Dagur - 02.06.1992, Side 2
2 - DAGUR - Þriðjudagur 2. júní 1992
Fréttir
Metþátttaka í
heilsuhlaupi
Krabbameins-
Heilsuhlaup Krabbameinsfélags
Islands fór fram á fjórum stöð-
um sl. laugardag, þ.e. í Reykja-
vík, á Akureyri, á Egilsstöðum
og á Höfn í Hornafirði. í
Reykjavík hlupu um 950 manns,
á Akureyri 350, á Egilsstöðum
50 og á Höfn 120 eða alls um
1470 manns sem er nokkur
aukning frá árinu áður en þá
tóku þátt um 1300 manns.
Við skólaslitin var þessi föngulegi hópur kallaður upp á sviðið en þetta voru talið f.h. mæðgin, tvennir tvíburar og
systkin.
Skólaslit Verkmenntaskólans á Akureyri:
100 kennarar kenndu á fimm
stöðum í 15 tíma á dag
Flestir þátttakenda í Reykja-
vík hlupu ýmist 2, 4 eða 10 km en
einnig var hjólað og gengið. Á
Akureyri voru hlaupnir 3,4 km,
gengnir 1,5 km og hjólaðir 6,8
km. Á Egilsstöðum er rík hefð
fyrir svona hlaupi og þar voru
eins og í Reykjavík hlaupnir,
gengnir eða hjólaðir 2, 4 eða 10
km og á Höfn var fyrirkomulagið
svipað og á Egilsstöðum. í
Reykjavík var tímataka á 10 km
hlaupurum og fyrstur þar í mark
var Sigurður P. Sigmundsson.
Þátttökugjald var kr. 400 og
fengu allir þátttakendur bol að
launum. „Petta hlaup er fyrst og
fremst fyrir fjölskylduna og því
erum við mjög ánægðir með þátt-
tökuna“ sagði Ólafur Þorsteins-
son framkvæmdastjóri Krabba-
meinsfélagsins aðspurður. „Við
erum í samstarfi við Tóbaksvama-
nefnd núna en í þessari viku er
sérstakt átak gegn reykingum á
vinnustöðum og heimilum og því
er tímasetning.þessa heilsuhlaups
mjög góð.“ GG
Úrslit í íslandsmóti grunn-
skólasveita, 8.-10. bekk, í skák
liggja nú fyrir. Aðeins mættu
tíu sveitir til leiks sem er
óvenju léleg þátttaka, en í
stærri sveitarfélögum var háð
undankeppni um þátttökurétt.
Áhuginn á íslandsmótinu virt-
ist hins vegar lítill og þá sér-
staklega meðal grunnskóla á
landsbyggðinni.
Sveit Gagnfræðaskóla Akur-
eyrar stóð sig vel eins og á undan-
Verkmenntaskólanum á Akur-
eyri var slitið í áttunda sinn í
íþróttahöllinni á Akureyri sl.
laugardag að viðstöddu fjöl-
menni. I skólaslitaræðu Bern-
harðs Ilaraldssonar skóla-
meistara kom fram að í upp-
hafi þessa skólaárs voru
nemendur í dagskóla rétt rúm-
lega 1100 en um eitthundrað
færri á vorönn sem orsakast
fyrst og fremst af því að nokkr-
ir falla, aðrir sættu sig ekki við
skólavistina eða höfðu ekki
skýr markmið með veru sinni í
skólanum.
í öldungadeild voru tæplega
förnum árum. Skólinn hefur átta
sinnum tekið þátt í íslandsmóti
grunnskólasveita og fulltrúar
hans hafa sex sinnum náð verð-
Iaunasæti, einu sinni fyrsta sæti,
þrisvar öðru og tvisvar þriðja, en
sú varð raunin að þessu sinni.
A-sveit Æfingadeildar Kennara-
háskólans bar sigur úr býtum eins
og búist hafði verið við og fékk
19‘/i vinning af 24 mögulegum. í
öðru sæti varð sveit Breiðholts-
skóla með 18 vinninga, en á
fyrsta borði þar var enginn annar
en Helgi Áss Grétarsson. Sveit
200 manns við nám á haustönn og
tóku sumir marga áfanga en aðrir
fáa, hver eftir efnum og ástæðum
en á vorönn voru nemendur 140.
í fullorðinsfræðslu Verkmennta-
skólans var bryddað upp á ýms-
um nýjungum í námsframboði en
rúmlega 200 manns hafa tekið
þátt í námskeiðum hvora önnina
og þeim lýkur ekki fyrr en í þess-
um mánuði.
Einnig hefur skólinn gert
samning við Félag málmiðnað-
armanna og Trésmiðafélag Akur-
eyrar um námskeiðahald í tölvu-
fræði og ensku.
Á þessu ári fær Verkmennta-
GA kom svo í þriðja sæti með 16
vinninga. Vonir höfðu verið
bundnar við ívið betri árangur en
stórtap gegn Æfingadeildinni
gerði þær vonir að engu.
Sveit GA skipuðu þeir Helgi P.
Gunnarsson, Páll Þórsson, Gest-
ur Einarsson, Einar J. Gunnars-
son og Þorbjörg L. Þórsdóttir,
varamaður. Svo skemmtilega vill
til að þeir Helgi og Einar eru
bræður og Páll og Þorbjörg
systkin. Liðsstjórar voru þeir
Bogi Pálsson og Arnar Þorsteins-
son. SS
skólinn um 58 milljónir til
nýframkvæmda. Því fjármagni
verður varið til áframhaldandi
frágangs innanhúss, hafin verður
bygging nýrrar bóknámsálmu og
gengið frá aðkomunni að skólan-
um með því að malbika og setja
niður lýsingu. Þrátt fyrir þetta er
enn eftir að byggja yfir hússtjórn-
arsvið og tréiðnaðardeild og í
ræðu sinni minnti skólameistari á
þá staðreynd að við fyrstu skóflu-
stungu að skólanum var þeirri
frómu ósk haldið á lofti að bygg-
ingartíminn yrði 6 til 8 ár en í dag
eru um tveir þriðju af húsunum
risin.
Bernharð Haraldsson skóla-
meistari kom m.a. inn á það
hversu fjölmennir skólar ættu að
vera og sagði m.a.: „Er það
skynsamlegt að hafa 500 eða 1000
nemendur, eiga allir saman, hver
sem námsforsenda þeirra er? Ég
er þeirrar skoðunar að skólar
megi ekki vera fjölmennari en
það að hægt sé með góðu móti að
hafa yfirsýn yfir þá starfsemi sem
þar fer fram. Ég nefni 750
nemendur sem óskatölu, sú ósk
mín rætist víst aldrei, enda brýtur
hún alvarlega í bága við stór-
rekstrarhagkvæmnina sem tröll-
ríður skólakerfinu okkar í dag.“
Kennararáðningar fyrir skóla-
árið 1992-1993 hafa ekki far-
ið endanlega fram en þrír af
föstum kennurum skólans þau
Vigdís Lovísa Rafnsdóttir vélrit-
unarkennari, Sóley Einarsdóttir
íþróttakennari og Friðrik Þor-
valdsson þýskukennari láta af
störfum. Vigdís og Sóley snúa sér
að öðrum viðfangsefnum en
Friðrik fer á eftirlaun. GG
Sala á eignum ísnó:
Viðræður
enn í gangi
Viðræður um kaup Svartham-
ars á Húsavík og heimamanna
í Kelduhverfi á eignum þrota-
bús ísnó eru enn í gangi.
Viðræðurnar hófust á föstu-
dagsmorgun og á föstudag var
þeim frestað fram yfir helgina.
Þorvaldur Vestmann Magnús-
son, framkvæmdastjóri Svart-
hamars, sagði í samtali við Dag
að hann vildi ekki tjá sig um gang
mála fyrr en að viðræðunum
loknum. Þorvaldur átti von á því
að málin skýrðust nánar nú í vik-
unni. IM
Uppskeruhátíð Skákfélags Akureyrar var haldin seint í maímánuði og við það tækifæri voru veitt verðlaun fyrir
árangur á mótum félagsins frá síðustu áramótum. Bikarar, verðlaunapeningar og skákbækur komust í réttar hendur
og síðan var boðið upp á kaffi og meðlæti. Á myndinni sjást ungir sem eldri skákmenn með uppskeruna. Mynd: Goiií
Skák______________________________________
íslandsmót grunnskólasveita:
Sveit GA í þriðja sæti
Akureyri:
Bæjarmála-
punktar
■ Umhverfisstjóri kom á
fund bæjarráðs nýlega og
gerði grein fyrir skráningu í
unglingavinnuna í sumar og
endurskoðaðri kostnaðaráætl-
un. Skráðir eru í unglinga-
vinnuna 126 - 16 ára, 135 - 15
ára og 143 - 14 ára. Áætlaður
kostnaður miðað við skráðan
fjölda er kr. 23.114.000 eða
um 3 milljónir kr. umfram
fjárveitingu. Með tilliti til þess
að gera má ráð fyrir verulegri
fækkun unglinga í þessari
vinnu þegar kemur fram í
júní, fellst bæjarráð á tillögu
umhverfisstjóra, að bjóða öll-
um skráðum unglingum að
hefja vinnu en endurskoðun
fari fram í júnflok.
■ íþrótta- og tómstundaráð
tók fyrir bréf frá ívari Sig-
mundssyni, forstöðumanni
Skíðastaða, á fundi sínum
nýlega. í bréfinu kemur fram
að eftir „harðlélegan" vetur sé
fjárhagur Skíðastaða mjög
siæmur. í fjárhagsáætlun er
gert ráð fyrir tekjutn upp á
22,5 milljónir en innkoman
varð 10 milljónir. „Að vísu
lækka ýmis rekstrargjöld
einnig. Það breytir þó ekki því
að ýmis viðhaldsmál sem
vinna átti í sumar, rúmast ekki
innan fjárhagsáætlunar án
sérstakra ráðstafana," eins og
segir m.a. í bréfi ívars. Nú um
mánaðamótin ætti að liggja
fyrir endanleg útkoma á vetr-
inum og vill ívar í framhaldi af
því ræða við ráðið um verkefni
sumarsins.
■ Bæjarráö bendir á að
slæmri rekstrarafkomu Skíða-
staða á fyrri hluta ársins verði
að mæta með aðhaldsað-
gerðum bæði í rekstri á st'ð-
ari hluta ársins og viðhaldi og
endurbótum mannvirkja.
■ Bæjarráði hefur borist bréf
frá stjórn Sjálfsbjargar, þar
sem mótmælt er harðiega
þeirri ráðstöfun bæjaryfir-
valda að fella niður aðstoð við
lóðahirðingu hjá öldruðum og
öryrkjum á Akureyri. Þess er
vænst að ákvörðunin verði
endurskoðuð hið fyrsta og fært
til fyrra horfs. Bæjarráð vísaði
erindinu til félagsmálaráðs.
■ Bæjarráð hefur hafnað til-
boði frá Verkvali í hita- og
hellulögn á Ráðhústorgi, 2.
áfangi. Tilboðið hljóðaði upp
á kr. 5.815.000.
■ Bygginganefnd tók fyrir
erindi frá Jóhanni G. Berg-
þórssyni fyrir hönd Hagvirki-
Kletts, sem bæjarráð vísaði til
nefndarinnar, þar sem hann
sækir um lóð til að byggja á
40-50 íbúðir fyrir aldraða.
Bygginganefnd hefur falið
byggingafulltrúa og skipulags-
stjóra að ræða við umsækj-
anda.
■ Skipulagsncfnd hefur bor-
ist erindi frá Sigurborgu Daða-
dóttur, f.h. Hestamanna-
félagsins Léttis, þar sem óskað
er eftir því að gert verði skipu-
lag yfir reiðvegi í landi Akur-
eyrar. Nefndin vfsar crindinu
til gerðar fjárhagsáætlunar
skipulagsmála fyrir árið 1992.
■ Á fundi félagsmálaráðs
nýlega, var lagt fram bréf frá
Sigríði M. Jóhannsdóttur, deild-
arstjóra dagvistadeildar, þar
sem hún segir lausu starfi sínu
sem deildarstjóri dagvista-
deildar frá 1. maí að telja.