Dagur - 22.05.1992, Síða 2
2 - DAGUR - Föstudagur 22. maí 1992
Fréttir
Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra:
Skólaslit á morgun
- 36 nemendur að brautskrást
Þrjátíu og sex nemendur munu
brautskrást frá Fjölbrauta-
skóla Norðurlands vestra á
Sauðárkróki á morgun. Þar af
brautskráir skólinn 23 ný-
stúdenta af sex námsbrautum.
Fjölbrautaskólinn útskrifar að
þessu sinni átta sjúkraliða, fimm
rafvirkja og einn málmiðnaðar-
mann, auk fimm nemenda sem
Siglufjörður:
Hótel Höfii
breytist í
Hótel Læk
lokið hafa almennu verslunar-
prófi. Nokkrir brautskrást af
fleiri en einu sviði og nýstúdentar
skiptast niður á félagsfræðibraut,
tæknibraut, hagfræðibraut, nátt-
úrufræðibraut, málabraut og
tónlistarbraut. Flestir brautskrást
af félagsfræðibraut, alls níu
nemendur.
Skólaslit Fjölbrautaskólans
hefjast kl. 14:00 í íþróttahúsinu á
Sauðárkróki.
Að sögn skrifstofu skólans eru
umsóknir um skólavist á næsta
námsári nú þegar orðnar æði
margar. Umsóknir um heimavist
hafa aldrei verið fleiri, en ekkert
lát virðist samt vera á bréfum
sem innihalda umsóknir enda
maímánuður ekki liðinn. SBG
Sigurður Jóhannesson, aðalfulltrúi, Hanncs Karlsson, deildarstjóri matvörudeildar, Magnús Gauti Gautason, kaup-
félagsstjóri, og Júlíus Guðmundsson, verslunarstjóri, í hinni nýju og rúmgóðu Nettó verslun KEA sem opnuð verð-
ur í dag. Mynd: Golli
Kaupfélag Eyfirðinga:
Ný Nettó verslun opnuð í dag
- áhersla lögð á lágt vöruverð
Um leið og nýir rekstraraðilar
taka við rekstri Hótels Hafnar
á Siglufírði um næstu mánaða-
mót, þegar rennur út leigu-
samningur sem núverandi
rekstraraðili gerði við þrotabú
Hótels Hafnar, breytist nafn
hótelsins í Hótel Læk, sem vís-
ar til þess að það stendur við
Lækjargötu.
Eins og fram hefur komið
keyptu systkinin Sóley Erlends-
dóttir og Sigurjón Erlendsson
Hótel Höfn af íslandsbanka. Þau
hafa sótt um Ieyfi til bæjarfógeta
um rekstur hússins fyrir hótel,
veitingahús og skemmtistað.
Bæjarráð Siglufjarðar, sem er
umsagnaraðili um málið, sam-
þykkti leyfið fyrir sitt leyti á fundi
19. maí sl. óþh
Á hádegi í dag mun Kaupfélag
Eyfírðinga opna nýja Nettó
verslun að Óseyri 1 á Akur-
eyri, þar sem Samland sf. var
áður til húsa. Töluverðar
breytingar hafa verið gerðar á
húsinu og er gólfflötur þess um
900 fermetrar, þar af um 700
fermetrar fyrir verslunina
sjálfa. Á lóðinni er rými fyrir
um 130 bfla. Verslunarstjóri er
Júlíus Guðmundsson, sem
áður var verslunarstjóri í KEA
Sunnuhlíð.
Kaupfélag Eyfirðinga efndi til
blaðamannafundar í gær og þar
kynntu Magnús Gauti Gautason,
kaupfélagsstjóri, Sigurður
Jóhannesson, aðalfulltrúi, Hannes
Karlsson, deildarstjóri, og Júlíus
Guðmundsson, verslunarstjóri,
hina nýju KEA-Nettó verslun.
„Þessi nýja verslun tekur við af
Nettó versluninni sem Kaupfé-
lagið var með í Höfðahlíð, en hér
er mun meira rými, meira úrval
af matvörum og að auki sérvörur
á borð við fatnað og búsáhöld.
Opnunartíminn verður sá sami,
frá klukkan 12 til 18.30 virka
daga og 10 til 14 á laugardögum.
Þá verður tekið á móti greiðslu-
kortum í þessari verslun,“ sagði
Magnús Gauti.
Hann sagði að Nettó verslunin
byggðist upp á lágu vöruverði og
að vissu leyti takmörkuðu vöru-
vali og þjónustu. Stefnan væri að
matarkörfur heimilanna yrðu
ódýrari í KEA-Nettó en í öðrum
verslunum á svæðinu.
Júlíus Guðmundsson sagði að í
versluninni yrðu yfir tvö þúsund
vöruflokkar, þar af um fimm
hundruð í sérvörum. Hann lagði
áherslu á að öll uppbygging versl-
unarinnar og þjónusta miðaðist
við það að geta boðið sem lægst
vörurverð. Hannes Karlsson
nefndi í því sambandi eigin inn-
flutning KEA og í gegnum
Miklagarð svo og áherslu á eigin
framleiðsluvörur félagsins.
í gær var verið að leggja loka-
hönd á malbikun bílastæða,
málningarvinnu og annan frá-
gang en framkvæmdir hófust 3.
mars sl. Fjölmargir verktakar
hafa komið við sögu og hefur
Jóhann Karl Sigurðsson, bygg-
ingastjóri KEA, haft umsjón
með framkvæmdum við húsið.
SS-Byggir hf. sá um smíðavinnu
innanhúss, Ljósgjafinn hf. um
allt rafmagn, Sigurður Hannes-
son um múrverk, Vélsmiðjan
Oddi hf. um kæliverk, Bæjarverk
hf. sá um breytingar og malbikun
á plani og Stefán og Björn sf. um
alla málningarvinnu. Verkfræði-
stofa Sigurðar Thoroddsen hf. og
Teiknistofan Form sáu um teikn-
ingar og ráðgjöf.
Eftir síðustu breytingar á versl-
unarrekstri KEA starfrækir
félagið fjórar matvörurverslanir á
Akureyri; Nettó verslunina að
Óseyri, Kjörmarkaðinn í Hrísa-
lundi og þjónustuverslanir í
Byggðavegi og Sunnuhlíð.
Gömlu hverfaverslanirnar eru
hins vegar horfnar af sjónarsvið-
inu. SS
L2™ Léttir
Akureyri
Kappreiðar og
góðhestakeppni
fara fram laugardaginn 30. maí nk. og hefst
Bæjarstjórn Blönduóss:
kl. 9.30.
A- og B-flokkur gæðinga,
unglinga- og barnaflokkur,
150 m skeið,
300 m stökk,
300 m brokk.
Sjá auglýsingu um útivistardaga Ak.
Skráning fer fram í Hestasporti frá 25. til 27. maí.
Skeiðvallarnefndin.
mn 1' i Æ HM <|V'
HVÍTASUMMUKIRKJAM
býður þig velkomin(n) á kristilegar
samkomur alla sunnudaga kl. 20.00.
(Ath. breyttur samhomutími.)
T samkomunum fer fram mikill og
fjölbreyttur söngur.
Sjáumst T Hvítasunnukirkjunni!
Ef þú vilt fá nánari upplýsingar,
þá er safnaðarskrifstofan opin alla virka daga
frá kl. 9.00-16.00, sími 12220.
Vísar ráðningu félags-
málafulltrúa til héraðsnefiidar
Bæjarstjórn Blönduóss sam-
þykkti á fundi sínum sl. þriðju-
dag að vísa tillögu félagsmála-
ráðs Blönduóssbæjar um að
félagsmálafulltrúi verði ráðinn
til starfa í héraðinu, til héraðs-
nefndar Austur-Húnvetninga.
Þessi afgreiðsla bæjarstjórnar
átti sér að sögn Ófeigs Gestsson-
ar, bæjarstjóra, langan aðdrag-
anda, en málefnið hefur verið
töluvert í umraéðu undanfarin ár.
Á fundi sínum þann 11. maí sl.
samþykkti félagsmálaráð síðan
tillögu þar sem m.a. segir eftir-
farandi: „Félagsmálaráð lætur í
ljós áhyggjur yfir því hversu
mjög hefur fjölgað ýmsum vand-
meðförnum málefnum, sem ráð-
ið hefur fengið til úrlausnar og
snerta persónulega hagi manna
með ýmsu móti. Kunnugt er að í
héraðinu öllu hefur þessum mál-
um fjölgað. Með því að hér eru
mál sem ekki verða leyst án sér-
fræðilegrar aðstoðar, hefur iðu-
lega þurft að kaupa sérfræði-
aðstoð.“
í tillögu félagsmálaráðs kemur
fram að kostnaður vegna funda
félagsmálaráðs og barnavernda-
mála á síðasta ári, hafi numið
tæplega 900 þús. krónum. Leggur
ráðið til að bæjarstjórn Blöndu-
óss beiti sér fyrir því að ráðinn
verði sérfræðingur sem verði
starfsmaður félagsmálaráða og
barnaverndarnefnda í héraðinu
Maíhækkun bóta almanna-
trygginga verður greidd með
næstu bótagreiðslu 3. júní. Þó
er hækkun sjúkra- og slysadag-
peninga þegar komin til fram-
kvæmda.
Samkvæmt reglugerð frá heil-
brigðisráðuneytinu frá 14. maí
skulu bætur almannatrygginga
hækka frá 1. maí um 1,7% frá því
sem þær voru í apríl 1992. Slysa-
dagpeningar hækkuðu úr 654,60
öllu og kannað verði hvort Vest-
ur-Húnvetningar óski eftir sam-
starfi á þessu sviði. Ennfremur
leggur nefndin til að sérfræð-
ingurinn vinni með þeim sem
annast málefni aldraðra í hérað-
inu og telur fullvíst að grunnskól-
ar héraðsins hafi einnig þörf fyrir
sérfræðilega þjónustu við
úrlausnir vandamála. SBG
krónum í 665,70 krónur og
sjúkradagpeningar úr 517,40
krónum í 526,20 kr. Sem dæmi
um aðrar breytingar má nefna að
elli- og örorkulífeyrir hækkar úr
12.123 kr. á mánuði í 12.329 kr.,
tekjutrygging ellilífeyrisþega
verður 22.684 í stað 22.305, með-
lag fer í kr. 7.551 úr 7.425 og
fæðingarstyrkur sem var 24.671 á
mánuði verður 25.090 eftir
hækkun. JÓH
Bætur almannatrygginga:
Maíhækkunin greidd í júní