Dagur - 09.07.1992, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Fimmtudagur 9. júlí 1992
Fréttir
Matvöruverslanir á norðausturhorni landsins:
Reksturinn á Kópaskeri gengur vel
- þyngri rekstur á Þórshöfn og Raufarhöfn
Verslunarrekstur hófst á Kópa-
skeri 14. mars sl. er Guðlaug
Traustadóttir opnaði Verslun-
ina Kópasker í húsnæði þrota-
bús Kaupfélags Norður-Þing-
eyinga en þá hafði engin mat-
vöruverslun verið starfrækt á
Kópaskeri í hartnær þrjá mán-
uði. Guðlaug er úr Reykjavík
og vann þar við skrifstofustörf.
Reksturinn hefur gengið mjög
vel að sögn Guðlaugar en einnig
er verslunin með lítilsháttar af
gjafavörum og leikföngum en
ekki fatnað, en Guðlaug telur að
fólk fari lengra til ef um fatakaup
sé að ræða. Guðlaug telur að
verðlagi sé haldið það vel niðri að
ekki svari kostnaði fyrir Kópa-
skersbúa og Öxfirðinga að leita
lengra til í verslunarleiðangur, en
auðvitað fari fólk annað ef það
þarf á þjónustu að halda sem
ekki er á staðnum og þá eru mat-
vörur stundum keyptar í leiðinni.
Fólk vill versla í sinni heima-
byggð eftir þá reynslu að vera án
verslunar í margar vikur. Eitt-
hvað hefur verið um það að
Raufarhafnarbúar versli á Kópa-
skeri sem auðvitað er að sama
skapi slæmt mál fyrir Verslunar-
félag Raufarhafnar.
Á Þórshöfn rekur Kaupfélag
Langnesinga einu matvöruversl-
un staðarins en félagið er einnig
með útibú á Bakkafirði. Um tíma
rak Kaupfélagið einnig verslun á
Raufarhöfn en hætti því fyrir ári
síðan. Kaupfélagið náði nauða-
samningum við lánadrottna sína
á síðasta ári en um 21% af lýstum
kröfum greiðast í þrennu lagi
fram á næsta ár. Að sögn Garð-
ars Halldórssonar kaupfélags-
stjóra hefur rekstur matvöru-
verslunarinnar gengið sæmilega,
en nokkuð er um það á sumrin að
fólk versli þegar það er á ferðinni
m.a. á Akureyri og versli þá t.d.
í Hagkaupum eða Nettó en
minna yfir vetrartímann. Aukn-
BUSETI
HUSNÆÐISSAMVINNUFELAG
í samræmi við tilmæli húsnæðismálastjórnar
leitar Húsnæðissamvinnufélagið Búseti á Akur-
eyri eftir mögulegum kaupum á eldri íbúðum eða
íbúðum í smíðum.
íbúðirnar skulu vera í sambýlishúsum, raðhúsum
eða fjölbýlishúsum.
Tilboðum, þar sem fram komi upplýsingar um stærð,
aldur, ástand og staðgreiðsluverð íbúðanna, sé skil-
að til skrifstofu félagsins, Skipagötu 14, fyrir 14. júlí
nk.
Félagið áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem
er eða hafna öllum.
Stjórn Búseta hsf.
• Sumarmót og
fjölskylduhátíð
Alþýðubandalagsins Norðurlandi eystra
dagana 10.-12. júlí 1992 í Aðaldal.
Mótsstaður er við Gistiheimilið í Grennd, gamla
barnaskólanhúsinu í Aðaldal hjá bænum Staðarhóli.
Ekið er af þjóðvegi 854, Staðarbraut skammt frá
Grenjaðarstað (milli Grenjaðarstaðar og Laxárvirkj-
unar).
Á staðnum er tjaldstæði, leiktæki fyrir börn, aðgang-
ur að snyrtingu og einnig er hægt að fá gistingu og
aðgang að eldhúsi í gistiheimilinu. Gistingu þarf að
panta í síma 43551.
Dagskrá:
Föstudagur, 10. júlí:
Safnast saman á mótsstað.
Laugardagur 11. júlí:
Fyrrihluta dags verða nokkrar af náttúruperlum S.-
Þing. skoðaðar í skipulagðri ferð undir leiðsögn
kunnugra. Sameiginleg grillveisla og kvöldvaka þar
á eftir.
Sunnudagur 12. júlí:
Gönguferð og náttúruskoðun um morguninn. Eftir-
miðdagurinn frjáls til ráðstöfunar.
Mjög æskilegt er að menn láti skrá sig til þátttöku hjá
Örlygi í síma 96-41305 eða 96-41497, sem jafn-
framt veitir allar nánari upplýsingar.
Allir félagar, stuðningsmenn og velunnarar
Alþýðubandalagsins velkomnir ásamt gest-
um sínum.
Stjórn kjördæmisráðs.
ing hefur orðið í sölu umfram
verðlagshækkanir þrátt fyrir að
álagning hafi verið lækkuð til að
halda í meiri viðskipti heima.
Garðar segir að verslanir í
smæstu sveitarfélögunum séu
þess ekki megnugar að standa í
verðstríði með gos, þar sem
útsöluverð sé jafnvel undir heild-
söluverði, enda bjóði staða fyrir-
tækisins ekki upp á það. Til Þórs-
hafnar koma oft „farandtuskusal-
ar“ eins og á aðra staði sömu
stærðar en þeir séu oft með há-
tískuvarning sem dreifbýlisversl-
anirnar geti ekki verið með og
því séu þeir ekki alltaf að taka
viðskipti frá heimamönnum.
Á Raufarhöfn rekur Verslun-
arfélag Raufarhafnar einu versl-
unina, en hún hóf þar starfsemi
fyrir réttu ári síðan. Eigandinn,
Jón Eiður Jónsson, segir að
heimamenn mættu versla meira í
sinni heimabyggð en hann telur
að of stór hluti viðskiptanna sé
utan hennar. Fólk vilji gjarnan
hafa verslun á staðnum sem það
getur sótt í helstu nauðsynjar en
beinir oft stærri innkaupum
annað. Þeim sömu þætti óþægi-
legt að þurfa að sækja allar
mjólkurvörur til Húsavíkur eða
Akureyrar. Vörutaining var gerð
eftir hálft ár hjá Verslunarfélag-
inu og af niðurstöðum hennar
ræðst hver framtíð matvöruversl-
unar á Raufarhöfn verður. GG
Ljósvetningabúð:
Baldvin Kr. Bald-
vinsson með ein-
söngstónleika
Baldvin Kr. Baldvinsson baritón
í Torfunesi í Ljósavatnshreppi
verður með sína fyrstu ein-
söngstónleika í Ljósvetninga-
búð nk. laugardagskvöld og
hefjast þeir kl. 21. Um undir-
leik á píanó sér Juliet Faulkner,
tónlistarkennari við Hafra-
lækjarskóla í Aðaldal.
Til stóð að Baldvin héldi tón-
leika á liðnu ári, en þeim varð að
aflýsa vegna veikinda.
Á efnisskránni eru innlend og
erlend sönglög, flest þeirra vel
þekkt. Meðal höfunda íslensku
Íaganna eru Sigvaldi Kaldalóns,
Sigfús Halldórsson og Ingi T.
Lárusson. Þá mun Baldvin m.a,
syngja ensk og ítölsk sönglög.
Eins og áður segir eru tón-
leikarnir á laugardagskvöldið
fyrstu einsöngstónleikar
Baldvins, en hann hefur oft sung-
ið einsöng með kórum, við jarð-
arfarir og önnur tækifæri. óþh
Er hann að hvessa?
Mynd: Benni
Landssamband smábátaeigenda:
Mun meiri þorskveiði
en Hafrannsókna-
stofnun gefur upp
Smábátaeigendur halda því
fram að mun meiri þorskur
hafí verið veiddur á undan-
förnum árum en tölur Haf-
rannsóknastofnunar gefa upp.
í samanburði á töflum stofnun-
arinnar og útflutningsskýrslum
fyrir árin 1989 til 1991, sem
Landssamband smábátaeigenda
hefur látið gera kemur fram að
samkvæmt útflutningsskýrsl-
um hafí verið landað rúmum
70 þúsund tonnum af níu til
fjórtán ára þorski vegna
útfluttra saltfískafurða á veg-
um SIF á framangreindu tíma-
bili. Mismunur útflutnings-
skýrslna á saltfíski og gefínna
upplýsinga Hafrannsókna-
stofnunar sé því um 35 þúsund
tonn eða rétt um 100%.
í frétt frá Landssambandi
smábátaeigenda segir að við
stærðarflokkun á saltfiski verði
að taka tillit til krafna kaupenda
um útlit þannig að ekki verði hjá
þvf komist að fiskurinn standi
ákveðna vigt upp úr sjó svo unnt
sé að framleiða viðkomandi
gæðaflokka. Sem dæmi er tekið
að lágmarksþyngd hvers saltfisks
vegna krafna um yfirvigt sé 2,8
kíló þannig að lágmarksþyngd
þorsks úr sjó verði að vera 7,1
kíló til að sleppa í þessa fram-
leiðslu. Því verði mismunurinn á
töflum Hafrannsóknastofnunar
er sýna landaðan þorsk á aldrin-
um 9 til 14 ára og útflutnings-
skýrslum SÍF 29 þúsund tonn.
Raunverulegur afli sem þurfi til
vinnslu í þessa tvo stærðarflokka
á saltfiski sé því 83% meiri en
töflur Hafrannsóknastofnunar
segja til um. Til viðbótar því seg-
ir að til að komast í þyngsta flokk
saltfiskflaka þurfi lágmarksþyngd
fisksins upp úr sjó að vera rúm
átta kíló og á árunum 1989 til
1991 hafi verið flutt út 730 tonn
af saltfiski af þessari þyngd, sem
þýði 28 þúsund tonn úr sjó.
Vegna annarra stærðarflokka er
fluttir voru út af saltfiski á sama
tímabili hafi þurft 3.088 tonn af
fiski úr sjó. Alls hafi því þurft að
landa rúmum 70 þúsund tonnum
af þorski til þess að skapa þá
framleiðslu á saltfiski sem
útflutningsskýrslur Sölusamtaka
íslenskra fiskframleiðenda sýna.
í frétt Landssambands smá-
bátaeigenda er einnig að finna
áætlum um hráefnisþörf vegna
annarrar fiskvinnslu á níu til
fjórtán ára þorski og bent á að
þrátt fyrir varfærni í áætlanagerð
megi gera ráð fyrir að alls hafi
verið Iandað rúmum 100 þúsund
tonnum af þorski á framangreindu
aldursbili á árunum 1989 til 1991
í stað 34,980 tonna sem Hafrann-
sóknastofnun gefur upp. Mis-
munurinn sé því um 65 þúsund
tonn og skekkjan nálgist 200%
að áliti forsvarsmanna Lands-
sambands smábátaeigenda. ÞI
Kópasker:
Ný vatnsveita á næsta ári
Á næsta ári er gert ráð fyrir að
ný vatnsveita fyrir Kópasker
verði stærsta verkefni Öxar-
fjarðarhrepps. Nú liggja fyrir
frumathuganir á þeim tveim
stöðum sem taldir eru koma til
greina fyrir veituna en það eru
Klapparós og Þverlækur við
Efrihóla. Á fundi hrepps-
nefndar Öxarfjarðarhrepps í
dag verður vatnsveitumálið á
dagskrá.
Við athugun á Klapparósi og
Þverlæk hefur Öxarfjarðarhrepp-
ur notið faglegra ráðlegginga
Þórólfs Hafstað, jarðfræðings á
Orkustofnun, og Tækniþjónust-
an á Húsavík hefur reiknað út
kostnaðarhliðina. Samkvæmt
fy rirliggj andi útreikningum er
talið að vatnstaka við Efrihóla og
röralagning þaðan kosti um 28
milljónir króna. Á móti kemur
að þar gæti verið um sírennsli að
ræða. Vatnstaka í Klapparósi og
lagning þaðan er talin kosta um
14 milljónir króna, en sá kostur
krefst dælubúnaðar.
Brýnt er að taka nýja vatns-
veitu á Kópaskeri sem fyrst í
notkun enda hefur komið í ljós
bæði útfelling og tæring í vatninu
sem fólk býr nú við. óþh