Dagur


Dagur - 03.07.1992, Qupperneq 6

Dagur - 03.07.1992, Qupperneq 6
6 - DAGUR - Föstudagur 3. júlí 1992 Veiðiklóin Laxveiðin: Sá stóri rétti úr tveim önghim - gott hljóð í veiðimönnum - Tvöfalt fleiri laxar komnir á land í Laxá í Aðaldal en í fyrra - Feitur, fallegur og lúsugur fiskur í Vatnsdalsá Það er gott hljóðið í laxveiði- mönnum þessa dagana. Víðast hvar hefur veiðin verið mun betri en í fyrra og laxinn sem kemur á land er feitur og fal- legur. Sem dæmi má nefna að í Vatnsdalsá voru komnir 75 laxar á land í gær, þar af aðeins 6 undir tíu pund að þyngd. Flestir hafa verið á bilinu 12-16 pund. „Laxinn er feitur og lúsugur og veiðist um alla á. Menn hafa ver- ið að fara heim með þetta 4-7 laxa hver svo þeir eru ánægðir. Stærsti laxinn sem hér hefur veiðst til þessa var 22 pund. Sá sem fékk þann lax sagðist hafa misst annan eftir 15 mínútna barning. Sá var enn stærri og til marks um það sagði veiðimaður að fiskurinn hefði rétt úr tveimur önglum á 28 gramma Toby spún,“ sagði Brynjólfur Markús- son leigutaki í Vatnsdalsá. 320 laxar komnir á land í Laxá í Aðaldal í Miðfjarðará voru í gær komnir 110 laxar á land sem er helmingi meira en í fyrra. Meðalþyngdin er um 10 pund en sá stærsti er 17 pund. „Það hefur verið svolítið kalt og mikið vatn í ánni, en nú er veðrið að hlýna og vatnið að sjatna í ánni svo þetta er allt á uppleið," sagði Guðmundur Thor kokkur í veiðihúsinu Laxa- hvammi. Austur í Þingeyjarsýslu er sömu sögu að segja, þar er nóg af fiski. Opnunin var mjög góð í Fnjóská og þar voru komnir 20 laxar á land í gær, sá stærsti 17 Allt til veiðanna á einum stað símar 22275 og 25222 opið á iaugardögum frá kl. 9-12 OBÐ Hundaáhugafólk athugið Gullfiskabúðin verður með kynningu á Bento hundafóðrinu og öllu sem hundurinn þarfnast, á hundasýningu HRFÍ í íþróttahöllinni á Akureyri sunnudaginn 5. júlí HUNDAMATUR PAKKNINGAR í HENTUGUM STÆRÐUM Póstsendum um allt land, sími 91-11757 og símfax 91-26111 Flvolpar til sölu Einnig verða til sölu ættbókarfærðir enskir Springer Spaniel hvolpar undan Champion tíkinni Contessu og verðlaunahundinum Feorlig Shooting Star, sem verður á sýningunni. pund. Þar hafa menn verið að sjá fisk upp eftir allri á svo hann er greiniiega genginn upp. Á veiðisvæði Laxárfélagsins í Laxá í Aðaldal voru komnir 320 laxar á land í gær. Það er helm- ingi meira en í fyrra og þetta er vænn fiskur, mest á bilinu 10-20 pund. Þeir sem voru í ánni í gær voru með 9 og 10 laxa á stöng eft- ir morguninn. Ofar í ánni þar sem heitir Hraun er veiðikiúbbur 18 Dal- víkinga með hluta af ánni á leigu. Friðrik Friðriksson sparisjóðs- stjóri sagði að laxveiðin færi hægt og hljótt af stað, hins vegar væri ágæt silungsveiði. Þeir fiskar sem á land eru komnir hafa verið vænir og á veiðidegi fjölskyld- unnar sl. sunnudag fékk 10 ára sonur Friðriks, Kolbeinn, maríu- laxinn sinn sem reyndist vega 16 pund. Þurfti pabbi að hjálpa til við að landa honum. í Mýrarkvísl voru komnir sjö laxar á land sem að sögn Krist- jáns Jónssonar í Veiðifélaginu Fossum er mjög gott á þessum tíma. „Þetta hafa verið fallegir fiskar á bilinu 9-12 pund,“ sagði Kristján og kvaðst vera bjartsýnn á sumarið. Besta opnun í Selá í 5-6 ár Austur í Vopnafirði hefur verið skítakuldi eins og víðar á Norð- ur- og Austurlandi. Eiríkur Sveinsson læknir var að veiðum í Hofsá eftir að hafa tekið þátt í opnun Selár og þar áður Fnjóskár. Hann sagði að það hefði snjóað á þá í Selánni og í gærmorgun var hitinn ekki nema þrjár gráður. Vatnshitinn hefur verið nokkuð breytilegur, eða frá 3-11 gráður. „Opnunin í Selá var sú besta í 5-6 ár, við fengum 24 laxa frá laugardegi fram að hádegi á þriðjudag. Hann veiðist á öll veiðarfæri og þetta er vænn fiskur, meðalþyngdin tæp 12 pund. Byrjunin hefur ekki verið alveg eins góð hér í Hofsá, en hér eru komnir 20 laxar á land. Þetta er þó að glæðast og núna er ganga í ánni,“ sagði Eiríkur. Silungsveiðin er að hefjast og Fljótaáin er sögð full af fiski. Þar voru norrænir skíðagarpar á ferð í síðustu viku og fengu yfir 100 silunga á fjórum dögum. I Hörgá hefur veiðin farið rólega af stað en þó hefur orðið vart við nýrunninn fisk allt upp undir Bægisá. Menn hafa hins vegar lít- ið stundað ána svo veiðin er ekki orðin mikil. „Fiskurinn er farinn að renna upp og þetta brestur á um helg- ina, þá koma göngur," sagði Ein- ar Long í Versluninni Eyfjörð sem selur veiðileyfi í Hörgá, Fnjóská og Eyjafjarðará. Svip- aða sögu er að segja af Svarfaðar- dalsá, þar eru menn lítið farnir að veiða en að sögn Jóns Hall- dórssonar í Sportvík fer þetta að byrja. „Nú er stórstreymt og áin tær og fín svo hann hlýtur að þjóta upp næstu daga.“ -ÞH Sjálfsbjörg á Akureyri: Veiðileyfi fyrir félags- menn í Hrísatjöm - skemmtiferðir framundan á vegum félagsins Veiðiklúbburinn Afglapar á Dalvík, gefur Sjalfsbjörg nokkur veiðileyfi í Hrísatjörn á laugar- dögum og mánudögum, eins og undanfarin sumur. Hrísatjörn mun vera eini staðurinn á landinu þar sem fötluðum gefst kostur á að renna fyrir lax og silung af sérstakri bryggju og er fær fólki á hjólastólum. Veiðileyfin eru afgreidd á skrifstofu Sjálfbjargar á Akureyri. Nú munu Sjálfsbjargarfélagar vera búnir að fá heimsendan gíróseðil vegna félagsgjalda og eru þeir hvattir til þess að gera skil sem fyrst. Einnig er hægt að nota gíróseðilinn sem afsláttar- kort í yfir 30 fyrirtækjum, sem gefa félögum umtalsverðan afslátt af vörum og þjónustu. Laugardaginn 11. júlí verður farin skemmtiferð á Hofsós á vegum Sjálfbjargar og íþrótta- félagsins Akurs, þar sem einnig verða Sjálfsbjargarfélagar úr Reykjavík. Þar verður drukkið kaffi í boði Sjálfsbjargar á staðn- um og tekið þátt í kvöldvöku ásamt félögum úr Reykjavík og síðan gist þar um nóttina. í ágúst er einnig fyrirhuguð dagsferð í nágrenni Akureyrar. Nokkrir félagar hafa mikinn áhuga á að fara í veiðiferð fjöl- skyldunnar og verður farið í slíka ferð þegar veður og aðstæður leyfa. Farið verður í báðar þessar ferðir með stuttum fyrirvara. Þeir sem áhuga hafa á að taka þátt í einhverju af því sem er nefnt hér að framan, geta haft samband við skrifstofu Sjálfs- bjargar að Bjargi, leitað nánari upplýsinga og látið skrá sig. Skrifstofan er opin frá kl. 12.30- 16.00 og síminn er 26888. Félagar eru hvattir til þess að sýna sam- stöðu og hafa samband sem fyrst. Fréttatilkynning

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.