Dagur - 16.07.1992, Blaðsíða 13

Dagur - 16.07.1992, Blaðsíða 13
Fimmtudagur 16. júlí 1992 - DAGUR - 13 Lesendahornið Akureyri: Skringilegt bflastæði! Vegfarandi kom með þessa mynd á ritstjórn Dags og vildi með henni vekja athygli á því að veg- farendur færu síður en svo alltaf eftir settum reglum þegar þeir veldu bílum sínum stæði. Þessari rútu frá Hópferðabílum Reykja- víkur hafði verið lagt upp á þessa graseyju við Mýrarveg á Akur- eyri og þar var hún næturlangt aðfaranótt 13. júlí sl. Sumarleyfi Vegna sumarleyfa verða skrifstofur okkar lokaðar út júlímánuð. Lögberg hf., lögfræði- & innheimtuþjónusta. Málflutningsstofa Benedikts Ólafssonar. Fasteigna- & skipasala Norðurlands er opin eftir sem áður og er Pétur Jósefsson með fastan viðtalstíma hér á skrifstofunni frá kl. 1.15 til 5 (13.15 til 17.00) alla virka daga og á öðrum tímum eftir samkomulagi. Sakna þess að heyra ekki hvatningu Galihörð KA-kona hringdi: „Mér finnst að það gerði ekkert til þótt áhangendur KA færu nú að styðja við sína menn í staðinn fyrir að hanga einhvers staðar og þusa með sjálfum sér yfir því sem miður fer inn á vellinum. Mér finnst alltaf vanta hvatninguna. Það er einfaldlega ekki nóg að þrjár eða fjórar hræður sitji sam- an eins og við gerum og síðan er fullt af fólki í kringum okkur sem steinheldur kjafti og þusar með sjálfu sér. Á leiknum KA-Þór í bikarkeppninni heyrðist í einni stúlku og einum karlmanni kalla „áfram Þór“ og ég ásamt þrem öðrum öskruðum „áfram KA“. Svo vil ég nefna það að ef maður hvetur sína menn, þá fara nærri því um 90% gesta í stúkunni úr hálsliðnum til þess sjá hvaða fífl Blaðiö Feykir sem telur sig óháð blað á Norðurlandi vestra, neit- aði að birta Biskupsveislu á Bakkaflöt sem kom í blaðinu Degi 10. júní síöastliðinn. Nú tel ég að ritskoöun sé komin í gang hjá þeim Feykismönnum. Það gerir mér ekkert til, en ég hugsa að mörgum finnist þetta leiðinlegt fyrir ritstjórnina og rit- þetta er. Ég hef farið á nánast hvern einasta KA-leik síðan ÍBA var skipt upp og þetta hefur alltaf verið svona.“ stjórann. Að lokum sendi ég Feykis- rnönnum kveðju sem hljóðar svo: Ritskoðun er röng um flest, réttlætið hún veikir. Nú kveð ég bæði kóng og prest og kem ekki nærri „Feykir". Sauðárkróki, 2. júlí 1992, Sigfús Steindórsson. „Ritskoðun er röng um flest...“ Grasbeðja angrar íbúa Bakkahlíðar Kona í Bakkahlíð hringdi og kvartaði yfir því að bakkinn aust- an Hlíðarbrautar hefði ekki verið Brynjólfur Brynjólfsson hringdi. „Ég var að lesa frétt í Degi um að margir vegfarendur vissu ekki að hámarkshraði ökutækja með hjólhýsi eða tjaldvagn aftan í væri 70 km á klukkustund. í þessu sambandi vil ég segja að þetta er að mínu mati mjög tví- eggjað ákvæði umferðarlaga. Aðeins 70 km hámarkshraði hef- sleginn í sumar og því væri komið þar kafagras sem garðeigendur í Bakkahlíð væri hreint ekki sáttir ur einnig hættu í för með sér því hann skapar óhemju tíðan framúrakstur, sem aftur skapar mikla hættu. Ég vil benda á að flutningabílum með tengivögnum aftan í er undantekningalaust ekki ekið á 70 km hraða, enda myndi rekstur þeirra ekki ganga upp væri þeim gert að aka á þess- um hraða.“ við. Svör útivistardeildar bæjar- ins væru þau að þetta svæði væri ekki tilbúið og því væru peningar ekki handbærir. Konan sagði að ástandið væri síst betra upp með Bakkahlíðinni að sunnan en á sama tíma og allt væri á kafi í grasbeðju vestan og sunnan Bakkahlíðar væri samviskusam- lega slegið og sáð í bakkann vest- an megin Hlíðarbrautar neðan Tungusíðu. Konan taldi það skoðun margra íbúa þarna að ef bærinn gæti eytt 26 milljónum í Ráðhús- torgið, áður en holan var grafin þar, þá væri allt eins hægt að slá beggja vegna Hlíðarbrautar. Tvíeggjað ákvæði umferðarlaga Minjasafnið á Akureyri: Hugleiðing um verð aðgöngumiða Christel Emma Waltersdóttir á Akureyri hafði samband við blaðið og óskaði eftir að koma á framfæri kvörtun vegna hárrar verðlagningar aðgöngumiða að Minjasafninu á Akureyri meðan unnið væri að viðhaldi á því. Hún sagðist hafa komið þar í lok júní og verið gert að greiða 200 krón- ur (fullorðinsmiði). Fyrir þessar 200 krónur hafi einungis verið hægt að skoða hluti í tveim her- bergjum til vinstri við afgreiðsl- una og sömuleiðis rými inn til hægri. Ekki hafi verið unnt að sjá meira af safninu vegna yfirstand- andi viðgerða. Christel Emma taldi óviðeigandi að rukka inn fullan aðgangseyri meðan á við- gerðum á safninu stæði og hún bætti við að ástæða væri til að spyrja sig þeirrar spurningar af hverju staðið væri í viðgerðum á Minjasafninu þegar komið væri fram á sumar, hvort ekki væri eðlilegra að nýta dauðan tíma yfir vetrarmánuði til viðhalds, þegar fáir ferðamenn væru í bænum. Heiflaóskir tfl Akureyringa frá skiptinema frá Ghana Síðastliðið ár hefur Robert K. Kuzoe, skiptinemi frá Ghana, dvalið á íslandi. Robert hefur nú haldið heim á leið á ný og áður en hann hélt af landi brott, óskaði hann eftir að Dagur birti nokkrar línur eftir hann í kveðjuskyni: „Það yar gaman að vera á ís- landi. Ár mitt hér hefur verið erfitt en ævintýri líkast. Ég hef séð að margir hafa viljað tala við mig og kynnast mér en feimnin hefur haldið aftur af þeim. Ég hef kynnst mörgum og lært svo ótal niargt en eitt af því sent ég hef lært og er ekki mjög ánægður með er það hversu íslendingar drekka ótæpilega mikið. En samt sem áður hefur verið afar skemmtilegt og ég vilja þakka gestgjöfum mínum, Stefáni Vilhjálmssyni og Helgu Frímanns- dóttur, gistifjölskyldu minni á Akureyri og gistifjölskyldum mínum í Reykjavík og Hrísey, svo og kennara mínum Ólafi Rafni. Einnig öllum vinum sem hafa gert mér lífiö skemmtilcgt á íslandi. Heillaóskir flyt ég Akur- eyringunt og kveð með virktum." Robert K. Kuzoe. Þingeyingar Nýja skoðunarstöðin á Húsavík verður til sýnis laugardaginn 18. júlí frá kl. 15. Skemmtilhlaup barna og unglinga fer fram sama dag. Upplýsingar um hlaupið eru gefnar á skrifstofu HSÞ. Komið og skoðið fullkomna skoðunarstöð, fræðist um bifreiðaskoðun og njótið kaffiveitinga. Bifreiðaskoöun íslands hf. Lokað vegna jarðarfarar Ollum skrifstofum og afgreiðslustöðum Olíuverzlunar íslands hf. um allt land, verður lokað, fostudaginn 17. júlí nk. frá kl. 13.00 -16.00 vegna jarðarfarar * Ola Kristjáns Sigurðssonar, forstjóra félagsins. ✓ Stjórn Olíuverzlunar Islands hf. olis Þökkum innilega samúð og hlýhug við andlát og útför, HALLS JÓHANNESSONAR, Eyrarvegi 3 a, Akureyri. María Pétursdóttir og börn.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.