Dagur - 16.07.1992, Side 16
imie
Akureyri, fimmtudagur 16. júlí 1992
EM unglinga í bridds:
Bræður frá Siglu-
firði í íslensku
sveitínni
heimsendingarþjónusta
alladaga
Sixrxn'u.d.aga til fimmtudaga Itl. 12.00-S8.30
Föstudaga og laugardaga kl. 1S.00-04.30
Hááegistilboö alla daga
VEITINGAHUSIÐ
Glerárgötu 20 • ® 26690
Tveir bræöur frá Siglufirði eru í
unglingalandsliðinu í bridds
sem flýgur til Parísar síðdegis í
dag þar sem íslendingar keppa
á Evrópumóti unglinga í
bridds. Evrópumótið hefst á
morgun og stendur í tíu daga en
þjóðirnar sem taka þátt í mót-
inu eru um tuttugu talsins.
f landsliði íslands, 25 ára og
yngri, eru sex piltar. Tveir þeirra,
bræðurnir Ólafur og Steinar Jóns-
synir, búa á Siglufirði en þeir spil-
uðu á Evrópumóti unglinga fyrir
tveimur árum og höfðu áður tekið
þátt í Norðurlandamóti sem hald-
ið var á Hrafnagili í Eyjafirði fyrir
nokkrum árum. Ólafur er 21 árs
og Steinar er á tuttugasta aldurs-
ári en þeir hafa spilað bridds í tæp
tíu ár.
„Þetta leggst bara vel í mig,“
sagði Ólafur Jónsson þegar Dagur
náði tali af honum í vinnunni í gær
en þeir bræðurnir unnu fram á
síðasta dag en fóru suður í
morgun. Síðdegis í dag flýgur allt
landsliðið til Parísar þar sem Evr-
ópumótið verður haldið. Mótið
var flutt til Parísar vegna óróleika
í Austur-Evrópu.
Með landsliðinu í förtil Parísar
verður Björn Eysteinsson lands-
liðseinvaldur sem leiddi heims-
meistara íslands til sigurs í Yoko-
hama í vetur. Undanfarið hefur
unglingalandsliðið æft undir
stjórn Sævars Þorbjörnssonar en
Ólafur og Steinar hafa aðeins tek-
ið þátt í einni æfingu vegna fjar-
lægðar frá höfuðborginni.
Annað kvöld hefst Evrópumót-
ið og munu pörin þrjú, sem ís-
lensku piltarnir sex mynda, spila
til skiptis þannig að eitt par hvílir
meðan tvö spila. „Það verða eng-
in afrek unnin í París; ég held að
það sé gott að vera á meðal þeirra
tíu bestu," sagði Ólafur um vænt-
anlegan árangur íslenska lands-
liðsins en fyrir tveimur árum varð
íslenska sveitin í níunda sæti á
Evrópumótinusemþóttigott. GT
Sundlaugarverðir geta brátt fylgst með lauginni frá einum skjá og þannig
tryggt öryggi án þess að þurfa að ganga um laugina í alls konar veðri. Mynd: gt
Sundlaug Akureyrar:
Betur sjá augu en auga
- fimm myndavélar væntanlegar
til að auka öryggi sundgesta
Ætlunin er að koma upp fímm
myndavélum við Sundlaug
Akureyrar til að auka öryggi
sundlaugargesta án þess að
fjölga þurfi starfsfólki. Ef
bæjaryfirvöld samþykkja ný-
mælið verða fjórar myndavélar
staðsettar í kýraugum í veggj-
um sundlaugarinnar undir
vatnsyfirborði og ein verður
yfir heitu pottunum.
Að sögn Sigurðar Guðmunds-
sonar, nýráðins sundlaugarstjóra
við Sundlaug Akureyrar, er von-
ast til að hægt verði að koma upp
myndavélunum fyrir haustið þeg-
ar skólabörn fara að mæta í
skyldusund en sem dæmi má
nefna að slíkar myndavélar eru
yfir heitu pottunum í Sundhöll
Reykjavíkur.
Myndavélarnar gera einum
sundlaugarverði kleift að fylgjast
með öllum botni sundlaugarinnar
á einum sjónvarpsskjá inni í her-
bergi sundlaugarvarðar. Reynsla
erlendis og hérlendis sýnir að slys
verða oft þegar sundmenn sökkva
niður á sundlaugarbotn án þess að
sundlaugarverðir verði þess varir.
Sundlaug Akureyrar er 33
metra löng og er erfitt fyrir sund-
laugarverði að fylgjast með allri
Skiltastríð á Akureyri í skjóli reglugerðarskorts:
Hörð samkeppni Hagkaupa og KEA
- auglýsingaskilti sett upp og ijarlægð á víxl
Svokallað skiltastríð hefur
blossað upp á Akureyri. Þunga-
miðja þess tengist harðri sam-
keppni milli Hagkaupa og
KEA Nettó þar sem auglýs-
ingaskilti hafa verið sett upp
Lóðin að Skipagötu 9:
Byggingarfrestur fram-
lengdur til 1. ágúst
Bygginganefnd Akureyrar
samþykkti á fundi sínum í síð-
asta mánuði að veita A. Finns-
syni hf. framlengingu á bygg-
ingarfresti á lóðinni nr. 9 við
Skipagötu til 1. ágúst nk.
Þegar lóðin var veitt í fyrra var
VEÐRIÐ
Yfir landinu er dálítill hæð-
arhryggur en langt suðvest-
ur í hafi er 985 millibara
lægð sem hreyfist austnorð-
austur. Veður fer hlýnandi.
Á Norðurlandi verður hæg-
viðri í dag, skýjað og þoku-
bakkar á miðum en víðast
léttskýjað til landsins.
byggingarfrestur veittur til 1. júlí
sl. Heimir Ingimarsson, formað-
ur bygginganefndar, segir að sér
finnist líklegt að lóðin verði aug-
lýst að nýju og veitt öðrum aðila
ef framkvæmdir verði ekki hafn-
ar 1. ágúst. „Ég sé ekki að við
getum staðið árum saman með
lóð í uppnámi í miðbænum sem
aðrir hafa áhuga að byggja á,“
sagði Heimir.
Hann benti jafnframt á að við
endurskoðun fjárhagsáætlunar
Akureyrarbæjar hefði verið gert
ráð fyrir 8 milljón kr. lægri tekj-
um af byggingaleyfisgjöldum þar
sem ekki hefði verið farið af stað
með byggingar sem reiknað var
með. „Þetta er tekjustofn fyrir
bæinn og við getum ekki afsalað
okkur honum,“ sagði Heimir.
JHB
og rifin niður á víxl en málið er
þó víðtækara og nær yfir hlið-
stæð skilti sem ýmsir aðilar
hafa sett upp í bænum í skjóli
þess að engar reglur eru til þar
að lútandi. Bæjaryfirvöld sjá
nú sitt óvænna og hafa bætt
bæjarlögmanni í nefnd sem
skipuð var fyrir einu ári til að
búa til reglur um uppsetningu
auglýsingaskilta.
Þar sem engar reglur eru til
hefur bygginganefnd reynst erfitt
að framfylgja boðum og bönnum
í þessu efni. Fjölmargir aðilar
hafa því sett upp auglýsingaskilti
hér og þar í bænum og ekki virð-
ist hafa orðið fjaðrafok út af því
fyrr en Nettó-verslun KEA var
opnuð að Óseyri, ekki langt frá
verslun Hagkaupa.
Verðstríð hefur staðið milli
KEA Nettó og Hagkaupa og það
þróaðist brátt út í skiltastríð.
Forsvarsmenn Hagkaupa á Ak-
ureyri sóttu um leyfi til bygginga-
nefndar til að setja upp skilti en
beiðninni var hafnað. Samt risu
auglýsingaskiltin. KEA sótti
einnig um leyfi og fékk synjun og
þar ætla menn að fara sömu leið.
Fjör færðist í leikinn þegar skilti
frá Hagkaupum reis við inn-
keyrsluna að KEA Nettó. Skiltið
var sett upp og fjarlægt á víxl og
liggur nú bak við Nettó-verslun-
ina.
Ellert Gunnsteinsson, aðstoð-
arverslunarstjóri Hagkaupa á
Akureyri, sagði að flestum væri
ljóst að mikil samkeppni ríkti á
milli fyrrnefndra verslana. Hins
vegar hefðu Hagkaup barist í því
síðan 1989 að fá leyfi fyrir auglýs-
ingaskiltum en látið kyrrt liggja
þar til nú. Ellert kvaðst fagna því
að bæjaryfirvöld hefðu loks tekið
við sér eftir að skilti Hagkaupa
voru sett upp og að nú ætti að
setja kraft í það að búa til reglur.
Hannes Karlsson, deildarstjóri
Matvörudeildar KEA, átelur
vinnubrögð bygginganefndar og
segir að KEA muni fara sömu
leið og Hagkaup og setja upp
skilti þrátt fyrir synjun frá nefnd-
inni.
„Þarna er verið að hafna
beiðni á cinhverjum forsendum
sem duga síðan ekki til neins eftir
að menn hafa brotið af sér. Mað-
ur getur rétt ímyndað sér hvað
þetta væri fáránlegt ef um væri að
ræða byggingar eða eitthvað ann-
að en skilti. Við sjáum okkur til-
neydda til að brjóta þessa sam-
þykkt fyrst henni er ekki fram-
fylgt gagnvart öðrum,“ sagði
Hannes.
Hann staðfesti að Kaupfélags-
menn hefðu rifið niður skilti
Hagkaupa við innkeyrsluna að
Nettó og sagði að þetta væri
komið út í algjöra vitleysu.
Það er því ljóst að skiltastríð
mun geisa á Akureyri þar til regl-
ur verða settar, en nefndinni er
ætlað að leggja reglur fyrir bygg-
inganefnd fyrir 1. september. SS
lauginni ofan og neðan vatns-
borðs því á hverju augnabliki get-
ur einhver sundlaugargestur verið
í hættu ef hann sundlar og enginn
er nærri sem gerir verði viðvart.
Að sögn Sigurðar verður ein
myndavél væntanlega yfir heitu
pottunum þar sem æ algengara
verður að hjartaveilir menn ofgeri
sér í hita leiksins og enginn sé í
pottinum til aðstoðar.
Sigurður segir að ódýrara sé að
koma upp nokkrum myndavélum
og skjá en að fjölga starfsfólki til
að tryggja öryggi sundlaugargesta
því fjárfestingin sé fljót að borga
sig upp. Því má búast við að vak-
andi auga sé haft með öryggi í allri
sundlauginni óháð veðri og
vindum. GT
Háskóli íslands:
Ágæt útkoma
nemenda frá
Akureyri og
Sauðárkróki
„Þetta eru ágæt tíðindi fyrir
skólann, en hins vegar tel ég
að beri að taka slíkum könnun-
um með fyrirvara. Út af fyrir
sig tel ég það ekki nein sérstök
tíðindi að menntaskólarnir
komi betur út en verkmennta-
skólarnir. Menntaskólarnir eru
sérskólar gagngert til þess að
undirbúa nemendur undir há-
skólanám,“ sagði Valdimar
Gunnarsson, aðstoðarskóla-
meistari Menntaskólans á
Akureyri um könnun sem gerð
hefur verið í Háskóla íslands
um námsárangur nemenda á
fyrsta ári í Háskólanum.
{ DV í gær er vitnað til þessar-
ar könnunar, sem Friðrik H.
Jónsson og Guðmundur B. Arn-
kelsson gerðu á námsárangri
nemenda í HÍ eftir eitt ár. Þar
kemur fram að meðaleinkunn
stúdenta frá MA sé hæst, 6,9, og
í öðru sæti komi stúdentar frá
Menntaskólanum í Reykjavík.
Guðmundur B. Arnkelsson
vildi í gær ekki ræða niðurstöðu
þessarar könnunar, sem var gerð
fyrir kennslusvið Háskóla ís-
lands, vegna þess að úrvinnslu
hennar væri ekki lokið. Of snemmt
væri því að fjalla um könnunina
opinberlega. Ekki náðist í Þórð
Kristinsson, forstöðumann
kennslusviðs HÍ í gær.
í áðurvitnaðri frétt DV er þess
hvorki getið hversu margir hafi
verið í úrtaki né hvenær og
hvernig könnunin hafi verið
unnin.
Samkvæmt frétt blaðsins fær
Fjölbrautaskólinn á Sauðárkróki
bestu útkomu fjölbrautaskóla í
landinu. Nemendur frá honum
voru með 6,3 í meðaleinkunn,
sem er sama meðaleinkunn og
nemendur Menntaskólans í
Hamrahlíð hlutu. Fyrsta árs
nemar í HÍ útskrifaðir frá Verk-
menntaskólanum á Akureyri
fengu samkvæmt könnuninni 5,8
í meðaleinkunn. óþh