Dagur - 22.05.1992, Síða 14
14 - DAGUR - Föstudagur 22. maí 1992
Íþróttir
íþróttafélagið Leiftur, Ólafsfirði. Stofnað 1931.
Besti árangur: 9. sæti í 1. deild 1988. 3. deildarmeistari 1986 og 1991.
4. deildarmeistari 1983. Undanúrslit í bikarkeppni KSÍ 1988.
Nýir leikmenn síðan 1991: Einar Einarsson frá KA, Goran
Barianovitch frá Júgóslavíu, Jón Atli Gunnarsson frá ÍBV, Mark Duffi-
eld frá KS, Pétur B. Jónsson frá ÍR, Pétur H. Marteinsson frá Fram.
Farnir síðan 1991: Aðalsteinn Aðalsteinsson í Víking, Friðgeir Sigurðs-
son hættur, Geirhörður Ágústsson hættur, Guðjón Kristinsson í
Gróttu, Halldór Guðmundsson hættur, Róbert Gunnarsson hættur,
Rósberg Óttarsson í Dalvík, Stefán Aðalsteinsson.
Flestir 1. deildarleikir: Einar Einarsson 68, Mark Duffield 53, Þorvald-
ur Jónsson 34, Sigurbjörn Jakobsson 18.
Flest 1. deildarmörk: Steinar Ingimundarson 6.
Stærsti deildarsigur: 10:0 gegn Dagsbrún í 3. deild 1977.
Stærsta deildartap: 1:10 gegn KS í 3. deild 1970.
(Tölurnar á eftir nöfnum leikmanna tákna meistaraflokksleiki fyrir Leiftur. Get-
ið er um leiki í 1. deild hjá þeim sem ekki hafa leikið áður fyrir Leiftur).
Marteinn Geirsson
41 árs - þjálfari
Goran Barjactarevic.
28 ára - 0 leikir
Jón Atli Gunnarsson
24 ára - 0 leikir
Pétur B. Jónsson
20 ára - 1. d: 4
Sturla Sigmundsson
21 árs - 0 leikir
Einar Einarsson
28 ára - 1. d: 68
Gunnlaugur Sigursveinsson
24 ára - 74 leikir
Bergur Björnsson
17 ára - 3 leikir
Hannes Víglundsson
21 árs - S leikir
Magnús Þorgeirsson
20 ára - 9 leikir
Pétur H. Marteinsson
18 ára - 0 leikir
Þorlákur Árnason
22 ára - 42 leikir
Mark Duffield
28 ára - 1. d: 53
Sigurbjörn Jakobsson
29 ára - 187 leikir
Þorvaldur Jónsson
28 ára- 110 leikir
Friðrik Einarsson
24 ára - 77 leikir
Helgi Jóhannsson
28 ára - 142 leikir
Matthías Sigvaldason
22 ára - 20 leikir
Steingrímur Örn Eiðsson
20 ára - 32 leikir
Þorlákur Árnason átti frábært tímabil í fyrra og varð langmarkahæstur í 3.
deild með 20 mörk.
Marteinn Geirsson, þjálfari:
Markmiðið fyrst og
fremst að halda
sætinu í
„Ég hef trú á að þetta verði
skemmtilegt tímabil. Baráttan
verður örugglega mikil enda er
2. deildin alltaf að verða erfið-
ari og liðin farin að leggja
meiri áherslu á að gera góða
hluti. Það er af sem áður var
að liðin sem falli eigi greiða
leið beint upp aftur,“ segir
Marteinn Geirsson, þjálfari
Leifturs í Ólafsfirði. Þetta er
fyrsta tímabil Marteins með
Leiftursliðið en undanfarin ár
hefur hann þjálfað Fylki í 1. og
2. deild.
Marteinn segir að sitt markmið
sé fyrst og fremst að halda liðinu
í deildinni. „Liðið er í fyrsta lagi
að koma upp úr 3. deild og svo
hafa orðið nokkrar breytingar,
einir sex nýir leikmenn, og það
tekur alltaf nokkrar umferðir að
slípa þetta til. Ég held að þetta sé
raunhæft markmið, mig minnir
að okkur hafi verið spáð 6. sæti í
íþróttablaðinu og það er nokkuð
gott og allt þar fyrir ofan auðvit-
að enn betra. Ég reikna með að
lið eins og Keflavík, Fylkir og
jafnvel Stjarnan verði sterk í
sumar og Grindavík og Þróttur
eru lið sem ómögulegt er að segja
hvað gera. Ég sé ekki fyrir mér
hvaða lið verða í botnbaráttunni
en við ætlum ekki að vera þar.
Ólafsfjörður á að geta átt gott 2.
deildarlið en það er afar erfitt og
deíldirmi
dýrt fyrir ekki stærra bæjarfélag
að setja markið hærra. Ég hef
hins vegar fundið að áhuginn hér
er gífurlegur og menn eru tilbún-
ir að leggja sitt af mörkum. Ég
hef trú á að þessi stuðningur eigi
eftir að reynast dýrmætur í
sumar.“
Marteinn segir að munurinn á
1. og 2. deild sé ekki svo mikill í
dag. „Það eru kannski 3-4 lið í 1.
deildinni sem skera sig virkilega
úr en það er lítill munur á fimm
neðstu liðunum í 1. deild og
fimm efstu í 2. deild. Aðalmun-
urinn á þessum deildum held ég
að liggi í umfjölluninni."
Marteinn segist mjög ánægður
með að vera kominn norður í
land að þjálfa. Hópurinn sé nán-
ast allur kominn til Ólafsfjarðar
og hann sé skemmtileg blanda af
eldri og yngri leikmönnum. Mar-
teinn var spurður hvernig fót-
bolta Leiftursliðið myndi spila í
sumar.
„Ég er hrifinn af taktíkinni 3-5-
2 og reikna með að leggja hana
upp. Annars ætlum við fyrst og
fremst að spila skemmtilegan fót-
bolta og ég legg áherslu á að liðið
haldi boltanum, byrji strax að
spila honum aftast og byggja
sóknirnar upp þaðan. Pá finnst
mér mikið atriði að nýta heima-
völlinn vel og vona að við verð-
um erfiðir heim að sækja,“ sagði
Marteinn Geirsson.