Dagur - 24.03.1992, Qupperneq 1
Ábyrgðir vegna gjaldþrots
Kaupfélags Svalbarðseyrar:
Málsaðilar nálguðust
niðurstöðu
Engin niðurstaða fékkst á
fundi fjögurra ábyrgðarmanna
í gjaldþrotamáli Kaupfélags
Svalbarðseyrar og fulltrúa
íslandsbanka hf. á Akureyri sl.
föstudag, en málsaðilar nálg-
uðust niðurstöðu samkvæmt
heimildum Dags.
Til fundarins mættu f.h.
íslandsbanka þeir Ragnar Önund-
arson, framkvæmdastjóri íslands-
Háskólarnir í Reykja-
vík og á Akureyri:
Viðræðurumsam-
vínnu skólanna
Að frumkvæði Sveinbjarnar
Björnssonar, rektors Háskóla
íslands, verða í næstu viku
tcknar upp viðræður um
mögulegt samstarf Háskóla
íslands og Háskólans á Akur-
eyri. Nefnd frá HÍ kemur til
Akureyrar næstkomandi mánu-
dag til að ræða þetta mál við
háskólamenn nyrðra og segir
Haraldur Bessason, rektor
Háskólans á Akureyri, að rætt
verði um samvinnu skólanna á
sem víðustum grunni í framtíð-
inni.
Haraldur Bessason segir að
nefndin frá HÍ komi til með að
funda með háskólanefndinni á
Akureyri á mánudag. „Við bind-
um við þetta miklar vonir og ekki
er að efa að framhald verður á
þessum viðræðum í framtíðinni.
Við ætlum á þessum fundi að
leggja línurnar í byrjun og sjá
hverju við fáum áorkað,“ sagði
Haraldur.
Rektor segir að samstarf skól-
anna geti t.d. þýtt samstarf þeirra
deilda skólanna sem eru sam-
bærilegar eða tengdar sömu
sviðum. Ennfremur megi hugsa
sér að út úr þessu komi skipti á
kennurum milli skólanna, sem sé
mjög athyglisvert. Þá megi hugsa
sér að í þessum viðræðum verði
rætt um meiri samvinnu skólanna
hvað varðar samskipti við erlend-
ar menntastofnanir. JÓH
banka, Oddur Ólason, lögfræð-
ingur bankans í Reykjavík og
Guðjón Steindórsson, útibús-
stjóri íslandsbanka á Akureyri.
Á fundinum voru lagðar fram
hugmyndir ábyrgðarmannanna,
Bjarna Hólmgrímssonar, Inga
Þórs Ingimarssonar, Jóns Laxdal
og Tryggva Stefánssonar um
greiðslu á hluta skulda þeirra við
bankann vegna ábyrgða sem á þá
hafa fallið í kjölfar gjaldþrots
Kaupfélags Svalbarðseyrar.
Bankinn setti fram hugmyndir á
móti, sem fólu í sér upphæðir og
greiðslumáta.
Ákveðið var að málsaðilar
myndu hittast fljótlega á ný og er
að því stefnt að niðurstaða fáist
sem allra fyrst. óþh
Lcikmenn handknattleiksliðs Þórs fögnuðu innilega eftir jafntefli við IR í 2. deild á föstudagskvöld. Með jafntcfli
var deildarmeistaratitill liðsins nánast í höfn og hann var innsiglaður með jafntefli Völsungs og IR á laugardag. Sjá
umfjöllun á íþróttasíðum. Mynd: Golli
Landbúnaðarráðherra á ráðstefnu Húsgulls:
Útstöð frá Landgræðsluimi til Húsavíkur
- sérfræðingur í gróðurverndar- og landgræðslumálum verður ráðinn
Halldór Blöndal, landbúnað-
arráðherra, sagði í ræðu sinni á
ráðstefnu Húsgulls á Húsavík
um helgina, að tímabært væri
að til Húsavíkur yrði ráðinn
sérfræðingur í gróðurverndar-
og landgræðslumálum. Sveinn
Runólfsson, landgræðslustjóri,
sagði í sinni ræðu, að umrædd-
ur sérfræðingur mundi vinna í
nánu samstarfi við bændur, en
ekki yrði um að ræða að stofna
neitt skrifstofubákn á
staðnum.
Landbúnaðarráðherra sagði að
reynslan af Landgræðslu ríkisins
í Gunnarsholti sýndi að slík starf-
semi ætti að vera nálægt vett-
vangi og undir stjórn manna, sem
hefðu sérþekkingu og reynslu af
viðfangsefninu. Hann sagði m.a.:
„Pingeyjarsýslur eru annar endi
þess viðkvæma gjóskusvæðis sem
teygir sig suður um land og vestur
á Reykjanes.
Mikilvægustu verkefnin norð-
an Fjórðungsöldu eru stöðvun
gróður- og jarðvegseyðingar.
Hólsfjöll eru stærsta samfellda
svæðið, sem tekið hefur verið til
friðunar. Þar liggur fyrir áætlun
um heftingu sandfoks og verður
unnið markvisst að þeim aðgerð-
um þegar á sumri komanda.
Afréttarlönd Bárðardals og
Mývatnssvæðið eru viðkvæm.
Fyrir liggur að stöðva ágang
sands á gróið land og náttúru-
perlur eins og Dimmuborgir,
minnugir þess að sum svæði eru
svo viðkvæm að öll beit er ofbeit.
Því reynir á samstarf og sam-
vinnu við bændur um verndarað-
gerðir og verður hvort tveggja að
nást fram að byggðin treystist á
þessu jaðarsvæði og gróðureyð-
ing stöðvist.“
Ráðherra sagði að forsenda
uppgræðslunnar væri að jaðar-
byggðin héldi velli. Þau verkefni
sem fyrir dyrum stæðu kölluðu á
samræmdar aðgerðir og þekk-
ingu. Nú þegar kraftarnir beind-
ust í vaxandi mæli að norðurhluta
gjóskusvæðisins ætti að draga
Skíðalandsmótið:
Alpagreinamar í Hlíðarfjalli
Forystumenn skíðafélaganna á
Dalvík og í Ólafsfírði funduðu
um helgina með koliegum sín-
um hjá Skíðaráði Akureyrar
um þá stöðu sem Skíðalands-
mótið er komið í vegna snjó-
Spurningakeppni framhaldsskólanna:
Undanúrslitin tekin upp í VMA
- þættirnir verða sendir út nk. fimmtudags- og fóstudagskvöld
Báðir undanúrslitaþættirnir í
spurningakeppni framhalds-
skólanna verða teknir upp á sal
Verkmenntaskólans á Akur-
eyri. Sá fyrri verður tekinn upp
síðdegis nk. fímmtudag og
sendur út þá um kvöldið og sá
síðari nk. föstudag og sendur
út á föstudagskvöld. A fimmtu-
dag mætast lið Menntaskólans
við Hamrahlíð og Verkinennta-
skólans á Akureyri og á föstu-
dag lið Menntaskólans á Akur-
eyri og Fjölbrautaskólans í
Breiðholti.
Spennan í spurningakeppninni
er nú að ná hámarki og víst er að
Norðlendingar fylgjast vel með
gengi framhaldsskólanna á Akur-
eyri. Þeir bjartsýnustu vona að
VMA og MÁ mætist í úrslitum 3.
apríl nk., en það verður allt að
koma í ljós. Víst er að lið MH og
FB eru bæði geysilega sterk og
norðlensku ungmennin þurfa að
taka á öllu sínu til þess að leggja
þau að velli.
Andrés Indriðason hjá Sjón-
varpinu segir mikið fyrirtæki að
taka upp þættina úti á landi, en
sjónvarpsmenn séu komnir í
góða æfingu, enda hafi keppni
nemenda í Fjölbrautaskóla
Norðurlands vestra og Mennta-
skóians á Akureyri verið send
út frá Sauðárkróki. Sviðsmyndin
kemur norður með bíl á morgun
og á fimmtudagsmorgun er von á
tækniliði til þess að gera allt klárt
fyrir átök kvöldsins. F>á er von á
öflugu klappliði MH og FB norð-
ur yfir heiðar. óþh
leysis í Böggvisstaðafjalli ofan
við Dalvík. Þar var ákveðið að
leggja til við Skíðasamband
íslands að mótið verði haldið á
Akureyri og í Óiafsfirði. Þar
með er Dalvík endanlega út úr
myndinni.
Björn Þór Ólafsson formaður
Skíðafélags Ólafsfjarðar sagði að
þessi tillaga hefði verið send
Skíðasambandinu á sunnudag.
„Samkvæmt henni á keppni í
alpagreinum að fara fram í Hlíð-
arfjalli en norrænu greinarnar,
ganga og stökk, verða í Ólafsfirði
eins og til stóð. Það skilyrði var
sett fyrir þessu að framkvæmd
mótsins yrði eftir sem áður í
höndum okkar og Dalvíkinga en
að sjáifsögðu með aðstoð Akur-
eyringa, einkum tæknilega,“
sagði Björn Þór.
Hann bætti því við að þessari
tillögu hefði verið vel tekið fyrir
sunnan og ætti hann ekki von á
öðru en að hún yrði samþykkt.
Stjórn Skíðasambands Islands
fjallaði um tillöguna á fundi sín-
um í gærkvöldi og lá niðurstaða
hans ekki fyrir þegar blaðið fór í
prentun. -ÞH
lærdóm af reynslunni frá Gunn-
arsholti og fara eins að, með
stofnunútstöðvaráHúsavík. IM
Höldur sf.:
Leiguflug milli
Akureyrar og
Reykjavíkur
Höldur sf. á Akureyri ætlar að
hefja Ieiguflug milli Akureyrar
og Reykjavíkur á föstudag.
Ætlunin er að fíjúga tvær ferð-
ir á dag, virka daga, ef eftir-
spurn verður eftir, þ.e. frá
Akureyri kl. 8 að morgni,
norður á ný kl. 11, suður aftur
kl. 12.30 og loks norður að
kvöldi kl. 18.30. Forsvarsmenn
Hölds segja að með þessu
höfði fyrirtækið til viðskipta-
vina sinna norðan heiða.
Að sögn Skúla Ágústssonar
hjá Höldi sf. er kveikjan að þessu
sú að Flugleiðir buðu nýverið
viðskiptavinum sínum af lands-
byggðinni, sem greiddu fullt far-
gjald fyrir flug til Reykjavíkur,
að greiða 1000 kr. aukalega fyrir
bílaleigubíl í höfuðborginni í sól-
arhring með innifalinni 100 km
keyrslu, virðisaukaskatti og
tryggingu. Bílaleiga Höldurs er
sem kunnugt er einnig starfrækt í
Reykjavík og segir Skúli að með
þessari þjónustu við fjölmarga
viðskiptavini sína mæti fyrirtækið
þessari samkeppni.
Samkvæmt upplýsingum Skúla
mun farmiðinn í leigufluginu
verða seldur á kr. 11.900 með
virðisaukaskatti og tryggingu.
Höldur ætlar að nota til flugsins
12 manna Beechcraft 200 skrúfu-
þotu sína. JÓH