Dagur


Dagur - 03.07.1992, Qupperneq 8

Dagur - 03.07.1992, Qupperneq 8
8 - DAGUR - Föstudagur 3. júlí 1992 Skollaleikurinn fór fram yfir í Vaðlareit. Það fyrsta - og eina - sem heyrðist þegar börnin stigu úr rútunni var fossnið- ur. Áður en krakkarnir fengu að njóta útsýnisins var spiluð fyrir þau áhrifamikil tónlist. IMeð öll skilningarvit í lagi áttu krakkarnir að fara um víðan völl og finna orkubrautir! Saxófóntónar boðuðu að heim skyldi halda. Krakkarnir stigu - í blindni - upp í rútuna án þess að vita hvert ferðinni væri heitið. Um leið og bundið var fyrir augun á krökkunum máttu þau ekki mæla orð af vörum. Myndir: GT Sumarskóli á Akureyri: „Börnin öðlast aðra sýn á sköpunarmættmum í sjálfum sér“ - segir Örn Ingi „Sumarskóli hefur þann töfra- mátt að geta leitt saman fólk víðs vegar að af landinu sem annars væri ekki mögulegt. Þá gefst einnig tækifæri til að vinna utandyra og einnig að nýta skólahúsnæði sem alls staðar stendur tómt á þessum árstíma. Út um alla Evrópu eru sumarskólar mjög vinsælir en þeir eru með ýmsu sniði og sumir þeirra líkjast því sem við erum að gera hér,“ segir Örn Ingi aðalhvatamaður og primus mótor Sumarskólans. Örn Ingi segir að hann finni hjá sér mikla þörf til að standa fyrir skóla af þessu tagi, en hann er mjög ánægður með þátttökuna þegar upp er staðið en í Sumar- skólanum nú eru um 30 börn sem koma víða að af landinu þó flest þeirra séu eðlilega frá Akureyri og nágrenni. Börnin velja sér ákveðið áhugasvið eða sérsvið sem metið er um 70% af því sem þau gera í Sumarskólanum en taka að öðru leyti þátt í öllu sem fram fer í skólanum. Skólanum er skipti í myndlist sem Örn Ingi hefur umsjón með, leiklist sem Ásta Arnardóttir hefur haft yfir- umsjón með og danslist sem Anna Ríkharðsdóttir hefur stjórnað auk þess sem þrír nemendur hafa verið í matar- gerðarlist og eldað ofan í hópinn með góðri aðstoð. Þessu námskeiði lýkur á morg- un og hefur þá staðið í 10 daga og þá verður opið hús í Glerárskóla frá kl. 10 til 22 þar sem boðið verður upp á leiksýningar og myndlistarsýningar. Einnig verð- ur þar selt kaffi og kanellummur á vægu verði. í dag verður svo hópurinn í göngugötunni með uppákomu. Stefnt er að öðru Sumarskólanámskeiði í sumar og hafa þegar borist beiðnir um þátttöku. Örn Ingi er spurður hvað börn- in bera úr býtum með þátttöku í skóla sem þessum? „Þau hafa örugglega aðra sýn á sköpunarmættinum í sjálfum sér sem er listaukandi í víðustu merkingu þess orðs og hér er hægt að fara miklu dýpra í ýmsa hluti en skólakerfið er fært um að gera því hér gefst meiri tími til sköpunar og tækifæri til að sinna hverjum og einum þátttakanda heldur en í almennum skóla þar sem einn kennari þarf að sinna allt að 30 nemendum á 45 mínút- um. Sum þessara barna eru „magabörn", þ.e. þau hafa tamið sér að liggja á gólfinu og teikna og eru mjög fær í blýantsteikn- ingu en kunna nánast ekki að mála en eru fljót að tileinka sér nýja sýn í myndsköpun.“ Nýtur Sumarskólinn einhverra styrkja? „Nei, ekki beinna styrkja en auðvitað er afnot af skólahús- næðinu hér í Glerárskóla óbeinn styrkur því aðeins er greitt fyrir beinan kostnað sem orsakast af dvölinni í skólanum eins og t.d. rafmagn og hita. Upphaflega stóð til að hafa skólann í íþrótta- skemmunni en það reyndist of kostnaðarsamt. Kjartan Höskuldsson frá Akureyri er einn af „kokkunum“ og var mjög hress með það hlut- verk sitt. „Maður fer að þora að gera meira heima í eldhúsinu og prófar að gefa fólkinu heima eitthvað af því sem eldað hefur verið hér. Ég hef líka verið að baka og þegar systir mín átti afmæli þá bakaði ég tertu, það var meiri háttar!“ Ferðalag - með bundið fyrir augun! Á mánudaginn fóru börnin í all- sérstætt ferðalag sem hófst með því að bundið var fyrir augun á þeim og þau síðan leidd upp í rútu sem ók sem leið lá austur í Allir með bundið fyrir augu og Vaðlareit. Þar fóru börnin út og voru leidd í einfaldri röð upp í reitinn en enginn mátti segja eitt einasta aukatekið orð allan tím- ann heldur urðu þau að skynja nálægð hvers annars og hafa til- finningu fyrir því hvert og eitt hvað væri að gerast í kringum þau. Eftir að bindið hafði verið tekið frá augunum áttu þau að upplifa samband sitt við náttúr- una í einrúmi. Hvaða áhrif hafði þetta sér- stæða ferðalag á Aldísi Ösp Sig- urjónsdóttur frá Akureyri? „Þetta var mjög skrýtin tilfinn- ing og ég vissi ekkert hvert við vorum að fara en vissi þó að við vorum einhvers staðar úti í nátt- úrunni og m.a. heyrði ég fossnið og datt í hug hvar við værum og það reyndist svo vera rétt. Maður hlustar svo mikið á t.d. fugla- sönginn þegar bundið er fyrir augun á manni og ýmis önnur hljóð.“ Ómar Ágústsson kemur úr Reykjavík. Til stóð að bróðir hans kæmi líka en áhugi hans fyr- ir karate varð lönguninni til dval- ar í Sumarskóla yfirsterkari. „Það hefur verið ofsa gaman hérna en myndlistin er best enda valdi ég það fag. Á ferðalaginu með bundið fyrir augun var ég að reyna að ímynda mér hvar ég væri og hverjir væru í kringum mig. Mér fannst fyrst eins og ég væri í Reykjavík en svo heyrði ég fossnið og fuglasöng.“ GG þögn átti að ríkja í rútunni.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.