Dagur - 03.07.1992, Page 3
Föstudagur 3. júlí 1992 - DAGUR - 3
Fréttir
Gísli Eyland, stöðvarstjóri Pósts og síma á Akureyri, færði Erni Johansen,
blómvönd við komuna til Akureyrar í gærmorgun. Með þeim á myndinni er
Ársæll Magnússon, umdæmisstjóri. Mynd: kk
Póstflutningar milli Reykjavíkur og Akureyrar:
Fyrsta ferðin tók
níu klukkustundir
- og gekk mjög vel í alla staði
„Ferðin tók um níu klukku-
tíma og gekk mjög vei í alla
staði,“ sagði Örn Johansen,
póstflutningaverktaki í samtali
við Dag í gærmorgun. Örn var
þá að koma úr sinni fyrstu
póstflutningaferð á milli
Reykjavíkur og Akureyrar og
var að losa kjaftfullan bfl sinn
við bögglapóststofuna á Akur-
eyri.
Örn lagði af stað frá Reykjavík
um kl. 21.30 í fyrrakvöld og kom
til Akureyrar um 6.30 í gærmorg-
un. Hann kom við á átta stöðum
á leiðinni, þar sem hann tók póst
og skilaði af sér pósti, líkt og
félagi hans Gunnar Guðmunds-
son, sem var á suðurleið frá
Akureyri á svipuðum tíma.
Ekið verður á milli Akureyrar
og Reykjavíkur fimm sinnum í
viku og til að byrja með munu
tveir menn starfa við aksturinn.
Aðspurður sagðist Örn ekki
kvíða vetrarakstrinum, hann væri
vanur slíkri keyrslu og því hvergi
banginn. Hins vegar mætti búast
við því að ferðirnar á milli taki
lengri tíma yfir erfiðustu vetrar-
mánuðina.
Eins og komið hefur fram, var
ákvörðun um póstflutningana
tekin að loknu útboði þar sem
bárust um 100 tilboð. Að lokinni
athugun var ákveðið að ganga til
samninga við Örn Johansen en
tilboð hans hljóðaði upp á 33,5
milljónir króna fyrir tveggja ára
tímabil. Jafnframt var gerður
viðbótarsamningur við Örn
þannig að endanlega samnings-
upphæð hljóðaði upp á 37 millj-
ónir króna. -KK
Fjórtán milljóna króna ríkisstyrk úthlutað til áhugaleikfélaga í ár:
„Barátta okkar beinist að því
að ríkið hækki þessa styrki“
- segir Kolbrún Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri
Bandalags íslenskra leikfélaga
Á fundi sínum á Tjörn í Svarf-
aðardal um liðna helgi gekk
stjórn Bandalags íslenskra
leikfélaga frá tillögum til
menntamálaráðuneytisins um
skiptingu þeirra 14 milljóna
króna, sem eru á fjárlögum
þessa árs til að styrkja starfsemi
áhugaleikfélaga í landinu.
Þessir fjármunir koma til
greiðslu í lok ágúst til þeirra
áhugaleikfélaga sem settu upp
verk á síðasta leikári og sóttu
um fyrirgreiðslu. Leikfélög á
Norðurlandi fá drjúgan hluta
af því fé sem til ráðstöfunar er,
enda var leikstarfsemi mjög
öflug í landsfjórðungnum á
Iiðnum vetri.
„J>að fjölgar alltaf þeim áhuga-
leikfélögum í landinu sem starfa.
Þau voru 50 leikárið 1990 til 1991
en 56 það leikár sem er nýliðið.
Hins vegar eiga 80 félög aðild að
Bandalagi íslenskra leikfélaga. Á
liðnu leikári settu þessi 56 leik-
félög upp 81 verkefni, en árið
áður voru þau 75. Leikstarfsemin
hefur því aukist ár frá ári, en
styrkur ríkisins til starfsemi
áhugafélaga hefur hins vegar
ekki hækkað að sama skapi,“
sagði Kolbrún Halldórsdóttir,
framkvæmdastjóri Bandalags
íslenskra leikfélaga.
Við úthlutun fjárins er farið
eftir þeirri meginreglu að metn-
aðarfullt íslenskt leikverk gefi
viðkomandi leikfélagi 100%
styrk, sem í ár er 216 þúsund
krónur. „Þetta er sama krónutala
og í fyrra, en þegar ég hóf störf
hjá Bandalaginu vorið 1989 nam
styrkurinn 258 þúsund krónum.
Ólafsfirðingafélagið:
Búið að skipuleggja sumar-
bústaðasvæði í landi Hólkots
í framtíðinni er gert ráð fyrir
að rísi fjöldi sumarbústaða í
landi Hólkots í Ólafsflrði.
Búið er að teikna sumarbú-
staðaþyrpingu fyrir um 30
bústaði og eru framkvæmdir
hafnar við vegalagningu á
svæðinu. Það er Ólafsfirðinga-
félagið sem hefur haft for-
göngu um skipulag svæðisins
fyrir sumarbústaði, en félagið
hefur Hólkot á leigu af Ólafs-
fjarðarbæ.
Að sögn Sigurðar Sigurðsson-
ar, byggingaverktaka á Akureyri
og brottflutts Ólafsfirðings, er
miðað við að næsta sumar verði
unnt að reisa fyrstu sumarbústað-
ina á svæðinu, en nú er verið að
ganga frá síðustu uppdráttunum
til að leggja fyrir þær nefndir í
Ólafsfirði sem málið heyrir
undir. Að fengnu grænu ljósi frá
öllum hlutaðeigandi aðilum verð-
ur hægt að auglýsa sumarbú-
staðalóðir í Hólkoti, en Sigurður
segist vita af nokkrum brottflutt-
um Ólafsfirðingum á höfuðborg-
Tryggingastofnun ríkisins:
Tekjutryggingaraiiki
greiddur í júlí
Þegar bætur almannatrygginga
vegna júlímánaðar verða
greiddar út, munu lífeyrisþeg-
ar með tekjutryggingu fá upp-
bót. Hún er í samræmi við
kjarasamninga á vinnumarkaði
um greiðslu láglaunabóta.
Fulla uppbót kr. 9.995,- hjá
ellilífeyrisþegum en kr. 10.174.-
hjá öryrkjum, fá þeir sem hafa
óskerta tekjutryggingu, heimilis-
uppbót og sérstaka heimilisupp-
bót. Tekjutryggingaraukinn
skerðist í sama hlutfalli og þessir
bótaflokkar hjá lífeyrisþega. Þeir
sem ekki njóta tekjutryggingar fá
enga uppbót. Á greiðsluseðli
mun þessi uppbót ekki koma
fram sérstaklega, heldur verður
lögð við upphæð þessara þriggja
bótaflokka.
Tekjutryggingarauki greiðist á
sama hátt í ágúst, 20% vegna or-
lofsuppbótar og í desember 30%
vegna desemberuppbótar launa-
fólks. í janúar 1993 greiðist 28%
tekjutryggingarauki vegna lág-
launabóta. Vegna þessa geta bæt-
ur almannatrygginga orðið mis-
háar milli mánaða.
arsvæðinu og Akureyri sem hafi
hug á að reisa sumarbústað
þarna. „Þetta er mjög skemmti-
legt svæði og ekki sakar að stang-
veiði í Ólafsfjarðarvatni verður
leyfð,“ sagði Sigurður.
óþh
Þetta vill segja að eftir því sem
fleiri leikfélög starfa, þeim mun
minna kemur í hlut hvers félags.
Barátta okkar beinist að því að
ríkið hækki þessa styrki. Hefði
styrkupphæðin frá 1989 verið
framreiknuð til síðustu áramóta,
þá hefðu átt að koma til út-
hlutunar 17,7 milljónir króna í
ár. Það þýddi að 100% styrkur í
ár væri kominn yfir 300 þúsund,
sem væri í einhverju samræmi við
þá upphæð sem leikfélögin greiða
leikstjórum fyrir sína vinnu. Þeg-
ar styrkirnir lækka ár frá ári er
hættan sú að leikfélögin hætti að
hafa efni á að ráða sér atvinnu-
leikstjóra, sem er afar bagalegt,"
sagði Kolbrún.
Starfsemi áhugafélaganna var
sérstaklega öflug á liðnu ári og
nægir þar að nefna nokkur leik-
félög á Norðurlandi. Á Eyja-
fjarðarsvæðinu var t.d. sérstak-
lega mikil gróska og sýningar
fengu gríðarlega aðsókn. Nægir
þar að nefna Rjúkandi ráð hjá
Leikfélagi Dalvíkur (16 sýning-
ar), Bör Börson hjá Leikfélagi
Skriðuhrepps (16 sýningar) og
rokkóperan Messías Mannssonar
(28 sýningar) í uppfærslu Frey-
vangsleikhússins. Þá fékk sýning
Leikfélags Húsavíkur á Gauks-
hreiðrinu mikla aðsókn og frá-
bæra dóma. óþh
Mjólkurbikarkeppnin í knattspyrnu
16 liða úrslit
KA-Þór
Sannkallaður stórleikur á Akureyrarvelli
þriðjudaginn 7. júlí kl. 20.00
Hvor þjálfaranna fagnar sigri
leikslok, Gunnar Gíslason,
þjálfari KA eða Sigurður
Lárusson, þjálfari Þórs?
Síðast þegar liðin mættust í bikarnum þurfti
framlenginu og vítaspyrnukeppni til þess að
knýja fram úrslit. Hvað gerist á þriðjudaginn?