Dagur - 16.07.1992, Blaðsíða 15
Fimmtudagur 16. júlí 1992 - DAGUR - 15
ÍÞRÓTTIR
Samskipadeildin, Fram-Þór 0:2:
Þórsarar í gang á ný
- Bjarni Sveinbjörnsson skoraði tvö mörk í góðum sigri Þórs
Eftir freniur slakt gengi í
undanförnum leikjum geröu
Þórsarar sér lítið fyrir og lögðu
Frammara að velli í 10. umferð
1. deildar, Samskipadeildar-
innar, í gærkvöld. Bjarni
Sveinbjörnsson skoraði bæði
mörk Þórs og kom þar með liði
sínu aftur í toppbaráttuna í
deildinni.
„Dálítið heppnir en við áttum
færi,“ sagði Bjarni Sveinbjörns-
son, fyrirliði Þórs, eftir sigurleik-
inn gegn Fram í gærkvöld. „Þeir
voru aðgangsharðir í seinni hálf-
leik en við skoruðum mörkin,"
sagði Bjarni.
Leikurinn fór vel af stað í blíð-
unni í Laugardalnum og voru
heimamenn öllu harðari framan
af og fengu fyrsta færi leiksins
þegar Ríkharður Daðason skall-
aði framhjá á markteig á 6. mín-
útu. Hann var svo aftur á ferðinni
um miðbik hálfleiksins en náði
ekki að nýta sér upplagt færi.
Það voru svo Þórsarar sem
skoruðu mark á 33. mínútu.
Sveinbjörn Hákonarson var þá
fljótur að átta sig eftir að hafa
fengið aukaspyrnu, tók hana
strax og sendi á Bjarna Svein-
björnsson sem stóð aleinn fyrir
framan markið. Hann lék á Pétur
Ormslev og skoraði í markið.
Glæsilega að þessu staðið hjá
Þórsurum. Á 41. mínútu var
Hlynur Birgisson við það að
sleppa í gegn en tókst ekki að
skapa sér færi. Reyndar vildu
Þórsarar meina að brotið hefði
verið á Hlyni. Staðan í leikhléi
var 0:1
í byrjun síðari hálfleiks voru
gestirnir mun sterkari og ekkert
kom út úr dúttli Frammara með
boltann. Á 49 mínútu átti Bjarni
góða sendingu fyrir markið á
Sveinbjörn en hann skaut
framhjá. Bjarni var svo sjálfur á
ferðinni á 55. mínútu þegar hann
átti þrumuskalla í þverslá, þaðan
barst boltinn til Halldórs Áskels-
sonar sem lét Birki verja frá sér
úr ákjósanlegu færi.
Frammarar hresstust örlítið
þegar líða tók á og á 76. mínútu
skall hurð nærri hælum Þórsara
þegar Valdimar Kristófersson
átti skalla rétt framhjá marki
Þórs t'rá markteig. Halldór
Áskelsson komst einn í gegn um
vörnina á 78. mínútu og reyndi
skot úr erfiðu færi en hefði frekar
átt að senda á félaga sína úti í
teignum.
Annað ntark Þórs kom á 84.
mínútu. Þá fékk Bjarni sendingu
frá Ásmundi Arnarsyni, stakk sér
í gegn og afgreiddi bofann
snyrtilega í netið framhjá Birki
Kristinssyni markverði. Kennslu-
bókardæmi um það hvernig sókn-
armenn fara að einir á móti
markverði.
Hjá Þór voru flestir góðir en
helst mætti nefna Þá Bjarna
Sveinbjörnsson, Sveinbjörn Há-
konarson, Lárus Orra Sigurðs-
son, Hlyn Birgisson og Lárus Sig-
urðsson.
Með sigrinum í gær eru Þórsar-
ar komnir upp að hlið KR-inga
með 18 stig en Fram kemur svo
þar fyrir ofan með 19 stig og ÍA
með 21. HB/SV
Stórmenni í golfinu:
Jack Nicklaus að
Jaðri 26. júlí
Golfáhugamenn ættu að kæt-
ast um aðra helgi því þá verð-
ur golfsnillingurinn Jack
Nicklaus með sýningu á Jað-
arsvelii. Sýningin hefst 26.
júlí klukkan 16.00.
Aö sögn Gísla Braga Hjart-
arsonar hjá Golfklúbbnum
kemur Nicklaus hingað til þess
að renna fyrir fisk í góðri lax-
veiðiá og ætlar að vera með sýn-
ingu á Golfvellinum eftir veiði-
ferðina. Það þarf ekki að fara
mörgunt orðurn um hversu geysi-
legur viðburður þetta er og eng-
inn ætti að láta sýninguna
framhjá sér fara. „Ég reikna
með að hann fari hérna út á 18.
eða 9. holu og sýni alls konar
högg,“ sagði Gísli Bragi.
Einnig er reiknað með að
einn af stærstu eigendum Toyota
í Japan konii til landsins 21. júlí
og það eina sem hann vill gera
er að spila golf á Akureyri.
Jack Nicklaus er einn frægasti
golfari heims.
Golf á Jaðarsvelli:
Mitsubishi Open
- bíll fyrir holu í höggi
Mitsubishi Open golfmótið
verður haldið hjá Golfklúbbi
Akureyrar helgina 18.-19. júlí.
Mótið er eitt af stærstu mótum
ársins hjá klúbbnum og er
reiknað með að 100-120 kylf-
ingar mæti til keppni.
Keppt verður með og án for-
gjafar í kvenna-, karla- og ungl-
ingaflokki. Leiknar verða 36
holur.
Á öllum par 3 holunum verða
veitt glæsileg aukaverðlaun fyrir
að vera næst holu í upphafshöggi.
Takist einhverjum að fara „holu í
höggi“ á 18 holu, fær sá hinn sami
Mitsubishi Colt bifreið í verð-
laun.
Skráning er í síma 22974 og
henni lýkur föstudaginn 17. júlí
klukkan 18. Þátttökugjald er
2500 krónur fyrir fullorðna en
1500 fyrir unglinga. SV
Knattspyrna:
Tuðruspark yngri flokka
Heilmikið gerist í viku hverri í
knattspyrnu yngri Hokka á
Norðurlandi. Hér á eftir fara
úrslit og markaskorarar þeirra
leikja sem blaðinu hefur bor-
ist. Vert er að minna menn á
það að halda úrslitum og
markaskorurum leikja til haga
til þess að hægt sé að birta það
í blaðinu.
5. flokkur:
Völsungur-KA a-lið 2:2.
Markaskorari Völsungs var Bald-
ur Aðalsteinsson. Jóhann G.
Hermannsson skoraði mörk KA.
Völsungur-KA b-lið 4:2.
Mörk Völsungs skoruðu Krist-
björn Jónsson, 2, Ómar Þorgeirs-
son, 1 og Ellert Stefánsson, 1.
Baldur Ingvarsson og Davíð Stef-
ánsson skoruðu fyrir KA.
Völsungur-Hvöt/
Kormákur a-lið 4:0.
Baldur Aðalsteinsson gerði öll
mörkin fyrir Völsung.
Völsungur-Hvöt/
Kormákur b-lið 7:0.
Mörk Völsungs gerðu: Krist-
björn Jónsson, 3, Kristján F. Sig-
urðsson, 2, Rúnar Jónsson, 1 og
Hilmar Guðmundsson, 1.
Þór-Dalvík/Leiftur a-lið 5:2.
Mörk Þórs gerðu Jóhann Þór-
hallsson, 2, Orri Ósakarsson, 2
og Rúnar Jónsson, 1. Atli Viðar
Björnsson gerði bæði mörk Dal-
víkur/Leifturs.
Þór-Dalvík/Leiftur b-lið 3:1.
Mörk Þórs gerðu Óðinn Viðars-
son, 2 og Viðar Halldórsson, 1.
Halla Hafbergsdóttir, 1.
Tindastóll-KS a-lið 7:0.
Mörk heimamanna gerðu Atli
Heimisson, 3, Auðunn Blöndal,
3, ísak Einarsson, 1 og Eyþór
Sigurðsson, 1.
TindastóIl-KS b-lið 2:11.
Haukur Skúlason gerði mörk
Tindastóls.
4. flokkur:
Völsungur-Hvöt/
Kormákur 16:0.
Mörk Völsungs gerðu Arngrímur
Arnarson, 7, Björgvin Sigurðs-
son, 5, Dagur Sveinn Dagbjarts-
son, 2, Jörundur Þórarinsson, 1
og Jóhann G. Sigurðsson, 1.
KA-Dalvík/Leiftur 11:2.
Mörk Dalvíkur/Leifturs gerðu
Þorvaldur Guðbjörnsson og
Finnur Gunnlaugsson eitt hvor.
Tindastóll-Dalvík/
Leiftur 5:1.
Mörk Tindastóls gerðu Reynir
Hjálntarsson, 3 og Davíð Rún-
arsson, 2. Mark Dalvíkur/Leift-
urs gerði Stefán Stefánsson.
Dalvík/Leiftur-Þór 3:4.
Mörk Dalvíkur/Leifturs gerðu
Egill Ólason, 2 og Finnur Gunn-
laugson, 1. Mörk Þórs gerðu
Sigurður G. Sigurðsson, 2, Elmar
Hjaltalín, 1 og Elmar Svein-
björnsson, 1.
Tindastóll-KS 6:1.
Mörk heimamanna gerðu Davíð
Rúnarsson, 3, Rúnar Guðlaugs-
son, 1 og Víðir Kristjánsson, 2.
3. flokkur karla:
KA-Þór 4:8.
Mörk KA skoruðu Sigurgeir
Finnsson, 1, Þórhallur Hinriks-
son, 2 og Óli B. Ólafsson, 1.
Mörk Þórs gerðu Atli Samúels-
son, 4, Orri Stefárisson, 2, Eiður
Pálmason, 1 og Heiðmar Felix-
son, 1.
KA-Dalvík/Leiftur 7:2.
Mörk KA gerðu Þórhallur Hinriks-
son, 6 og Sigurgeir Finnsson, 1.
KA-Hvöt/Kormákur 6:2.
Markaskorarar KA voru Þórhall-
ur Hinriksson, 3, Guðni Helga-
son, 1 Óskar Bragason, 1 og eitt
markið var sjálfsmark.
Hvöt/Kormákur-Dalvík/
Leiftur 2:2.
Mörk gestanna gerðu Hörður
Sigurjónsson og Anton Ingvason.
KS-Dalvík/Leiftur 4:2.
Mörk KS gerðu Víðir Vernharðs-
son, 2, Bjarki Flosason, 1 og
Ragnar Hauksson, 1.
Þór-Tindastóll 7:1.
Mörk Þórs gerðu Atli Samúels-
son, 3, Gísli Gíslason, Heiðmar
Felixson, Elvar Óskarsson og
Eiður Pálmason allir með eitt
mark. Mark Tindastóls gerði
Daníel Kristjánsson.
Þór-KS 9:2.
Markaskorarar Þórs voru þeir
Orri Stefánsson, 4, Atli Samúels-
son, 2, Elmar Steindórsson, 1,
Gísli Gíslason, 1 og Heiðmar
Felixson, 1. Mörk KS gerði
Bjarki Flosason.
Þór-KS 3:1.
Mörk Þórs gerðu Atli Samúels-
son, 2 og Kristján Örnólfsson, 1.
Mark KS skoraði Bjarki Flosa-
son.
KS-Tindastóll 4:1
Mörk KS gerðu Bjarki Flosason,
3 og Agnar Sveinsson, 1. Mark
Tindastóls gerði Daníel Krist-
jánsson.
Hvöt/Korinákur-
Tindastóll 5:2.
Mörk Tindastóls gerðu Óli
Barðdal og Helgi P. Jónsson.
Dalvík-Tindastóll 3:3.
Mörk Tindastóis gerðu Hilmar
Hilmarsson, Marteinn Jónsson
og Daníel Kristjánsson.
4. flokkur kvenna:
KA-Týr 1:1.
Mark KA gerði Rósa Sigbjörns-
dóttir, 1.
KA-Haukar 2:3.
Mörk KA gerðu Stefanía Steins-
dóttir og Inga Ketilsdóttir.
KR-KA 6:2.
Mörk KA gerðu Sólveig Sigurð-
ardóttir og Eva Morales.
FH-KA 1:17.
Mörk KA gerðu Stefanía Steins-
dóttir, 4, Sólveig Sigurðardóttir,
4, Þóra Rögnvaldsdóttir, 3, Rósa
Sigbjörnsdóttir, 3, Eva Morales,
1, Rannveig Jóhannsdóttir, 1 og
Inga Ketilsdóttir, 1.
KA-Þór 10:3.
Mörk KA gerðu Rósa Sigbjörns-
dóttir, 6, Stefanía Steinsdóttir, 1,
Eva Morales, 2 og eitt sjálfs-
mark.
3. flokkur kvenna:
Völsungur-Dalvík 4:1.
Mark Dalvíkinga skoraði Inga
Lára Ólafsdóttir.
KA-Dalvík 5:1
Mörk KA skoruðu Eva Morales,
2, Rósa Sigbjörnsdóttir, 1 Helga
Hermannsdóttir, 1 og Halla Haf-
bergsdóttir, 1. Elva Bragadóttir
gerði mark Dalvíkinga.
KS-Leiftur 2:0.
Mörk KS gerðu Thelma Birkis-
dóttir og Ása Sverrisdóttir.
Dalvík-KS 1:2.
Mörk KS skoruðu Thelma Birk-
isdóttir og Hafdís Hall.
Þór-Tindastóll 0:0.
KA-Þór 5:1.
Mörk KA gerðu Rósa Sigbjörns-
dóttir, 2, Ingibjörg Ólafdóttir, 1,
Sólveig Sigurðardóttir, 1 og
Halla Hafbergsdóttir, 1.
TindastólI-KA 0:4.
Mörk KA gerðu Rósa Sigbjörns-
dóttir, 2, Eva Morales, 1 og
Helga Hermannsdóttir, 1.
2. flokkur kvenna:
KA-TindastólI 2:1.
Mörk KA skoruðu Erna Lind
Rögnvaldsdóttir ogJónína. Mark
Tindastóls gerði Sigríður Hjálm-
arsdóttir.
KA-Þór 6:0.
Mörk KA gerðu Svanhildur
Björgvinsdóttir, 1, Sigrún Krist-
jánsdóttir, 2, Helga Hannesdótt-
ir, 1, Ingibjörg H. Ólafsdóttir.