Dagur - 30.04.1992, Blaðsíða 1
75. árgangur
Akureyri, fímmtudagur 30. aprfl 1992
81. tölublað
Venjulegir og
demantsskornir
trúlofunarhringar
Afgreiddir samdægurs
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
Maður sá er rannsóknarlög-
reglan á Akureyri hefur haft til
yfirheyrslu vegna gruns um
þjófnað á sjö skotvopnum úr
vopnasafni Alberts Söiva
Karlssonar á Akureyri játaði
verknaðinn síðla dags í gær.
Sem komið hefur fram í Degi
var brotist inn í íbúð við Eiðs-
vallagötu sl. mánudag og sjö
skotvopnum stolið úr byssusafni
húsráðanda. Um var að ræða
eina haglabyssu, þrjá riffla og
þrjár skammbyssur. Grunur féll
strax á mann búsettan á Akureyri
sem tekinn var til yfirheyrslu.
Yfirheyrslur leiddu til þess að
hinn grunaði játaði og vísaði á
skotvopnin. Byssuþjófurinn var
látinn laus og mál hans fer nú
rétta boðleið í dómskerfinu. ój
Frá fundi heilbrigðisráðherra með deildarhjúkrunarforstjórum og hjúkrunarframkvæmdastjórum að Hótel KEA,
heilbrigðisráðherra Sighvatur Björgvinsson í ræðustól. Mynd: Goiii
Fundur hjúkrunarforstjóra um málefni aldraðra:
Verðum að leggja aukna áherslu á þjón-
ustu við eldra fólk sem býr í heimahúsum
- sagði Sighvatur Björgvinsson, heilbrigðisráðherra
Meöalaldur Islendinga er nú
lægstur Norðurlandabúa eða
aðeins um 31 ár. Meðalaldur-
inn fer hækkandi og sam-
Ársreikningar Sauðárkróksbæjar:
Skuld á hvern íbúa
lækkaði um 18%
Ársreikningar bæjarsjóðs og
bæjarfyrirtækja Sauðárkróks-
bæjar voru teknir til fyrri
umræðu í bæjarstjórn sl.
þriðjudag. Bæjarstjóri fylgdi
reikningunum úr hlaði og sagði
m.a. að ef Iitið væri á útkom-
una í heild kæmi Sauðárkrókur
ekki illa út í samanburði við
marga aðra staði, því fyrirtæki
bæjarins stæðu vel.
Heildarskatttekjur bæjarsjóðs
og bæjarfyrirtækja námu á síð-
asta ári 433 milljónum króna. Að
frádregnum rekstri málaflokka,
vöxtum af hreinu veltufé og
greiðslum vegna lána, voru skatt-
tekjur til ráðstöfunar tæpar 30
miiljónir. Fjárfesting bæjarins
var síðan samtals 56,5 milljónir
og greiðsluafkoma ársins var því
neikvæð upp á 26,6 milljónir
króna.
Tekin voru ný langtímalán á
síðasta ári upp á 26,5 milljónir
króna og þegar breytingar á
næsta árs afborgunum vegna
langtímaskulda og langtíma-
krafna og annað, hafa verið tekn-
ar inn í uppgjörið er hækkun á
hreinu veltufé 5,6 milljónir
króna. Veltufjárhlutfall í árslok
var 0,84.
Peningalegar eignir Sauðár-
króksbæjar og fyrirtækja, eru
samkvæmt ársreikningunum,
178,1 milljón króna og heildar-
skuldir nema 408,3 milljónum.
Peningaleg staða er því neikvæð
sem nemur 230,2 milljónum
króna. Samkvæmt þessu var
skuld, umfram peningalegar
eignir, á hvern íbúa Sauðárkróks
í árslok 1991, 89 þús. krónur, en
var í árslok 1990, krónur 108 þús.
Litlar umræður urðu um árs-
reikningana á bæjarstjórnarfund-
inum og var þeim vísað til seinni
umræðu og nefnda. SBG
kvæmd mannfjöldaspá verður
hann orðinn um 39 ár árið 2021
- eftir 30 ár. Eldra fólki mun
einnig fjölga hlutfallslega og
að þrjátíu árum liðnum mun
verða mjög ör fjölgun fólks 65
ára og eldra. Þetta kom meðal
annars fram í ræðu Sighvats
Björgvinssonar, heilbrigðis-
ráðherra á fundi deildarhjúkr-
unarforstjóra og hjúkrunar-
framkvæmdastjóra sem hald-
inn var á Akureyri í gær.
Sighvatur sagði að þessari
fjölgun myndi fylgja kostnaðar-
bylgja fyrir samfélagið, sem erfitt
yrði að mæta bæði vegna þess að
þá dreifðust byrðarnar á hlut-
fallslega færri herðar vinnandi
manna og einnig væri ljóst að
miðað við núverandi framþróun
yrði lífeyrissjóðakerfi lands-
manna orðið gjaldþrota á þessum
Sparisjóður Akureyrar og Arnarneshrepps:
13,3 milljóna króna
hagnaður í fyrra
Hagnaður af rekstri Sparisióðs
Akureyrar og Arnarneshrepps
á síðasta ári nam 13,3 milljón-
um króna en árið 1990 nam
hagnaðurinn 8,5 milljónum
króna. Eigið fé í árslok nam
84,6 milljónum króna, sem er
28,4% aukning frá fyrra ári en
eiginfjárhlutfall sjóðsins sam-
kvæmt lögum um sparisjóði er
42,1% en lágmarkið er 5%.
Heildarinnlán námu 242,1
milljón króna og höfðu aukist um
28,8% frá fyrra ári. Heildarútlán
námu 265 milljónum króna og
Ama Jakobína kjörin formaður STAK
Arna Jakobína Björnsdóttir
var kjörinn formaður Starfs-
mannafélags Akureyrarbæjar í
stað Jóhönnu Júlíusdóttur á
aðalfundi þess sl. þriðjudags-
kvöld.
Auk venjulegra aðalfundar-
starfa var miðlunartillaga ríkis-
sáttasemjara kynnt og mælti frá-
farandi formaður með að félagar
í STAK myndu greiða henni
atkvæði í atkvæðagreiðslu, sem
væntanlega verður 5. og 6. maí á
skrifstofu félagsins.
Aðrir í stjórn STAK til tveggja
ára voru kjörin Jón G. Knutsen,
Liv Gunnhildur Stefánsdóttir og
Hólmkell Hreinsson. í stjórn
sitja áfram í eitt ár þau Valdimar
Pétursson, Sigurlaug Anna Sig-
tryggsdóttir og Kristbjörg Rúna
Ólafsdóttir. óþh
iiöfðu aukist um 35,2% á milli
ára.
Sparisjóður Akureyrar og
Arnarneshrepps á samkvæmt árs-
reikningi eignarhlut í sjö fyrir-
tækjum og stofnunum samtals að
upphæð tæpar 5 milljónir króna.
Þetta eru Lánastofnun sparisjóð-
anna hf., Kreditkort hf., Eimskip
hf., Greiðslumiðlun hf., Kaup-
þing Norðurlands hf., Sparisjóð-
ur Hornafjarðar og nágrennis og
Reiknistofu bankanna.
Á aðalfundi Sparisjóðs Akur-
eyrar og Arnameshrepps sl.
mánudag var samþykkt að gefa
Sjávarútvegsdeild Háskólans á
Akureyri kr. 250 þúsund og
Fiskeldi Eyjafjarðar hf. sömu
upphæð.
Stjórn Sparisjóðsins var endur-
kjörin á aðalfundinum, en hana
skipa Oddur C. Thorarensen,
formaður, Júlíus Jónsson og Ingi-
mar Brynjólfsson. Kosnir af
Akureyrarbæ eru þeir Júlíus
Snorrason og Páll Jónsson. Spari-
sjóðsstjóri er Helga Steindórs-
dóttir. óþh
tíma. Pær greiðslur sem nú væru
lögbundnar í lífeyrissjóði næðu
einfaldlega ekki að standa undir
þeim skuldbindingum sem sjóð-
unum væri ætlað að inna af
hendi. Sighvatur sagði að þjóðin
hefði nú þrjá áratugi til þess að
búa sig undir þær breytingar sem
mikil fjölgun eldra fólks og líf-
eyrisþega hefði í för með sér.
Fundinum var ætlað að fjalla
um hvernig skipuleggja skuli
þjónustu við aldraða í framtíð-
inni og að hvað miklu leyti leggja
eigi áherslu á rekstur elli- og
hjúkrunarheimila annars vegar
og starfsemi heimahjúkrunar og
annarrar félagslegrar þjónustu
hinsvegar. Sighvatur Björgvins-
son sagði að á síðasta áratug -
síðan lög um málefni aldraðra
hefðu verið samþykkt á Alþingi -
hefði orðið mikil aukning á
hjúkrunarrými fyrir gamalt fólk
og aukningin hefði orðið mest á
landsbyggðinni. Sighvatur benti á
að fyrir 1980 hefði ekkert hjúkr-
unarrúm verið fyrir aldraða í
mörgum landshlutum og aðeins
78 rúm á Norðurlandi eystra en
þar væru þau nú yfir 200. Mikill
skortur væri hinsvegar á hjúkrun-
arrými á höfuðborgarsvæðinu þar
sem veruleg eftirspurn væri eftir
því.
Sighvatur sagði að við hefðum
einblínt um of á dýrustu lausnirn-
ar í málefnum aldraðra sem væri
steinsteypan. Við hefðum byggt
dýrt og vandað húsnæði en minna
hefði verið gert af því að spyrja
gamla fólkið sjálft hvernig bað
vildi haga sínum málum. Flestir
óskuðu eftir að dvelja á heimilum
sínum á meðan þeir gætu. Því
þyrfti að leggja aukna áherslu á
hjúkrun og aðra þjónustu við
gamalt fólk, sem byggi á heimil-
um sínum, á næstunni en hægja á
sér varðandi byggingu dvalar-
heimila. ÞI
Umferðarslys á Húsavík:
Ökumaður fluttur á
sjúkrahús á Akureyri
Mótorhjólaslys varð á Húsavík
um kl. 16,00 í gær. Ökumaður
mótorhjólsins var fluttur á
sjúkrahús staðarins og síðan
með sjúkrabifreið á Fjórð-
ungssjúkrahúsið á Akureyri.
Að sögn lögreglunnar á Húsa-
vík voru tildrög slyssins þau að
bifreið og mótorhjóli var ekið til
norðurs á Garðarsbraut. Á móts
við Esso skullu bíll og mótorhjól
saman er bifreiðinni var beygt
inn á bifreiðastæði til vesturs.
Ekki var búið að taka skýrslur af
vitnum en svo virðist sem mótor-
hjólamaðurinn hafi verið að taka
framúr. Ekki var vitað um líðan
þess slasaða er blaðið fór í
prentun. ój
Akureyri:
Byssuþjófur játar