Dagur - 09.07.1992, Page 6
6 - DAGUR - Fimmtudagur 9. júlí 1992
Glade
islandske
sangere
AkureynJ Kirkekor der
„ et blandet kor n»d «
helvt hundrede medlem-
_ er d& sin ferste ud-
rdstU Koret skal ud
over Randers tdyeLkonc®r'
ter i Arhus, Silkeborg og
H<Under opholdet i Ran-
ders har de ca. 60 islasndm-
ge, korsangere samt œgtó-
feellor og bom, været rnd-
kvarteret privat med &t.
rANDERS - De bortfe-
re, der befandt sig pA
, HÁdhustorvet i g&r ved
t ilddagstid, havde mu-
líghed for at here glad,
l^ndak folkeaang aí
■Lkirkekor íra Ran-
vt nakui>«»)y P& Im
^^^VkureyrL
^■^TV-bavik- de Bun
-• txirKin.'sU.‘r.
|Bb_ * Hádhu
HHgtkgau." df
Vel heppnuð tónleikaferð Kórs Akureyrarkirkju
til Danmerkur:
Danir eru góðir tónleikagestir
Ohætt er að segja að Danmörk
hafi tekið vel á móti félögum í
Kór Akureyrarkirkju á söng-
ferð þeirra þar í landi um og
eftir mánaðamótin maí-júní.
Gestrisni Dananna var einstök
og móttökur allar hinar bestu.
Ekki sakaði að þeir sem
stjórna veðri og vindum voru í
góðu skapi og gerðu umgjörð
ferðarinnar hina ánægjuleg-
ustu.
Kórinn lagði upp í tónleika-
ferðina frá íslandi 29. maí og hélt
rakleiðis frá Kaupmannahöfn til
Randers á Jótlandi, sem er vina-
bær Akureyrar í Danmörku. Þar
gisti kórinn fyrstu nóttina á
gömlu og vinalegu hóteli, Hotel
Randers, og söng fyrstu tónleik-
ana að kvöldi sunnudagsins 31.
maí í Sct. Mortens kirkjunni í
Randers. Um morguninn þann
sama dag söng kórinn ásamt kór
kirkjunnar við messu. Tóri-
leikarnir voru mjög eftirminni-
legir og viðtökur allar hinar bestu
og létu tónleikagestir ánægju sína
í ljós í ríkum mæli.
Næstu tvær nætur var hópnurn
skipt niður á heimili í Randers og
fengu menn þá að reyna hvernig
Danir taka á móti gestum. Víðast
svignuðu borð undan krásum og
öl og snafs var ekki langt undan.
Víst er að margir kórfélaganna
munu minnast þessara daga í
Randers með sérstakri hlýju og
eflaust halda sambandi við marga
af gestgjöfunum.
Gamla konan tárfelldi
Frá Randers var förinni heitið til
Árósa, næststærstu borgar Dan-
merkur. Ætlunin var að gista í
sumarhúsum á tjaldsvæði inni í
borginni, en í Ijós kom að þau
voru engan veginn í samræmi við
þær lýsingar sem við höfðum
fengið af þeim og eftir fyrstu
nóttina fékk hópurinn inni á
Hrafnhildur Vigfúsdóttir er hér með Kjartan Atla Óskarsson á ströndinni í
Karlslunde, en sá stutti var næstyngstur í hópnum, aðeins 11 mánaða gamall.
Randers Amtsavis birti heilmikla grein um kórinn þann 3. júní, en daginn áður hafði blaðamaður og Ijósmyndari
blaðsins hitt kórfélaga þar sem þeir þáðu góðgjörðir hjá Keld Huttel, forseta borgarstjórnar Randers, í ráðhósi
borgarinnar, þar sem meðfylgjandi mynd af kórnum var tekin.
í Tívoli í Kaupmannahöfn á hvítasunnudag. Frá vinstri Hrefna Harðardóttir,
Fríða Jónsdóttir, Guðrún Jóhannesdóttir, Anna Stefánsdóttir og Björn
Steinar Sólbergsson.
í Árósum söng kórinn í Fredens kirke, sem er ekki mjög gamalt guðshós.
dýrðlegri sveitakrá skammt utan
við Árósa. í Árósum söng kórinn
tónleika í Fredens-kirkjunni að
kvöldi 2. júní og tókust þeir mjög
vel. Þriðju tónleikarnir voru síð-
an í Silkeborg, sem er vestur af
Árósum, um 40 mínútna keyrsla
frá Árósum. Þeir tónleikar voru
hápunktur ferðarinnar og að mati
margra kórfélaga þeir bestu.
Meðal tónleikagesta var öldruð
íslensk kona, sem hefur verið
búsett í Silkeborg í marga ára-
tugi. Hún hafði af tilviljun frétt af
tónleikunum og sagðist ekki hafa
séð eftir því. Þegar kórinn söng
alkunn ættjarðar- og þjóðlög
streymdu tár niður kinnar gömlu
konunnar.
Holmens kirkja
eftirminnileg
Til Sjálands hélt kórinn föstudag-
inn 5. júní og kom sér fyrir í
sumardvalaríbúðum í Karls-
lunde, skammt vestan við Kaup-
mannahöfn. Það kvöld tóku
nokkrir kórfélagar lagið fyrir
íslendinga búsetta í Kaupmanna-
höfn og nágrenni í Jónshúsi, en
kórinn hélt síðan tónleika daginn
eftir í Dyssegaardskirke í Heller-
up, sem er millahverfi í útjaðri
Kaupmannahafnar.
Síðasti dagskrárliðurinn í hinni
eiginlegu söngferð var síðan
söngur við íslendingamessu á
hvítasunnudag í sjálfri Holmens
Fjölbreyttar ferðir í boði hjá Ferðafélagi Akureyrar:
Áhugi íslendinga fvrir gönguferðum er að vakna
- segir Ragnhildur Bragadóttir, formaður ferðanefndar
Hið 56 ára gamla Ferðafélag
Akureyrar er hinn öflugasti
félagsskapur og í því eru skráð-
ir á fimmta hundrað félagar.
Ef til vill ber ekki svo mikið á
Ferðafélaginu, en þó er starf
þess umfangsmikið og til
marks um það eru 24 ferðir,
bæði langar og stuttar, í ferða-
áætlun yfirstandandi árs. Dag-
ur aflaði upplýsinga um félagið
hjá tveim af forsvarsmönnum
þess. Fyrir svörum urðu Sigurð-
ur Jónsson, formaður félagsins
og Ragnhildur Bragadóttir,
formaður ferðanefndar.
Vil sjá fleiri af yngri
kynslóðinni
„Ég fer alltof lítið í ferðir á veg-
um Ferðafélagsins, en þeim hefur
þó fjölgað undanfarin ár. Fyrir
mörgum árum síðan var ég í
Slysavarnafélaginu á Sauðár-
króki og fór með því í ferðir um
óbyggðir, en eftir að ég kom
hingað hef ég ekki farið í margar
slíkar ferðir. Þess í stað hef ég
unnið með öðrum hætti fyrir
Ferðafélagið," sagði Sigurður
Jónsson.
Hann sagði það útbreiddan
misskilning að Ferðafélag Akur-
eyrar væri aðeins fyrir eldra fólk.
„Mér finnst unga fólkið ekki
nógu duglegt að koma með
okkur, en á haustdögum ætlum
við að fara inn í skólana og kynna
félagið með myndum og öðru og
freista þess að fá krakkana með,“
sagði Sigurður.
Margs að gæta við gerð
ferðaáætlana
Hjá Ferðafélaginu eru starfandi
ýmsar nefndir, þ.á.m. ferðanefnd
og er allt starf hennar unnið í
sjálfboðavinnu. í hverju felst starf
hennar? „Það felst í því fyrst og
fremst að gera ferðaáætlanir á
haustin og síðan að skipuleggja
ferðirnar og sjá um að þær gangi
upp. Stjórn skrifstofu Ferða-
félagsins yfir sumarmánuðina er í
raun einnig í höndum ferða-
nefndar," sagði formaður
hennar, Ragnhildur Bragadóttir.
- Þetta er greinilega mikið
starf?
„Já, þetta er alltof mikið
starf,“ svaraði Ragnhildur hlæj-
andi. „Ég hef verið í Ferðafélag-
inu í ein fimmtán ár og í ferða-
nefnd þrjú síðustu ár og hafði
reyndar verið þar áður,“ bætti
hún við.
Hún segir að jafnan sé byrjað
að vinna í ferðaáætlun fyrir kom-
andi ár í október þannig að hún
birtist í árlegri ferðaáætlun
Ferðafélags íslands, sem kemur
út um áramót.
Hvað skyldi vera haft að leið-
arljósi við gerð ferðaáætlana?
Ragnhildur segir að tillit sé
tekið til hugmynda félagsmanna
og ávallt sé reynt að finna ein-
hverja nýja staði. „Það er margs
að gæta í þessu sambandi, til
dæmis það að gæta þess að í
gönguferðum séu vegalengdirnar
hæfilega langar.“
Hér eru hressir fjallahjólagarpar við
skála Ferðafélagsins í Laugafelli inn
af Eyjafirði. í Laugafelli er gistirými
fyrir 15 manns og yfir sumarið er þar
skálavörður. Mynd: Aöalsteinn Árnason.
Dreki austan í Dyngjufjöllum var
byggður á árunum 1968 og 1969 og
tckur hann 20 manns í gistingu.
Mynd: Ingimar Árnason.
í Þorsteinsskála ■ Herðubreiðariind-
um, sem byggður var 1958-1960, ei
skálavörður yfir sumarið. Skálinn
rúmar 30 manns og þar er oft margt
um manninn, enda Herðubreiðar-
lindir vinsæll ferðamannastaður.
Mynd: Páll Jónsson
Lambi á Glerárdal er minnstur skála
Ferðafélags Akureyrar og tekur 6
manns í gistingu. Skálinn hefur ver-
ið á Glerárdal síðan 1975.
Mynd: Ingvar Teitsson.
Nýjasti skáli Ferðafélags Akureyrai
er í Bræðrafelli sunnan í Kollóltu
dyngju. Hann tekur 12 manns í gisl
■ngu. Mynd: Kari Kristjansson