Dagur - 03.07.1992, Side 11
Föstudagur 3. júlí 1992 - DAGUR - 11
HÉR & ÞAR
Spænski ferðamannahópurínn við Bestabæ á Húsavík með Helgurnar og bflstjórann lengst til hægri.
Húsavík:
Brosandi Spánverjar í rigningu
- „veðrið er aukaatriði“, segir Helga Jónsdóttir
„Þau eru vel búin og í góðum
skóm, veðrið er því aukaatriði
og þau eru ákaflega hrifín af
öllu sem þau sjá,“ sagði Helga
Jónsdóttir, fararstjóri með
hópi spænskra arkitekta sem
eru á vikuferð um Isiand.
í rigningunni á mánudag þegar
heimamenn á Húsavík voru að
leka niður af fýlu yfir veðurlag-
inu, fréttist af hópi brosandi
Spánverja í bænum. Þarna var
mættur rúmlega 30 manna hópur,
arkitektar frá Norður-Spáni,
sumir ásamt mökum sínum. Á
Húsavík tók Helga J. Stefáns-
dóttir á móti hópnum, sýndi hon-
um m.a. kirkjuna og Barna-
heimilið Bestabæ, og tók síðan á
móti öllum í léttan hádegisverð á
heimili sínu. Helga býr í einbýlis-
húsi, byggðu úr timbri, og fannst
hópnum ekki síst gaman að
skoða slíka byggingu.
Helga Jónsdóttir er búsett í
Burgos, gift spænskum arkitekt
sem er í félagi arkitekta er árlega
efnir til ferðalags á erlendar
slóðir. Að þessu sinni varð ísland
fyrir valinu, með Helgu sem túlk
og fararstjóra. Hópurinn kom
fyrst til Reykjavíkur og skoðaði
þar 11 byggingar. Sigling á
Jökulsárlóni og ferð á jökulinn
verður eftirminnileg. Það viðraði
heldur betur á hópinn á Akureyri
í gær en þegar myndin var tekin
Iceland Review er að gefa út
óvenjulegt upplýsingarit sem
líklegt er að verði gagnlegt fyr-
ir sölustarf Islendinga erlendis.
I raun er þetta meira en upp-
iýsingarit, því er líka ætlað að
verða skemmtilegur minjagrip-
ur um íslandsferð.
Hjá útgáfunni gengur þetta rit
undir nafninu „passinn": Eigandi
hans getur skráð þar nafn sitt og
númer og ef vill - látið stimpla
hann á viðkomustöðum á ferð
um landið - t.d. í hótelum, eða
álíka áningarstöðum.
Að öðru leyti eru í „passan-
um“ upplýsingar um helstu atriði
varðandi land og þjóð - á lipru
máli. Mynd er á hverri síðu.
■við Barnaheimilið Bestabæ á
Húsavík. En af slíkri heimsókn
má læra, að leita að stígvélunum
og brosa svo bara við næsta rign-
ingarskúr. jjvj
„Passinn“ er á tveimur tungumál-
um - ensku og þýsku: „Passport
to Iceland" og „Pass fúr Island“.
„Passinn" fæst í lausasölu hér-
lendis, en það vakir ekki síður
fyrir útgefanda að leggja sölu-
fólki í hendur nýstárleg, hand-
hæg og eiguleg kynningargögn,
sem hægt væri að rétta viðmæl-
endum, innifela í „ráðstefnu-
pökkum“ (hver gestur fengi sinn
passa), nota á kaupstefnum, og
að sjálfsögðu verða ferðaskrif-
stofum erlendis, sem selja
íslandsferðir, þetta handhæg og
ódýr kynningargögn," segir í
frétt frá útgefanda.
Innanlands kostar „passinn“
kr. 374,- með virðisaukaskatti.
NÝstárleg gögn fyrir
íslandskyrmmgu
Astand fjaHvega
Condition ot mountain tracks
-Vegir á skyggöum svæöum eru lokaölr allri
umferö þar til annaö veröur auglýst
Kort nr. 7
Geflö út 2. júli 1992
NMU kort varOur gtflO út 9. |ÚU
Map no. 7
Pubkshed July 2nd 1992
N*xt map wH bt pubHthtd July 9tn
Vegagerö rfkisins aimn/e/j91-631500 “CV
Public Roads Adminislration ormmnúmv<toutr»e) tMii
Nátturuverndarráö
Nature,ponservalion Council
Kortið sýnir ástand fjallvega á landinu 2. júlí og eru vegir á skyggðum svæðum lokaðir allri umferð
þar til annað verður auglýst. Frá síðasta korti hafa orðið töluverðar breytingar til batnaðar þrátt fyr-
ir slæma veðrið í síðustu viku og eru nú tiltölulega fáir fjallvegir ennþá lokaðir. Vert er að ítreka
það sem fram kom í frétt Dags í gær að einungis er fært upp á Sprengisandsleiö upp úr Bárðardal,
en enn sem komið er eru leiðirnar upp úr Eyjafírði og Skagafírði lokaðar. Næsta kort verður gefið
út 9. júlí nk.
Borðapantanir í síma 22200.
Þórsliöíii, Raufarhöfii
og nærsveitir
Kynning og sala húsgagna í
grunnskólanum á Pórshöíh
föstudaginn 5. júlí og laugardaginn
6. júlí frá kl. 10.00-22.00.
AUeSVKN
HÚSGAGNAVERSLUN
STRANDGÖTU 7 - 9 • AKUREYRI
SÍMAR 21790 & 21690
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
ÞÓRHILDUR JÓNSDÓTTIR,
Lyngholti 6, Akureyri,
lést þann 30. júní að Dvalarheimilinu Hlíð.
Margrét Ásgrímsdóttir, Benjamín Antonsson,
Heba Ásgrímsdóttir, Hallgrímur Skaptason,
Jón Ævar Asgrímsson, Jórunn Sæmundsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Eiginmaður minn og faðir okkar,
ÁRNI BJARNARSON,
bókaútgefandi,
Lyngholti 14 c, Akureyri,
lést mánudaginn 29. júní. Jarðsungið verður frá Akureyrar-
kirkju mánudaginn 6. júlí kl. 13.30.
Þeim er vildu minnast hans er bent á Náttúrulækningafélag
Akureyrar.
Gerður Sigmarsdóttir,
Ásdís Árnadóttir, Helga Árnadóttir,
Hörður Árnason, Haraldur Árnason.
HELGA JÓNSDÓTTIR
frá Litla-Hvammi, Eyjafjarðarsveit,
andaðist að Dvalarheimilinu Hlíð A-deild 29. júní sl.
Jarðarför hennar fer fram frá Munkaþverárkirkju mánudaglnn
6. júlí kl. 13.30.
Vandamenn.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og
jarðarför mannsins míns, föður okkar, stjúpföður, tengdaföður
og afa,
TRYGGVA SIGURÐSSONAR.
Aðalheiður Einarsdóttir,
Olafur Gunnþór Tryggvason,
Sigurþór Hólm Tryggvason, Aslaug Jónsdóttir,
Sigurður Hrafn Tryggvason, Guðbjörg Hofland Traustad.,
Ellen Sigríður Svavarsdóttir, Víking Eiríksson
og barnabörn.