Dagur - 24.03.1992, Qupperneq 4
4 - DAGUR - Þriðjudagur 24. mars 1992
ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF.
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31,
PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SÍMI: 96-24222
ÁSKRIFT KR. 1200 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ KR. 110
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMNETRA 765 KR.
RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.)
FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
BLAÐAMENN:
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 96-41585),
JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, JÓN HAUKUR BRYNJÓLFSSON (íþróttir),
ÓLIG. JÓHANNSSON, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON,
SKÚLI BJÖRN GUNNARSSON (Sauöárkróki vs. 95-35960, fax 95-36130),
STEFÁN SÆMUNDSSON, ÞÓRÐUR INGIMARSSON
LJÓSMYNDARI: KJARTAN ÞORBJÖRNSSON
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON, ÞRÖSTUR HARALDSSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON
DREIFINGARSTJÓRI:
HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL
PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF.
SI'MFAX: 96-27639
Landsbyggðarverslun
á krossgötum
Vandi atvinnulífsins á landsbyggðinni hefur verið í sviðs-
ljósinu á undanförnum misserum. Mikill samdráttur hef-
ur átt sér stað í framleiðsluatvinnugreinunum. Þurft hef-
ur að minnka framleiðslu landbúnaðarins og miða hann
við raunverulegar þarfir hins innlenda markaðar. Sam-
dráttur hefur orðið í sjávarútvegi vegna minnkandi fiski-
stofna og skerðingar aflakvóta af þeim sökum. Iðnaður
hefur einnig átt erfitt uppdráttar. Ýmis þjónustuiðnaður
við landbúnað og sjávarútveg hefur minnkað í eðlilegu
hlutfalh við samdrátt í þeim greinum og íslendingar hafa
ekki verið samkeppnisfærir um skipasmíðar um nokkurt
skeið vegna niðurgreiðslna og undirboða á þeim vett-
vangi á meðal nágrannaþjóða okkar.
Samdrátturinn í framleiðslu- og iðnaðargreinum hefur
einnig leitt til erfiðleika í þjónustustarfseminni og nú er
svo komið að verslun á sér erfitt uppdráttar í flestum
landshlutum utan höfuðborgarsvæðisins. Auk þess sem
almennur samdráttur í atvinnustarfsemi bitnar harka-
laga á versluninni hafa bættar og greiðari samgöngur
orðið til þess að fólk leitar um lengri veg í verslunarerind-
um. Þannig fá stærri verslunarstaðirnir og þá einkum
höfuðborgarsvæðið sífellt aukinn hluta af viðskiptum
smásöluverslunarinnar til sín.
Nýlega var haldin ráðstefna á Akureyri um verslunar-
mál á landsbyggðinni. Lítillar bjartsýni gætti þar í ræðum
manna. Úlfar Ágústsson, kaupmaður frá ísafirði, sagði
meðal annars að fjöldi verslana á landsbyggðinni væri
kominn á vonarvöl og kaupmanna biði ekkert annað en
gjaldþrot. Hann sagði einnig að tryggja verði að allir
landsmenn eigi aðgang að dagvöruverslun og búa þann-
ig að versluninni að hún geti veitt þá grundvallarþjón-
ustu sem henni sé ætlað að gera. Úlfar lauk máli sínu með
því að segja að ekki sé unnt að halda áfram á sömu braut.
Atli Freyr Guðmundsson, skrifstofustjóri í viðskiptaráðu-
neytinu, ræddi einnig um málefni verslunarinnar á ráð-
stefnunni. Hann sagði meðal annars að dagvöruverslunin
á landsbyggðinni standi á tímamótum en benti á að hún
geti ekki staðið í stað. Verslunin verði að treysta á sjálfa
sig og beita faglegum og markvissum vinnubrögðum við
að leysa vandamál sín og marka stefnu til frambúðar.
Vandi verslunarinnar á landsbyggðinni er verulegur
um þessar mundir og ekki séð fyrir hvert muni stefna.
Takist að snúa framleiðslu þjóðarinnar og þar með efna-
hagskerfi hennar frá undanhaldi og blása til nýrrar sókn-
ar mun verslunin eignast sín tækifæri eins og aðrar
atvinnugreinar. Ýmsar breytingar verða þó án efa til
frambúðar og má þar nefna áhrif greiðari samgangna. Á
síðari árum hafa svonefndir stórmarkaðir tekið dagvöru-
verslunina að sér í auknum mæh. Þeirri þróun hefur fylgt
grimmileg samkeppni og margvíslegir vaxtarverkir eins
og dæmi frá höfuðborgarsvæðinu sýna og sanna. Hvort
sú þróun er á enda runnin verður látið ósagt um að sinni
en bent á að landsbyggðarfólk verður að standa vörð um
að nauðsynlegur verslunarrekstur geti farið fram í heima-
byggðum þess. íbúar hinna dreifðu byggða verða að
stuðla að markvissri uppbyggingu verslunar með því að
notfæra sér þá þjónustu sem hún býður. Með því einu
móti verður unnt að byggja landsbyggðarverslunina upp
að nýju og reka hana í takt við breyttar aðstæður og tíma.
ÞI
Takk fyrir innleggið Kristján!
Kristján Kristjánsson blaðamað-
ur skrifaði grein i Dag 14. mars
sl. um vinnutíma kennara eða
réttara sagt um frídaga þeirra.
Auðvitað urðum við kennarar
sárir og margir sögðu að þetta
væri ekki svaravert. Þessu er ég
ósammála. Svipuð grein birtist í
Morgunblaðinu fyrir skömmu
eftir fyrrverandi kennara og
núverandi stjórnarráðsstarfs-
mann og báðum er tíðrætt um
þann vinnutíma sem kennarar
nýta í annað en beina kennslu. í
stuttu máli leggur Kristján til að
kennarar sinni undirbúningi yfir
jólasteikinni ef mér leyfist að
vera örlítið ómálefnalegur.
Þörf umræða
Þessi umræða kemur í kjölfar
þess að niðurskurðakutanum er
nú beitt á allt ríkiskerfið og hefur
mikil áhrif á öll umsvif hins opin-
bera. Skólastarfið er ekki heilög
kýr og umræða um það á að vera
virk og þátttaka foreldra meiri.
Ég er einn af þeim sem vil hvetja
foreldra til að skipta sér meira af
skólastarfinu eins og Kristján er
að gera enda hlýtur hann að
verða fulltrúi í foreldraráði síns
skóla ef hann er það ekki nú
þegar. Það sem skiptir máli er að
upplýsingar um skólastarfið
þurfa að vera fyrir hendi og sam-
starf skóla og foreldra virkt.
Formaður og varaformaður
Kennarasambandsins skrifuðu
fyrir nokkru ágæta grein um
vinnutíma kennara. Þar var
vinnutíminn hlutaður niður
nákvæmlega í klukkustundir og
mínútur. Greinin var góð en bara
fyrir kennara. Ég held að fáir
aðrir en kennarar hafi lesið eða
; skilið útskýringarnar enda byggð-
ar á viðkvæmu samkomulagi við
ríkið til þess að koma fyrir þeim
40 stundum sem kennarar eiga að
skila á viku. Til þess að kóróna
allt þá er þess að geta að kennar-
ar skila um 5 stundum meir en
þessu nemur á viku þar sem ríkið
óskar eftir því að kennarar vinni
af sér kennslustundir í júní og
ágúst.
Vinnutími kennara
Þó ég ætli mér ekki hér að
skilgreina og útskýra vinnutíma
kennara þá er það ljóst að kenn-
arinn þarf að sinna meiru en
beinni kennslu. Einnig hefur sá
þáttur sem heitir samskipti við
heimili aukist síðari árin. Kenn-
arinn er farinn að kalla foreldr-
ana meir til ábyrgðar við náms-
og uppeldishlutverkið. Foreldr-
um er jafnvel boðið að sitja
kennslustund eigi nemandinn eða
bekkurinn við agavandamál að
etja. Hvað með það þá telur
Kristján að málið snúist um það
að nýta megi skólaárið betur.
Stjórnmálamaður sagði einu
sinni í ræðu og væntanlega í fullri
alvöru að nýta mætti betur skóla-
húsnæðið á ári. Þetta væri gert í
fiskvinnslu og sláturhúsum!
Hún gæti misskilist auglýsingin
um að sumarslátrunin hæfist á
morgun í Gagnfræðaskóla Akur-
eyrar. Án gamans þá held ég að
kennarar séu eða eigi að vera til-
búnir til að ræða um breyttan
vinnutíma skólaársins. Ég hef
ákveðnar tillögur í þeim efnum
sem ég geymi mér að skýra frá en
undan þessari umræðu geta
kennarar og forysta þeirra ekki
skotið sér.
Boðiö til fundar
Þar sem mér leiðast langar blaða-
greinar og sérlega um svona sér-
hæft efni eins og skólamál þá
held ég að það sé lag að bjóða
Kristjáni og fleirum á fund þar
sem skipst verði á skoðunum um
skólamál og vinnutíma kennara.
Þar gætu verið fulltrúar kennara,
foreldra og skólayfirvalda. Ég
held nefnilega að slíkur fundur
gæti eytt mörgum misskilningn-
um og eflt skólastarfið. Hvað
segirðu við þessu Kristján?
Gísli Baldvinsson.
Höfundur er kennari við Gagnfræða-
skóla Akureyrar og forstöðumaður
félagsmiðstöðvar við Síðuskóla.
Johannes Halldorsson:
Lygar, dylgjur og óhróðursstarfsemi
Vilhjálms Inga sæmir ekki starfsemi
félagi neytenda né formanni þess
- athugasemd í tilefni af fréttum og skrifum formanns Neytendafélags
Akureyrar og nágrennis um innheimtuaðferðir áskrifta Þjóðlífs
í tilefni af fréttum og skrifum Vil-
hjálms Inga formanns Neytenda-
félags Akureyrar og nágrennis
þar sem fyrrnefndur maður við-
hefur meiriháttar óábyrgar og
stóryrtar yfirlýsingar um málefni
er varða innheimtuaðgerðir
vegna Ingibjargar Einarsdóttur
áskrifanda Þjóðlífs vilja Inn-
heimtur og ráðgjöf hf. taka eftir-
farandi fram:
Ingibjörg Einarsdóttir hafði aldrei
samband við Innheimtur og ráð-
gjöf hf. og lagði aldrei inn kvittun
fyrir greiddum áskriftargjöldum,
fyrr en eftir að áritun fór fram hjá
Bæjarfógetanum á Akureyri.
Málið var því tekið til áritunar í
góðri trú um að umrædd kona
hefði ekki greitt áskriftargjöld
sín. Það má því teljast stórfurðu-
legur sá einhliða fréttaflutningur
að halda því fram að umrædd
kona hafi verið „plötuð til að
mæta ekki í Bæjarþing Akureyr-
ar“ eða ennfremur „að óheiðar-
legir aðilar skrumskæli lögin og
noti fógetavaldið sem viljalaust
verkfæri til að féfletta grandvar-
an einstakling til að mæta ekki í
dómþinginu“.
Fyrirtækið vill taka fram að
fjölmörg tilfelli hafa verið látin
niður falla vegna þess að fólk hef-
ur lagt fram greiðslukvittanir fyr-
ir greiddum áskriftargjöldum og
jafnvel boðist til að hjálpa fólki
til að hafa upp á slíkum gögnum.
Innheimtur og ráðgjöf hf.
fagnar allri opinberri umræðu
vegna áksriftarkrafna Þjóðlífs,
en vill jafnframt benda á að með
þeim lygum, dylgjum og óhróð-
ursstarfsemi sem Vilhjálmur Ingi
viðhefur gagnvart Innheimtum
og ráðgjöf hf. og Bæjarfógeta-
embættinu á Akureyri sæmir ekki
starfsemi félagi neytenda né for-
manni þess. í tilfellum sem þess-
um ættu samtök neytenda að
temja sér vinnubrögð siðaðra
manna og fá upplýsingar frá öll-
um aðilum er málið snertir.
Innheimtur og ráðgjöf lýsa sig
saklausa af þeim endemis róg-
burði er á sér stað á hendur fyrir-
tækinu og vísar því til föðurhús-
anna.
Innheimtuaðgerðir vegna áskrift-
ar Þjóðlífs hafa ekki verið harð-
ari heldur en t.d. innheimtur
RÚV en þó eru þær áskriftir lög-
boðnar. Séu áskriftir þessar
„upplognar“ eins og haldið er
fram ætti að leita skýringa hjá
-forsvarsmönnum Þjóðlífs er
seldu umræddar kröfur. Inn-
heimtur og ráðgjöf hf. vill t.d.
benda á í þessu sambandi að í
sumum tilfella hefur Þjóðlíf
beinlínis dregið að sér fé. Áuður
Sveinsdóttir er seld sem áskrif-
andi um mánaðamótin febrúar-
mars 1991 sem áskrifandi
Þjóðlífs. Þann 5. apríl 1991
greiðir hún Þjóðlíf, sem þegar
hafði selt kröfuna, en Þjóðlíf tek-
ur samt við peningum, og sendir
bréf um hæl þar sem sagt er að
viðkomandi hafi komist inn á
skuldalista fyrir misskilning.
Þessa eru mörg dæmi, og finnst
Innheimtum og ráðgjöf því ráðist
á garðinn þar sem hann er
lægstur. Innheimtur og ráðgjöf
hafa aldrei gefið út áskriftar-
reikninga á fólk, og aldrei stefnt
fólki sem hefir sýnt greiðslukvitt-
anir áður en áskorunarstefna hef-
ir verið útsend.
Höfundur er framkvæmdastjóri fyrir-
tækisins Innheimtur og ráðgjöf hf.
Akureyri:
Almeimurfræðslu-
fundur um fugla
Áhugamenn um náttúrufræði
boða til fundar á miðvikudags-
kvöld, 25. mars, kl. 20.30 á Hótel
KEA á Akureyri. Á fundinum
mun Stefán Þorláksson, mennta-
skólakennari, fræða í máli og
myndum um fugla en hann hefur
lengi stundað fuglaskoðun sem
áhugamál. Nefnir hann erindi sitt
„Fuglar á íslandi". Mun hann
meðal annars fjalla um fugla
almennt, atferli fugla, einstakar
tegundir eða hópa fugla auk
breytinga á fjölda fuglastofna.
Fundurinn er öllum opinn en
þetta er þriðji fræðslufundurinn í
vetur.