Dagur - 24.03.1992, Page 16

Dagur - 24.03.1992, Page 16
Kodak ^ Express Gæóaframköllun ★ Tryggðu filmunni þinni íbesta ^PediGmyndir Hafnarstræti 98, sími 23520 og Hofsbót 4, sími 23324. ...................................................................................................... Þórshaftiarbúi fékk 8 milljónir í Lottóinu Mikil spenna ríkti um Lottóið um helgina því hæsti vinning- urinn hafði ekki gengið út í tvær vikur og var því þrefald- ur. Alls reyndust tæplega sextán milljónir vera til skipt- anna í fyrsta vinning og niðurstaðan varð sú að tveir höfðu allar fimm tölurnar réttar og skiptu vinningnum á milli sín. Pessir tveir voru hvor á sínu landshorni, annar á Selfossi en hinn austur á Pórshöfn, og koma kr. 7.957.019 í hlut hvors um sig. í gær höfðu báðir gefið sig fram við íslenska getspá en sá norðlenski bað um að nafni sínu yrði haldið leyndu. Átta manns reyndust vera með fjórar tölur réttar og bón- ustöluna að auki og kom 181.041 króna í hlut hvers þeirra. 307 voru með fjórar töl- ur réttar og fengu 8.138 kr. og 10.746 höfðu þrjár tölur réttar og fengu fyrir vikið 543 krónur. -ÞH Rimasíða 15 á Akureyri: Bygginganefiid synjaöi erindi um breytingar - skipulagsstjóri vill að bygginganefnd áminni hönnuð teikninganna Bygginganefnd Akureyrar hef- ur synjað erindi Kristjáns Gmmarssonar um breytingar á Rimasíðu 15 samkvæmt teikn- ingum Birgis Ágústssonar. Á fundi bygginganefndar 18. mars sl. óskaði skipulagsstjóri að eftirfarandi yrði bókað: „Ég tel að bygginganefnd beri að veita hönnuði teikninga, sem telst hafa löggildingu til að leggja fram aðaluppdrætti, áminningu sbr. gr. 9.1.4. í bygg- ingareglugerð og gr. 32 í bygg- ingalögum, þar sem hönnuður hefur ekki sinnt þeirri ábyrgð er honum ber skv. grein 3.5.4. í byggingareglugerð og lagt fram gögn sem ekki uppfylla ákvæði laga, reglugerða og skipulags.“ í nefndri grein 9.1.4 í bygg- ingareglugerð segir m.a. orðrétt: „Ef hönnuður leggur fyrir byggingarnefnd uppdrátt, þar sem brotið er í bága við ákvæði laga og reglugerða, eða brýtur slíkt ákvæði á annan hátt, getur byggingarnefnd veitt honum áminningu. Hafi bygg- ingamefnd veitt hönnuði áminn- ingu, skal hún tilkynna félags- málaráðherra það.“ Og í grein 3.5.4. í byggingareglugerð segir að hönnuður aðaluppdrátta skuli undirrita þá eigin hendi og „ber hann fulla ábyrgð á að þeir séu í samræmi við skipulag, lög og reglugerðir." Eins og Dagur greindi frá fyrr í þessum mánuði lögðu bygg- ingafulltrúinn á Akureyri og bæjarlögmaður Akureyrarbæj- ar fyrir eigendur Rimasíðu 15 að stöðva allar framkvæmdir við breytingar á húsinu og koma því f fyrra horf fyrir 1. apríl. Með samþykkt bygginganefnd- ar 18. mars sl. stendur þessi krafa byggingafulltrúa og bæjarlögmanns óhögguð. óþh Sáttir á hátíðarstundu. Pétur Pétursson heilsugæslulæknir á Akureyri var heiðursgestur á árshátíð vaxtaræktar- manna í bænum á laugardag. Vaxtaræktarmenn tóku vel á móti Pétri sem hér er með tveimur þeirra, þeim Haraldi Haraldssyni og Magnúsi Má Magnússyni, en þeir tróðu upp á hátíðinni. Mynd: Goiií Máli vaxtarræktarmanna gegn Pétri Péturssyni vísað aftur til Bæjarþings Akureyrar til efnislegrar meðferðar: Ólafur stefnir Pétri fyrir meiðyrði í sinn garð - Pétur Pétursson heiðursgestur á árshátíð vaxtarræktarmanna á Akureyri um helgina Hæstiréttur kvað á föstudag upp þann úrskurð að Bæjar- þing Akureyrar skuli taka til efnislegrar meðferðar stefnu Ólafs Sigurgeirssonar lög- manns fyrir hönd 35 vaxtar- ræktarmanna á hendur Pétri Péturssyni heilsugæslulækni á Akureyri fyrir meiðyrði. Bæjarþingið hafði fallist á það sjónarmið lögmanns Péturs að kröfugerð Olafs væri ekki nægilega vel reifuð og því bæri að vísa málinu frá dómi. Ásgeir Pétur Ásgeirsson full- trúi fógeta á Akureyri sem vísaði málinu frá sagði að við þessu væri ekkert að segja. „Betur sjá augu en auga og þetta kom mér svo sem ekki á óvart. Ég átti von á að fá þetta mál aftur til meðferðar, annað hvort frá Hæstarétti eða þá í formi nýrrar stefnu. Málið mun nú ganga sinn gang,“ sagði Ásgeir Pétur sem ekki vildi spá um það hvenær málið yrði dóm- tekið að nýju. Ólafur Sigurgeirsson lögmaður kvaðst fagna því að Hæstiréttur hefði „aðra skoðun á lögmanns- hæfileikum mínum en Pétur Pét- ursson. Málið mun nú fá efnis- lega meðferð og er því komið í eðlilegan farveg,“ sagði Ólafur. Hann bætti því við að nú væri hann að semja nýja stefnu á hendur Pétri, „að þessu sinni fyr- ir meiðyrði um mig sjálfan sem hann lét falla ma. í Degi en einnig í öðrum fjölmiðlum. Hann virðist telja að það falli undir læknisstörf að meiðyrða,“ sagði Ólafur. Söltunarfélag Dalvíkur tekur eignir þrotabús Árvers á leigu: Passar ágætiega inn í okkar rekstur - segir Finnbogi Baldvinsson, framkvæmdastjóri Söltunarfélags Dalvíkur Pétur Pétursson vildi fátt um málið segja annað en að það gengi sinn gang og enn væri ekki séð fyrir endann á því. Hann var reyndar dæmdur til að greiða Ólafi 30 þúsund krónur í kæru- málskostnað fyrir Hæstarétti. Söltunarfélag Dalvíkur hf. hef- ur tekið á leigu rækjuvinnslu þrotabús Árvers hf. á Árskógs- strönd. Leigusamningur gildir frá 20. mars sl. til 15. septem- ber nk. Stefnt er að því að vinnsla hefjist strax og búið verður að manna verksmiðj- una. Árver hf. var úrskurðað gjald- þrota í desember sl. og síðan hef- ur verksmiðjan staðið auð og yfirgefin. Eignir þrotabúsins voru auglýstar til sölu og í kjölfarið var gerður leigusamningur við Söltunarfélag Dalvíkur hf., sem gildir til 15. september nk. Frá samningnum var gengið sl. föstu- dag. Finnbogi Baldvinsson, fram- kvæmdastjóri Söltunarfélags Dalvíkur, segist þegar vera far- inn að leita fyrir sér með starfsfólk, en gert sé ráð fyrir að þurfi að ráða um 20 manns til starfa. Finnbogi segist vænta þess að fá til starfa einhverja af þeim starfsmönnum, sem áður störf- uðu hjá Árveri, en ljóst sé að það geti orðið erfitt sökum þess að sumir þeirra séu búnir að ráða sig til starfa annars staðar. Því megi gera ráð fyrir að þurfi að leita út fyrir svæðið eftir starfsfólki. En af hverju tekur Söltunar- félagið Árver á leigu? „Við leigj- um verksmiðjuna einungis til 15. september, þ.e.a.s. á meðan aðal rækjuvertíðin stendur yfir. Við gerum ráð fyrir að fyrst um sinn vinnum við einungis dagvinnuna. Petta passar ágætlega inn í okkar rekstur og við höfum áhuga á að nýta allt það hráefni sem er til staðar hér á svæðinu. Pað er helsta ástæðan fyrir því að við tökum verksmiðjuna á leigu,“ sagði Finnbogi. Hann sagði að rekstur verk- Enn ein vélarbilunin varð í frystitogaranum Sólbak EA 307, togara Útgerðarfélags Akureyringa, um helgina. Togarinn var að veiðum út af Garðsskaga og tók Sléttbakur EA hann í tog til Reykjavíkur. í þetta skiptið gaf sig tímahjól í aðalvélinni og mun viðgerð taka um eina viku. í síðasta túr skips- smiðju Árvers yrði undir sama hatti og rekstur Söltunarfélags- ins, þ.m.t. verkstjórn og yfir- stjórn. óþh ins urðu ítrekaðar bilanir í vél skipsins og miklar' frátafir frá veiðum. Gunnar Larsen, hjá Útgerðarfélagi Akureyringa, seg- ir að bilunin nú sé ótengd fyrri bilunum. Sólbakur liggur nú í Reykjavíkurhöfn og mun viðgerð fara þar fram en áhöfn er komin til Akureyrar, ef frá eru taldir vélstjórar skipsins. JÓH Pess má geta að um helgina var haldin árshátíð vaxtarræktar- manna á Akureyri og þar var heiðursgestur enginn annar en Pétur Pétursson heilsugæslulækn- ir. „Pað fór ákaflega vel á með okkur, mér var vel tekið og við sættumst heilum sáttum. Pað kom mér ekki á óvart því ég hef fengið jákvæð viðbrögð frá öllum nema Ólafi Sigurgeirssyni sem hefur fengið nöfn 35 manna lán- uð til að geta stundað þá þokka- iðju að hindra embættismann í íslenska heilbrigðiskerfinu í að stunda sín skyldustörf. Pað ríkti góður andi á hátíðinni og ég bað þá vaxtarræktarmenn afsökunar sem orðið hefðu fyrir óþægindum að ósekju vegna ummæla minna. Þetta var hið ánægjulegasta kvöld,“ sagði Pétur Pétursson. -ÞH Útgerðarfélag Akureyringa: Enn bflar vél Sólbaks

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.