Dagur - 09.07.1992, Blaðsíða 12

Dagur - 09.07.1992, Blaðsíða 12
D&6UR Akureyri, fímmtudagur 9. júlí 1992 Greifínn í sumarskapi Opið virka daga frí kl. 11.30-23.30 - Um helgar frá kl. 12.00-23.30 Nxturheimsendring tril hl. 01.00 föstudags- og laugardagshvöld Lokað var fyrir vatn í Geislagötu og Strandgötu í gær vegna bilunar á vatns- æð á móts við Strandgötu 33. A innfelldu myndinni má sjá að vegna salttær- ingar hefur hálfraraldar gömul lögnin látið undan þrýstingi. Myndir: Gollí/GT Hálfraraldar gömul lögn í Strandgötu: Lét imdan þrýstingi - vegna tæringar af völdum seltu sjávar Hríseyjar- og Grímseyjarferjan: Vegagerðin mun sjá um rekstur og samningagerð ÖxarQarðarhreppur: Steinar tekínn við sveitar- stjóratarnnnum Steinar Harðarson tók við starfí sveitarstjóra Öxarfjarð- arhrepps 1. júlí sl., en hann hefur verið ráðinn í það í árs- leyfí Ingunnar St. Svavarsdótt- ur. Ingunn mun þó vinna með Steinari þennan mánuð og koma honum inn í starfið, en fer síðan ásamt manni sínum, Sigurði Halldórssyni, héraðslækni, til Svíþjóðar þar sem þau ætla að dvelja næsta árið. óþh Höfði á Húsa- vík kaupir Kristbjörgu ÞH Höfði hf. á Húsavík hefur keypt Kristbjörgu ÞH-44 af útgerðarfyrirtækinu Korra hf. á Húsavík. Kristbjörg er 50 brúttórúmlesta eikarbátur með 503 ha caterpillar aðalvél, smíðaður í Stykkishólmi 1975. Með bátnum fylgir 10 tonna kvóti. Kaupverð bátsins er 23,5 milljónir króna. Báturinn stundar rækjuveiðar og verður gerður út á þær veiðar fyrst um sinn af hinum nýju eigendum sínum. Áhöfn verður sama og áður og skipstjóri er Heiðar Olgeirsson. Höfði á fyrir rækju- togarann Júlíus Havsteen og rek- ur auk þess veiðarfæragerð. IM Dræm veiði á úthafskarfa Nokkur skip hafa að undan- förnu verið við veiðar á úthafs- karfa suðvestur af landinu en aflabrögð hafa verið heldur treg. Skipin eru að veiðum utan við 200 mílurnar suðvestur af land- inu, allt upp í 450-500 mílur frá landi. Mánabergið frá Ólafsfirði lagði af stað 19. júní og er vænt- anlegt í næstu viku. Veiðin hefur verið misjöfn, sæmilega hefur afl- ast á köflum en lítið veiðst á milli. Víðir EA hefur verið við veiðar um 450 mílur suðvestur af Reykjanesi og gengið treglega. JHB Unglingalandsmót UMFI verð- ur sett á Dalvík nk. föstudags- kvöld kl. 19.30 með hópgöngu íþróttamanna og því lýkur kl. 16.00 á sunnudag. Keppendur sem eru 16 ára og yngri eru vel á annað þúsund og er yngsti þátttakandinn aðeins 8 ára. Keppendur í kvennaknatt- spyrnu og sundi eru þó allt að 17 ára og er þar farið eftir regl- um viðkomandi sérsambanda. Fjölmennar sveitir eru frá Norðurlandi og einnig vekur Lokað var fyrir vatn í einni af aðalvatnsæðum Akureyrar í gærmorgun vegna bilunar sem upp kom í síðustu viku. Vatns- laust var í húsum við Strand- götu og Geislagötu vegna lok- unarinnar en viðgerðin stóð yfír til hádegis í gær. Að sögn Guðjóns Guðbjartssonar verk- stjóra bilaði æðin vegna þrýst- ings og salttæringar en lögnin á þessum hluta vatnsæðarinnar er um hálfraraldar gömul. Vatnsæðin liggur um Strand- götu og kom bilunin upp á móts við hús nr. 33 í liðinni viku. Vinnuhópur frá Vatnsveitu Akureyrar hófst handa við við- gerð æðarinnar í gærmorgun. Lokað var fyrir vatn í sumum húsum við Strandgötu og Geisla- götu í tæpar tvær klukkustundir en lokar sem eru víða á aðal- vatnsæðum bæjarins koma í veg fyrir að vatnslaust verði í stærri bæjarhlutum. Viðgerðin gekk athygli góð þátttaka Vestfírð- inga. Keppt er í átta greinum. Sund- keppnin fer fram í sundlauginni að Þelamörk; hestaíþróttir og golf í Svarfaðardal; borðtennis og glíma í íþróttahúsinu á Dalvík; skák í skíðaskálanum Brekkuseli á Dalvík; knattspyrna á Dalvík, Árskógsströnd og á laugardeginum í Hrísey auk fyrr- nefndra staða og frjálsar íþróttir á nýjunt íþróttavelli á Dalvík. greiðlega og var henni lokið um hádegi. Gert var við lögnina með plastlögn sem er bráðabirgða- lausn þar til lögnin verður öll endurnýjuð. Að sögn Franz Árnasonar hita- og vatnsveitustjóra eru að meðal- tali tvær bilanir á viku í vatnsæða- kerfi bæjarins en yfirleitt verða þær á heimtaugum. Aðalæðin sem gert var við í gær liggur um Strandgötu og hafa vestari hluti og eystri hluti hennar verið endurnýjaðir. Lögnin sem liggur frá Glerárgötu og niður að Hjalt- eyrargötu er hins vegar á bilinu 50-60 ára gömul að sögn Franz Árnasonar. Bilunin varð á lögn- inni í elsta hluta æðarinnar sem lét undan þrýstingi eftir tæringu af völdum sjávarseltu undir Strandgötu í meira en hálfa öld. Franz Árnason segir að beðið sé eftir því að endurnýjun á lögn- inni komist á fjárhagsáætlun bæjarins. GT Þetta íþróttamót sem haldið er af UMSE er það fyrsta sinnar tegundar en kveikjan að því var Meistaramót íslands í frjálsum íþróttum 14 ára og yngri sem haldið var á Akureyri sl. sumar og tilgangurinn er sá að ná til sem flestra ungmennafélaga og veita þeim inöguleika á að kynnast og þroska félagsandann og kynnast keppendum í öðrum íþrótta- greinum. Eyfirsku sparisjóðirnir gefa bikara til þess sérsambands eða Aukafjárveiting aö upphæð 7 milljónir króna sem greiðast áttu til reksturs Hríseyjar- og Grímseyjarferjunnar árið 1991 hefur verið innt af hendi en af hálfu Fjármálaráðuneytisins hafði því verið lýst yfír að þessi upphæð yrði ekki greidd fyrr en séð yrði hvernig þessi rekst- ur yrði í framtíðinni. í Samgöngu- og Fjármálaráðu- neytum hefur verið starfandi vinnuhópur sem hefur skilað áliti sínu til Halldórs Blöndal sam- gönguráðherra og Friðriks Sophussonar fjármálaráðherra. Þar var gert ráð fyrir að stofnað verði sérstakt rekstrarfélag sem heimamenn, Hríseyingar og Grímseyingar, stæðu alfarið að og ættu en hins vegar yrði eignar- haldsfélag þar sem ríkisvaldið ætti meirihluta. „Ákveðið hefur verið að umsýsla ferjumála fari til Vega- gerðarinnar sem verður hvorki eignar né rekstraraðili heldur haldi utan um reksturinn, sjái um alla samningagerð sem nauðsyn- leg er, sjái um aðhald með kostn- aði og þjónustu" segir Þórhallur Jósepsson deildarstjóri í Sam- gönguráðuneytinu. „Ef stofnun þessara tveggja félaga, eignarhaldsfélags og rekstrarfélags, verður að veru- leika mun Vegagerðin semja við eignarhaldsfélagið um afnot af ferjunum og semja jafnframt við rekstrarfélagið um að annast rekstur, viðhald og þá þjónustu Lögreglan á Húsavík tók upp þrjú net si. mánudagskvöld. Netunum hafði verið lagt í sjóinn undan bakkanum sunn- an Húsavíkurhafnar. Netin voru ómerkt og hefur eigandi þeirra ekki fundist. Lögreglan tók netin í sína vörslu en í þeim voru nokkrir silungstittir, þorskar og einn lax. Bannað er að net liggi í sjó á þessum tíma, eða frá föstudags- kvöldi til þriðjudags. Þar að auki er skylt að merkja slíkar neta- lagnir. félags sem flesta verðlaunapen- inga hlýtur í hverri keppnisgrein og þrír efstu í hverri grein fá verð- laun. Allir þátttakendur fá sér- staka viðurkenningu auk lykla- kippu með landsmótsmerkinu á. Heiðurgestir mótsins eru sr. Pétur Þórarinsson í Laufási og kona hans Ingibjörg S. Sigur- laugsdóttir og einnig mun Ingi Björn Albertsson, formaður íþróttanefndar ríkisins, heiðra mótið með nærveru sinni. GG sem veitt yrði á skipunum. Að öðru leyti yrði þetta ekki tekið úr höndum heimamanna. Með því að hafa þetta innan Vegagerðarinnar verður meira svigrúm til að bregðast við breyttum aðstæðum en í dag þarf að fara í gegnum fjáraukalög ef slíkt á að ganga eftir. Einnig er sá möguleiki fyrir hendi að aðeins sé um eitt hlutafélag að ræða sem á skipið og þá semur Vegagerðin við það félag um alla þætti rekst- rarins eins og t.d. er á Breiða- firði.“ Talsmenn Vegagerðarinnar og Samgönguráðuneytisins munu fljótlega ræða við heimamenn um fyrirkomulag rekstrarins. „Vegir eru ekki lagðir nema eftir ítarlegt samráð við heima- menn, landeigendur o.fl. og svip- uð vinnubrögð verða viðhöfð í ferjumálinu. Leitað verði eftir sem mestri þjónustu með sem minnstum tilkostnaði" sagði Þór- hallur Jósepsson. Á síðasta ári voru 4929 farþeg- ar fluttir með ferjunni Sæfara og 56457 farþegar Sævari en á fyrstu fimm mánuðum þessa árs hefur farþegafjöldinn heldur aukist miðað við sama tímabil 1990 og 1991. Til samanburðar má geta þess að með Herjólfi fóru á síð- asta ári 44170 farþegar milli Þor- lákshafnar og Vestmannaeyja og fyrstu fimm mánuði þessa árs er farþegafjöldinn svipaður og sömu mánuði næstu tvö ár þar á undan. GG Lögreglunni var tilkynnt um netalögnina við fjöruna. Húsa- víkurbær á landið sem netalögnin lá fyrir og hægt er að sækja um leyfi til netaveiða til bæjaryfir- valda. Nokkrir aðilar hafa leyfi til veiða þarna, en verða að sjálf- sögðu að hlýta almennum lögum og reglum um slíkar veiðar. IM íbúðirnar við Huldugil á Akureyri Samið við Trétak hf. Samið hefur verið við Trétak hf. á Akureyri um að Ijúka smíði fjögurra íbúða við Huldugil fyrir húsnæðisnefnd Akureyrar en fyrirtækið átti lægsta tilboðið í verkið þegar það var boðið út fyrir nokkru. Fjölnismenn voru með íbúð- irnar í byggingu þegar fyrirtækið varð gjaldþrota í síðasta mánuði og höfðu þá lokið 30-40% af verkinu. Samkvæmt samningnum ber Trétaki að skila íbúðunum 15. febrúar nk. Fyrirtækið bauð 21.615.606 kr. í verkið en kostnaðaráætlun hljóðaði uppá 22.408.790 kr. JHB Unglingalandsmót UMFÍ á Dalvík: A aimað þúsund keppendur í 8 íþróttagreinum

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.