Dagur - 09.07.1992, Síða 7
Fimmtudagur 9. júií 1992 - DAGUR - 7
Texti og myndir:
Óskar Þór Halldórsson.
kirkju í Kaupmannahöfn. Pessi
kirkja er engin meðalsmíði og
óneitanlega er eftirminnilegt að
hafa sungið þar. Nefna má að
ekki óþekktari kona en Margrét
Danadrottning gekk í það heilaga
með Henrik prinsi í þessari
kirkju fyrir 25 árum síðan. (Silf-
urbrúðkaupsins var reyndar
minnst um miðjan júni sl. í
Kaupmannahöfn).
Eflir félagsandann og
styrkir tengslin
Nokkrir kórfélaganna fóru aftur
heim til Fróns að kvöldi hvíta-
sunnudags, en margir dvöldu í
viku til viðbótar í góðu yfirlæti í
Karlslunde, sleiktu sólskinið eða
sýndu sig og sáu aðra inni í Kaup-
mannahöfn. Sumir fóru niður til
Þýskalands og enn aðrir yfir til
Svíaríkis.
Þessi kórferð var í alla staði vel
heppnuð og hún sýndi og sannaði
hversu mikilvægt það er fyrir fé-
lagasamtök eins og kóra að
bregða sér út fyrir landssteinana
annað slagið. Slíkar ferðir efla
félagsandann og styrkja tengslin.
Um það held ég að félagar í Kór
Akureyrarkirkju geti allir verið
sammála að lokinni ógleyman-
legri tónleikaferð til Danmerkur.
Silkeborg kirke. Að flestra mati
voru tónleikar kórsins í þessari
kirkju þeir bestu í ferðinni, enda
afburðagott að syngja í henni.
Björn Steinar Sólbergsson og Hrefna Harðardóttir ásanit Sólbjörgu dóttur
þeirra snæða hádegisverð við vegg Sct. Mortens kirkjunnar í Randers.
Nokkrir kórfélaga fyrir utan ráðhúsið í Randers. Fánar Danmerkur og
íslands við hún.
„Kröftug íslensk tónlistarhefð11
Gagnrýnandi staðarblaðsins í
Silkebórg kom á tónleika
kórsins í Silkehorg og sam-
kvæmt gagnrýninni sem hann
síðan skrifaði í blaðið var
hann mjög hrifinn. Grípum
niður í lauslega þýðingu á
hluta gagnrýninnar:
„Kórinn hafði góðan og þétt-
an tón og flutningur hans, þar
með talinn textaframburður og
biæbrigði, gaf til kynna tónlist-
arhefð, sem er töluvert frá-
brugðin því sem danskir kórar
fást við. Stjórnandi kórsins,
sem var stofnaður árið 1945,
heitir Björn Steinar Sólbergs-
son. Með einföldum en áhrifa-
ríkum hætti fékk Björn kórinn
til að túlka tónlistina þannig að
orkaði sterkt á áheyrendur.
Kórinn var mjög samtaka um
að enda hendingar og gilti það
bæði um samhljóðana t og s.
Á fyrri hluta tónleikanna var
áhersla lögð á íslenska kirkju-
tónlist (með örfáum undantekn-
ingum), sem var öll samin á
þessari öld.
Það sýndi sig á tónleikunum
að fjölbreytni er ekki aðeins
fólgin í vali mismunandi verka á
efnisskrá, heldur einnig með
því að skipta kórnum upp í
minni blandaða kóra, kvenna-
og karlakóra. í einu laginu, þar
sem kórnum var skipt upp,
fengu djúpir lokatónar bass-
anna hár viðstaddra til að rísa -
stórkostlegt!
Ein af áðurnefndum undan-
tekningum frá íslenskri kirkju-
tónlist var snoturt lag Ulriks
Rasmussens, Lille morgensang,
scm var áhrifamikil tónsmíð.
Það sama má segja um flutning-
inn á Locus iste eftir Bruckner,
þar sem kórinn beitti „cresc-
endo" af næmni og í heild var
verkið vel flutt.
Eftir hlé flutti kórinn verald-
lega íslenska tónlist. Af ættjarð-
arlögunum er mér efst í huga
Land míns föður.
í þjóðlögunum voru margir
fallcgir kórkaflar með óvæntum
„uppákomum". í útsetningu
nokkurra þeirra brá fyrir
skemmtilegum léttleika og
kímni. Gott dæmi um það var
Gagnrýni danska gagnrýnandans
Silkcborg kirke.
Grafskrift eftir Hjálmar H.
Ragnarsson, sem var skcmmti-
legt lokaverk tónleikanna. Eftir
uppklapp endurtók kórinn Lille
morgensang cftir Ulrik Rasmus-
scn, sem var meðal tónleika-
gesta.
Til aö kóróna tónleikana tók
um tónleika Kórs Akureyrarkirkju í
kórinn lagiö fyrir tónleikagesti
fyrir utan kirkjuna og mér skilst
að í texta þess sé greint frá
hrafni sem flaug út um víðan
völl í leit að æti. Að vfsu var
erfitt að skilja þennan texta, en
engu að sfður var þetta mjög
skemmtilegt."
Vaxandi vinsældir
gönguferða
Ragnhildur segir greinilegt að
vinsældir gönguferða hjá Ferða-
félaginu fari vaxandi. „Ætli það
sé ekki vegna þess að áhugi
íslendinga fyrir gönguferðum er
að vakna,“ segir hún. Rétt er að
geta þess í þessu sambandi að í
fyrra merktu félagar í Ferðafé-
laginu gönguleið upp á Súlur og í
sumar er ætlunin að merkja leið
fram á Glerárdal. Þetta verkefni
er styrkt af Akureyrarbæ.
Ferðum Ferðafélagsins má í
grófum dráttum skipta í göngu-
og ökuferðir. Gönguferðirnar
eru yfirleitt styttri, en þó er allur
gangur á því. Að sögn Ragnhild-
ar er eldra fólk meira áberandi í
ökuferðunum, en margir hinna
eldri láta sig heldur ekki vanta í
langar gönguferðir. Hún neitar
því ekki að gaman væri að sjá
fleiri af yngri kynslóðinni í ferð-
um Ferðafélags Akureyrar, en
segir að hafa verði í huga að unga
fólkið, sem áhuga hafi á útivist og
gönguferðum, starfi af krafti í
skátafélögunum. Þegar þettafólk
hætti að starfa með skátunum
komi það gjarnan í Ferðafélagið.
Kostnaði haldið í lágmarki
Þann 18. júlí nk. er á áætlun
Ferðafélags Akureyrar átta daga
sumarleyfisferð austur í Breið-
dal, Skaftafell og Lakagíga. Gist
verður í húsum, en félagið sér
sjálft um að útbúa morgun- og
kvöldverð. Ragnhildur segir að
trúlega sé Ferðafélag Akureyrar
eina ferðafélagið sem bjóði upp á
heimatilbúinn mat. „Þetta gerum
við vegna þess að oft þekkist fólk
ekki þegar það kemur í ferðirnar
og sameiginlegar máltíðir eru vel
til þess fallnar að hrista fólk sam-
an strax á fyrsta degi. En vissu-
lega er þetta mikil vinna og allt
unnið í sjálfboðavinnu,“ segir
Ragnhildur. Til að gefa hugmynd
um verðlag á slíkum sumarleyfis-
ferðum má nefna að áðurnefnd
ferð þann 18. júlí nk. kostar 26
þúsund krónur fyrir félagsmenn,
en 28.400 fyrir utanfélagsfólk
(matur innifalinn). „Við reynum
að halda kostnaði í lágmarki og
miðað er við það að ferðirnar
borgi sig. Áætlanirnar miðast við
að ekki sé gróði af þeim.“
Ferðafélagið á fimm skála
í óbyggðum
Ferðafélagið á nú og rekur fimm
sæluhús í óbyggðum. Fyrstan
skal telja skálann í Laugafelli,
sem byggður var á árunum 1948
til 1950. Skálinn er hitaður upp
með laugarvatni og þar er gisti-
rými fyrir 15 manns. Laugafell
dregur nafn sitt af heitum laugum
sem eru á svæðinu. Drekaskáli
austan í Dyngjufjöllum var
byggður árin 1968 og 1969 og tek-
ur hann 20 manns í gistingu.
Lambi í Glerárdal var keyptur
árið 1974 og fluttur inn í dalinn
1975. Skálinn rúmar 6 manns til
gistingar. Þorsteinsskáli í Herðu-
breiðarlindum var byggður árin
1958 til 1960 og gistirýnú er þar
fyrir 30 manns. Fimmti skálinn er
Bræðrafell, sem er sunnan í Koll-
óttudyngju og tekur 12 manns í
gistingu.
Eins og greint var frá í Degi í
síðustu viku er stefnt að því að
koma upp sjötta skála Ferðafé-
lagsins í Dyngjufjalladal, sem er
skammt fyrir vestan Öskju.
í júlí og ágúst eru skálaverðir í
Laugafelli og sömuleiðis í Dreka
og Þorsteinsskála í Herðubreið-
arlindum í samvinnu við Náttúru-
verndarráð.
Rekstur skála Ferðafélagsins
er fjármagnaður með gisti- og
daggjöldum. Þá greiða félagar í
Ferðafélaginu, sem eru um 430
talsins, 3.500 kr„ árgjald og inni-
falið í því er árbók Ferðafélags
íslands og Ferðir, sem Ferðafélag
Akureyrar gefur út.
Allir velkomnir í félagið
Ragnhildur segist eindregið
hvetja alla þá, sem kynnu að hafa
velt fyrir sér að ganga í Ferðafé-
lag Akureyrar, að gera nú alvöru
úr því. Félagið er með skrifstofu
að Strandgötu 23 á Akureyri og
yfir sumarmánuðina er hún opin
virka daga frá kl. 16 til 19. Þá er
bara að drífa sig af stað! óþh
Ferðaáætlun fram
*
í
Eins og meðfylgjandi listi ber
með sér eru margar spennandi
ferðir í ferðaáætlun Feröafélags
Akureyrar fram í september.
Allar ferðir félagsins er auglýst-
ar í götuauglýsingum og í Degi
og Dagskránni og því auðvelt
fyrir fólk að fylgjast með. Vert
er að hafa í huga að panta í
ferðirnar með góðum fyrirvara,
þar sem stundum getur þurft að
takmarka þátttöku.
10.-16. júlí Hornstrandir,
Reykjaljörður norður.
18.-25. júlí Breiðdalur, Skafta-
fell, Lakagígar.
23.-26. júlí Askja, Jónsskarð,
Suðurárbotnar, Svartárkot.
31.júlí-3.ág. Sprengisandur,
Nýidalur, Gæsavatnaleið,
Askja, Herðubreiðarlindir.
5.-9. ágúst Borgarfjörður eystri,
Loðniundarljörður.
14.-16. ágúst Herðubreiðarlind-
ir, Bræðrafell.
22.-23. ágúst Villingadalur,
Nýjabæjarfjall, Austurdalur.
29. ágúst Kambsskarð.
5.-6. sept. Mývatnssveit.
I