Dagur - 30.06.1992, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - Þriðjudagur 30. júní 1992
SUMARHAPPDRÆTTI
BLINDRAFÉLAGSINS 1992
DREGIÐ 23. JÚNÍ.
Vinningsnúmer eru:
15712 18794 13666 14990 17673
21357 6761 12954 19914 24453 24759
891 2729 5060 5656 6214 9030
18840 21213 22168 22252 22554
BLINDRAFÉLGIÐ HAMRAHLÍÐ 17.
Upplýsingar í símsvara 91-38181
Takið eftir!
íslensk hjón með fjögur börn, búsett í úthverfi Wash-
ingtonborgar, óska að ráða til sín heimilishjálp.
Börnin eru 2ja(x2), 4ra og 8 ára, og er starfið einkum
fólgið í umönnun um þau yngstu sem og léttum
húsverkum, en móðirin er einnig heimavinnandi.
Allt umhverfi er mjög öruggt, mjög góð aðstaða er til
hvers kyns íþróttaiðkunar og námskeiða - menntun-
ar. Laun eru bærileg.
Æskilegt er að viðkomandi sé a.m.k. 22ja ára, hafi
bílpróf, sæmilegt vald á ensku og hafi unnið með
börnum.
Reglusemi er algert skilyrði og meðmæli nauðsyn-
leg.
Ráðningartími er frá júlílokum í u.þ.b. eitt ár.
Nánari upplýsingar veitir Kristín S. Árnadóttir í síma
22519.
Sýslumaðurinn
á Akureyri
Frá og með 1. júlí nk. flyst afgreiðsla sýslu-
mannsins á Akureyri á 1. hæð, að Hafnar-
stræti 107.
Afgreiðsla
sjúkratrygginga
sem verið hefur að Gránufélagsgötu 4, flyst
miðvikudaginn 1. júlí nk., að Hafnarstræti
107, Akureyri, 1. hæð að norðan.
Frá sama tíma verður símanúmerið
26900.
Sýslumaðurinn á Akureyri.
„M0RALTU innihurðír
Við höfum tekið að okkur umboð fyrir
„MORALT“ innihurðir frá Þýskalandi.
Hurðirnar eru yfirfelldar og með pakkningum,
vel hljóðeinangrandi og vandaðar.
Eigum á lager sléttar hurðir og hurðir fyrir gler.
Spónn: limba, beyki og hvítur askur.
Karmabreiddir 10-18 sm.
Verð frá kr. 19.656
hurð, karmur, skrá og hengsli.
Byggingavörudeild KEA
Hótel Vertshús - lítið hótel í hjarta byggðarinnar.
Hótel Vertshús á Hvammstanga:
Framtíðarverkefni að koma
Hvammstanga á ferðamannakortið
- hótel- og veitingarekstur nauðsynlegur í 700 manna byggð,
segja Birna Lárusdóttir og Gísli Jónsson, hótelhaldarar
Birna Lárusdóttir og Gísli Jónsson í öðrum veitingasal hótelsins.
Á Hvammstanga er lítið en
notalegt hótel í hjarta byggðar-
innar. Hótelið var byggt á
árinu 1985 og í því eru sex
tveggja manna herbergi og
tveir veitingasalir. Fyrir um
einu og hálfu ári festu Birna
Lárusdóttir og Gísli Jónsson
kaup á hótelinu og hafa rekið
það síðan.
Þau sögðu að reksturinn
byggðist mikið upp á þjónustu
við heimabyggðina - bæði hvað
gistiaðstöðu varðar og einnig sem
veitinga- og samkomustaður.
Hótelgestir væru annars vegar
fólk er ætti erindi til Hvamms-
tanga vegna starfa sinna en einn-
ig væri nokkuð um ferðamenn,
einkum yfir sumartímann. Þau
lögðu áherslu á að hótel- og veit-
ingarekstur væri nauðsynlegur í
700 manna byggð en ferðaþjón-
usta væri auk þess nauðsynleg
bæði til þess að styrkja rekstrar-
grundvöllinn og einnig til þess að
fá ferðamenn til þess að koma við
á Hvammstanga. Þótt Hvamms-
tangi sé aðeins um sex kílómetra
leið frá norðurleiðinni væri það
nægilega langt til þess að fólk æki
frafnhjá. Það átti sig jafnvel ekki
á að þarna sé verulega þéttbýlis-
byggð að finna sem væri þess
virði að skoða.
Gísli sagði að nýleg og mjög
góð sundlaug væri á Hvamms-
tanga og hefði hún dregið nokk-
uð af ferðamönnum á staðinn.
Einnig liafi verið útbúin mjög
góð tjaldstæði. Hann sagði jjað
langtíma markmið að koma
Hvammstanga betur inn á kort
ferðamanna en nokkuð hefði
þegar áunnist í því efni. Hann
kvaðst myndu auglýsa Hvamms-
tanga og hótelreksturinn í
útvarpi í sumar. Slíkar auglýsing-
ar höfði til ferðamanna því marg-
ir hefðu útvarpið opið á ferðalög-
um. Hann benti einnig á mögu-
leikann til þess að fara fyrir
Vatnsnes og koma við - jafnvel
gista á Hvammstanga í leiðinni.
Gísli sagði að reksturinn hefði
gengið þokkalega vel þann tíma
sem þau hafi verið á Hvamms-
tanga og þótt það sé langtíma
markmið að koma byggðinni fyr-
ir alvöru á ferðamannakortið þá
væri það engu að síður framtíðar-
verkefnið. ÞI
Framhaldsskólinn á Húsavík:
Gróðursett og grillað við Botnsvatn
„Kolin voru ekki einu sinni
orðin heit þegar við vorum
búin að gróðursetja allar
plönturnar, þær hefðu mátt
vera fleiri. En þetta var mjög
gaman og verður örugglega
árvisst hér eftir,“ sagði Anton-
ía Sveinssdóttir, ritari Fram-
haldsskólans á Húsavík,
aðspurð um griil- og gróður-
setnigarfcrð starfsfólks
skólans.
Það var sl. miðvikudag sem
kennarar og annað starfsfólk
Framhaldsskólans á Húsavík
ásamt börnum sínum hélt í gróð-
ursetningarferð suður fyrir
Botnsvatn. Gróðursettar voru
720 plöntur af furu og birki og
gekk verkið fljótt og vel. Síðan
var haldin grillveisla, og að sögn
Antoníu voru það sannkallaðir
meistarakokkar sem grilluðu
pylsur, kótelettur og lærissneiðar
niður í liðið. IM