Dagur - 02.06.1992, Qupperneq 4
4 - DAGUR - Þriðjudagur 2. júní 1992
ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF.
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31,
PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SÍMI: 96-24222
ÁSKRIFT KR. 1200 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ KR. 110
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMNETRA 765 KR.
RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.)
FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
BLAÐAMENN:
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 96-41585),
JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, JÓN HAUKUR BRYNJÓLFSSON (íþróttir),
ÓLI G. JÓHANNSSON, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON,
SKÚLI BJÖRN GUNNARSSON (Sauöárkróki vs. 95-35960, fax 95-36130),
STEFÁN SÆMUNDSSON, ÞÓRÐUR INGIMARSSON
LJÓSMYNDARI: KJARTAN ÞORBJÖRNSSON
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON, ÞRÖSTUR HARALDSSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON
DREIFINGARSTJÓRI:
HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL
PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF.
SÍMFAX: 96-27639
Óskiljanlegur
spamaður
„Sparnaður í ríkisrekstri" eru eins konar
töfraorð um þessar mundir. Stjórnendum vel
flestra ríkisstofnana og -fyrirtækja er gert að
spara með öllum tiltækum ráðum til að ná
fram markmiðum aðhaldssamra fjárlaga. í
sumum tilfellum er sparnaðurinn af hinu
góða og til þess fallinn að færa rekstur við-
komandi fyrirtækis eða stofnunar í betra horf.
í öðrum tilfellum er sparnaðurinn afar hæpinn
og jafnvel vanhugsaður.
Síðastliðinn fimmtudag greindi Dagur frá
einu dæmi af síðarnefnda taginu. Þá var frá
því greint að vegna niðurskurðar á fjárveit-
ingum frá ríkinu hafi Náttúruverndarráð
neyðst til að hætta að halda uppi skipulegu
eftirliti með fálkavarpi í Mývatnssveit,
Ásbyrgi og Jökulsárgljúfrum. Fálkaeftirlits-
menn á þessum slóðum hafa á undanförnum
árum oft þurft að hafa afskipti af grunsamleg-
um mannaferðum í námunda við fálkahreiðr-
in. Eftir miklu er að slægjast fyrir eggja- og
fálkaþjófa því svimandi háar upphæðir fást
fyrir íslandsfálka víða erlendis.
Eins og flestir vita verpir fálkinn í apríl.
Ungarnir eru þar af leiðandi skriðnir úr eggj-
um fyrir þó nokkru. Að venju hafa borist frétt-
ir af grunsamlegum mannaferðum á fálka-
slóðum síðustu vikur, en vegna fyrrnefnds
niðurskurðar á fjárveitingum frá ríkinu hefur
fálkavarpið verið án minnsta eftirlits í vor. í
frétt Dags segir Guðríður Þorvarðardóttir, líf-
fræðingur og fulltrúi hjá Náttúruverndarráði,
meðal annars: „Þetta er hið versta mál og
niðurskurði er beitt víðar. í sumar verður eng-
in fjallalögregla sem í fyrra og vegalögregla
verður ekki til staðar á Seyðisfirði við komu
og brottför ferjunnar."
Af framansögðu má sjá að margnefndur
„sparnaður í ríkisrekstri" virðist á þessu sviði
beinlínis miða að því að greiða leið eggja- og
fálkaþjófa inn og út úr landinu. Sá sparnaður
sem í því felst er flestum óskiljanlegur. Vissu-
lega má til sanns vegar færa að verið sé að
spara fálkaþjófum fyrirhöfn og draga úr þeirri
áhættu sem þeir leggja í við að veikja hinn
viðkvæma íslenska fálkastofn. Vart getur það
hafa verið markmið stjórnvalda með niður-
skurði fjárveitinga til Náttúruverndarráðs.
BB.
MENOR - menningar-
dagskrá í júní
TÓNLIST
Þriðjudagur 2. júní
- Fredenskirkjunni í Árhus Dan-
mörku kl. 19.30:
Kór Akureyrarkirkju, stjómandi
Bjöm Steinar Sólbergsson.
Á efnisskrá verða íslensk verk.
Miðvikudagur 3. júní
- Silkeborgkirke í Silkeborg
Danmörku kl. 19.30:
Kór Akureyrarkirkju, stjómandi
Bjöm Steinar Sólbergsson.
Föstudagur 5. júní
- Húsavíkurkirkja kl. 20.30:
Orgeltónleikar, Wolfgang
Tretzsch, (ísafirði).
Laugardagur 6. júní
- Akureyrarkirkja kl.12.00:
Hádegistónleikar: Wolfgang
Tretzsch, orgelverk eftir Bach,
Distler, Kiel, Eben. Léttur há-
degisverður í Safnaðarheimilinu
á eftir.
- Dyssegárdskirke í Hellemp,
Danmörku kl. 17.00:
Kór Akureyrarkirkju, stjómandi
Bjöm Steinar Sólbergsson.
Sunnudagur 7. júní (hvíta-
sunnudagur)
- Holmenkirke í Kaupmanna-
höfn, Danmörku kl. 14.00:
Islensk messa, Kór Akureyrar-
kirkju, Kór íslenska safnaðarins
í K.höfn. Messukaffi í Jónshúsi
á eftir.
Föstudagur 12. júní
- Dalvíkurkirkja kl. 20.30:
Dómkórinn. Stjómandi Marteinn
H. Friðriksson.
Laugardagur 13. júní
- Safnaðarheimili Akureyrar-
kirkju kl. 12.15:
Tónleikar í tengslum við aðal-
fund MENOR, ýmsir flytjendur
- Dalvíkurkirkja kl. 17.00
Minningartónleikar.
Söngkonumar Halla Jónasdóttir
og Fríður Sigurðardóttir syngja
íslensk einsöngs og tvísöngslög.
Kári Gestsson píanó.
Sunnudagur 14. júní
- Breiðumýri í Reykjadal kl.
15.00:
Söngur og sólstöðukaffi.
Kvennakórinn Lissý, Hildur
Tryggvadóttir sópran, Ragnar
Þorgrímsson píanó, stjómandi
Margrét Bóasdóttir.
Sunnudagur 14. júní
- Safnaðarheimili Akureyrar-
kirkju kl. 17.00:
Undrabömin frá Rússlandi.
Listahátíð í Reykjavík og Tón-
listarskólinn á Akureyri standa
fyrir komu fimm framúrskarandi
unglinga frá Rússlandi.
- Hólar í Hjaltadal:
Dómkórinn, stjómandi Marteinn
H. Friðriksson.
Laugardagur 20. júní
- Martinskirche Múnsingen í
Þýskalandi kl. 19.30:
Kór Glerárkirkju, stjómandi Jó-
hann Baldvinsson.
Á efnisskrá verða íslensk verk.
Sunnudagur 21. júní
- Safnahúsið Húsavík, kl. 20.30:
Pavol Kovac, píanó, (Þýska-
landi).
Fimmtudagur 25. júní
- Lovisa í Finnlandi (Vinabær
Ólafsfjarðar):
Kirkjukór Ólafsfjarðar, stjóm-
andi Jakub Kolosowski.
Lidia Kolosowska, píanó. Á
efnisskrá eru íslensk lög.
Þriðjudagur 30. júní
- Dómkirkjan Komelimúnster í
Aachen Þýskalandi kl. 19.30:
Kór Glerárkirkju, stjómandi
Jóhann Baldvinsson.
MYNDLIST/
SÝNINGAR
Sýningarhópurinn Trójuhestur-
inn
- Safnaðarheimili Akureyrar-
kirkju 10.-21. júní:
Málverk, grafík, skúlptúr eftir:
Sólveigu Eggertsdóttur, Sigurð
Örlygsson, Sigrid Valtingojer,
Guðrúnu Kristinsdóttur, Kristin
Hrafnsson, Önnu Eyjólfsdóttur,
Ólöfu Sigurðardóttur.
Mannlíf á Siglufirði frá 1930
til okkar daga.
Ljósmyndasýning.
- Nýja bíó Siglufirði Opið frá
9-21 alla daga í sumar.
Steingrímur Kristinsson og
Kristfinnur Guðjónsson ljós-
myndarar.
MENNING
Menningarsamtök Norðlendinga
MENOR halda aðalfund sinn í
Safnaðarheimili Akureyrarkirkju
laugardaginn 13. júní kl. 10.30
f.h. í tengslum við fundinn
verðam.a. tónleikarkl. 12.15.
Vinabæir Akureyrar á Norður-
löndum halda mót 22.-28. júní.
Þemað em bókmenntir.
Menningardagskrá þessi er
byggð á upplýsingum sem berast
símleiðis til tengiliða Menn-
ingarsamtaka Norðlendinga
MENOR. Dagskráin er birt með
fyirvara um breytingar.
Menningardagskrá fyrir júlí
birtist næst þriðjudaginn 30. júní
1992.
Lesendahornið______________________
Styrkjum alla Ólympíu-
farana en ekki bara einn
Lesandi hringdi:
„Ég vil gera athugasemd við
lesendabréf sem birtist fyrir
„Ég bý í nágrenni við væntanlega
byggingu aldraðra við Lindasíðu
á Akureyri og langar að vita
hvort ekki á að girða í kringum
þetta vinnusvæði. Framkvæmd-
irnar eru hafnar á svæðinu og
börnin eru þegar byrjuð að sækja
í þetta svæði til að leika sér. í
I skömmu í Degi og fjallar um
Ólympíuleikana og stofnun
I styrktarsjóðs fyrir Frey Gauta
hverfinu eru mörg börn og þarna
eru miklar hættur, ekki síst núna
þegar grunnurinn er 4-5 metra
djúpur og mikið vatn í honum.
Því vil ég hvetja framkvæmda-
aðila til að loka svæðið af og
forðast þannig slys.“ M.G.
Sigmundsson, júdómann. Þar var
talað um að stofna ætti slíkan
sjóð fyrir hann þar sem um sé að
ræða fyrsta Ólympíufara Akur-
eyringa í langan tíma. Mér fannst
þetta ekki nógu sniðugt vegna
þess að Sigurrós Karlsdóttir fór
fyrir nokkrum árum á Ólympíu-
leika fatlaðra og varð ólympíu-
meistari og nú í haust fara þrír
Akureyringar á Ólympíuleika
fatlaðra. Mér finnst ekki sann-
gjarnt að nefna þetta fólk ekki í
þessari umræðu. Ef stofna á sjóð
til að styrkja Frey Gauta þá er
sjálfsagt að stofna sjóð fyrir hina
ólympíufarana líka. Ættum við
ekki bara að stofna einn sjóð til
að styrkja þau öll jafnt. Við eig-
um ekki bara að taka út þá heil-
brigðu heldur gera þeim fötluðu
jafn hátt undir höfði.“
Strætó aki fram-
hjá KEA-Nettó
Kona úr Þorpinu hringdi:
Mig langar að vekja máls á því
hvort Strætisvagnar Akureyrar
sjái sér ekki fært að breyta ferð-
um sínum þannig að þeir aki
framhjá nýju KEA-Nettó búð-
inni að Óseyri 1.
Það myndi leysa vanda margra
sem ekki hafa bíl til umráða. Ég
vona að einhverjir fleiri láti heyra
í sér varðandi þetta mál.
Fyrsta skóflustungan tekin við Lindarsíðu 2 og 4.
Bygging íbúða aldraðra við Lindarsíðu:
Girðið vinnusvæðið af