverpool hafði misst
frá sér boltann eftir skalla Mark
Bright. Paul Mortimer var tví-
vegis nærri að skora fyrir Palace
og átti t.d. skot í stöng, en
Liverpool var yfirspilað í fyrri
hálfleik, en náði sér nokkuð á
strik er Jan Molby og Ian Rush
komu inná í síðari hálfleik. Rush
fékk besta færi Liverpool eftir
undirbúning Molby, en Nigel
Martyn markvörður Palace varði
mjög vel og Michael Thomas
fékk einnig gott færi fyrir Liver-
I pool. Grobbelaar brá sér síðan í
Clive Allen var annar tveggja leikmanna Chelsea sem var rekinn útaf gegn
Coventry.
Ovæntur sigur Southampton
Man. City tapaði óvænt á
hcimnvelli gegn Southampton í
1. deildarleik á sunnudaginn.
Við tapið eru möguleikar City
nánast úr sögunni hvað varðar
efsta sætið, en möguleikar
Southampton til þess að forð-
ast fallið jukust að sama skapi
verulega við sigurinn.
Iain Dowie skoraði eina mark
leiksins fyrir Southampton, en
liðið hefur ekki tapað leik sem
Dowie hefur skorað í til þessa og
hans fyrrverandi félagar í Luton
og West Ham samgleðjast hon-
um því örugglega ekki þessa dag-
ana. Þetta var hans sjöunda mark
' í vetur, skalli eftir sendingu Alan
Shearer í síðari hálfleik.
Gæfan var City ekki hliðholl í
leiknum og þeir Neil Ruddock og
Kevin Moore björguðu á línu frá
Niall Quinn og Mike Sheron.
Miðverðir Southampton þeir
Ruddock og Moore voru mjög
harðir í Ieiknum og áttu ásamt
markverðinum Tim Flowers, sem
varði mjög vel skalla Shearer í
síðari hálfleik, mestan heiður af
sigrinum.
Lið Man. City virkaði tauga-
veiklað í leiknum og þetta var
fyrsta tap liðsins á heimavelli frá
því í september. Þ.L.A.
Chris Whyte, miðvörður Leeds Utd., skallar frá marki í stórum sigri gegn
Wimbledon en staða liðsins á toppnum er ekki eins góð og virðist í fljótu
bragði.
sóknina er Liverpool fékk horn-
spyrnu í lokin, en allt kom fyrir
ekki.
■ Enn tapar Tottenham á heima-
velli og nú er rætt um það í fullri
alvöru að láta leikmenn gista
utan Lundúna fyrir heimaleiki og
ferðast síðan heim. Nú lá liðið
gegn Sheffield Wed., en Totten-
ham hefði átt að vera 2:0 yfir eftir
markalausan fyrri hálfleik. Gor-
don Durie sem ekki hefur skorað
síðan í september komst tvívegis
einn í gegn, en mistókst. Pað
hlaut því að fara illa og tvö mörk
frá Sheff. Wed. á 8 mín. kafla í
síðari hálfleik sáu til þess. Fyrst
skoraði David Hirst með við-
stöðulausu skoti og Paul Williams
bætti síðara markinu við eftir
misheppnaða sendingu Gary
Mabbutt ætlaða markverði
sínum. Tottenham átti ekkert
svar og ef ekki verður fljótt
breyting til batnaðar hjá liðinu
gæti það hæglega fallið niður í 2.
deild í vor.
■ Staða West Ham á botninum
versnar stöðugt og nú bættist við
2:0 tap á heimavelli gegn Arsenal.
Ian Wright skoraði bæði mörk
Arsenal í leiknum, það fyrra á
13. mín. eftir sendingu Alan
Smith og í síðari hálfleik
afgreiddi hann sendingu Paul
Merson í netið.
■ Brian Stein náði óvænt foryst-
unni fyrir Luton á útivelli gegn
Everton og Luton hefði ekki veitt
af öllum stigunum í fallbarátt-
unni. Af því varð þó ekki, heima-
menn náðu að jafna í síðari hálf-
leik og var Mo Johnston þar að
verki, en aðdáendum Everton
þótti jafnteflið þó ekki tilefni til
mikils fagnaðar.
■ Pað gekk mikið á er Chelsea
tapaði á heimavelli gegn Coventry
með marki Stewart Robson í síð-
ari hálfleik. Tveir leikmanna
Chelsea voru reknir útaf í leikn-
um, þeir Andy Townsend og
Clive Allen sem létu tapið fara of
mikið í taugarnar á sér.
■ Q.P.R. hefur verið á fljúgandi
ferð að undanförnu og liðið sigr-
aði Aston Villa á útivelli með
eina marki leiksins. Pað var Les
Ferdinand sem skoraði markið í
síðari hálfleik og var þetta hans
fjórða mark í síðustu þrem leikj-
um.
■ Nottingham For. vann örugg-
an heimasigur gegn Norwich og
var 2:0 sigur liðsins síst of stór.
Það voru þeir Roy Keane og
Scott Gemmill sem skoruðu fyrir
Iiðið.
2. deild
■ Blackburn er sem fyrr efst í 2.
deild eftir 3:0 sigur á Brighton,
David Speedie, Colin Hendry og
Roy Wegerle gerðu mörk liðsins.
■ John Aldridge skoraði þrennu
fyrir Tranmere gegn Derby.
■ Bernie Slaven skoraði sigur-
mark Middlesbrough á útivelli
gegn Southend. Þ.L.A.
Staðan
1. deild
Lceds Utd. 34 18-13- 3 64:3067
Manchester Utd. 31 18-11- 2 53:23 65
Sheflield Wednesday 33 16- 9- 8 53:45 57
Manchesler Cily 33 15- 8-10 45:40 53
Liverpool 32 13-13- 6 36:28 52
Arsenal 32 13-11- 8 55:36 50
Everton 33 11-12-10 42:35 45
QPR 34 10-15- 9 39:37 45
Chelsea 34 11-12-11 42:47 45
Crystal Palace 34 11-12-11 44:53 45
Aston Villa 33 12- 7-14 35:36 43
Wimbledon 33 10-12-11 39:41 42
Nottingham For. 30 12- 8-1046:4241
Norwich " 33 10-11-12 40:44 41
Oldham 34 11- 7-16 51:57 40
Coventry 33 10- 9-14 30:32 39
Sheffield Utd. 32 10- 7-15 48:53 37
Tottenham 31 10- 6-15 37:41 36
Southampton 32 8-10-14 30:45 34
Luton 34 7-11-17 27:57 32
Notts County 32 7- 9-16 33:46 30
West Ham 31 6- 9-16 26:46 27
2. deild
Blackburn 36 19- 9- 8 58:36 66
Ipswich 34 18- 9- 7 52:35 63
Cambridge 36 17-11- 8 52:35 62
Middlesbrough 32 16- 8- 8 39:29 56
Derby 35 16- 7-12 49:41 55
Charllon 36 16- 7-13 44:42 55
Portsmouth 34 15- 9-10 51:37 54
Southend 36 15- 9-12 51:44 54
Leicester 34 15- 8-11 44:41 53
Swindon 35 13-10-12 57:49 49
Wolves 34 13- 9-12 44:38 48
Tranmere 33 11-15- 7 41:38 48
Bristol Rovers 37 12-11-14 46:55 47
Barnsley 36 13- 8-15 29:44 47
Millwall 36 13- 7-16 53:6246
Sunderland 34 12- 7-15 47:47 43
Grimsby 34 11- 9-14 40:49 42
Newcastle 37 10-12-15 54:65 42
Watford 35 11- 8-16 35:40 41
Brighton 37 10- 9-18 46:58 39
Plymouth 35 10- 8-17 34:50 38
Oxford 36 10- 7-19 52:58 37
Bristol City 36 8-12-15 36:54 36
Port Valc 37 7-13-17 34:5034