Dagur - 30.06.1992, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 30. júní 1992 - DAGUR - 3
f
Fréttir
Skólaheimili fyrir andlega og líkamlega fótluð börn:
Flyst M Egilsá að Húnavöllum
tyrir næsta skólaár
Stórauhin þjónusta
í póstjlutningum
í vetur 6 börn en þörf er á rými
fyrir fleiri börn.
„í tillögum nefndarinnar sem
lagði starfsemina á Egilsá niður er
gert ráð fyrir tveimur vistheim-
ilum sem kæmu í stað skólans á
Egilsá. í nefndinni sátu fulltrúar
frá Svæðisstjórn málefna fatlaðra,
Fræðsluskrifstofunni á Blönduósi
og ráðuneytunum. Eins og málin
standa nú er líklegast að aðeins
verði byggt eitt vistheimili," segir
Karólína Guðmundsdóttir hjá
Svæðisstjórn málefna fatlaðra á
Norðurlandi vestra.
Ekki hefur komið til álita að
halda áfram starfseminni á Egilsá.
Lausn þessa verkefnis er í hönd-
um tveggja ráðuneyta, þ.e.
Menntamálaráðuneytisins sem
sér um menntun barnanna og Fé-
lagsmálaráðuneytisins sem hefur
lausn vistheimilismálsins á sinni
könnu.
Margrét Margeirsdóttir hjá
Félagsmálaráðuneytinu segir að
búið sé að taka á leigu húsnæði í
nágrenni Húnavallaskóla sem
vistheimili og hefjist starfsemi þar
í haust um leið og almenn skóla-
starfsemi. Ekki sé fyrirhugað að
vistheimili verði tekið í notkun á
Sauðárkróki enda megi segja að
starfsemin að Egilsá flytjist að
Húnavöllum en dagskólinn á
Sauðárkróki sé hrein viðbót enda
eru ekki fyrir hendi nein fjárfram-
lög til vistheimilis á Sauðárkróki.
Ákvörðun um flutning skóla-
heimilis á Egilsá til Húnavalla er
fyrst og fremst félagslegs eðilis, en
talið var eðlilegra að andlega og
líkamlega fötluð börn hefðu meiri
samskipti við heilbrigð börn en
möguleiki er á með því að halda
áfram óbreyttri starfsemi á
Egilsá.
Úr Framkvæmdasjóði fatlaðra
hafa verið veittar 2 millj. króna til
að kaupa innbú í væntanlegt
húsnæði vistheimilis við Húna-
vallaskóla. GG
„Það hefur ekki fengist neinn
peningur til að reka sólar-
hringsvistun fyrir andlega og
líkamlega fötluð börn við skól-
ana á Sauðárkróki og Húna-
völlum en reynt hefur verið að
fá Félagsmálaráðuneytið til að
taka það að sér en engin af-
dráttarlaus svör fengist þaðan.
Einnig hafa foreldrar þessara
fötluðu barna þrýst á um svör
en engin fengið,“ segir Bryndís
Guðmundsdóttir kennari á
Egilsá.
Skólaheimili fyrir fötluð börn
sem rekið hefur verið að Egilsá í
Akrahreppi, Skagafirði, var lok-
að eftir að skóla lauk nú á vordög-
um og stafar það af breyttri verka-
skiptingu ríkis og sveitarfélaga en
sveitarfélögin hafa nú fengið
þetta verkefni og Ijóst að mörg
þeirra eru þess alls ekki umkomin
aðrekaslík heimili. ÁEgilsávoru
Hraðari póstsendingar milli
landshluta.
„Fuglinn er tákn um frjálsa hugsun
og háfleyga,“ segir Guðmundur
Ármann m.a. í greinargerð með
merkinu.
Menningarsamtök
Norðlendinga:
Guðmundur
Ármann
hannaði merki
samtakanna
Guðmundur Ármann, mynd-
listarmaður á Akureyri, hefur
hannað merki fyrir Menning-
arsamtök Norðlendinga og var
það samþykkt á aðalfundi
MENOR nýlega.
Eins og sjá má er fugl í grunni
merkisins og í greinargerð
höfundar segir að fuglinn sameini
tvo þætti sem eigi við um samtök-
in; verksviðið (menninguna) og
landshlutann (Norðurland).
„Flugið er tákn um frjálsa hugsun
og háfleyga. í öðru lagi er fuglinn
tákn Norðurlands í skjaldar-
merki íslands. í Landnámu
greinir frá fugli einum svo stórum
að vængirnir girtu fyrir firði og
vörnuðu konungsmönnum land-
töku á Norðurlandi,“ segir Guð-
mundur Ármann í greinargerð
sinni.
Listamaðurin skar merkið í
dúk og segir hann að það gæti
verið til í tveimur útgáfum, ann-
ars vegar í lit og hins vegar í
svart-hvítu. Guðmundur segir í
greinargerðinni að í skjaldar-
merkjasögu íslands sé sérstakur
ljósblár litur nokkuð áberandi og
eitt elsta skjaldarmerki íslands
skarti ljósbláu. óþh
Hinn 1. júlí hefjum við flutning á pósti að næturlagi,
landleiðina milli Reykjavíkur og Akureyrar.
Sendingar sem verða póstlagðar íyrir kl. 16:30 á viðkomustöðum póstbílanna verða tilbúnar til
afliendingar á viðkomandi póststöðvum næsta virkan dag. Ennfremur mun póstur að norðan halda
viðstöðulaust áfram frá Reykjavík til staða á Suðurlandi og Suðurnesjum. Sama
gildir um póst frá Akureyri til staða við Eyjafjörð og á Norðausturlandi.
Viðkomustaðir póstbílanna eru:
Akureyri, Varmahlíð,
Sauðárkrókur, Skagaströnd,
Blönduós, Hvammstangi, Brú,
Borgarnes, Akranes og Reykjavík.
PÓSTUR OG SÍMI
Viö spörum þér sporin