Dagur - 05.05.1992, Qupperneq 14
14 - DAGUR - Þriðjudagur 5. maí 1992
Nauðungaruppboð
á eftirtöldum fasteignum fer
fram í skrifstofu embættisins
á neðangreindum tíma:
Karlsbraut 2, Dalvík, þingl. eigandi
Sigurður Kristmundsson, föstudag-
inn 8. maí 1992, kl. 15.00.
Uppboðsbeiðendur eru:
Innheimtumaður ríkissjóðs og
Gunnar Sólnes hrl.
Melasíða 5 k, Akureyri, þingl. eig-
andi Anna Þengilsdóttir, föstudag-
inn 8. maí 1992, kl. 14.00.
Uppboðsbeiðandi er:
Húsnæðisstofnun rlkisins.
Múlasíða 3 e, Akureyri, þingl. eig-
andi Gunnar B. Þórhallsson og
Halla Birgisdóttir, föstudaginn 8.
maí 1992, kl. 14.00.
Uppboðsbeiðandi er:
Bæjarsjóður Akureyrar.
Bæjarfógetinn á Akureyri
og Dalvík,
Sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu.
Nauðungaruppboð
annað og síðara,
á eftirtöldum fasteignum fer
fram í skrifstofu embættisins
á neðangreindum tíma:
Ásabyggð 6, Akureyri, þingl. eig-
andi Uppinn hf., föstudaginn 8. maí
1992, kl. 14.30.
Uppboðsbeiðendur eru:
Tryggingastofnun ríkisins, Gunnar
Sólnes hrl., Ólafur Birgir Árnason
hrl., Bæjarsjóður Akureyrar og
Húsnæðisstofnun ríkisins.
Bárugata 2, efri hæð, Dalvík, þingl.
eigandi Þorsteinn J. Haraldsson
o.fl., föstudaginn 8. maí 1992, kl.
14.15.
Uppboðsbeiðendur eru:
Innheimtumaður ríkissjóðs, Gunnar
Sólnes hrl. og Ólafur Birgir Árnason
hrl.
Björnshús, Hjalteyri, þingl. eigandi
Einar Helgason o.fl., föstudaginn 8.
maí 1992, kl. 14.00.
Uppboðsbeiðendur eru:
Húsnæðisstofnun ríkisins, inn-
heimtumaður rlkissjóðs og Gunnar
Sólnes hrl.
Brekkutröð 5, Eyjafjarðarsveit,
þingl. eigandi Vífill Valgeirsson,
föstudaginn 8. maí 1992, kl. 15.00.
Uppboðsbeiðendur eru:
Ólafur Birgir Árnason hrl., inn-
heimtumaður ríkissjóðs og Bene-
dikt Ólafsson hdl.
Fífilbrekka, Akureyri, þingl. eigandi
Guðrún Kristinsdóttir, föstudaginn
8. maí 1992, kl. 13.30.
Uppboðsbeiðendur eru:
Gunnar Sólnes hrl. og Benedikt
Ólafsson hdl.
Börn eiga aldrei aö leika sér á og viö ak-
brautir.
Ekki má mikið útaf bera til, að þau gleymi
sér og hlaupi á eftir bolta út á götu.
Þannig hafa mörg alvarleg slys orðið á
börnum.
Frostagata 6 c, Akureyri, þingl. eig-
andi Valsmíði sf., föstudaginn 8.
maf 1992, kl. 13.30.
Uppboðsbeiðandi er:
Gunnar Sólnes hrl.
Glerárgata 34, 1. hæð, Akureyri,
þingl. eigandi Haraldur Gunnars-
son, föstudaginn 8. maí 1992, kl.
-14.15.
Uppboðsbeiðandi er:
Björn Jónsson hdl.
Grundargerði 6f, Akureyri, þingl.
eigandi Ragnar E. Maríasson o.fl.,
föstudaginn 8. maí 1992, kl. 13.30.
Uppboðsbeiðendur eru:
Bæjarsjóður Akureyrar og Húsnæð-
isstofnun rfkisins.
Hlíð v/Akureyri, þingl. eigandi Ingi-
mar Víglundsson, föstudaginn 8.
maí 1992, kl. 13.45.
Uppboðsbeiðandi er:
Gunnar Sólnes hrl.
Hólabraut 19, neðri hæð, Akureyri,
þingl. eigandi Frímann Jóhanns-
son, föstudaginn 8. maí 1992, kl.
14.00.
Uppboðsbeiðandi er:
Ásgeir Þ. Árnason hdl.
Krabbastígur 1, norðurhluti o.fl.,
Akureyri, þingl. eigandi Kristín Hall-
dórsdóttir, föstudaginn 8. maí 1992,
kl. 14.00.
Uppboðsbeiðendur eru:
Tryggingastofnun ríkisins, Gunnar
Sólnes hrl., Sigurmar K. Albertsson
hdl., Bæjarsjóður Akureyrar og inn-
heimtumaður ríkissjóðs.
Lækjargata 4, e.h., Akureyri, þingl.
eigandi Magnús Jónsson, föstudag-
inn 8. maí 1992, kl. 13.45.
Uppboðsbeiðendur eru:
Sigurmar K. Albertsson hdl., Hús-
næðisstofnun rfkisins og Gunnar
Sólnes hrl.
Melasíða 5 e, Akureyri, þingl. eig-
andi Stjórn Verkamannabústaða,
föstudaginn 8. maí 1992, kl. 14.30.
Uppboðsbeiðendur eru:
Sigurmar K. Albertsson hdl. og
Bæjarsjóður Akureyrar.
Melasíða 6 b, Akureyri, þingl. eig-
andi Ingvar Kristjánsson, föstudag-
inn 8. maí 1992, kl. 14.45.
Uppboðsbeiðendur eru:
Bæjarsjóður Akureyrar, Húsnæðis-
stofnun rfkisins og Gunnar Sólnes
hrl.
Sandskeið 16, jarðhæð, Dalvfk,
þingl. eigandi Bergur Lundberg,
föstudaginn 8. maí 1992, kl. 13.30.
Uppboðsbeiðandi er:
Gunnar Sólnes hrl.
Sjávargata 4, Hrísey, þingl. eigandi
Birgir Sigurjónsson, föstudaginn 8.
maí 1992, kl. 14.30.
Uppboðsbeiðandi er:
Eggert B. Ólafsson hdl.
Smárahlíð 4 g, Akureyri, þingl. eig-
andi Björn Valdimarsson, föstudag-
inn 8. maf 1992, kl. 13.45.
Uppboðsbeiðendur eru:
Ásgeir Þ. Árnason hdl., ÁsgeirThor-
oddsen hrl., Gunnar Sólnes hrl. og
innheimtumaður ríkissjóðs.
Strandgata 31, Akureyri, þingl. eig-
andi Útgáfufélag Dags - Dagsprent
hf., föstudaginn 8. maí 1992, kl.
14.30.
Uppboðsbeiðandi er:
Iðnlánasjóður.
Tryggvabraut 22, 1. hæð, hluti,
þingl. eigandi Einarsbakarf hf.,
föstudaginn 8. maí 1992, kl. 15.00.
Uppboðsbeiðandi er:
Iðnlánasjóður.
Víðilundur 4 b, Akureyri, þingl. eig-
andi Ásrún Alfreðsdóttir, föstudag-
inn 8. maí 1992, kl. 15.00.
Uppboðsbeiðandi er:
Steingrímur Eiríksson hdl.
Þverá II, Eyjafjarðarsveit, þingl. eig-
andi Ari Biering Hilmarsson, föstu-
daginn 8. maí 1992, kl. 13.30.
Uppboðsbeiðendur eru:
Stofnlánadeild landbúnaðarins og
Hafsteinn Hafsteinsson hrl.
Bæjarfógetinn á Akureyri
og Dalvík,
Sýslumaöurinn í Eyjafjaróarsýslu.
MlNNING
hjúkrunarfræðingur
Fæddur 14. maí 1953 - Dáinn 22. apríl 1992
Stríðslok í Afganistan. í fjórtán
ár hafa bræður barist þar og
milljónir manna fallið í valinn
eða særst. Milljónir manna!
Sprengjur hafa tætt af útlimi og
þannig á eftir að ganga til í mörg
ár. Morðtólin liggja víða grafin
þó stríðinu ljúki. Það þarf enn að
rétta hjálparhönd striðshrjáðri
þjóð - en það verður ekki hönd
vinar míns.
Það er gömul saga og ný að
fórnarlömb styrjalda eru sjaldn-
ast þeir sem byssurnar bera. Þeir
saklausu falla, óbreyttir borgar-
ar, gamalmenni, konur og börn.
Mikið þarf gott að fylgja styrjöld
til að réttlæta slíkt og er eitthvað
sem réttlætir að ráðast á mann
sem fer langan veg til að hjálpa
óskyldum bræðrum og systrum í
neyð? Nei og aftur nei. Vinur
minn fór slíkar líknar- og lækn-
ingaferðir aftur og aftur. Hann
féll.
Við hittumst fyrst í Mennta-
skólanum á Akureyri. Söngurinn
leiddi okkur saman þar. Sem
gangfélagar á Gamla-Garði efld-
ist með okkur vinátta. Söngurinn
í Háskólakórnum átti líka stóran
þátt í því og seinna að syngja
saman í Kór Langholtskirkju.
Það var alltaf traust að hafa Jón
Karls í bassanum. Nafni minn
kær kaus að hverfa af háskólalín-
unni og fór að læra hjúkrun. Við
félagar hans urðum hissa á þessu
en talsvert stoltir yfir Jóni að ráð-
ast gegn ranghugmyndum um
sérstök störf kynja. Hann sýndi
líka fljótt ágæta hæfileika í starfi.
Svo fór hann að fara út í heim.
Jón var líka heimsmaður. Hann
hafði mikinn áhuga á löndum og
þjóðum. Sennilega hefur ekki
síst það orðið til þess að hann
valdi að hjúkra á erlendri grund.
Með starfi fyrir Rauða krossinn
gat hann bæði fengið útrás fyrir
hæfni í fagi sínu og numið lönd í
leiðinni. Honum var vel ljós
hættan sem því fylgir að hjúkra á
stríðsátakasvæðum. En starfið
kallaði og útþráin.
Hann kynntist ástinni sinni
gegnum starfið hjá Rauða kross-
inum. Við sem fylgdumst með úr
fjarska samglöddumst þeim og
hamingja þeirra var innsigluð í
febrúar í enskri kirkju. En brjál-
æði stríðs ræðst á allt - meira að
segja hamingju vina minna. Elsku
Jenny, við Hildur samhryggjumst
þér og ástvinum þínum öllum
innilega.
Jón Baldvin Halldórsson.
Þú ungur veginn valdir
þú vissir hvert hann lá
í stríði um ár og aldir
þar enginn hopa má
að velferð mest þeir vinna
og vaxa í hverri þraut
er hrjáðra sárum sinna
og sigra á friðarbraut.
Mig hugró harmur rændi
þann hinsta vetrardag
ég finn það á mér frændi
þú fá vilt kveðjubrag
og þú sem hreinar hendur
úr heimsins stríði barst
til sumarlanda sendur
með sigurmerki varst.
Alli frændi.
Samband íslenskra viðskiptabanka:
„Skattlagning sparifjár mun leiða
tíl aukinnar neyslu og hærri vaxta“
Eftirfarandi ályktun var sam-
þykkt á aðalfundi Sambands
íslenskra viðskiptabanka þann 9.
apríl sl.:
„Vegna fram kominna hug-
mynda um aukna skattlagningu
sparifjár vill Samband íslenskra
viðskiptabanka leggja áherslu á
eftirfarandi atriði:
* Hækkun skatta á þessu sviði
mun leiða til aukinnar neyslu í
þjóðfélaginu og vextir munu
hækka. Hvort tveggja gengur
þvert á mikilvæg markmið í efna-
hagsmálum þjóðarinnar.
* Höfuðatriði er að skattar á
sparifé séu ekki hærri hér á landi
en í nálægum löndum.
* Einfaldar og sams konar
skattareglur þurfa að gilda um
alla flokka sparifjár, þar með tal-
in spariskírteini ríkissjóðs, en í
fyrrnefndum hugmyndum er ekki
gert ráð fyrir að svo verði.
* Fullt frelsi í gjaldeyrismál-
um er á næsta leiti. Af þeim sök-
um eru hvers konar breytingar á
skattlagningu sparifjár viðkvæm-
ari en ella og mikilvægt er að þær
breytingar, sem nauðsynlegar
kunna að teljast, verði gerðar í
áföngum á hæfilegu tímabili.
Samband íslenskra viðskipta-
banka telur að mikið vanti á að
þessi atriði hafi verið höfð nægi-
lega í huga við mótun þeirra hug-
mynda sem nú liggja fyrir. Hæg-
fara breytingar, hófleg skatt-
heima og einfaldar framkvæmda-
reglur eru forsendur farsældar í
þessum málum. Eðlilegt er að
náið samráð verði haft við við-
skiptabankana og aðrar fjármála-
stofnanir verði hafin skattlagning
sparifjár.“
Bridds
íslandsbankamótið í tvímenningi í bridds:
Reykvíkingar í efstu sætum
Aðalsteinn Jörgensen og Sig-
urður Sverrisson frá Reykja-
vík, urðu íslandsmeistarar í
tvímenningi í bridds en þeir
sigruðu á Islandsbankamótinu
sem lauk um helgina. Þeir
félagar hlutu 272 stig en þeir
Guðmundur Páll Arnarson og
Þorlákur Jónsson úr Reykja-
vík höfnuðu í öðru sæti með
270 stig og í þriðja sæti urðu
þeir Matthías Þorvaldsson og
Sverrir Ármannsson úr
Reykjavík með 230 stig.
Kristján Blöndal frá Sauðár-
króki hafnaði í 9. sæti ásamt
félaga sínum Rúnari Magnússyni
úr Reykjavík og þeir Jakob
Kristinsson og Pétur Guðjónsson
frá Akureyri urðu í 10. sæti. Þá
höfnuðu bræðurnir Ólafur og
Steinar Jónssynir frá Siglufirði í
18. sæti.
Alls tóku 100 pör þátt í undan-
keppninni, þar sem spilaðar voru
3 lotur, 28 spil í hvorri. Það kom-
ust 23 pör áfram í lokakeppnina,
ásamt íslandsmeisturunum frá í
fyrra og 8 svæðismeisturum hvers
svæðis, alls 32 pör. -KK
íslandsmótið í parakeppni í bridds:
Fer fram á Siglu-
fírði um næstu helgi
Næstu helgi, 9. til 10. maí verður
íslandsmótið í Parakeppni haldið
á Siglufirði. Spilaður er Baró-
meter, tvö spil milli para og hefst
keppnin kl. 13.00 á laugardag.
Skráning í mótið er hjá B.S.Í. í
síma 91-689360 og Jóni Sigur-
björnssyni í síma 96-71350.
Keppnisstjóri verður Jakob
Kristinsson og spilað er um
gullstig. Þeir sem ætla að vera
með eru hvattir til að láta skrá sig
sem fyrst til að auðvelda undir-
búning fyrir mótið, skráningar-
frestur er til miðvikudagskvölds
6. maí. Núverandi íslandsmeist-
arar í Parakeppni eru Dröfn
Guðmundsdóttir og Ásgeir
Ásbjörnsson.