Dagur - 16.07.1992, Síða 4
4 - DAGUR - Fimmtudagur 16. júlí 1992
ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF.
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31.
PÓSTHÓLF 58. AKUREYRI. SÍMI: 96-24222
ÁSKRIFT KR. 1200 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ KR. 110
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMNETRA 765 KR.
RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.)
FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
BLAÐAMENN:
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 96-41585).
JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON. JÓN HAUKUR BRYNJÓLFSSON (íþróttir).
ÓLI G. JÓHANNSSON, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON.
SKÚLI BJÖRN GUNNARSSON (Sauöárkróki vs. 95-35960. fax 95-36130).
STEFÁN SÆMUNDSSON. ÞÓRÐUR INGIMARSSON
LJÓSMYNDARI: KJARTAN ÞORBJÖRNSSON
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON. ÞRÖSTUR HARALDSSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON
DREIFINGARSTJÓRI:
HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR. HEIMASÍMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL
PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF.
SÍMFAX: 96-27639
Úrræðaleysi
í sjávarútvegi
Vandi fiskvinnslunnar á Bíldudal hefur verið í fréttum að
undanförnu. Fiskvinnslufyrirtækið á staðnum er komið í
þrot en engin leið virðist lengur fær önnur en taka það til
gjaldþrotaskipta. Útvegsfyrirtæki staðarins er heldur bet-
ur á vegi statt og eygja menn þá leið að útgerð togarans
taki eignir þrotabús fiskvinnslunnar á leigu - að minnsta
kosti um einhvern tíma - og á þann hátt verði unnt að
halda uppi atvinnustarfsemi í plássinu. Vandi fiskvinnsl-
unnar á Bíldudal er ekki einstakt eða einangrað fyrirbæri.
Vandamál af þessum toga hafa hrjáð ýmis útgerðarfyrir-
tæki og byggðarlög sem byggja tilveru sína að mestu
leyti á öflun og úrvinnslu sjávarfangs. Vandi sjávarút-
vegsins er þarna á ferðinni í heild sinni því ekkert lát virð-
ist vera á erfiðleikum í rekstri fyrirtækja er framleiða þær
afurðir sem eru undirstaða útflutningsverðmæta þjóðar-
innar og lífsgæða landsmanna.
Á sama tíma og fjölmiðlar flytja fréttir af vanda Bíld-
dælinga birta þeir einnig niðurstöður úr milliuppgjöri sjö
meðalstórra fiskvinnslufyrirtækja. í milliuppgjörinu kem-
ur fram að heildartekjur þessara fyrirtækja hafa verið
2.057 milljónir króna en heildarútgjöld 2.218 milljónir.
Tap þessara sjö fiskvinnslufyrirtækja er því samkvæmt
þessum tölum 161 milljón króna eða 7,8% af tekjum á
fyrstu fjórum mánuðum þessa árs. í því sambandi er rétt
að rifja upp að Þjóðhagsstofnun taldi halla á botnfisk-
vinnslunni vera um 8% í útreikningum er miðuðust við
stöðuna í miðjum febrúar. Sýnt er að þar skeikar litlu.
Við þessar upplýsingar má bæta að milliuppgjörið sýnir
rekstrarafkomu nokkuð öflugra fiskvinnslufyrirtækja. Ef
hin - þau verr stæðu - væru einnig tekin með í reikninginn
mætti búast við allt að 11 til 12% halla á fiskvinnslunni í
heild eða upphæð sem nemur þremur og hálfum til fjór-
um milljörðum á ári. Ef litið er á afkomutölur útgerðar þá
kemur í ljós að fiskveiðar eru einnig reknar með tapi og
því er hallarekstur fiskvinnslunnar ekki spurning um
tekjuskiptingu í sjávarútvegi. Heildartekjurnar duga ein-
faldlega ekki fyrir kostnaði. Til viðbótar hinum mikla
rekstrarhalla er tímabil samdráttar í nánd vegna við-
kvæms ástands þorskstofnsins. Enginn veit með neinni
vissu hvað aflast muni á næstu árum og enginn veit held-
ur á þessari stundu hvort tekst að komast fyrir rekstrar-
vanda sjávarútvegsins eins og hann birtist í neikvæðum
afkomutölum og gjaldþrotum.
Öllum hlýtur þó að vera ljóst að þvílíkur hallarekstur
getur ekki átt sér stað til lengdar. Afleiðingar hans hafa
verið að koma í ljós - nú síðast á Bíldudal - og fátt bendir
til að fiskvinnslan þar verði síðasta fyrirtækið í sjávarút-
vegi sem lýst verður gjaldþrota. Ef fram fer sem horfir
munu erfiðleikarnir leggja fleiri fyrirtæki að velli á næstu
mánuðum ef ekkert verður að gert.
En hvað er til þá til ráða? Þessi spurning vefst fyrir
ráðamönnum þjóðarinnar, sem hafa oft lýst því yfir að
ekki verði gripið til aðgerða er létt geti rekstrarvanda
sjávarútvegsins. Sú spurning hlýtur einnig að vakna
hvort við getum tengst efnahagssamvinnu annarra þjóða
nánari böndum á meðan höfuðatvinnuvegur þjóðarinnar
býr við þau rekstrarskilyrði sem raun ber vitni. Þrátt fyrir
hagræðingaraðgerðir innan og á milli einstakra fyrirtækja
liggur ábyrgðin hjá stjórnvöldum öðrum fremur. í því
sambandi dugar þeim lítt að skamma forvera sína í ráð-
herrastólum fyrir aðgerðir til bjargar sjávarútveginum í
sínu eigin úrræðaleysi. ÞI
Frímerki
Meðferð
Sigurður H. Þorsteinsson
bréfa
Þann 17. febrúar síðastliðinn,
sendi ég bandarískum vini
mínum, Les Winick að nafni
bréf. Lesendur Dags kannast við
hann en ég skrifaði grein um ferð
hans um Norðurland, rétt áður
en ég hóf þætti mína í blaðinu í
fyrra.
Ég frímerkti bréfið með 25
frímerkjum með 1 króna Lóa og
einu skipamerki. Um daginn
fékk ég svo bréf frá honum og
stutta grein sem ég set hér milli
tilvísunarmerkja.
„Bandaríska póstþjónustan er
ill út í frímerkjasafnara. Þetta er
undarlegt þegar þess er gætt að
frímerkjasalan var rekin með 190
milljóna dollara gróða á síðasta
ári, frá söfnurum sem geyma frí-
merkin sín og nota þau ekki í
burðargjöld. Þetta er hærri upp-
hæð en nokkur önnur upphæð
hreins gróða hjá nokkurri deild
stofnunarinnar.
Frímerkjasafnarar fylla síður
frímerkjablaða með frásögnum
af því hversu illa er farið með
póstinn þeirra, af starfsmönnum
Póstþjónustunnar. Fyrsta dags
bréf fá ógildingu með penna á
frímerkin í stað stimpils. Sérstök
bréf fyrir safnara fá tvo til þrjá
stimpla. Blekinu er klesst út um
allt á minnafrímerkjum og svona
heldur síðan listi þessi áfram,
virðist endalaus.
Hér er fallegt bréf frá íslandi,
með 25 álímdum frímerkjum. Öll
þessi frímerki voru eðlilega og
fallega stimpluð á íslandi. Starfs-
menn Póststjórnarinnar á póst-
húsum í Bandaríkjunum hafa
gúmmístimpla með fjórum bein-
um línum sem eru kallaðar „Kill-
er Bars“, til þess að ógilda öll
óstimpluð frímerki áður en bréf-
in eru afhent ef stimplar vélanna
hafa misst af frímerkjunum.
Starfsmaður slíks pósthúss virðist
hafa „skemmt" sér vió að stimpla
á þetta umslag 14 slíkar stimplan-
ir. Hafi eitt einasta frímerkjanna
ekki verið stimplað, þá er að
minnsta kosti enginn möguleiki á
því að hægt væri að endurnota
íslensku frímerkin í Bandaríkj-
unum og hafa þannig fé út úr
bandarísku Póstþjónustunni,
slíkt hefði auðvitað ekki verið
hægt, en það stöðvaði ekki póst-
manninn."
Þannig hljómar grein Les
Winnick um bréfið sem ég sendi
honum. En komum nú að um-
slaginu sem var utan um bréf
hans til mín. Á því eru þrjú frí-
merki. Eitt þeirra er óskemmt af
póstmönnum. Það ber stimpil
„South Suburban IL“. Hann er
dagsettur 7. maí, 1992 og póst-
húsið er númer 604. Miðfrímerk-
ið fær eingöngu línustimpilinn,
sem er eyðilegging merkisins til
söfnunarnota. Þriðja frímerkið
fær síðan einhverjar svartar
klessur úr póststimpli, eða jafn-
vel af fingrum póstmannsins.
Einhvern veginn finnst mér að
við höfum oft kvartað sáran, sem
söfnum frímerkjum hér á landi,
yfir hvers konar vömmum og
skömmum af hálfu póstmanna og
um meðferð á umslögunum
okkar. Hér keyrir þó um
þverbak.
Þess má svo geta að lokum, að
Les hóf bréf sitt á þessum orðum:
„Kæri Siggi. Hérna er grein
sem þú getur notað. Ég vil ekki
fá þetta „stórkostlega“ umslag
aftur, en þakka þér fyrir að senda
það.“
Svo mörg voru þau orð.
Sigurður H. Þorsteinsson.
tSLANU
ISIANB
d’-trf yf
Bréfið sem undirritaður sendi Les Winick. Áður en bandaríska póstþjónustan komst yfír það var það sæmilega fal-
legt en starfsmaður hennar hefur augljóslega „skemmt“ sér við að eyðileggja frímerkin með svonefndum „Killer
Bars“.
Sig H. Thorsteinsson
P.O. BOX 18
510 Holmavík
1CELAND
Svarbréf Les Winick's ber þrjú frímerki. Aðeins eitt þeirra hlaut náð fyrir augum bandarísku póstmannanna.
Hin voru eyðilögð!
Verslunarmannahelgin:
Árleg fjölskylduhátíð í Bjarkarlundi
Ungmennafélagið Afturelding
í A.-Barðastrandarsýslu held-
ur hina árlegu fjölskylduhátíð í
Bjarkarlundi um verslunar-
mannahelgina.
Hljómsveitin Herramenn frá
Sauðárkróki, með Hörð G.
Ólafsson í broddi fylkingar, mun
halda uppi fjörinu á laugardags-
og sunnudagskvöld. Hljómsveit-
in Elísa mun hita upp fyrir
Herramenn á laugardagskvöld.
Á föstudagskvöld verður
diskótek fyrir þá sem taka helg-
ina snemma.
Alla helgina verður Karoke-
keppni, sem lýkur með krýningu
sigurvegara á sunnudagskvöld.
Fyrir yngri kynslóðina verður
boðið upp á leiki á daginn og
barnaball á sunnudaginn.
Nægilegt tjaldstæði er á svæð-
inu og er hreinlætisaðstaða til
fyrirmyndar. Stutt er í hesta- og
bátaleigu. Á Reykhólum er sund-
laug með heitum pottum og gufu-
baði. (Fréttatilkynning)