Dagur - 30.06.1992, Blaðsíða 4
4 - DAGUR - Þriðjudagur 30. júní 1992
ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF.
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31.
PÓSTHÓLF 58. AKUREYRI. SÍMI: 96-24222
ÁSKRIFT KR. 1200 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ KR. 110
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMNETRA 765 KR.
RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.)
FRETTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
BLAÐAMENN:
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 96-41585).
JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON. JÓN HAUKUR BRYNJÓLFSSON (iþróttir).
ÓLI G. JÓHANNSSON, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON.
SKÚLI BJÖRN GUNNARSSON (Sauðárkróki vs. 95-35960. fax 95-36130).
STEFÁN SÆMUNDSSON. ÞÓRÐUR INGIMARSSON
LJÓSMYNDARI: KJARTAN ÞORBJÖRNSSON
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON. ÞRÖSTUR HARALDSSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON
DREIFINGARSTJÓRI:
HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR. HEIMASÍMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL
PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF.
SÍMFAX: 96-27639
Ótrúlega sið-
laus úrskurður
Kjaradómur hefur komist að þeirri niðurstöðu að
þeir ríkisstarfsmenn sem mest bera úr býtum sé
allt of lágt launaðir. Þess vegna hefur dómurinn
úrskurðað að laun þeirra skuli hækkuð um tugi
þúsunda króna á mánuði. Kjaradómur skammtar
sumum „bara" 20-30% launahækkun en öðrum
mun meira - og tvöfaldar jafnvel mánaðarlaunin í
sumum tilfellum.
Vert er að minna á að nýverið voru almenn laun
í landinu hækkuð. Áður en samningar tókust
hömruðu vinnuveitendur og ráðherrar ríkisstjórn-
arinnar á því að svigrúm til kauphækkunar væri
ekkert; hvorki atvinnulífið né þjóðarbúið mættu
við auknum kostnaði. „Sauðsvartur almúginn" var
að venju skilningsríkur og féllst á hóflega kaup-
hækkun, með hliðsjón af slæmu árferði.
Kauphækkunin nam 1,7 af hundraði sem þýddi
að lægstu laun hækkuðu um sjö til átta hundruð
krónur á mánuði og miðlungslaun um rúman þús-
undkall. Örskömmu síðar fellir Kjaradómur úrskurð
sinn: „Mánaðarlaun hinna hæstlaunuðu í hópi
ríkisstarfsmanna skulu hækkuð. Þau verða ekki
hækkuð um sjö hundruð krónur og þaðan af síður
um sjö þúsund krónur. Nei, sjö sinnum sjö þúsund
krónur er nær lagi og í raun algert lágmark! “ Þess
má geta að mest er hækkunin 190 þúsund krónur,
samkvæmt úrskurði Kjaradóms, eða sem nemur
launum venjulegs verkamanns í rúmlega þrjá
mánuði!
Úrskurður Kjaradóms er nýjasta dæmið um hið
fullkomna siðleysi sem hér ríkir í umræðunni um
kaup og kjör. Þótt launamunur hafi vaxið jafnt og
þétt undanfarin ár hefur aldrei mátt ræða um að
hækka lægstu laun upp fyrir fátækramörk. Ef slíkt
réttlætismál hefur borið á góma hafa ríkisstjórn og
vinnuveitendur jafnan hafið sönginn um að allt sé
að fara fjandans til og ekkert svigrúm sé til launa-
breytinga. Með úrskurði Kjaradóms nú er tryggt að
bilið milli hæstu og lægstu launa eykst enn - og
þótti þó mörgum nóg um.
Forsætisráðherra hefur sagt að hann sjái enga
leið til að hnekkja úrskurði Kjaradóms. Vel má vera
að það sé rétt hjá ráðherranum. Hins vegar er ljóst
að hvati ráðherra og þingmanna til að breyta
úrskurði dómsins getur ekki talist mikill, því í
dómnum er gert ráð fyrir að laun ráðherra hækki
um rúmlega 80 þúsund krónur á mánuði, laun
þingmanna um 65 þúsund krónur og laun forseta
Alþingis um 190 þúsund krónur!
Úrskurður Kjaradóms kemur eins og blaut tuska
í andlit hins almenna launþega. Verði úrskurðinum
ekki hnekkt með bráðabirgðalögum eða öðrum
hætti, hlýtur að draga til tíðinda á vinnumarkaðin-
um. Almennir launþegar geta ekki og mega ekki
láta draga sig á asnaeyrunum öllu lengur. BB.
MENOR - menningar-
dagskráíjúlí
TÓNLIST
Fimmtudagur 2. júlí
Sumartónleikar á Norðurlandi:
- Dalvíkurkirkja kl. 20.30. Tón-
listarhópur Akureyrarkirkju:
Margrét Bóasdóttir sópran, Lilja
Hjaltadóttir fiðla, Hólmfríður
Þóroddsdóttir óbó, Dagbjört Ing-
ólfsdóttir fagott, Björn Steinar
Sólbergsson orgel. Verk eftir
Corelli, Hándel, Jón Leifs,
Gunnar Reyni Sveinsson.
Föstudagur 3. júlí
Sumartónleikar á Norðurlandi:
- Raufarhafnarkirkja kl. 20.30
Tónlistarhópur Akureyrarkirkju.
Laugardagur 4. júlí
Sumartónleikar á Norðurlandi:
- Reykjahlíðarkirkja við Mývatn
kl. 20.30 Tónlistarhópur Akur-
eyrarkirkju.
Sunnudagur 5. júlí
Sumartónleikar á Norðurlandi:
- Akureyrarkirkja kl. 17.00.
Tónlistarhópur Akureyrarkirkju.
Miðvikudagur 8. júlí
- Dómkirkjan í Reykjavík kl.
17.00. Bjöm Steinar Sólbergs-
son orgeltónleikar.
Föstudagur 10. júlí
Sumartónleikar á Norðurlandi:
- Húsavíkurkirkja kl. 20.30. Þrjú
selló og orgel: Inga Rós Ingólfs-
dóttir selló, Judith Janin van Eck
selló, Sebastian van Eck selló,
Hörður Askelssson orgel. Verk
eftir J.Pachelbel, G.F.Handel,
B.Bartok, ofl.
Laugardagur 11. júlí
- Hvammstanga kl. 16.00.
Gunnar Guðbjörnsson tenór og
Jónas Ingimundarson píanó.
Sumartónleikar á Norðurlandi:
- Hólar í Hjaltadal kl. 17.00.
Þrjú selló og orgel.
Sunnudagur 12. júlí
Sumartónleikar á Norðurlandi:
- Akureyrarkirkja kl. 17.00. Þrjú
selló og orgel.
- Breiðumýri í Reykjadal kl.
17.00. Gunnar Guðbjörnsson
tenór og Jónas Ingimundarson
píanó.
Mánudagur 13. júlí
- Safnahúsið Húsavík kl. 21.00.
Gunnar Guðbjörnsson tenór og
Jónas Ingimundarson píanó.
Þriðjudagur 14. júlí
- Safnaðarheimili Akureyrar-
kirkju kl. 20.30. Gunnar Guð-
bjömsson tenór og Jónas Ingi-
mundarson píanó.
Miðvikudagur 15. júlí
- Miðgarður, Skagafirði kl.
21.00. Gunnar Guðbjörnsson
tenór og Jónas Ingimundarson
píanó.
Föstudagur 17. júlí
Sumartónleikar á Norðurlandi:
- Húsavíkurkirkja kl. 20.30.
Söngur og orgel: Bodil Kvaran
sópran, Birgitte Rutkær Ewerlöf
sópran, Lasse Ewerlöf orgel.
Verk eftir m.a. H.Purcell, C.
Nielsen, H.Wolf, dönsk þjóðlög
og negrasálmar.
Laugardagur 18. júlí
Sumartónleikar á Norðurlandi:
- Reykjahlíðarkirkja við Mývatn
kl. 20.30. Söngur og orgel.
Sunnudagur 19. júlí
Sumartónleikar á Norðurlandi:
- Akureyrarkirkja kl. 17.00.
Söngur og orgel.
- Safnahúsið Húsavík kl. 20.30.
Cornelia Thorspecken flauta,
Cordula Hacke píanó. Verk eftir
Schubert, Prokofiev, Fukushima.
Miðvikudagur 22. júlí
Cn'tarfestival ‘92: - Tónlistar-
skólinn á Akureyri kl. 20.30.
Jennifer Spear gítartónleikar.
- Safnaðarheimili Akureyrar-
kirkju kl. 20.30. Sólrún Braga-
dóttir sópran, Þórarinn Stefáns-
son píanó. Norræn ljóðatónlist.
Fimmtudagur 23. júlí
Gítarfestival ‘92: - Tónlistar-
skólinn á Akureyri kl. 20.30.
Kristinn H. Árnason.
- Safnahúsið Húsavík kl. 20.30.
Sólrún Bragadóttir sópran, Þór-
arinn Stefánsson píanó. Norræn
ljóðatónlist.
Föstudagur 24. júlí
Sumartónleikar á Norðurlandi:
- Húsavíkurkirkja kl. 20.30.
Capella Media: Rannveig Sig-
urðardóttir sópran, Sverrir Guð-
jónsson kontratenór, Christine
Heinrich víola da gamba, Klaus
Hölzle lúta, Stefan Klar lúta og
blokkflauta. Ensk tónlist frá 17.
öld.
Gítarfestival ‘92: - Tónlistar-
skólinn á Akureyri kl. 20.30.
Einar K. Einarsson og Kristinn
H. Ámason gítartónleikar.
Laugardaginn 25. júlí
Sumartónleikar á Norðurlandi:
- Reykjahlíðarakirkja við Mý-
vatn kl. 20.30. Capella Media.
Gítarfestival ‘92: - Tónlistar-
skólinn á Akureyri kl. 20.30.
Einar K. Einarsson og Martial
Nardeau gítar- og flaututón-
leikar.
Sunnudagur 26. júlí
Sumartónleikar á Norðurlandi:
- Lundarbrekkukirkja í Bárðar-
dal kl. 14.00. Capella Media.
Gítarfestival ‘92: - Tónlistar-
skólinn á Akureyri kl. 15.00.
Tónleikar námskeiðsþátttakenda.
Sumartónleikar á Norðurlandi:
- Akureyrarkirkja kl. 17.00.
Capella Media.
Fimmtudagur 30. júlí
Sumartónleikar á Norðurlandi:
- Dalvíkurkirkja kl. 20.30.
Trompet og orgel. Egbert Lew-
ark trompet, Wolfgang Portugall
orgel. Verk m.a. eftir Telemann,
Buxtehude, Pachelbel, Bach,
Hándel, Eben og fleiri.
Föstudagur 31. júlí
Sumartónleikar á Norðurlandi:
- Reykjahlíðarkirkja við Mývatn
kl. 20.30. Trompet og orgel.
Laugardagur 1. ágúst.
- Akureyrarkirkja kl. 12.00. Há-
degistónleikar, ritningarlestur og
léttur hádegisverður í Safnaðar-
heimili á eftir. Björn Steinar
Sólbergsson orgel.
Sumartónleikar á Norðurlandi:
- Hóladómkirkja í Hjaltadal kl.
17.00. Trompet og orgel.
Sunnudagur 2. ágúst
Sumartónleikar á Norðurlandi:
- Akureyrarkirkja kl. 17.00.
Trompet og orgel.
MYNDLIST/
SÝNINGAR
25. Norræna þing mynd-
menntakennara verður haldið
29. júní til 3. júlí í Myndlista-
skólanum á Akureyri. Fyrirlestr-
ar: Páll Skúlason, Eiríkur Þor-
láksson, Sigríður Björnsdóttir,
Marinó Björnsson, Manfred
Lenke. Kynningar. Hópvinna.
Umræður. (Uppl. Hrafnhildur
Gunnlaugsdóttir vs. 91-609522)
Listahátíð Sumarskólans á
Akureyri. Fimmtudaginn 4. júlí
frá kl. 10-22 í Glerárskóla. Um-
sjónannenn: Ásta Arnarsdóttir,
Ánna Richardsdóttir, Öm Ingi.
(96-22644). Leiksýningar,
danssýningar, myndlistasýning,
matargerðarlist.
Mannlíf á Siglufirði frá 1930
til okkar daga. Ljósmyndasýn-
ing í Nýja bíó á Siglufirði. Opið
frá 9-21 alla daga í sumar. Stein-
grímur Kristinsson og Kristfinn-
ur Guðjónsson ljósmyndarar.
Alþjóðlegt gítarnámskeið verð-
ur haldið í Tónlistarskólanum á
Akureyri dagana 22.-26. júlí.
Leiðbeinandi verður Arnaldur
Amarson kennari við Luthier
Tónlistarskólann í Barcelona.
Haldnir verða fimm tónleikar í
tengslum við námskeiðið. (Uppl.
í síma 96-11460 Öm Viðar)
ÝMISLEGT
Söngferð Kórs Glerárkirkju,
stjórnandi Jóhann Baldvinsson.
Á efnisskrá verða íslensk verk. -
Dómkirkjan Kornelimiinster í
Aachen í Þýskalandi 30. iúní kl.
19.30
Söngferð Kirkjukórs Ólafs-
fjarðar, stjórnandi Jakup Kolo-
sowski, Lidia Kolosowska
píanó. Á efnisskrá verða íslensk
verk. - Vilnius í Litháen 5. júlí.
- Slupsk í Póllandi 11. júlí.
íbúð Jóns Sigurðssonar í Kaupmannahöfn:
Aldrei fleiri umsóknir um dvöl
Úthlutunarncfnd fræðimanns-
íbúðar samkvæmt reglum um
Hús Jóns Sigurðssonar í Kaup-
mannahöfn hefur lokið störf-
um sínum og líthlutað íbúðinni
frá 1. september næstkomandi
til loka ágúst á næsta ári. AIIs
fengu sex íslendingar úthlutað
dvöl í íbúðinni á þessum tíma.
í úthlutunarnefndinni eiga sæti
þau Salome Þorkelsdóttir, forseti
Alþingis, dr. Þórir Kr. Þórðarson
prófessor, tilnefndur af rektor
Háskóla Islands og Ingvi S. Ing-
varsson, sendiherra fslands í
Kaupmannahöfn, formaður
stjórnar Húss Jóns Sigurðssonar.
Alls bárust 42 umsóknir, eða
fleiri en nokkru sinni fyrr.
Eins og áður segir fengu sex
íslendingar úthlutað dvöl í íbúð-
inni. Þeir eru: Ingibjörg Árna-
dóttir bókavörður til að vinna
skrá yfir þýðingar á íslenskum
fornbókmenntum, AuðurSveins-
dóttir landslagsarkitekt, til að
vinna að skilgreiningu á íslensku
menningarlandslagi, Soffía Auð-
ur Birgisdóttir bókmennta-
fræðingur, til að vinna að athug-
un á skáldskap rithöfundar-
ins Karenar Blixen, Böðvar
Kvaran, bókfræðingur, til að
ljúka riti um bókaútgáfu íslend-
inga og prentun frá upphafi og
fram á síðustu áratugi, Hannes
Pétursson, rithöfundur, til að
rannsaka nokkur kvæði Jónasar
Hallgrímssonar, og dr. Loftur
Guttormsson, sagnfræðingur, til
að rannsaka söguleg gögn í Kaup-
mannahöfn í tengslum við rit um
sögu kristni á íslandi í þúsund ár.
JÓH